Morgunblaðið - 18.01.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra telur að fákeppni á
matvörumarkaði sé meðal skýringa á
því að verð á neysluvörum hér á landi
er í mörgum tilvikum hærra en í sam-
anburðarlöndum í Evrópu.
Skv. niðurstöðum könnunar, sem
Morgunblaðið stóð fyrir ásamt ASÍ á
verði algengra neysluvara á Íslandi
og í nokkrum ESB-löndum, sem
greint var frá í blaðinu í gær, er verð
hér á landi að jafnaði mun hærra en í
evrulöndunum. Af þeim sautján vöru-
flokkum og tegundum sem spurt var
um í könnuninni, kemur Ísland dýrast
út í tólf tilvikum og nær aldrei að vera
með lægsta vöruverðið.
Aðspurð hvaða skýringar hún teldi
vera á þessum verðmun sagði Val-
gerður að þær gætu verið nokkrar,
,,en við vitum að hér er fákeppni á
matvörumarkaði og könnun Sam-
keppnisstofnunar á síðasta ári leiddi
það í ljós að þegar samþjöppun átti
sér stað, hækkaði álagning,“ sagði
hún og bætti við að þetta væru engar
getgátur lengur heldur lægi þessi
staðreynd fyrir.
Unnið að smíði reglna sem bæti
siðferðið á markaðinum
Valgerður var þá spurð hvað væri
til ráða. Benti hún á að starfi Sam-
keppnisstofnunar að þessum málum
væri ekki lokið. ,,Það voru uppi ýmsar
vísbendingar um athæfi, sem ekki er
samkvæmt lögum og Samkeppnis-
stofnun er væntanlega að vinna í því.
Rætt um gerð verðkannana á
fleiri stigum verðmyndunar
Þeir eru einnig að vinna að hug-
myndum sem ég beindi til þeirra um
að koma á siðareglum á þessum
markaði, í líkingu við reglur sem aðr-
ar þjóðir hafa tekið upp, t.d. Bretar.
Þær miða að því að bæta siðferðið en
þar virðist vera pottur brotinn ef
marka má a.m.k. ýmsar sögur sem
eru á kreiki,“ segir Valgerður.
Fram kom í máli Valgerðar að hún
hefði nýlega efnt til fundar í ráðu-
neytinu með fulltrúum af matvöru-
markaði, frá ASÍ og Hagstofunni.
,,Þar var rætt hvort framkvæmanlegt
væri að gera verðkannanir á fleiri
stigum verðmyndunarinnar og að
með því geti menn áttað sig betur á
hvar slysin verða, því einhvers staðar
eiga þau sér stað,“ segir hún.
,,Auðvitað má vera að í ákveðnum
tilfellum sé ekkert við því að segja
þótt verð sé hærra hér en einhvers
staðar annars staðar en þegar þetta
er svona almennt, leyfir maður sér að
álykta að það sé eitthvað óeðlilegt á
ferðinni sem bæta megi úr,“ sagði
Valgerður.
Viðskiptaráðherra um könnun sem sýnir hærra verð á Íslandi en í evrulöndum
Við vitum að hér er fá-
keppni á matvörumarkaði
FORSTJÓRI Baugs, Jón Ásgeir Jó-
hannesson, vísar því á bug að fyrir-
tækið hafi verið að hækka verð á mat-
vöru í sínum verslunum, innfluttri
sem innlendri, umfram verðbólgu-
þróun og gengisbreytingar. Gengis-
breytingar hafi ekki náð út í verðlag
matvöru, að hans mati. Bendir Jón
Ásgeir m.a. á að afkomutölur Baugs
sýni að matvaran skili ekki miklum
hagnaði. Þannig hafi 130 milljóna
hagnaður orðið af 25 milljarða veltu
Baugs fyrstu níu mánuði síðasta árs.
Jón Ásgeir segir 12 mánaða uppgjör-
ið, sem birt verður í dag, einnig end-
urspegla þetta.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram
að sumar algengar innfluttar matvör-
ur hafi hækkað meira en sem nemur
verðbólgu og breytingu á gengi krón-
unnar.
Einföldun að skella
skuldinni á smásalana
„Við höfum ekki verið að hækka
verð á matvælum umfram verðbólgu-
þróun,“ segir Jón Ásgeir. Hann telur
að ekki verði hægt að fá „vitræna“
umræðu um verðlagsmál nema að
komið verði á fót heildsöluvísitölu til
samanburðar við smásöluvísitöluna.
Væri hún til staðar nú væri umræðan
að beinast gegn öðrum en smásölun-
um.
„Við höfum ítrekað verið að biðja
Hagstofuna að setja á heildsöluvísi-
tölu, sem er þekkt fyrirbæri erlendis.
Hún gefur til kynna hvernig verð-
lagsþróun er næstu mánuði fram í
tímann. Viðtökurnar hafa verið
dræmar, einnig hjá heildsölum. Það
er alltaf mjög þægilegt að benda á
smásalana, þeir eru síðasti aðilinn
gagnvart neytendum. Stjórnmála-
menn hafa t.d. ekki horft á það hvað
breska pundið og danska krónan hafa
styrkst gagnvart íslensku krónunni,
en þetta eru þær myntir sem við
kaupum einkum okkar erlendu mat-
vöru í. Hækkanir á aðföngum til inn-
lendra framleiðenda hafa einnig kom-
ið til þannig að það er mikil einföldun
að skella skuldinni alfarið á smásal-
ana. Það er óþolandi þegar stjórn-
málamenn sletta slíku fram og koma
með engin rök, það er óábyrgt og
ekki sanngjarnt,“ segir Jón Ásgeir og
vísar þar m.a. til ummæla viðskipta-
ráðherra í fjölmiðlum.
Breytingar á gengi skila
sér beint út í verðlagið
Hannes Karlsson, rekstrarstjóri
Samkaupa hf. og Matbæjar, segist al-
veg geta tekið undir það að hækk-
anirnar hafi verið glórulausar. „Menn
mega hins vegar ekki gleyma því
hver forsenda hækkananna er,
þ.e.a.s. breytingar á gengi krónunnar
fyrst og fremst. Sú breyting skýrir
hækkanirnar að mjög miklu leyti auk
mikillar hækkunar á vísitölu. Hvað
okkur snertir get ég bent á könnun
sem DV gerði um daginn en í henni
kemur fram að verð í Samkaupsbúð-
unum hækkaði minnst milli ára eða
um 9% og verð í Nettó-búðunum
hækkaði um 15%. Þannig að þær
hækkanir eru í engu samræmi við
þær hækkanir sem fjallað er um í
Morgunblaðinu. Hins vegar hafa
stærstu aðilarnir á markaðinum lang-
mestu áhrifin á verðið, þ.e. Baugur og
Kaupás. Í könnun DV má sjá að það
hafa verið glórulausar hækkanir í
þeim verslunum sem þessi fyrirtæki
reka. Það er langt í frá að þessar
verðhækkanir hafi gengið jafnt yfir
línuna. Það er alveg ljóst að þær
verslanir sem við erum að reka hafa
ekki valdið þessum hækkunum, svar-
anna verður að leita hjá öðrum.“
Gísli Sigurbergsson í Fjarðarkaup-
um segist álíta að Fjarðarkaup hafi
ekki hækkað verð umfram það sem
geti talist eðlilegar hækkanir ef horft
sé fram hjá gengisbreytingum.
„Menn verða að horfast í augu við það
að breytingar á gengi skila sér beint
út í verðlagið og oft með margfeldis-
áhrifum, heildsöluverð hefur hækk-
að, flutningskostnaður og launin líka.
Í könnun DV kemur fram að verðið
hjá okkur hefur hækkað um 10% á
milli ára. Sú könnun segir kannski
alla söguna en í henni eru þó tíu liðir
sem vega þungt í innkaupum fjöl-
skyldna. Á sama tíma hækkaði verð í
verslunum 11–11 um 26%, hjá Hag-
kaup um 16% og um 18% í verslunum
Bónus. Bilið á milli okkar og margra
annarra verslana hefur verið að
aukast, t.d. milli okkar og Hag-
kaups.“
Gísli segist telja að Fjarðarkaup
hafi einfaldlega fylgt þróun á verði í
heildsölu. Og í mörgum tilvikum hafi
verð frá heildsölunum ekki hækkað í
takt við breytingar á gengi þannig að
segja megi að breyting á gengi hafi
ekki að fullu skilað sér út í verðlagið.
Ásmundur Stefánsson, stjórnarfor-
maður Kaupáss, sagðist ekki geta
tjáð sig um verðlagningu á einstökum
matvöruflokkum í verslunum
Kaupáss og ekki náðist í Ingimar
Jónsson, forstjóra Kaupáss.
Talsmenn stórmarkaða segja gengisbreytingar helstu orsök matvöruhækkana
Forstjóri Baugs
kallar eftir heild-
söluvísitölu
VÖRUSÝNINGIN Kínverskir dagar var form-
lega opnuð í Laugardalshöll í gær.
Stefán S. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Ís-
lensk-kínverska viðskiptaráðsins, segir að sýn-
ingunni hafi strax verið vel tekið á fyrsta degi.
Fjölmargt athyglisvert sé að sjá á sýningunni
sem stendur yfir til 20. janúar.
Tólf kínversk fyrirtæki kynna framleiðslu og/
eða þjónustu sína á Kínverskum dögum. Kynntar
eru meðal annars skipasmíðar og raftækjaiðn-
aður, járnvörur, textíliiðnaður, gúmmíiðnaður,
listmunir, ferðaþjónusta og bjór. Tónlistarmenn
leika þjóðlega kínverska tónlist á sýningunni.
Að Kínverskum dögum standa útflutnings- og
alþjóða verslunarráð Kína í samstarfi við Íslensk-
kínverska viðskiptaráðið, Kínversk-íslenska
menningarfélagið, Viðskiptaþjónustu utanrík-
isráðuneytisins og Útflutningsráð Íslands.
Morgunblaðið/Ásdís
Frá opnun Kínverskra daga: Wang Ronghua, sendiherra Kína á Íslandi, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, Ma Yue, varaformaður verslunarráðs
Kína, Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Stefán S. Guðjónsson, frá Íslensk-kínverska viðskiptaráðinu.
Kínverskir dagar hófust í gær
FYRSTI stjórnarfundur Fjarlækn-
ingastofnunar Íslands ses. var hald-
inn á Ísafirði í gær en Ísafjarðarbær
hafði frumkvæðið að stofnun Fjar-
lækningastofnunarinnar nýverið.
Tilgangurinn með stofnuninni er
að fá fyrirtæki og stofnanir til að
vinna að fjarlækningum á Vestfjörð-
um, í samvinnu við heilbrigðisstofn-
anir í Ísafjarðarbæ, en Fjarlækn-
ingastofnunin er sjálfstæð stofnun.
Hallgrímur Kjartansson, yfir-
læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Ísafirði og stjórnarformaður stofn-
unarinnar, segir að gert sé ráð fyrir
að starfsemin hefjist fljótlega en
rætt hafi verið um væntanleg og
möguleg verkefni.
Fjarlækn-
ingar á Vest-
fjörðum
TRUFLANIR hafa verið á netsam-
bandi Símans við útlönd á ákveðnum
tímapunktum vegna svokallaðra
„denial-of-service“ árása á tölvukerfi
fyrirtækisins. Að sögn Heiðrúnar
Jónsdóttur, upplýsingafulltrúa Sím-
ans, er erfitt að verjast slíkum árás-
um sem koma frá mörgum tölvum
um allan heim. Tölvurnar sem valda
truflununum eru sýktar af vírus sem
berst m.a. í tölvupósti og verður
virkur á ákveðnum tíma og ræðst þá
á netþjóninn sem tölvan er tengd við.
Heiðrún segir að menn telji að árásin
komi frá tölvum saklausra notenda
sem hafi sjálfir fengið vírusinn í
tölvupósti eða forritum.
„Í fyrrakvöld datt sambandið við
útlönd niður rétt um tólfleytið og
kom síðan aftur en datt aftur niður
um eittleytið í fyrrinótt, en síðan var
það búið. Þetta eru truflanir á sam-
bandinu og þetta er búið að vera
svona í nokkra daga. Það er erfitt að
koma alveg í veg fyrir þetta og við
vitum að aðrir aðilar hafa átt í erf-
iðleikum líka. Það er ekki útilokað að
þetta komi fyrir aftur en við erum að
byggja upp varnir gegn þessu,“ segir
Heiðrún.
Vírus gerir árás
á netkerfi Símans
Olli trufl-
unum á
sambandi
við útlönd
♦ ♦ ♦