Morgunblaðið - 22.11.2001, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 22.11.2001, Qupperneq 54
54 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                                                                          !!!                                         !  " "#$%&%'($)*+$,-"''% ./01+'2+3/$4"$&/$ +21$"%5+60! "%$"$/7+$+(4"%$ )89(%:**/$ -$"8/$ $"**%$;((+&5+60+ 2"%*%00 BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞAÐ kvað standa skrifað í indversk- um fræðum á einum stað, að hugur mannsins sé eins og apaköttur, sem sveiflar sér af einni trjágrein á aðra, og aldrei að vita hvaða grein hann grípur næst. Þetta er líklega nálægt sanni, og þá þarf heldur engan að undra, þótt okk- ur manneskjunum geti dottið sitthvað í hug. Það er hægt að láta sér detta svo margt í hug, í rauninni hvað sem er, og ein hugmyndin þarf ekki að vera annarri verri. Nema síður sé. Skáld Davíðssálma telur að vísu ráðlegt, að sefa stundum sál sína, þagga niður í henni. Sem þýðir, að láta ekki apaköttinn alveg ráða. Í frétt í DV, laugardaginn 20. októ- ber, er hermt frá þeirri hugmynd að leggja niður embætti vígslubiskupa í Skálholti og á Hólum. Það er róttæk hugmynd og kemur dálítið á óvart, en kannski vel þess virði, að um hana sé fjallað. Það er reyndar misskilningur, sem kemur fram í fréttinni, að vígslubisk- upar okkar hafi ekki nóg að gera. Starfsreglur þjóðkirkjunnar gera ráð fyrir mörgum og miklum skyldum þeirra, sem þó er of langt að rekja hér. Hver og einn fyrir sig getur flett þessu upp. Auk þess vita þeir, sem til þekkja, að það er ótæpilega leitað til vígslubiskupa okkar af próföstum, héraðsnefndum, prestum, sóknar- nefndum, starfsfólki kirkna, djákn- um, organistum og safnaðarfólki. Og þeir þurfa að vera heilmikið á ferðinni starfa sinna vegna. Vígslubiskupar okkar hafa því sannarlega ærin verk- efni. En það gildir um þá, eins og prestana, að nokkuð af störfum þeirra fer oft ekkert mjög hátt. Það er þess eðlis. Það er því erfitt að komast hjá þeirri hugsun, að vígslubiskuparnir hljóti í fyrsta lagi að létta umtalsvert þær þungu byrðar, sem biskupi Ís- lands er ætlað að bera, og í öðru lagi að stórlega mikils væri misst, ef embætta þeirra nyti ekki lengur við. Auk þess sem daufara yrði þá á hinum fornu biskupsstólum, Skálholti og Hólum. En svo má kannski segja, að við ættum bara að taka upp þá stefnu, að leggja hvert annað niður. Sérstaklega ef fýkur í okkur. Á hinum kirkjulega vettvangi gætu organistar þannig lagt niður kirkjukórana, prestarnir djáknana, sóknarnefndir presta og meðhjálpara, söfnuðir sóknarnefnd- irnar, kirkjuþing biskupana og al- menningur í landinu gæti lagt niður söfnuðina. Hingað og þangað í mann- félaginu mætti líka ef til vill, ef vel væri leitað, finna starfsmenn, sem sannanlega sveittust ekki við verkefni sín myrkranna í milli árið um kring – og leggja þá einfaldlega niður. Hver sá, sem ekki gæti fært sönnur á, að hann væri svo vinnuglaður, að hann skemmti sér konunglega 16 klukku- stundir á sólarhring ævilangt, yrði bara lagður niður. Nákvæmlega. Æi, jæja. Það er hægt að láta sér detta svo margt í hug. GUNNAR BJÖRNSSON, prestur. Einkennileg hugmynd Frá Gunnari Björnssyni: STUNDUM þegar maður les skrif stjórnmálamanna (einkum kven- kyns) prísar maður sig sælan að búa í frjálsu og opnu þjóðfélagi, þar sem borgararnir búa við réttarreglur, en ekki handahófskenndar tilskipanir stjórnvalda. Mig satt best að segja rak í rogastans, þegar ég las greinar alþm. Ástu Möller úr Sjálfstæðis- flokki (Mbl. 24.10.01) og Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, borgarfull- trúa af R-lista (Mbl. 25.10.01) um svonefnda nektarstaði, en ég hef rekið einn slíkan um nokkurt árabil. Í stuttri blaðagrein gefst ekki ráð- rúm til að hrekja allar þær missagnir og fullyrðingar sem sumir stjórn- málamenn hafa látið sér um munn fara varðandi þessa tegund skemmt- anahalds og afþreyingar, en ekki vil ég sitja undir órökstuddum fullyrð- ingum að í skjóli nektarstaða þrífist vændi og eiturlyfjasala sbr. grein Ástu. Kannski að Ásta gæti upplýst mig um það í hvaða skjóli vændi og eiturlyfjasala þreifst áður en nekt- arstaðir komu til sögunnar, en þeir eru eins og kunnugt er ekki mjög gömul fyrirbæri í skemmtanahaldi landsmanna og hlutu ágætar viðtök- ur þegar þeir hófu starfsemi, enda partur af næturlífi allra helstu borga um víða veröld. Mig hefur stundum furðað hvernig sumt fólk, sem aldrei hefur stigið fæti inn á næturklúbb, getur átt svefnlausar nætur yfir því að aðrir skuli gera það og telji alveg nauðsynlegt að setja einhverjar sér- stakar reglur um starfsemi af þessu tagi. Ég spyr: Hvern á að vernda og fyrir hverjum? Gestir næturklúbba eru fullorðnir karlmenn að jafnaði eldri en tuttugu og fimm ára og allir koma þeir af fúsum og frjálsum vilja og dansmeyjarnar, sem flestar eru af erlendu bergi brotnar, starfa við þessa grein af fúsum og frjálsum vilja og ferðast iðulega á milli landa og borga í störfum sínum, líkt og iðn- sveinar forðum. Allt tal um einhverja nauðung og kvenfyrirlitningu í þessu samhengi er því algerlega úr lausu lofti gripið, þótt við heyrum hryll- ingssögu um örlög ungra kvenna á vændishúsum úti í hinum stóra heimi, en hér er ólíku saman að jafna. Þessar ungu stjórnmálakonur verða að sýna meiri frjósemi og andagift í málflutningi sínum og rök- semdafærslu, enda getur sú hug- mynd, sem þær virðast aðhyllast í ríkum mæli, að hægt sé að gera leift- urárás inn í reynsluheim karla með reglugerðarfargani og femínískum þjösnaskap og umburðarleysi, aldrei hlotið brautargengi í lýðfrjálsu landi. GUÐJÓN SVERRISSON, eigandi og framkvæmdastjóri Bóhem. Nektarstaðir – vændi og eiturlyfjasala Frá Guðjóni Sverrissyni:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.