Morgunblaðið - 22.11.2001, Side 68

Morgunblaðið - 22.11.2001, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. www.isb.is fiú gerir fletta me› annarri! GEIR H. Haarde fjármálaráðherra segir að sjá megi glögg merki um öran samdrátt um þessar mundir, m.a. af veltutölum og margt hafi breyst á verri veg á undanförnum vikum frá því að gengið var frá forsendum fjárlagafrum- varpsins. Tekjur ríkissjóðs aukist ekki með sama hætti og áður og ýmis útgjöld hafi verið að aukast. Því sé mjög brýnt að menn geri sér grein fyrir hver staðan er og haldið verði þétt utan um út- gjöldin við afgreiðslu fjárlaga. ,,Allir sem eru að sækja í ríkissjóð og þeir sem bera ábyrgð á fjármálum ríkissjóðs, þ.m.t. þingmeirihluti ríkisstjórnarinnar, þurfa að gera sér grein fyrir því, að við þessar aðstæður er mjög nauðsynlegt að falla frá útgjaldabeiðnum og fresta málum. Það er aldrei skortur á til- lögum um góð mál, en nú er staðan sú að slíkt verður að bíða betri tíma. Menn verða einfaldlega að vera vandfýsnari á slík mál. Þessu hafa samráðherrar mínir og þingmenn stjórnarflokkanna sýnt góðan skiln- ing. Við höfum frestað framlagningu og gild- istöku ýmissa frumvarpa, sem þeir hafa verið með á prjónunum og sömuleiðis höfum við ýtt á undan okkur ýmsum framkvæmdum, sem ella hefði þótt rétt að ráðast í,“ segir Geir. Fjármálaráðherra segist gera sér vonir um að takast muni að afgreiða fjárlög með þeim rekstrarafgangi sem að er stefnt í frumvarpinu. Hann segist undrast harðorða yfirlýsingu miðstjórnar ASÍ í gær þar sem fyrirhugaðar skattabreytingar eru gagnrýndar og segir hana bera vott um nokkra skammsýni. Munum fara vel yfir gagnrýni á skattalagafrumvarpið ,,Skattaaðgerðir í þágu atvinnulífsins munu einnig gagnast launþegum þegar fram í sækir og eru beinlínis hugsaðar til þess. En ASÍ hef- ur skilað ítarlegri umsögn til þingsins um skattafrumvarpið og við munum fara vel yfir þá gagnrýni sem þar er að finna,“ segir Geir. Fjármálaráðherra segir stöðu ríkisfjármála hafa þrengst vegna samdráttar Falla frá útgjaldabeiðnum og fresta framkvæmdum  Það þarf/34 segja að þrátt fyrir samdrátt í efna- hagslífinu séu allar efnahagsforsend- ur í lagi og uppsögn kjarasamninga sé einvörðungu fallin til þess að draga máttinn úr efnahagslífinu. Davíð seg- ist í samtali við Morgunblaðið í dag hafa trú á að gengi krónunnar muni fara hækkandi. Halldór segir að upp- sögn kjarasamninga og deilur á vinnumarkaði geti ekki orðið til ann- ars en að draga máttinn úr efnahags- lífinu og skapa hættu á óstöðugleika. Efast ekki um að gengið styrkist „Kaupmáttur hefur verið að aukast, atvinnuleysi hefur minnkað og staða útflutningsgreina fer mjög ört batnandi. Afkoma og umhverfi út- flutningsgreinanna er afar gott um þessar mundir. Ef þetta heldur þann- ig áfram efast ég ekkert um að gengið FORMENN stjórnarflokkanna, Dav- íð Oddsson forsætisráðherra og Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra, styrkist,“ segir forsætisráðherra. Verkalýðsforystan hefur talað um aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og var Davíð því spurður hvort það væri von á ein- hverjum sérstökum aðgerðum í efna- hagsmálum á næstunni. Því svarar hann svo: „Það er ekki fyrirhugað að hlaupa eftir einhverjum gamaldags reddingum eins og tíðkuðust í gamla daga. Ég hygg að Alþýðusambandið sé ekki að biðja um það heldur. Við munum eiga góða fundi með forystu þess í framhaldinu. Þeir eru að ræða málin við sína félagsmenn. Þeir hafa allar forsendur til að meta það best að kaupmáttur hefur ekki verið að rýrna í landinu.“ Myndin á eftir að breytast Halldór segir að vissulega sé óvissa fyrir hendi í efnahagsmálunum. Sam- dráttur sé mikill í hagkerfinu og allt útlit sé fyrir að hagvöxtur verði eng- inn á næsta ári. Hryðjuverkin í Bandaríkjunum haft alvarlegar afleiðingar „Það er ljóst að hryðjuverkin í Bandaríkjunum hafa haft mjög alvar- legar afleiðingar á efnahagskerfið í heiminum og forsendur hafa breyst. Í forsendum kjarasamninga var gert ráð fyrir áframhaldandi hagvexti. Því miður hefur ekki enn tekist að taka endanlegar ákvarðanir um fram- kvæmdir í virkjana- og stóriðjumál- um, sem koma til með að breyta mjög miklu um forsendur efnahagslífsins á næstu árum. Ég hef trú á að það tak- ist og þess vegna eigi þessi mynd eftir að breytast,“ segir Halldór. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra Allar efnahagsforsendur í lagi þrátt fyrir samdrátt  Aukin/6 LYFJAFYRIRTÆKIÐ Om- ega Farma hefur nýlega hafið útflutning á þunglyndislyfinu Cítalópram og þegar hafa bor- ist pantanir fyrir um einn og hálfan milljarð króna frá Norð- urlöndunum og Þýskalandi fram í byrjun næsta árs. Þetta er umfangsmesti útflutningur á vegum fyrirtækisins hingað til en Omega Farma framleiðir alls um 35 lyf, auk vítamína, og selur innanlands og erlendis. Þungamiðjan í starfsemi Omega Farma er þróun, fram- leiðsla og markaðssetning á samheitalyfjum og skráningar- gögnum þeirra. Kostnaður við þróun samheitalyfsins Cítal- óprams var á bilinu 60-80 millj- ónir króna en þróunartímabilið var um þrjú ár. Ekkert einkaleyfi hefur verið á Cítalóprami í Þýskalandi í töluverðan tíma en forskot Omega Farma byggðist á að- gengi að virka lyfjaefninu og því að hefja þróun á undan öðr- um lyfjafyrirtækjum. Flytur út geðlyf fyrir 1,5 milljarða  Hálfur/C6 Omega Farma SJÚKRALIÐAFÉLAG Íslands und- irritaði nýjan kjarasamning við samn- inganefnd ríkisins fyrir hönd fjár- málaráðherra í Karphúsinu á miðnætti í gær eftir tæplega 15 klukkutíma samningalotu. Samning- ar höfðu þá verið lausir frá 1. nóv- ember 2000. Nýr kjarasamningur gildir til 30. nóvember 2004. Samningurinn verð- ur borinn undir félagsmenn SLFÍ innan tveggja vikna. Þórir Einarsson ríkissáttasemjari sagði í samtali við Morgunblaðið ör- stuttu eftir undirritun að samningur- inn væri með hefðbundnum áfanga- hækkunum, auk þess sem samið er um nýtt launakerfi. „Þetta hefur verið afskaplega löng og strembin samningalota og mikið púsluspil sem lauk loks nú fyrir stundu. Samningaumleitanirnar hafa verið mjög flóknar og erfiðar og ég er verulega ánægður að þetta skyldi hafa tekist,“ sagði Þórir. Hann sagði samningaviðræður hafa steytt á mörgum ágreiningsatriðum en innan- hússtillögur hafi ýtt samningum úr vör. Sjúkraliðafélagið undirritaði jafn- framt á miðnætti stofnanasamninga við sveitarfélögin. Þá voru undirrit- aðir samhljóða kjarasamningar og stofnanasamningar milli Sjúkraliða- félags Íslands og séreignarstofnana. Boðuðu þriggja daga verkfalli sjúkraliða hjá ríki og sjálfseignar- stofnunum næstkomandi mánudag hefur verið frestað. „Mín von er því sú að nú sé búið að leysa þessi mál far- sællega til frambúðar,“ sagði Þórir Einarsson ríkissáttasemjari. Með undirritun samnings sjúkraliða hefur samningaviðræðum lokið hjá þeim fjölmennu hópum sem hafa haft lausa samninga hjá ríkinu í þessari lotu. Samið við sjúkraliða Morgunblaðið/Golli Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, og Þórir Einarsson ríkissáttasemjari undirrit- uðu nýjan kjarasamning í Karphúsinu á miðnætti í nótt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.