Morgunblaðið - 18.01.2002, Side 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 13
Útsala
15-60% afsláttur
Opið laugardag 11-16
Sunnudag 13-17Mörkinni 3,sími 588 0640
Brera
Wicky
Calin Extensia
Scoop
fugue
Hera
fjögurra hæða blokk með fimmtíu
íbúðum sem myndi auka umferð inn-
an hverfisins um þriðjung og breyta
ímynd hverfisins. Annað sem gerir
þetta tilvonandi íbúðarhús við Suð-
urhlíðarnar óvænlegan kost er að á
lóð fyrir framan húsið er samkvæmt
nýju aðalskipulagi gert ráð fyrir
munna sem á að taka við bílaumferð
frá undirgöngum undir Fossvoginn.
Enn er ekki vitað hver mengunin
verður frá þessari umferð sem á eftir
að verða umtalsverð.“ Hildur segir
að lóðin við Suðurhlíðar 38 sé í dal og
því er spurning hvort þar gæti mynd-
ast mengunarpollur en það sé órann-
sakað.
„Ég er hrædd um að það sé fleira
sem borgaryfirvöld hafi ekki tekið
með í reikninginn eins og hver verða
viðbrögð íbúanna í þessu fjölbýlis-
húsi, þ.e. ef það verður byggt, þegar
farið verður að reisa mikil umferð-
armannvirki fyrir framan húsið sem
munu hafa veruleg áhrif á gæði stað-
setningarinnar.“
Hildur segir að íbúarnir í Suður-
hlíðum hafi verið að velta því fyrir
sér hvort þeir ættu að efna til al-
menns borg arafundar um þetta mál.
Því þeir telji þetta ekki aðeins vera
mál þeirra einna þar sem svæðið er í
dag vinsælt útivistarsvæði. „Mér
finnst að borgaryfirvöld ættu að
hugsa vel sinn gang áður en þau
framkvæma það sem ég vil kalla, ef
af verður, meiriháttar skipulags-
slys.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
um. Stórt skref hafi síðan verið stigið
um áramótin með því að sameina þá
embættis- og starfsmenn borgarinn-
ar sem vinna að þessum málum undir
eina stofnun.
„Með tilurð þessarar stofnunar
verður til ein af öflugustu stofnunum
landsins á sviði umhverfismála með
hátt á 200 starfsmenn og vel á annan
milljarð króna í veltu miðað við fjár-
hagsáætlun næsta árs. Þetta er auð-
vitað gert í þeirri von að þetta verði til
þess að styrkja málaflokkinn.“
Hann benti á að sömuleiðis hafi
verið stigið skref í átt að því að
styrkja tengsl borgarinnar og sam-
starf í umhverfismálum á alþjóðavett-
vangi, því í vikunni hafi borgarráð
samþykkt að Reykjavík yrði aðili að
ICLEI, sem eru alþjóðleg umhverf-
issamtök sveitarfélaga. Er markmið
samtakanna að styrkja sveitarfélög til
að ná áþreifanlegum árangri í um-
hverfismálum með því að deila
reynslu og vinna saman að lausnum
þeirra. Liðlega 330 sveitarfélög eru
aðilar að samtökunum, þar með tald-
ar allar höfuðborgir Norðurlandanna.
„Mjög víðtæk verkefni“
Ellý K. Guðmundsdóttir lögfræð-
ingur hefur verið ráðin forstöðumað-
ur Umhverfis- og heilbrigðisstofu, en
hún hefur starfað að umhverfismálum
hjá Alþjóðabankanum undanfarin ár.
„Það sem ég myndi kannski vilja
leggja áherslu á er víðfeðmi þeirra
verkefna sem falla undir þessa stofu.
Þarna verðum við með náttúruvernd
og garðyrkju, sorphirðu og endur-
vinnslu sem og innra og ytra eftirlit,
sem fellur kannski mest undir holl-
ustuháttadeildina. Við erum með eft-
irlit og vöktun mengunar og við erum
með eftirlit með matvælum. Þannig
að þarna eru undir einum hatti mjög
víðtæk verkefni sem öll lúta þó að því
sama, að bæta umhverfið.“
Morgunblaðið/Ásdís
Starfsemi Umhverfis- og heilbrigðisstofu var kynnt í gær. F.v. Örn Sig-
urðsson skrifstofustjóri, Rögnvaldur Ingólfsson, deildarstjóri Matvæla-
eftirlits, Rósa Magnúsdóttir, deildarstjóri Hollustuhátta, Ellý K.J. Guð-
mundsdóttir forstöðumaður og Hrannar B. Arnarsson, formaður
Umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur.