Morgunblaðið - 18.01.2002, Side 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 15
ÁRNI Sigfússon og fjölskylda eru að
undirbúa flutning til Reykjanes-
bæjar þar sem hann verður í fram-
boði. Þau hafa selt hús sitt í Reykja-
vík og keypt í Keflavík.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í
Reykjanesbæ samþykkti samhljóða
á fundi sínum fyrir skömmu að
bjóða Árna Sigfússon, fyrrverandi
framkvæmdastjóra, borgarfulltrúa
og borgarstjóra í Reykjavík, fram í
fyrsta sæti lista síns við bæjarstjórn-
arkosningarnar í maí og að hann
verði jafnframt bæjarstjóraefni
sjálfstæðismanna. Ellert Eiríksson,
sem lengi hefur verið bæjarstjóri,
gefur sem kunnugt er ekki kost á
sér áfram.
Aðdragandinn að þessari ákvörð-
un hefur verið töluverður, þótt hann
hafi lengi vel ekki farið hátt. „Ég
stóð frammi fyrir þremur áhuga-
verðum verkefnum þegar fyrir lá að
ég léti af störfum hjá Aco-Tækni-
vali. Eitt var erlendis, í Bandaríkj-
unum, annað í höfuðborginni og það
þriðja var framboð í Reykjanesbæ.
Þorsteinn Erlingsson bæjarfulltrúi
hafði upphaflega samband við mig
til að velta þessum möguleika upp.
Ég ræddi við Ellert bæjarstjóra og
fleiri bæjarfulltrúa og hugleiddi
þetta nokkuð. Stjórn fulltrúaráðsins
ákvað síðan að leita formlega eftir
því hvort ég vildi fara fyrir listanum
og ég ákvað að verða við því. Ég
lagði áherslu á að einhugur væri
meðal sjálfstæðisfólks gagnvart
þessu og það var staðfest á fundi
fulltrúaráðsins í síðustu viku,“ segir
Árni.
Hann segist strax hafa séð að
verkefnið væri áhugavert. „Nám
mitt í stjórnun og opinberri stjórn-
sýslu snerist að hluta um stjórnun
sveitarfélaga. Ég hef verið í stjórn-
málum frá unga aldri og hef aflað
mér töluverðrar reynslu í borg-
armálunum og hef haft áhuga á
stjórnun fyrirtækja.“
Eftirsóknarverður
bæjarbragur
En Árni viðurkennir að ákvörð-
unin hafi einnig verið erfið. Það hafi
verið mikil ákvörðun að fara frá
góðu heimili á góðum stað og með
börnin úr góðum skólum. Þessi
ákvörðun hafi hins vegar verið tekin
sameiginlega af fjölskyldunni. Hann
telur að sú staðreynd að hann hafi
verið að íhuga atvinnutilboð frá
Bandaríkjunum hafi létt ákvörð-
unina, þau hafi þar með verið farin
að hugsa um möguleikann á flutn-
ingi. Þá segir hann að Bryndís hafi
verkefni hjá varnarliðinu, samhliða
rekstri sínum í Reykjavík, og sé þess
vegna tvo daga í viku á Keflavík-
urflugvelli. Breytingin sé því ekki
eins mikil fyrir hana og annars hefði
getað orðið.
„Þegar menn leiddu mig inn í
þetta samfélag suður frá, sýndu mér
möguleikana þar, sagði reynslan
mér að hér væri tækifæri sem ég
gæti ekki sleppt. Við þetta bættist
að ég hef fundið fyrir góðum hug
bæjarbúa í minn garð. Sjálfstæð-
ismenn hafa verið einhuga í sínum
ákvörðunum og ég hef heyrt frá
fjölda einstaklinga sem hafa boðið
okkur velkomin. Það er sérstakt og
sýnir að þarna er bæjarbragur sem
okkur finnst eftirsóknarverður,“
segir Árni.
Árni Sigfússon telur ekki að það
verði mikið átak að setja sig inn í
málefni Reykjanesbæjar. Hann
þekki til allra helstu málaflokkanna
úr fyrri störfum sínum fyrir Reykja-
víkurborg og í fyrirtækjarekstri.
Grunnurinn sé sá sami. „Út frá
menntun minni lít ég kannski til
samfélaga á annan hátt en sumir
aðrir. Landrými ræður því mikið
hvaða möguleikar eru til uppbygg-
ingar. Reykjanesbær hefur yfir
miklu og góðu landi að ráða. Og ef
litið er til innviða samfélagsins sést
að þar eru frábærlega vel upp
byggðir skólar og öflugar hafnir og
margvísleg tækifæri í atvinnu-
málum. Orkan og alþjóðaflugvöllur
skapa einstaka stöðu fyrir Reykja-
nesbæ. Staðan er því sterk og góður
grunnur til frekari uppbyggingar.
Ekki má heldur gleyma því að ég
er ekki einn í þessu verkefni. Á list-
anum með mér verður gott fólk sem
hefur víðtæka þekkingu og hefur
sýnt frumkvæði í ýmsum mikil-
vægum málaflokkum. Og ég veit
ekki betur en að á öðrum framboðs-
listum verði einnig fólk með mik-
ilvæga þekkingu.“
Ekkert sjálfgefið
Þótt Árni sé bæjarstjóraefni sjálf-
stæðismanna og sjálfstæðismaður
hafi haft það embætti með höndum á
undanförnum árum er ekki þar með
sagt að hann verði bæjarstjóri eftir
næstu kosningar. Til þess þarf Sjálf-
stæðisflokkurinn að ná hreinum
meirihluta í bæjarstjórninni eða
mynda meirihluta með öðrum.
Hann tekur það fram að ekki sé
rétt að gera ráð fyrir því að sjálf-
stæðismenn nái hreinum meirihluta.
Þeir hafi unnið fimmta manninn í
síðustu kosningum og raunhæfara
sé að stefna að því að halda honum
en að bæta þeim sjötta við. En bætir
því við að enginn afþakki atkvæði.
Árni segir að meirihlutasamstarf
sjálfstæðismanna og framsókn-
armanna hafi verið farsælt en segir
eðlilegt að flokkarnir gangi óbundn-
ir til næstu kosninga. Hann hefur
vakið máls á því að sveitarstjórn-
armálin séu þess eðlis að mögu-
leikar ættu að vera á víðtækara
samstarfi bæjarfulltrúanna um
ákvarðanir. Í því sambandi rifjar
hann það upp að flokkarnir hafi ver-
ið samstiga í uppbyggingu grunn-
skólanna í Reykjanesbæ og allir
flokkar átt fulltrúa sína í nefnd sem
vann að henni. „Ég tel unnt að vinna
meira á þeim grunni þegar stór mál
eru til meðferðar,“ segir hann.
Árni og fjölskylda hans eru að
undirbúa flutning til Reykjanes-
bæjar. Þau hafa keypt sér hús í
Keflavík og selt hús sitt í Reykjavík.
„Það er mikilvægt að hafa tekið
þetta skref til að sýna að fullur hug-
ur fylgir máli.“ Hann segist búast
við að fá húsið afhent í mars og eftir
það verði þau mikið á báðum stöð-
um, þar til skóla ljúki hjá drengj-
unum í vor.
Hann einbeitir sér að framboðinu
í vetur og segist ekki hugsa um hvað
taki við ef markmiðin nást ekki að
fullu. „Það má öllum vera ljóst að ég
hef sett mér það markmið að verða
bæjarstjóri. Undirbý mig fyrir það
og vinn að því ötullega. Vitaskuld
vona ég að það gangi eftir en geri
mér grein fyrir því að ekkert er
sjálfgefið í því efni. Mig hefur hins
vegar aldrei skort verkefni og kvíði
ekki framtíðinni, þótt eitthvað kunni
að fara öðruvísi en vonast er til.
Okkur líkar stöðugt betur við
samfélagið. Ég sé ekkert því til fyr-
irstöðu að við gætum unnið þaðan
að verkefnum okkar og gilti þá einu
hvar þau væru. Það er mikill styrk-
ur að búa í bæ nærri heimsborgum.
Það eykur því möguleikana að búa
hér, fremur en að takmarka þá,“
segir Árni Sigfússon.
Fullur hugur fylgir máli
Morgunblaðið/Ásdís
Árni Sigfússon, bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ.
Reykjanesbær