Morgunblaðið - 18.01.2002, Page 14
AKUREYRI
14 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURNES
BÆJARRÁÐ Grindavíkur hefur
samþykkt að hverfa frá hugmyndum
um að nýta hluta af húsnæði nýs leik-
skóla til kennslu sex ára barna, vegna
andstöðu innan grunnskólans. Sex
verktakar hafa áhuga á að byggja
leikskólann.
Unnið er að undirbúningi bygging-
ar nýs fjögurra deilda leikskóla í
Lautahverfi, í stað tveggja deilda
skóla sem er í gömlu húsnæði við
Dalbraut. Fyrirhugað var að nýta
hluta af húsnæðinu fyrir kennslu
yngstu barnanna í grunnskóla en frá
því hefur nú verið fallið. Annarra
leiða verður leitað til að nýta þann
hluta húsnæðisins sem ekki er brýn
þörf fyrir vegna reksturs leikskóla í
upphafi, bæjarráð lýsir yfir vilja til
að nýta það meðal annars til að auka
leikskólaþjónustu í bæjarfélaginu.
Einn verður valinn
Auglýst hefur verið eftir áhuga-
sömum verktökum í forvali og gáfu
sex verktakar sig fram. Það eru
Grindin ehf., FM-Hús í samvinnu við
Fjarðarmót, Meistarahús, Keflavík-
urverktakar, Íslenskir aðalverktar í
samvinnu við RV-Ráðgöf og Ístak í
samvinnu við Nýsi.
Að sögn Einars Njálssonar bæj-
arstjóra verða valdir verktakar úr
hópnum til að taka þátt í útboði. Þeir
munu bjóða tilhögun og verð. Verkið
er boðið út sem einkaframkvæmd en
einnig kemur til greina að Grindavík-
urbær fjármagni sjálfur bygginguna,
ef það verður talið hagfelldara.
Sex vilja byggja
leikskóla
Ekki nýttur
fyrir grunn-
skólann
Grindavík
STJÓRN Hitaveitu Suðurnesja hf.
gerir tillögu um að fækkað verði í
stjórn félagsins úr ellefu í sjö. Er það
liður í samningum um kaup á Bæj-
arveitum Vestmannaeyja og samein-
ingu fyrirtækjanna.
Nú eru ellefu menn í stjórn Hita-
veitu Suðurnesja og eru það fulltrúar
sveitarfélaganna á Suðurnesjum,
Hafnarfjarðarkaupstaðar og ríkisins.
Eiga allir hluthafar mann í stjórn,
samkvæmt hlutafasamningi sem
gerður var við breytingu á fyrirtæk-
inu í hlutafélag. Samkomulag var um
að stjórnarmönnum fækkaði í sjö eftir
aðalfund 2003 og þá gætu eigendurnir
nýtt sér að fullu atkvæðavægi sitt við
stjórnarkjör.
Í samningnum við Bæjarveitur
Vestmannaeyja er gert ráð fyrir að
þessi breyting á fjölda stjórnarmanna
og stjórnarkjöri nái strax fram að
ganga og gerir stjórn HS það að til-
lögu sinni á hluthafafundi sem boðað
hefur verið til vegna sameiningarinn-
ar. Ef einhver eignaraðili hreyfir mót-
mælum á grundvelli gildandi hlut-
hafasamnings verður tillagan dregin
til baka og lagt til að fjölgað verði um
einn mann í stjórninni og Vestmanna-
eyingar fái tólfta stjórnarmanninn.
Tillaga um að
fækka stjórn-
armönnum
Reykjanes
SAMKOMUHÚSIÐ í Garði hefur
verið auglýst til leigu eða sölu.
Jóhann Þorsteinsson hefur rekið
Samkomuhúsið í sex ár. Hann hefur
nú sagt upp leigusamningi við
Gerðahrepp og óskar eftir að af-
henda húsið 1. apríl næstkomandi.
Hreppsnefnd Gerðahrepps ákvað
af því tilefni að auglýsa eftir nýjum
rekstraraðilum.
Samkomuhúsið
til leigu eða sölu
Garður
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Gistiheimili í Danmörku
til sölu
Gistiheimilið er á góðum stað á Jótlandi. Eignin er ca
400 m² með íbúð aðskilinni frá gistiheimilinu.
Upplýsingar í s. 462 6946, 891 6946 eða 004596814177.
7 dagar
í Slava
Miðasala opin alla virka
daga kl 13-17 og fram
að sýningu sýningardaga.
Sími 4621488. www.leikfélag.is
TÓNLISTARHÚSIÐ Laugarborg
verður formlega tekið í notkun laug-
ardagskvöldið 19. janúar. Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
verður viðstaddur og flytur ávarp.
Bjarni Kristjánsson sveitarstjóri flyt-
ur einnig ávarp og Eiríkur Hreiðars-
son segir sögu hússins. Tónlistar-
flutningur verður í fyrirrúmi, boðið
verður upp á einleik á píanó og gítar,
einsöng, kórsöng, djasshljómsveit
kemur fram og að lokum koma fé-
lagar úr hljómsveit Ingimars Eydal
eins og hún var skipuð árið 1993 fram.
Félagsheimili hefur verið í Laug-
arborg frá árinu 1959, en það fékk
aukið hlutverk með ákvörðun sveit-
arstjórnar og hússtjórnar síðasta vet-
ur um að ráðast í viðamiklar breyt-
ingar á húsinu til að bæta aðstöðu til
tónlistarflutnings í húsinu. Helsti
hvati að breytingunum var ósk Tón-
listarfélags Akureyrar haustið 2000
þess efnis að flygli í eigu minningar-
sjóðs um Ingimar Eydal yrði komið
fryrir í húsinu.
Leggja þurfti í umtalsverðan
kostnað vegna breytinga til að bæta
húsið til tónlistarflutnings. Raunar
má segja að húsið hafi verið endur-
byggt frá grunni og klætt var upp í
loft í sal samkvæmt tillögum sérfræð-
inga á sviði hljómburðar. Þá voru
gerðar lagfæringar á forstofu, vegg-
klæðningum í sal og fleiru. Tónlist-
armenn sem haldið hafa tónleika í
húsinu telja það nú með bestu tónlist-
arhúsum í landinu.
Tónlistar-
húsið Laug-
arborg tekið
í notkun
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra heldur fyrirlestur um sjáv-
arútvegsstefnu ESB í Háskólanum á
Akureyri á morgun, föstudaginn 18.
janúar.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
húsnæði háskólans á Sólborg, í stofu
L201, og hefst klukkan 15.00. Áður
en fyrirlesturinn hefst mun Jón
Þórðarson, forseti Sjávarútvegs-
deildar, flytja stutt ávarp og eftir
fyrirlesturinn verður orðið gefið
laust og fyrirspurnir leyfðar.
REKI, félag rekstrardeildar-
nema, efnir til fyrirlestursins og býð-
ur upp á veitingar.
Fyrirlestur um
sjávarútvegs-
stefnu ESB
ÞÓRGNÝR Dýrfjörð hefur verið
ráðinn menningarfulltrúi Akureyrar-
bæjar en hann var valinn úr hópi
rúmlega 20 umsækjenda um stöðuna.
Þórgnýr starfar sem deildarstjóri
búsetu- og öldrunardeildar Akureyr-
arbæjar en tekur við nýja starfinu
innan tíðar. Þórgnýr tekur við starfi
menningarfulltrúa af Ingólfi Ár-
mannssyni sem kominn er á aldur.
Þórgnýr ráðinn
menningarfulltrúi
STÓRMEISTARARNIR Hannes
Hlífar Stefánsson og Helgi Ólafsson
verða leiðbeinendur á skáknám-
skeiði Skákskóla Íslands og Skák-
félags Akureyrar um helgina.
Námskeið fyrir grunnskólanem-
endur hefst á laugardag kl. 11.00 og
stendur fram til kl. 17 en einnig verð-
ur kennt á sunnudag. Skráning fer
fram á staðnum og er námskeiðs-
gjaldið kr. 800 en veittur er systk-
inaafsláttur. Innifalin er m.a. máltíð
báða dagana.
Skáknámskeið Skákskóla Íslands
hafa farið fram á Akureyri til fjölda
ára og hefur þátttaka barna og ung-
linga verið mjög góð. Þátttakendur á
námskeiðinu þurfa að kunna mann-
ganginn og helst að hafa verið með í
námskeiðum eða í mótum grunn-
skóla áður.
Skáknámskeið fyrir
grunnskólabörn
Stórmeistarar
leiðbeina
BLIKKRÁS hlaut jafnréttisvið-
urkenningu jafnréttisnefndar Ak-
ureyrarbæjar fyrir árið 2001, en við-
urkenningin var nú veitt í fyrsta
sinn og er stefnt að því að um árleg-
an viðburð verði að ræða.
Sigrún Stefánsdóttir, formaður
nefndarinnar, sagði að tilgangurinn
væri fyrst og fremst að hvetja fyr-
irtæki, stofnanir og félagasamtök til
virks jafnréttis, en jafnréttissjón-
armið vildu oft gleymast eða væru
lögð til hliðar við áætlanagerð og
stefnumörkun. Með viðurkenning-
unni vildi jafnréttisnefnd Akureyrar
vekja athygli á því sem vel væri gert
í þágu jafnréttismála og liti á hana
sem hvatningu til fyrirtækja, stofn-
ana og félagasamtaka að gera átak í
þessum efnum.
Sigrún sagði að Blikkrás væri
hefðbundinn karlavinnustaður en
allt frá upphafi hafi konur starfað
hjá fyrirtækinu við iðnina sjálfa. Að-
eins tvær konur á landinu eru lærðir
blikksmiðir og er önnur þeirra
meistari í greininni, en hún vinnur
hjá Blikkrás.
Fyrirtækið hefur frá því það var
stofnað 1986 viðhaft jafnlaunastefnu
og greitt sömu laun fyrir sömu störf.
Fjölskyldan er í fyrirrúmi hjá fyr-
irtækinu, þegar starfsfólki er gerð-
ur dagamunur er fjölskyldum þeirra
boðið með. „Fjölskylduvæn stefna
fyrirtækja er hluti af jafnrétt-
isstefnu, það að karlmenn fái sömu
tækifæri og konur til að sinna börn-
um sínum og fjölskyldu og það um-
burðarlyndi og sveigjanleiki sé bor-
inn fyrir því að þeir þurfi að vera frá
vinnu vegna þessa er jafnréttissjón-
armið sem ætti að vera til staðar í
öllum fyrirtækjum,“ sagði Sigrún.
Oddur Helgi Halldórsson, eigandi
Blikkrásar, sagði viðurkenninguna
hafa komið á óvart. „Við tökum við
þessari viðurkenningu með stolti og
gleði. Það er hvetjandi að fólk hafi
tekið eftir því sem við erum að gera
í fyrirtækinu,“ sagði Oddur Helgi.
Viðurkenning Jafnréttisnefndar Akureyrarbæjar
Morgunblaðið/Kristján
Sigrún Stefánsdóttir, formaður jafnréttisnefndar Akureyrarbæjar t.h., með systkinunum Oddi Helga Halldórs-
syni, framkvæmdastjóra Blikkrásar, og Freydísi Halldórsdóttur.
Blikkrás hlaut fyrstu
viðurkenninguna
ÞAÐ fer heldur lítið fyrir skíðafólki í
Hlíðarfjalli þessa dagana. Þar er jörð
þó orðin hvít og er göngubrautin op-
in en hún er sporlaus ennþá. Á sama
tíma í fyrra hafði verið opið í fjallinu í
um 30 daga. Björn Einarsson starfs-
maður Skíðastaða í Hlíðarfjalli sagði
að enn vantaði töluvert af snjó í fjall-
ið.
„Það þýðir ekkert að fara á taug-
um yfir ástandinu, það batnar ekkert
við það. Við höfum engin áhrif á
veðrið og þetta bara hefur sinn gang.
Það gæti eitthvað farið að gerast eft-
ir helgina en við höfum nóg að gera
hér.“
Björn sagði að þó nokkuð væri um
fyrirspurnir frá fólki að sunnan, þar
sem m.a. væri verið að athuga með
gistingu fyrir hópa og einstaklinga,
bæði uppi í Hlíðarfjalli og í bænum.
„Mér sýnist að þetta geti því orðið
líflegt þegar það fer af stað.“
Björn sagði að hótel- og gistihúsa-
eigendur væru orðnir nokkuð
óþreyjufullir yfir ástandinu. Páll Sig-
urjónsson hótelstjóri Hótel KEA og
Hótel Hörpu sagði að vissulega væru
menn farnir að horfa til fjallsins og
undir það tók Anna Kristín Haralds-
dóttir á Lylkilhóteli Norðurlands.
Áhugi fyrir páskunum
að aukast
Páll sagði að þegar skíðafæri væri
í Hlíðarfjalli gæti hann reiknað með
gestum í tengslum við það. Hins veg-
ar kannaðist hann ekki við afpant-
anir á gistingu vegna snjóleysis og
Anna Kristín ekki heldur.
Páll sagði að þegar væru farnar að
berast bókanir fyrir páskana og
hefði áhuginn fyrir páskum á Akur-
eyri verið að aukast ár frá ári. Á öðr-
um tímum væri fólk að ákveða sig
með mun skemmri tíma og að þá
hefði veðurspáin fyrir helgar mikil
áhrif.
Anna Kristín sagði að það væri
heldur daufara yfir hlutunum nú
þegar skíðafólkið vantaði. Hún sagði
að lítið hefði verið um fyrirspurnir
vegna páskanna og að þar hafi tíð-
arfarið vafalítið áhrif á.
Enn snjólítið í Hlíðarfjalli
Þýðir ekkert að
fara á taugum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
RAGNAR Hólm Ragnarsson hefur
verið ráðinn verkefnisstjóri kynn-
ingar- og upplýsingamála hjá Akur-
eyrarbæ. Hér er um nýja stöðu að
ræða og mun Ragnar hefja störf
fljótlega.
Mikill áhugi var fyrir stöðunni og
alls bárust 47 umsóknir um hana en
þrír umsækjendur drógu umsóknir
sínar til baka.
Ragnar hefur m.a. starfað sem
kynningarstjóri Norðurljósa og sem
deildarstjóri kynningardeildar Ís-
lenska útvarpsfélagsins.
Ragnar Hólm
verkefnisstjóri