Morgunblaðið - 22.11.2001, Page 26
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞINGKOSNINGARNAR í Dan-
mörku á þriðjudag ollu sögulegum
umskiptum, jafnaðarmenn misstu
stjórnarforystuna og eru ekki lengur
stærsti flokkur landsins. Poul Nyrup
Rasmussen forsætisráðherra gekk á
fund Margrétar drottningar strax í
gær og baðst lausnar en hann mun
gegna embættinu þar til ný stjórn
hefur verið mynduð. Í fyrsta skipti
frá 1929 eru borgaralegir flokkar
með meirihluta á þjóðþinginu og þeir
vilja að Anders Fogh Rasmussen,
leiðtogi hægri-miðflokksins Venstre,
taki nú við stjórnartaumunum.
Venstre er nú langöflugastur borg-
araflokkanna og nokkru stærri en
jafnaðarmenn sem ekki hefur gerst
síðan 1920, að sögn Jyllandsposten.
Kjörsókn í þingkosningunum var
nær 90 af hundraði. Venstre fékk
rúmlega 31% atkvæða. Jafnaðar-
menn hlutu innan við 30% og mega
muna sinn fífil fegri, minni hefur
stuðningurinn ekki verið síðan 1988.
Endanlegar niðurstöður kosning-
anna lágu ekki fyrir í gær en ljóst
þótti að Venstre fengi 56 þingsæti,
jafnaðarmenn 52, Danski þjóðar-
flokkurinn (DF) 22 sæti, Íhaldsflokk-
urinn 16, Sósíalíski þjóðarflokkurinn
12 og Radikale Venstre 9. Aðrir
flokkar sem komu að manni voru
Kristilegi þjóðarflokkurinn og Ein-
ingarflokkurinn með fjögur sæti hvor
og þar að auki sitja á þinginu tveir
færeyskir þingmenn og tveir græn-
lenskir. Miðdemókratar sem taldir
voru líklegir til að fá ráðherraemb-
ætti í samsteypustjórn ef Fogh
Rasmussen reyndi að koma saman
minnihlutastjórn án DF féllu af þingi
en stjórnmálaflokkur þarf að fá
minnst 2% atkvæða á landsvísu til að
koma að manni.
Kosið var einnig til sveitarstjórna
og misstu jafnaðarmenn mikið fylgi í
Kaupmannahöfn og fleiri borgum.
Fengu þeir sennilega innan við 33%
atkvæða í höfuðborginni. Líklegt
þótti samt að jafnaðarmaðurinn Jens
Kramer Mikkelsen yfirborgarstjóri
héldi embætti sínu. Í Árósum, næst-
stærstu borg Danmerkur, unnu Ven-
stre-menn mjög á og þar mun 29 ára
gömul kona, Louise Gade, verða
borgarstjóri, embættið var áður í
höndum jafnaðarmanns. Yfirleitt
hefur Venstre haft sín traustustu vígi
í dreifbýlinu og meðal bænda en sótti
nú mjög á í borgunum.
Sætur sigur Venstre
Venstre hefur ásamt íhaldsmönn-
um og DF hreinan þingmeirihluta, 94
sæti. Sigur Venstre var ekki síst sæt-
ur vegna þess að skömmu fyrir síð-
ustu kosningar 1998 bentu kannanir
lengst af til þess að flokkurinn, sem
þá var undir forystu hins þekkta Uffe
Ellemann-Jensen, myndi ná þessum
áfanga og hrifsa til sín stjórnarfor-
ystuna.
Þótt tíðindin séu söguleg er ekki
víst að landsmenn verði varir við
miklar breytingar þar sem stefnu-
munur er lítill milli helstu flokka.
Skömmu fyrir kosningar reyndu
jafnaðarmenn að biðla til miðjunnar
með því að lofa skattalækkunum eins
og Íhaldsflokkurinn en þess má geta
að Venstre hefur tekið aðra stefnu,
flokkurinn boðar að látið verði nægja
að hækka ekki skattana. Þótt deilt sé
um áherslur í velferðarmálum og
hugmyndir séu meðal Venstre og víð-
ar í borgaraflokkunum um aukna
einkavæðingu er ekki talið líklegt að
á því sviði verði mikið um tilrauna-
starfsemi. Kosningasérfræðingar
flokkanna álíta að almenningur sé
sáttur við kerfið, helst hefur tekist að
róta upp í tilfinningunum með um-
ræðum um innflytjendur og múslíma.
Þrátt fyrir deilurnar um innflytj-
endur gerðist það í fyrsta sinn að
sonur innflytjanda frá arabalandi var
kjörinn á þing. Naser Khader, sem er
ættaður frá Sýrlandi, var í framboði
fyrir Radikale Venstre í Kaup-
mannahöfn. Hann leggur áherslu á
að hann sé danskur stjórnmálamaður
en ekki fulltrúi innflytjenda sem
hann hefur gagnrýnt fyrir að laga sig
ekki að samfélaginu. Khader er 38
ára gamall, verkfræðimenntaður og
dönskukunnáttan svo góð að hann
fékk móðurmálsverðlaun Dana í
fyrra.
Fogh á tvo kosti
Ekki er víst að það verði létt verk
fyrir Venstre að koma saman stjórn.
Danskir stjórnmálaskýrendur segja
að Fogh eigi nú tvo möguleika í stöð-
unni. Annaðhvort leiti hann samn-
inga við jafnaðarmenn um að fá
stuðning þeirra í ákveðnum málum
við minnihlutastjórn Venstre og eins
eða fleiri flokka eða myndi meiri-
hlutastjórn hægriflokka með íhalds-
mönnum og Danska þjóðarflokknum
sem Pia Kjærsgaard stýrir. Flokk-
urinn vann mikinn sigur í kosning-
unum og er nú þriðji stærsti flokk-
urinn á þingi, öflugri en
Íhaldsflokkurinn. Hann krefst nú
áhrifa í samræmi við þingstyrkinn.
„Nú erum það við sem ákveðum
hverjir verða í ríkisstjórn,“ sagði
Kjærsgaard kampakát á blaða-
mannafundi í gær. Flokkur hennar
mælti með því við drottninguna að
Fogh fengi umboð til að leiða stjórn-
armyndunarviðræður en Kjærs-
gaard vísaði því á bug að Venstre
myndi komast upp með að mynda
minnihlutastjórn nokkurra mið- og
hægriflokka með samkomulagi um
málefnastuðning við aðra flokka en
DF yrði áhrifalaust á jaðrinum. „Við
vitum vel af hverju við fengum at-
kvæði. Nú verður að herða innflytj-
endalöggjöfina eins og boðað var,“
sagði Kjærsgaard. Ekki dygði að
gera smávægilegar breytingar held-
ur yrðu þær að vera róttækar.
Fogh Rasmussen hefur áður sagt
að ekki komi til mála að DF fái ráð-
herraembætti í stjórn með Venstre.
En hann getur skipt um skoðun og
vísað til vilja kjósenda sem í könn-
unum sýnir aukinn stuðning við að
reglur um flóttamenn og innflytjend-
ur verði hertar og jafnvel að komið
verði í veg fyrir að fleiri fái landvist.
Jafnaðarmenn og Radikale Venstre,
sem er frjálslyndur borgaraflokkur,
mæltu einnig með að breytingar yrðu
gerðar á reglunum þótt þeir gengju
ekki jafnlangt í þeim efnum og
Venstre og íhaldsmenn, hvað þá DF.
Hefð fyrir minnihluta-
stjórnum í Danmörku
Hefð er fyrir því að minnihluta-
stjórnir án fastra stuðningsflokka
séu við völd í Danmörku og því langt
frá því gefið að Venstre velji þann
kost að tryggja DF þann virðuleika-
stimpil sem fylgir stjórnarþátttöku.
Fogh Rasmussen gæti rifjað upp að
DF varð til með klofningi úr Fram-
faraflokki Mogens Glistrups er stofn-
aði flokk til að andmæla skattpíningu
á áttunda áratugnum, flokk um eitt
mál. Framfaraflokkurinn datt að
þessu sinni út af þingi og flokkur
Kjærsgaard hefur fyrst og fremst
laðað til sín fylgi með því að krefjast
breytinga á löggjöf um flóttamenn og
innflytjendur. Áhugi kjósenda gæti
minnkað ef flokknum yrði ævinlega
haldið utan stjórnar. Berlingske Tid-
ende ráðlagði Fogh Rasmussen í gær
að mynda minnihlutastjórn og leita
meirihluta í hverju máli fyrir sig. Um
leið var Marianne Jelved, leiðtogi
Radikale Venstre, hvött til að skipta
um skoðun, sýna raunsæi og gefa
kost á stjórnarsetu með Venstre og
Íhaldsflokknum. Sem merkir að DF
verður úti í kuldanum.
Óskin um nýtt andlit
Poul Nyrup Rasmussen er mikill
baráttujaxl og hafði sigur 1998 þrátt
fyrir slæmar tölur í könnunum. En
hann varð þó að styðjast við ótryggan
meirihluta og gera málamiðlanir við
borgaraflokkana í ýmsum málum þar
sem sósíalístaflokkarnir tveir áttu
ekki samleið með stjórnarflokkunum,
jafnaðarmönnum og Radikale
Venstre. Nyrup er nú 58 ára gamall
og hefur verið við völd óslitið frá því í
janúar 1993 er stjórn undir forystu
Íhaldsflokksins varð að hrökklast frá
vegna svonefnds tamílamáls.
Hann var hrærður og felldi tár er
hann viðurkenndi ósigurinn en sagð-
ist alls ekki ætla að hætta sem leið-
togi. Fljótlega mun koma í ljós hvort
jafnaðarmenn álíta að kjósendur hafi
meðal annars verið að lýsa yfir
þreytu og hafi viljað nýtt andlit. Lík-
legur arftaki er Frank Jensen dóms-
málaráðherra sem hefur tekið undir
með þeim sem segja að þörf sé á
mannabreytingum í forystunni. Við-
vörunin er kurteisleg en skýr.
Ekki getur það verið efnahagurinn
sem veldur sinnaskiptunum vegna
þess að hann er blómlegur. Stjórn-
málaskýrendur benda á að margir
tryggir kjósendur jafnaðarmanna úr
verkamannastétt hafi svikið lit að
þessu sinni vegna óánægju með inn-
flytjendamálin, þeir vilji draga úr
innflutningi og hneykslist sumir á
meintri misnotkun útlendinga á vel-
ferðarkerfinu. Margir stuðnings-
menn DF hafa áður kosið jafnaðar-
menn. Nyrup reyndi að koma til móts
við óánægjuna með því að leggja
fram tillögur um strangari reglur og
hömlur á innflutning fólks frá öðrum
löndum. Loks saka jafnaðarmenn
Fogh Rasmussen um að hafa síðustu
vikurnar fært stefnu sína svo nálægt
aðalandstæðingnum að almenningur
hafi varla greint mun lengur á þeim
og jafnaðarmönnum og því talið
óhætt að skipta um „kallinn í
brúnni“. Ljóst er að margir jafnaðar-
menn á hægri væng flokksins kusu
nú Venstre.
Nyrup tók áhættu er hann boðaði
til kosninga áður en kjörtímabilið
rann út. Hann reyndi að notfæra sér
óvissuástandið í heimsmálum til þess
að tryggja sér völdin áfram en inn-
flytjendamálin og leiði vegna þaul-
setu Nyrups virðist hafa riðið bagga-
muninn, tími umskipta var
einfaldlega runninn upp.
Níu ára
stjórnarfor-
ystu Nyrups
er lokið
Kjærsgaard segir að Venstre geti
ekki stjórnað án samráðs við sig
Reuters
Poul Nyrup Rasmussen var heldur stúrinn á svip þegar hann óskaði Anders Fogh Rasmussen til hamingju með
sigurinn að afloknum samræðum þeirra í sjónvarpinu á kosningakvöld.
!"#$%$" "
#%
&'"() '*$+
)$,- $%$$
.$!$"#'"$"%
'
$
)*
+
,-+-.../ -0122%
,3.)
#* #3#!
/
456! #
67 55
’ Þótt tíðindin séusöguleg er ekki víst
að landsmenn verði
varir við miklar
breytingar. ‘