Morgunblaðið - 18.01.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Arnór Guðjohnsen hættur
með Stjörnuna / C1
Ísland hefur ekki tapað
í Danmörku í 11 ár / C4
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FÖSTUDÖGUM
ÞANNIG komu tveir nemendur
Myndlistaskólans í Reykjavík svo
skemmtilega fyrir sjónir Ragnars
Axelssonar ljósmyndara, sem brá
sér um stund í hlutverk „glugga-
gægis“. Enginn skyldi halda að
nemendurnir eigi skilið núll í ein-
kunn fyrir verk sín, enda er það
stórt O en ekki núll sem er fyrir
ofan gluggann á gamla JL-húsinu
við Hringbraut.
Morgunblaðið/RAX
Guðað á
glugga
Lögreglumaðurinn bað í febrúar
árið 2000 um sumarfrí á tímabilinu
28. júní til 14. júlí og var sú beiðni rit-
uð athugasemdalaust í bækur. Síðar
fékk yfirmaður hans boð um að bann-
að væri að veita orlof 1.–2. júlí vegna
kristnihátíðar sem halda átti þá daga
á Þingvöllum. Lögreglumaðurinn
kveðst þá hafa reynt að flýta fjöl-
skylduferð til Spánar þannig að hann
yrði kominn aftur til landsins 27. júní
en án árangurs.
Sagði upp vegna óánægju
Á lista sem settur var fram 5. júní
2000 yfir þá sem áttu að vinna á Þing-
völlum var nafn lögreglumannsins.
Vegna óánægju með að ekki hafði
verið tekið tillit til óska hans fór lög-
reglumaðurinn fram á að láta af störf-
um 18. ágúst sama ár en hann hafði
þá starfað hjá embættinu í um 11 ár.
Taldist honum til að síðasti starfsdag-
ur sinn yrði 21. júní að teknu tilliti til
frídaga sem hann hefði átt inni.
Fór lögreglumaðurinn í sumarleyf-
isferðina og mætti því ekki til starfa á
Þingvöllum dagana 1.–2. júlí eins og
fyrir hann hafði verið lagt. Sýslumað-
ur veitti honum í ágúst skriflega
áminningu fyrir að „virða ekki löglegt
boð yfirmanns um að taka ekki orlof
dagana 1. og 2. júlí sl. er kristnihátíð
var haldin“.
Lögreglumaðurinn höfðaði mál til
að fá áminningunni hnekkt og féllst
dómurinn á að ekki hefðu verið laga-
leg skilyrði fyrir því að veita honum
áminningu.
Í dómnum kemur fram að fyrir-
mæli um að fara ekki í orlof fyrr-
greinda daga voru ekki innan þess
sem lög um orlof kveða á um.
Þá höfðu engar skýringar fengist á
því hvers vegna sýslumaður eða aðrir
yfirmenn embættisins brugðust ekki
við óskum lögreglumannsins fyrr, en
sýslumaður hafði með löngum fyrir-
vara fengið fyrirmæli ríkislögreglu-
stjóra um að skipuleggja sumarfrí
þannig að lögreglumenn yrðu ekki í
orlofi 1. og 2. júlí.
Héraðsdómur féllst þó ekki á bóta-
kröfu lögreglumannsins.
Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdóm-
ari kvað upp dóminn, Stefán Árni
Auðólfsson sótti málið en Guðrún
Margrét Árnadóttir hrl. var til
varnar.
Áminning yfir lögreglumanni felld úr gildi
Mátti fara í frí meðan
á kristnihátíð stóð
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur felldi í gær úr gildi áminningu sýslu-
mannsins í Keflavík sem hann veitti lögreglumanni sumarið 2000 fyrir að
óhlýðnast því að mæta til starfa helgina sem kristnihátíð fór fram á Þing-
völlum. Var embættið dæmt til að greiða lögreglumanninum 200.000 kr. í
málskostnað.
VINNUMÁLASTOFNUN hefur
synjað umsóknum um atvinnuleyfi
fyrir dansmeyjar sem hyggjast
starfa á nektarstaðnum Vegas í
Reykjavík í kjölfar þess að í ljós kom
að forsvarsmenn staðarins höfðu
gert samninga við nektardansmeyj-
ar sem voru ekki í samræmi við þá
samninga sem Vinnumálastofnun
hafði veitt atvinnuleyfi út á.
Atvinnuleyfi sem nú eru í gildi
hafa þó ekki verið afturkölluð.
Forsaga málsins er sú að yfirvöld-
um barst í hendur samningur við
nektardansmey hjá Vegas sem var
talsvert frábrugðinn þeim samning-
um sem forsvarsmenn staðarins
höfðu framvísað þegar sótt var um
leyfi fyrir dansmeyjarnar.
„Við sjáum ekki annað en það hafi
verið byggt á allt öðrum samningi
heldur en Vinnumálastofnun veitti
leyfi út á,“ segir Heiða Gestsdóttir.
Með umsóknum um dvalar- og
atvinnuleyfi á að fylgja ráðningar-
samningur sem tryggir ákveðin rétt-
indi samkvæmt íslenskum lögum.
„Þessi samningur sem okkur barst í
hendur gerir það ekki.“
Heiða segir þónokkur atriði í
samningnum óeðlileg auk þess sem
þau gögn sem nektarstaðurinn lagði
fram hafi verið ófullnægjandi. Stað-
urinn hafi einfaldlega ekki staðist
þær kröfur sem gerðar eru við veit-
ingu atvinnuleyfa.
Heiða vildi þó ekki tjá sig efnis-
lega um innihald samningsins.
Atvinnuleyfi til nektardansmeyja
utan EES er yfirleitt veitt til þriggja
mánaða en þeir sem búa innan EES
þurfa ekki atvinnuleyfi.
Synjar nektar-
staðnum Vegas
um atvinnuleyfi
BROTIST var inn í húsnæði Ölgerð-
arinnar Egils Skallagrímssonar á
Grjóthálsi í Reykjavík um eittleytið í
fyrrinótt. Hurð var spennt upp til
þess að komast inn í húsið, en örygg-
iskerfi fór strax í gang og er talið að
það hafi stökkt þjófum á flótta.
Lögregla telur að þjófarnir hafi
ekki haft á brott með sér verðmæti.
Brutust inn
en var stökkt
á flótta
KONA á fimmtugsaldri var í gær
dæmd í sex mánaða skilorðsbundið
fangelsi en hún játaði að hafa kveikt í
nælonúlpu sem lá ofan á hjónarúmi í
einbýlishúsi í Hafnarfirði og bera eld
að púða í stofusófa með þeim afleið-
ingum að mikið brunatjón varð í hús-
inu sem og skemmdir vegna reyks,
hita og vatns. Talsverðar skemmdir
urðu einnig á innbúi sem var óvá-
tryggt.
Konan samþykkti bótakröfu Vá-
tryggingafélags Íslands upp á tæp-
lega fjórar milljónir en kvaðst þó
ekki geta greitt kröfuna.
Ástæðan fyrir því að konan kveikti
í mun tengjast ástarmálum og af-
brýðisemi. Héraðsdómur Reykja-
ness taldi konunni til málsbóta að
hún hefði gengið úr skugga um að
engum væri hætta búin af verkinu og
hleypti hún m.a. heimilishundinum
út áður en hún bar eld að húsinu. Þá
játaði hún brot sitt greiðlega. Á hinn
bóginn yrði að líta til þess að brota-
vilji hennar var einbeittur.
Haldi konan almennt skilorð fellur
refsingin niður að þremur árum liðn-
um. Henni var gert að greiða allan
sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun
skipaðs verjanda síns, Brynjars
Níelssonar hrl., 30.000 krónur.
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Hólmsteinn Gauti
Sigurðsson, fulltrúi sýslumannsins í
Hafnarfirði, sótti málið.
Hleypti
hundin-
um út og
kveikti í
♦ ♦ ♦
Í OKTÓBER 2001 voru alls 32.747 nemendur við
nám í framhaldsskólum og háskólum hér á landi,
samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan hefur
tekið saman. Þetta er fjölgun um 2.343 nemendur
frá sama tíma árið 2000, eða 7,7%. Fjölgunin er
meiri en hún hefur áður verið á milli ára síðan
byrjað var að taka saman bráðabirgðatölur haustið
1997.
Íslandsbanki sagði í Morgunkorni sínu í gær að
túlka mætti fjölgun nemenda sem afleiðingu af
auknum slaka á vinnumarkaði.
Nemendum á háskólastigi hefur fjölgað ár frá
ári. Haustið 2001 stunduðu 12.422 nám á háskóla-
stigi, sem er 18,4% aukning frá fyrra ári, og nem-
endum fjölgaði í öllum háskólum landsins frá árinu
2000. Alls hefur nemendum í fjarnámi í háskólum
fjölgað um 40% á milli ára.
20.325 nemendur sóttu skóla á framhaldsskóla-
stigi haustið 2001, sem er 2,1% aukning frá árinu
áður. Hlutfallslega mest aukning er í sérskólum á
framhaldsskólastigi, eða rúm 30%, en þar fjölgaði
um 111 nemendur. Nemendum í fjölbrautaskólum
fjölgaði um 2,8% (397 nemendur) og einnig fjölgaði
um 1,4% (71 nemanda) í menntaskólum eftir sam-
fellda fækkun frá 1997. Nemendum í öldunga-
deildum hefur fjölgað um rúm 5% frá árinu áður
eftir samfellda fækkun frá haustinu 1997.
Nemendum í fjarnámi hefur fjölgað ört síðustu
ár og haustið 2001 voru alls 2.128 nemendur skráðir
í fjarnám, sem er rúmlega 46% aukning frá haust-
inu 2000. Nú stunda 11% nemenda í háskólum nám í
fjarnámi og rúm 5% nemenda í fjölbrautaskólum.
Í Háskóla Íslands voru rúmlega sjö þúsund nem-
endur haustið 2001 og í tveimur framhaldsskólum
eru fleiri en tvö þúsund nemendur, Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti og Iðnskólanum í Reykjavík.
Framhalds- og háskólanemum
fjölgaði um 7,7% milli ára