Morgunblaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 44
MINNINGAR 44 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Hildir MaríusGuðmundsson fæddist á Seyðisfirði 9. september 1924. Hann lézt á Land- spítalanum aðfara- nótt 12. nóvember síðastliðins. Foreldrar hans voru Guðmundur Bjarnason, f. 9. júlí 1889, d. 7.8. 1959, og Ingibjörg Ólafsdótt- ir, f. 18.5. 1891, d. 2.11. 1979. Systkini Hildis voru Rebekka, f. 6.5. 1911, d. 18.10. 1987, Haukur, f. 24.6. 1930, d. 3.6. 1974, og Soffía, f. 3.7. 1913, en hún er búsett á Seyðisfirði. Hinn 20. október 1946 kvæntist Hildir eiginkonu sinni Vilhelmínu Ragnheiði Björnsdóttur, f. 26.9. 1916, d. 24.12. 1997. Foreldrar hennar voru Hólmfríður Benediktsdóttir og Björn Magnússon, bóndi á Þor- bergsstöðum í Dölum. Hildir og Ragna bjuggu fyrstu bú- skaparár sín í Reykjavík en fluttu 1957 í Gerðar í Garði þar sem þau bjuggu til æviloka. Börn þeirra urðu þrjú. Þau eru Hólm- fríður Birna, f. 12.9. 1946, gift Gunnari Gunnlaugssyni, börn þeirra eru fjögur, Ragnhildur, Ólöf Hanna, Hildur María og Gunnar Freyr; Guðmundur Ingi, f. 20.3. 1948, hann á tvær dætur, Magneu og Ragnheiði Maríu, með fyrrv. eiginkonu sinni Bjarnhildi Lárusdóttur; og Dagný Hrönn, f. 11.5. 1955, gift Arnóri G. Ragnarssyni og eiga þau eina dóttur, Birtu Rós. Barnabarna- börn Hildis og Rögnu eru fimm. Útför Hildis fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hann Hilli tengdafaðir minn er látinn. Ég man vel okkar fyrstu kynni í kjallaranum hjá tengdamóð- ur hans Hólmfríði. Í fyrstu tók hann mér með nokkr- um fyrirvara, enda ekkert nógu gott fyrir dóttur hans, en fljótlega varð okkur mjög vel til vina. Við höfðum svipuð áhugamál og atvinnu sem voru fiskveiðar og sjósókn. Trúmennska, heiðarleiki, rökfesta og tilfinningahiti voru ríkir þættir í fari hans, hann hafði alla tíð ákveðnar pólitískar skoðanir, sjálf- stæðismaður fram í fingurgóma og var oft gaman að ræða við hann um þjóðmálin. Fróður var hann með eindæmum og vel lesinn og var þá sama hvort það var Biblían, Íslend- ingasögurnar, landafræði eða eitt- hvað annað, maður kom aldrei að tómum kofunum þar. Söngelskur var hann með afbrigðum og hrókur alls fagnaðar í fjölskyldu- og vina- hópi. Við ferðuðumst fjölskyldan sam- an um Evrópu og kunni hann þá skil á borgum og bæjum og þekkti sög- una flestum betur. Einnig fórum við í eftirminnilegar laxveiðiferðir. Sýndi það vel áhuga hans á laxveið- um að nú í sumar fór hann fársjúkur norður í Laxá í Aðaldal með Inga syni sínum og var það meira af vilja en mætti, en þangað hafði hann far- ið í áraraðir. Jólaboðin úti í Garði hjá Rögnu og Hilla voru fastir liðir og mikið til- hlökkunarefni hjá allri fjölskyld- unni, jafnt stórum sem smáum, og varð allt að vera eins ár eftir ár, nema stólunum fjölgaði jafnt og þétt. Eftir að Ragna lést fyrir tæp- um fjórum árum færðust jólaboðin til okkar, en Hilli vildi áfram kaupa hangikjötið, sviðin og allt meðlætið og minnti Lillu sína á hvernig mamma hennar hafði soðið þetta og borið fram. Eftir situr minning um góðan og traustan vin. Gunnar. Tengdafaðir minn, Hildir Guð- mundsson, er látinn eftir langa bar- áttu við hjartasjúkdóm. Hann var fæddur og uppalinn á Seyðisfirði og til að gera langa sögu stutta má segja að hann hafi kvatt heimahag- ana skömmu fyrir tvítugt og haldið til höfuðborgarinnar með viðkomu í Dölunum þar sem hann náði sér í konu, Ragnheiði Björnsdóttur frá Þorbergsstöðum. Hilli og Ragna bjuggu í Reykjavík í um áratug og eignuðust 3 börn, Hólmfríði Birnu, Guðmund Inga og Dagnýju Hrönn. Árið 1957 fluttu þau svo í elzta íbúð- arhúsið í bænum Gerðum í Garði og þar bjuggu þau til æviloka. Leiðir okkar Hilla lágu saman þá er ég gerði hosur mínar grænar fyr- ir yngri dótturinni um miðjan sjö- unda áratuginn. Ég kunni vel við mig í návist þeirra hjóna enda var ég fljótlega samþykktur inn í fjöl- skylduna. Við hjónin bjuggum í Kópavogi og svo fór að við tókum okkur upp og fluttum í Garðinn, fyrst á Melbraut en 1984 færðum við okkur um set í Norður-Gerðar sem er steinsnar frá gamla Gerða- húsinu. Okkur hjónum leið vel í sambýlinu í Gerðahverfinu. Dóttir okkar, Birta Rós, sótti stíft til afa og ömmu enda naut hún þar bestu umönnunar og tilsagnar sem hægt var að fá. Ég man að það kom fyrir að síminn hringdi heima síðdegis og dóttirin spurði hvað væri í matinn. Þá var búið að bjóða henni í mat oft- ar sem áður en það var vissara að athuga fyrst hvað væri á matseðl- inum heima og velja svo. Hilli sótti lifibrauð sitt í sjóinn. Hann byrjaði ungur að róa með föð- ur sínum, rak eigin útgerð í nokkur ár, var í áratug á Jóni Finnssyni með Gísla Jóhannessyni, en lengst af eða tæpa þrjá áratugi á Hólm- steini GK þar sem hann reri sem stýrimaður með sínum kæra vini Júlíusi Guðmundssyni eða Júlla í Smáraflöt. Það var ósjaldan sem við nutum góðs af þá er þeir félagar komu í land bæði með fisk og fugl. Margs er að minnast í samskipt- um okkar Hilla. Við tókumst oft á í pólitíkinni og heimsmálunum og oft- ar en ekki varð ég að játa mig sigr- aðan. Maðurinn var ekki langskóla- genginn en þekking hans á mönnum, málefnum og heimsbyggð- inni allri var hreint ótrúleg. Hann var mikill sjálfstæðismaður og það kom mér mjög til tekna þá er ég kom inn í fjölskylduna að ég vann hjá Morgunblaðinu. Mogginn var hans blað og reyndar eina blaðið sem hægt var að treysta og lesa. Veiðiferðirnar sitja hvað dýpst í minningunni. Hilli var mikill sport- veiðimaður og hafði víða komið. Helztu veiðifélagar hans voru Hjálmar á Nýjalandi og Ásmundur Böðvarsson en hin síðari ár fórum við saman. Hann kenndi mér hand- bragðið og smitaði mig af veiðibakt- eríunni og ég held að hann hafi verið orðið nokkuð ánægður með nemann í lokin. Við veiddum alltaf vel þ.e. ef einhvern fisk var að hafa. Þetta voru skemmtilegar ferðir. Oftar en ekki var haldið í Borgarfjörðinn með við- komu í Ferstiklu þar sem annað- hvort voru borðaðar kótelettur eða beikon. Flókadalsá og Reykjadalsá voru í uppáhaldi og ein ferðin í hina síðarnefndu stendur upp úr hvað veiðina varðar en við fengum 17 laxa eina morgunstund en mig minnir að heildarveiðin allt sumarið hafi verið 70 laxar. Ég kveð nú Hildi Guðmundsson, tengdaföður minn, traustan félaga í hálfan fjórða áratug. Það er vanda- samt að búa í nábýli við foreldra og tengdaforeldra en aldrei varð ég var við afskiptasemi af þeirra hálfu. Sambúðin í Gerðum var óaðfinnan- leg. Guð geymi þig og þína, Arnór Ragnarsson. Elsku afi, nú ertu kominn til ömmu, nú líður þér bara vel. Það er bara svo sárt að kveðja, þú varst bú- inn að vera svo veikur má segja í 4 ár eða allt frá því að amma dó. Það var gott að þú þurftir ekki að kvelj- ast, þú sofnaðir bara og ég veit að þannig hefðir þú viljað hafa það. Eftir sitja allar yndislegu og góðu minningarnar. Við Ragnhildur syst- ir á leiðinni með rútunni úr Reykja- vík, litlar stelpur að koma í heim- sókn til ykkar ömmu í Garðinum. Þú að bíða eftir okkur hjá sjoppunni, við að skauta á stóra túninu fyrir framan húsið ykkar, fjöruferðirnar með afa og auðvitað að hjálpa afa að tína bestu kartöflur úr kartöflugarð- inum þínum, þessu öllu fengum við að taka þátt í. Eftir að við urðum að- eins eldri fórum við með ykkur í úti- legur og veiðiferðir, sem voru líf þitt og yndi, þú varst svo mikill veiði- maður. Það var alltaf svo gaman að spjalla við þig, þú vissir svo mikið og hafðir skoðanir á öllu svo stundum fannst manni einum of. En þó svo röddin færi upp úr öllu valdi þá varst þú ekki reiður heldur lá þér bara svo hátt rómur. Þú varst svo réttsýnn á lífið og tilveruna og ótrú- lega ungur í anda. Elsku afi, missirinn var mikill þegar amma dó, og æði oft þurftir þú að fara á hjartadeildina, stelp- urnar þar hugsuðu svo vel um þig. Þú vildir alltaf láta sem minnst fyrir þér fara og varst meira að hugsa um að blessaðar stelpurnar hefðu nú nóg á sinni könnu og þú ónáðaðir þær ekki nema af algjörri nauðsyn. Ragna Birna skilur að þú sért kom- in til Guðs og englanna og langamma passar þig sagði hún mér. Við mæðgurnar komum svo oft til þín á spítalann og þér fannst svo gaman að sjá Rögnu Birnu og pass- aðir þig á því að eiga alltaf til gott í skúffunni handa henni. Og það sem meira er, þú maðurinn kominn á átt- ræðisaldurinn varst að kaupa á hana kjóla og ýmislegt sem þú valdir sjálfur. Það var svo smekklega valið hjá þér og svo passaðir þú líka alltaf að rétta merkið væri á flíkinni. Svona varstu, alltaf svo flottur til fara og reffilegur. Elsku afi ég trúi því að amma hafi komið og náð í þig, hvorki hún né við öll gátum horft upp á þig kveljast. Það verður mikið tómarúm hjá okkur þegar þú ert farinn en við þökkum fyrir allt sem þú gafst okkur á lífsleiðinni. Minn- ingarnar munu lifa og ylja okkur um ókomna tíð. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Hvíl í friði elsku afi. Þínar Ólöf Hanna og Ragnhildur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þegar ég sit hérna og hugsa um afa dettur mér þessi bæn í hug. Afi var mjög trúaður maður og las hann alltaf í Biblíunni og fór með bænir áður en hann fór að sofa. Ég man þegar ég var lítil stelpa og fékk að sofa hjá ömmu og afa, þá lágum við amma uppi í rúmi og hlustuðum á hann lesa. Svo þegar kom að bæn- unum í restina þuldum við amma með. Og alltaf að lokum var farið með Faðirvorið. Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja um afa. Það er af svo mörgu að taka. Mér er minnisstætt hvað hann afi var gáfaður. Og þá ekki bara af því að hann var afi minn, heldur bara almennt. Það var alveg sama að hverju ég spurði hann, alltaf hafði afi svar á reiðum höndum. Og svo var hann svo ætt- fróður. Það var alltaf gaman þegar ég var að segja honum frá fólki sem ég þekkti. Hann spurði alltaf: „Hverra manna er hún eða hann?“ Og svo þegar hann fékk að vita nöfn foreldra viðkomandi gat hann rakið sögu þeirra langt aftur í ættir. Þeg- ar ég kynntist Ágústi mínum, og var að segja afa frá honum, þekkti hann þá þegar alla í fjölskyldunni hans og vissi allt um hagi þeirra. Afa þótti mjög vænt um Ágúst Pál. Bæði er hann bindindismaður og skáti og ekki spillti fyrir að þeir áttu sama afmælisdag. Alltaf hringdu þeir hvor í annan á afmæl- isdaginn og skiptust á kveðjum á þessum góða degi. Eins og flestir vita sem þekktu afa minn þótti honum afar gaman að syngja. Hann var mikill og góður bassi. Við sungum mikið saman, al- veg fram á síðasta dag. Þótti afa gaman að því að þegar hann söng bassann og ég átti að syngja laglín- una þá var ég farin að syngja bass- ann líka. Það sem hann hló að mér. Við sungum mikið saman úr ljóða- bókinni Svartar fjaðrir eftir Davíð Stefánsson. Þar var þá helst afi sem söng Abba-labba-lá, en mér fannst skemmtilegast að syngja Dalakof- ann. Og þegar amma var á lífi tók hún undir með mér úr eldhúsinu. Eftir að dóttir mín Dagný Halla fæddist reyndum við mæðgurnar að vera duglegar að fara í heimsókn til afa. Fyrst þá kallaði hann hana: „Birta litla“, það sama og hann kall- aði mig þegar ég var lítil. Alveg frá fyrsta degi dýrkaði hún afa. Mér fannst alveg merkilegt hvað afi var afslappaður í kringum hana. Hann, gamli maðurinn, fór með litla barnið eins og hann hefði aldrei gert neitt annað um ævina en að passa ung- börn. Ég man að ég talaði um þetta við mömmu og hún sagði að hann hefði alltaf verið svona. Hann hafði svo gaman af Dagnýju Höllu. Þegar hún óð inn í skáp og hellti niður 3 kílóum af sykri beint á eldhúsgólfið fannst afa það ekki mikið mál. Hon- um fannst merkilegast að hún hefði getað borið sykurdunkinn alla leið út á gólf þar sem hún sturtaði úr honum. Þegar við fórum síðast í heimsókn til hans vorum við í stuttri heimsókn á Íslandi. Við fórum tvisvar til hans og það var nú meiri gleðin. Þá var hún farin að segja „afi“, og þótti honum mjög vænt um það. Þá var hún líka alveg símasjúk og fékk að hamast eins og hún vildi í gamla skífusímanum inni í stofu. Mér þyk- ir leitt að Dagný Halla skuli ekki fá að kynnast langafa sínum betur, en ég verð bara að vera dugleg að segja henni sögur af honum því að þær á ég geymdar í hjarta mér. Ég veit að núna líður afa betur. Hann er búinn að vera mjög veikur, þvílík barátta sem þetta er búin að vera. Hann er núna hjá ömmu og er hún örugglega búin að baka handa honum kleinur og pönnukökur eins og henni einni var lagið. Ég er rík að hafa átt svona góðan afa. Vertu sæll afi minn og ég veit að góður Guð geymir þig. Þín Birta Rós. Elsku hjartans afi minn, ég kveð þig með miklum söknuði en ég veit að þér líður vel núna í faðmi ömmu sem þú saknaðir svo mikið, ég veit að ég er eigingjörn að vilja hafa þig lengur hjá okkur, en ég var bara ekki búin undir að þú færir strax, því þó þú hafir verið lasinn þá reifst þú þig alltaf upp, og ég hélt alltaf í vonina um að þú næðir fullum bata. Það var alltaf svo yndislegt að vera í kringum þig og spjalla um heima og geima, þú vissir allt, það var alveg ótrúlegt. Ef ég var að fara til einhvers framandi lands þá gast þú frætt mig heil ósköp um landið. Já minningarnar sem ég á um þig gætu fyllt heila bók, en ein minning er mér svo kær, þegar þú, Ingi og Magnea komuð til London á þeim tíma þegar ég bjó þar, við fórum öll saman í bæinn að versla, og þú fannst strax flotta herrafataverslun enda smekklegri mann vart hægt að finna, þú varst alltaf svo flottur í tauinu, síðan fórum við upp á hótel því þú og Ingi ætluðuð að leggja ykkur áður en við færum út að borða og í leikhús, en við frænk- urnar settumst á barinn og þú komst sérstaklega til að athuga hvort við ætluðum ekki að fá okkur einn cuba libre (svona fyrir ömmu) já þessi dagur var alveg frábær, svo man ég þegar ég kom til þín á spít- alann á afmælinu þínu og færði þér pönnukökur, við sátum og drukkum kaffi og þú ljóstraðir upp leyndar- málinu um uppskriftina af pönnu- kökunum hennar ömmu og seinna þegar ég færði þér fyrstu rabarbarasultuna sem ég hafði gert, þá laumaðir þú að mér góðum ömmu ráðum við sultugerð. Það var svo erfitt að sjá þig svona lasinn á spítalanum, oft féll ég í faðm þinn og við grétum saman, en svo hresstum við hvort annað upp og göntuðumst og hlógum saman. Elsku afi minn og nafni, þú varst alltaf bestur og sakna ég þín svo mikið, ég kveð þig nú þangað til að við sjáumst á ný, en á meðan geymi ég minningarnar um þig sem eru mér dýrmætar sem gull. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín nafna, Hildur María. Þá er komið að kveðjustund, afi hefur fengið hvíldina. Það er alltaf jafnerfitt að kveðja en einhvern veg- inn líður mér samt vel því ég veit að hann hefur nú á ný sameinast ömmu. Það lifir einmitt svo sterkt í minningunni hversu trúaður afi var og gat þulið upp úr biblíunni nánast hvern einasta staf. Þær minningar sem leita á mig nú eru æði margar, jóladagurinn hjá ömmu og afa, veiðiferðirnar og auð- vitað jepparnir. Mér fannst jeppa- dellan alltaf dálítið fyndin, ekki það að afi færi mikið á fjöll eða neitt slíkt heldur var það í takt við mann- inn sem ávallt var svo flottur í tauinu í réttu merkjunum að ferðast um á jeppa. Man svo vel eftir því að jepparnir voru alltaf stífbónaðir hvenær sem var. Ég hafði líka gam- an af því hversu vel afi var að sér í flestu, sérstaklega íþróttunum eftir að ég fór að stunda þær. Hann þótt- ist á stundum ekkert fylgjast með en ég fékk nú samt einhvern veginn að heyra það ef illa gekk og auðvitað þegar vel gekk líka, afi hafði sko gaman af því að stríða mér á þessu sviði. Já og talandi um svið, þau held ég að ég hafi fyrst smakkað hjá hon- um, enginn var jóladagurinn án sviðanna. Og ég gleymi því aldrei þegar hann gaf Paul manni Ragn- hildar svið, ameríkananum sjálfum, hann hafði nú ekki haft mikinn áhuga á að borða hausana en eftir að afi hafði sannfært hann lét hann til leiðast og fannst bara gott. Hann hefur einmitt alltaf talað um það hversu ánægður hann væri með að afi hafi fengið hann til að smakka. En ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra, ég veit að þú ert í góðum höndum. Takk fyrir allt og allt, þinn Gunnar Freyr. Það er minnisstætt þegar sjó- garpurinn Hilli birtist eitt haust vestur á bernskuheimilinu og ég innan við fermingu. Hann var ný- kominn af síldinni að heimsækja kærustuna. Mér fannst þetta vera jafnoki Mannsins með stálhnefana sem ég var nýbúinn að lesa. Hann var ekki alinn upp við heyskap, en tók til hendinni af fádæma dugnaði. Svo reyndist hann drjúgur liðsmað- ur í söngmenninguna í sveitinni og kenndi margt nýtt. Hann kom af slóðum Inga T. Lárussonar. Hann fór í réttirnar með mágum sínum og var hrókur alls fagnaðar, en jafnframt allra manna harð- HILDIR GUÐMUNDSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.