Morgunblaðið - 18.01.2002, Síða 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 19
ÞRÓUN á peningamarkaði bendir til
að vextir þar hafi farið stighækkandi
þvert á væntingar um lækkandi vexti
og í Morgunkorni Íslandsbanka ný-
verið segir að ekki verði annað ráðið
af þessu en að lausafjárstaða í banka-
kerfinu sé mjög erfið um þessar
mundir.
Fram kemur í Morgunkorni að bil-
ið hefur gliðnað mjög milli REIBOR-
vaxta til eins mánaðar og stýrivaxta
Seðlabankans (vextir í endurhverf-
um viðskiptum til tveggja vikna), en
það bendir til þess að mikil eftirspurn
sé eftir fjármunum til skamms tíma.
Aukning í endurhverfum viðskipt-
um lánastofnana við Seðlabankann
staðfestir þetta einnig, en slík við-
skipti virka í raun sem skammtíma-
fjármögnun fyrir lánastofnanir. Úti-
standandi fjárhæð slíkra viðskipta er
nú 81,5 milljarðar króna, en var til
samanburðar 46 milljarðar króna á
sama tíma í fyrra.
„Segja má að meginástæða þess-
arar þróunar sé framvindan á gjald-
eyrismarkaði síðustu misseri, en inn-
grip Seðlabankans draga úr
framboði á krónum. Frá því um mitt
ár 2000 nema inngrip Seðlabanka á
gjaldeyrismarkaði 35 ma.kr. Í des-
embermánuði seldi Seðlabankinn
gjaldeyri (keypti krónur) fyrir 5
ma.kr. og gerði gjaldmiðlaskipta-
samning á móti fyrir 4 ma.kr. Með
því að gera slíkan samning má sam-
hliða minnka áhrif inngripa (eða
kaupa Seðlabanka á krónum) á fram-
boð á krónum. Slík ráðstöfun við nú-
verandi aðstæður verður að teljast
jákvæð,“ segir í Morgunkorni Ís-
landsbanka.
Lausafjárstaða í
bankakerfinu erfið
SPÁNSK-ÍSLENSKA verslunar-
ráðið efnir til málþings um viðskipti
milli Spánar og Íslands, í dag, föstu-
daginn 18. janúar, kl. 14-16:30 í fund-
arsal Verslunarráðs Íslands, 7. hæð í
Húsi verslunarinnar.
Á málþinginu mun Linda Jó-
hannsdóttir framkvæmdastjóri á
sérvörusviði Baugs hf. kynna rekst-
ur verslana Zöru og lýsa um leið
hvernig samskiptum íslensks fyrir-
tækis við stóra spænska vöru-
merkjakeðju hefur gengið. Hús-
gagnaverslunin Exó hefur lengi flutt
inn húsgögn frá Spáni og skipt við
ýmiss konar þarlenda aðila. Ingi Þór
Jakobsson er framkvæmdastjóri
Exó og hann mun segja frá reynslu
sinni í þessum efnum. Hampiðjan
hefur um árabil verið í miklum út-
flutningi til Spánar. Atli Jósafatsson
er sviðs- og sölustjóri hjá Hampiðj-
unni og hann mun lýsa þessari sölu-
starfsemi með tilliti til tæknilegra
atriða í viðskiptum við Spán. Páll
Þór Ármann, markaðs- og sölustjóri
Ferðaskrifstofu Íslands Úrvals-Út-
sýnar, mun að lokum lýsa áratug-
areynslu íslenskrar ferðaskrifstofu
af samskiptum við ferðaiðnaðinn á
Spáni.
Málþing um
viðskipti
milli Spánar
og Íslands
HEILDARAFLI Íslendinga í des-
embermánuði síðastliðnum var um
91.500 tonn, sem er mun meiri afli en
var í desember 2000. Þá var heildar-
aflinn um 57.000 tonn. Afli er nú
meiri af bolfiski, mun meiri af upp-
sjávarfiski og nokkru meiri af skel-
fiski.
Botnfiskfiskaflinn í desember síð-
astliðnum var 33.200 tonn á móti
29.400 tonnum árið áður. Mestu
munar þar um aukinn þorskafla, en
nú veiddust 19.200 tonn en 16.000 ár-
ið 2000. Þá hefur karfaafli aukizt og
var hann nú 3.300 tonn, sem er um
500 tonnum meira en í desember
2000.
55.000 tonn af uppsjávarfiski
Alls veiddust tæplega 55.000 tonn
af uppsjávarfiski í desember í fyrra
en tæplega 25.000 tonn árið áður.
Munurinn liggur að mestu í loðnu því
núveiddust 15.700 tonn, en ekkert í
desember árið 2000. Nú veiddust
11.200 tonn af kolmunna, um tvöfalt
meira en árið áður og af síld bárust
28.000 tonn á land nú en 19.400 í des-
ember 2000.
Skelfiskafli varð nú 3.300 tonn
sem er tæplega 500 tonnum meira en
árið áður og munar mest um aukinn
afla úthafsrækju. Hins vegar veidd-
ist nú minna af rækju á Flæmska
hattinum.
Aukinn
afli í des-
ember
!
"#$$$
%&"''%
('"))%
!"
#
#
"#$$'
Fer›atæki me› geislaspilara, útvarpi
og segulbandi.
Nicam stereo 6 hausa myndbandstæki
me› longplay, NTSC-afspilun, 2x scart-
tengjum og RCA-tengjum a› framan.
Fer›atæki me› geislaspilara, útvarpi
me› stö›vaminni, segulbandi og
fjarst‡ringu.
28" litasjónvarp me› textavarpi, Nicam
stereo hljó›kerfi, öllum a›ger›um á skjá,
textavarpi, 2x scart-tengjum, RCA-tengjum
a› framan og ‡msu ö›ru.
Sambyggt 20" litasjónvarp og
myndbandstæki me› textavarpi og
NTSC-afspilun.
DVD-spilari sem getur spila› diska
af öllum svæ›um, auk margra
möguleika.
Kolster TVC285 ver› á›ur 54.990 kr.
Tilbo›
39.990 k
r.
Tilbo›
44.990 k
r.
Tilbo›
4.990 kr.
Tilbo›
19.990 k
r.
Tilbo›
19.990 k
r.
Tilbo›
12.990 k
r.
United TVC1141 ver› á›ur 49.990 kr.
Grundig RR770 ver› á›ur 16.990 kr.
United DVD1151 ver› á›ur 26.990 kr.
United VCR1130 ver› á›ur 23.990 kr.
United RCD2353 ver› á›ur 6.990 kr.
Smáralind
Ver›sprengja