Morgunblaðið - 18.01.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ráðstefna Reykjavíkurakademíunnar
Viljum vekja
umræður
Reykjavíkurakadem-ían efnir til rann-sóknarstefnu í
húsnæði sínu á Hring-
braut 121 í dag klukkan
15–18. Í fréttatilkynningu
kemur fram að meginum-
ræðuefnið sé framlagðar
tillögur um endurskipu-
lagningu á rannsóknar-
málum hér á landi. Stein-
unn Kristjánsdóttir er
formaður Reykjavík-
urakademíunnar frá apríl
í fyrra og svaraði hún
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins.“
– Hvað er Reykjavík-
urakademían?
„Reykjavíkurakadem-
ían var stofnuð sem félag
sjálfstætt starfandi fræði-
manna árið 1997. Eitt
helsta markmiðið með stofnun-
inni var að útvega háskólamennt-
uðum sameiginlega starfsað-
stöðu, en sífellt fleiri fræðimenn
kjósa frekar að vinna sjálfstætt
að rannsóknum og fræðastörfum
í stað þess að starfa innan bund-
inna ramma háskólanna. Síðla árs
1998 opnaði félagið fræðasetur,
með fræðimannaskrifstofum,
fundaaðstöðu og ráðstefnusal, á
fjórðu hæð í JL-húsinu við Hring-
braut 121 í Reykjavík. Skömmu
eftir að fræðasetrið var opnað
fluttust þar inn tíu sjálfstætt
starfandi fræðimenn og hefur
þeim fjölgað ört síðan. Í dag
vinna þar innanhúss að jafnaði 65
einstaklingar eða stofnanir að
fræðastörfum aðallega á sviði
hug- og félagsvísinda, auk félaga-
samtaka á sviði fræða og vís-
inda.“
– Hver eru helstu verkefni
hennar og áherslur?
„Tilgangurinn með stofnun
Reykjavíkurakademíunnar var að
hvetja og örva háskólamenntaða
fræðimenn til starfa og rann-
sókna á sameiginlegum starfs-
vettvangi. Í Akademíunni deila
fræðimenn uppgötvunum sínum
hver með öðrum og efna til sam-
starfs um nýjar hugmyndir og
verkefni, auk þess sem þeir sam-
nýta þar aðstöðu af ýmsu tagi.
Markmiðið er jafnframt að Aka-
demían verði lifandi umræðuvett-
vangur um fræðileg efni og sam-
tímamál. Hún hefur staðið fyrir
ýmsum ráðstefnum með innlend-
um og erlendum fyrirlesurum,
málstofum, auk reglulegra dög-
urðarfunda og hádegisfyrirlestra
þar sem tekin eru fyrir ýmis mál-
efni sem eru í brennidepli hverju
sinni. Akademían stendur fyrir
útgáfu tveggja ritraða. Önnur ber
heitið Atvik, en hin Íslensk menn-
ing. Í Atvikum eru kynntar hug-
myndir og rannsóknir með þýð-
ingum og frumsömdum textum í
smáritum, en ritröðin hefur verið
nýtt til kennslu við hérlendar há-
skólastofnanir. Íslensk menning
er gefin út í samstarfi við Hið ís-
lenska bókmenntafélag. Síðasta
bók ritraðarinnar, Íslenska þjóð-
ríkið – uppruni og
endimörk eftir Guð-
mund Hálfdánarson,
vakti mikla athygli.
Akademían er jafn-
framt aðili að vefritinu
Kistunni, vettvangi menningar,
fræða og lista á Netinu, í sam-
vinnu við Hugvísindastofnun Ís-
lands. Loks hefur Akademían
staðið að mörgum þverfaglegum
námskeiðum í samvinnu við End-
urmenntunarstofnun HÍ.“
– Hvert er efni Rannsóknar-
stefnunar?
„Fyrirsjáanlegar eru miklar
breytingar á umhverfi rann-
sókna- og vísindastarfs á Íslandi.
Menntamálaráðherra hefur þeg-
ar kynnt tillögur sínar að fyrir-
huguðum breytingum en þær fela
í sér gagngera endurskoðun á
skipulagi þessa málaflokks. Í til-
lögunum er gert ráð fyrir því að
færa stefnumótun í rannsóknum
til nýs Rannsóknarráðs Íslands
undir formennsku forsætisráð-
herra, sem í sitji ráðherrar, vís-
indamenn og fulltrúar atvinnulífs.
Er að því stefnt að stefna í vís-
indum, rannsóknum og þróun
setji svip á almenna stefnu rík-
isstjórnarinnar í efnahags- og at-
vinnumálum. Tillögur mennta-
málaráðherra miðast einnig að
því að skilja skýrt á milli tækni-
og atvinnuþróunar og vísinda-
rannsókna. Hinar fyrirsjáanlegu
breytingar í umhverfi vísinda-
rannsókna á Íslandi kalla fram
ýmsar spurningar sem ætlunin er
að reifa á ráðstefnunni, s.s. hverj-
ir eru kostir og gallar þess að
stjórnmálamenn móti stefnuna í
rannsóknum? Hvaða áhrif hefur
mótuð rannsóknarstefna á verk-
efnaval og vinnubrögð fræðilegra
rannsókna á hverjum tíma? Hver
er þýðing aðskilnaðar á milli at-
vinnuþróunar og rannsókna?
Hver er þýðing aðskilnaðar á
milli rannsókna opinberra stofn-
anna og rannsókna einstaklinga
og fyrirtækja þeirra? Hvaða áhrif
mun breytt umhverfi vísinda-
rannsókna hafa á rannsóknir á Ís-
landi? Forsendur fyrir
virku fræðslusamfélagi
og hvað íslenskt rann-
sóknarumhverfi hefur
að bjóða vísindamönn-
um sem hafa lokið
framhaldsnámi?“
– Hvernig verður síðan unnið
úr því sem fram kemur á rann-
sóknarstefnunni?
„Við vonum að við getum með
rannsóknarstefnunni vakið upp
umræður um málefni sjálfstætt
starfandi fræðimanna og um leið
haft áhrif á fyrirhugaðar skipu-
lagsbreytingar á rannsókna- og
vísindastarfi á Íslandi.“
Steinunn Kristjánsdóttir
Steinunn Kristjánsdóttir er
fædd á Patreksfirði 13. október
1965. Fil. kand. og fil. mag. í
fornleifafræði frá Gautaborg-
arháskóla 1993 og 1994.
Forstöðumaður Minjasafns Aust-
urlands 1995–97 og hóf síðan
doktorsnám í fornleifafræði við
Gautaborgarháskóla. Stjórnaði
verkefninu Mörk heiðni og
kristni 1997–2001 og er
frkvstjóri Skriðuklaustursrann-
sókna frá síðustu áramótum. Er í
stjórn Fornleifafræðingafélags
Íslands og situr í fornleifanefnd
ríkisins. Börn hennar eru Sig-
urhjörtur og Helga Valgerður.
…hver er
þýðing
aðskilnaðar?
Það gat ekki verið að hríðskotaleiðarar Jónasar væru látnir detta út.
STJÓRN Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga mun taka til athugunar
tillögu aðalfundar Kaupfélags Þing-
eyinga um að kannaðir verði mögu-
leikar á að koma upp Samvinnusafni
á Húsavík í samstarfi við Samband
íslenskra samvinnufélaga.
Söfn á fleiri stöðum
á landinu
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, for-
maður stjórnar Sambands íslenskra
samvinnufélaga, sagði í samtali við
Morgunblaðið að Sambandið hefði
ekki mikið bolmagn og hann vissi því
ekki hvað yrði. Hins vegar væri
skjalasafn SÍS komið til Húsavíkur.
Það væri gífurlegt að umfangi og það
verkefni væri framundan að fara í
gegnum það og flokka. Héraðs-
skjalasafn Þingeyinga ætlaði að taka
að sér varðveislu á því, en það verk-
efni yrði bæði tímafrekt og dýrt.
„Við munum hins vegar taka fyrir
þetta erindi frá aðalfundinum og
skoða hvað er hægt að gera frekar
þarna,“ sagði Jóhannes Geir.
Hann sagði að á fleiri stöðum á
landinu væru söfn af þessu tagi. Á
Hvolsvelli væri komið kaupfélaga-
safn og á Akureyri hefði Jón Arn-
þórsson safnað miklu inn í iðnaðar-
safn, sem tengdist rekstri Sambands
íslenskra samvinnufélaga á Akur-
eyri á sínum tíma og reyndar rekstri
Kaupfélags Eyfirðinga líka.
Stjórn Sambands íslenskra samvinnufélaga
Erindi KÞ verði skoðað