Morgunblaðið - 18.01.2002, Side 20
ERLENT
20 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ofbeldisverkum. Segjast jafnvel
margir meira en reiðubúnir til að
fórna eigin persónufrelsi ef það
mætti verða til að veita þeim ör-
yggiskenndina að nýju.
„Í tíð talibana gastu gengið um
stræti borgarinnar hvort heldur
var dagur eða nótt. Núna verðum
við að sofa með byssu undir kodd-
anum vegna þess að á okkur gætu
ráðist ræningjar fyrirvaralaust,“
segir Abdul Haddi, sem er 35 ára
bílasali. „Við höfum endurheimt
réttinn til að hlusta á tónlist og
það er enginn að angra okkur
fyrir að skerða skegg okkar. En
tónlistin tryggir ekki salt í graut-
inn. Við kjósum frekar öfgar en
óstöðugleika.“
Aldrei upplifað stöðugleika
nema á tímum talibana
Undir þetta taka námsstúlkur
og kennarar þeirra við hjúkr-
unarskóla í borginni. Segjast
stúlkurnar óttast mjög að verða
fórnarlömb níðinga og þær hafa
farið fram á að skólinn sjái þeim
fyrir akstri til og frá skóla, svo
að þær þurfi ekki að ganga götur
borgarinnar.
Skóli þessi fékk sérstakt starfs-
leyfi frá talibanastjórninni gegn
því að reglum íslam væri hlýtt til
hins ítrasta, þ.e. að engum körl-
um væri heimilaður aðgangur að
vistarverum skólans, aldrei yrðu
haldnar veislur eða tónlist leikin
og að sérstök rúta sæi um að
keyra stúlkurnar, sem að sjálf-
sögðu áttu að bera búrku til að
hylja ásjónu sína í skólanum.
Andrúmsloftið innan skólans er
mun afslappaðra eftir að talib-
anar fóru frá en aðstæður utan
skólabyggingarinnar eru hins
vegar varasamari, að sögn stúlkn-
anna.
„Við erum ringlaðar og ótta-
slegnar. Það eru byssumenn hvar-
vetna á ferli og alger ringulreið
ríkir,“ segir Khatira, sem er átján
ára. „Ég hef ímugust á byssum og
langar bara til að fá að læra í
friði. Ég fæddist á tímum átaka
og hef aldrei upplifað samfélags-
legan stöðugleika nema á tímum
talibana. Á tímum róttækni í trú-
málum gat ég lært án þess að
þurfa að óttast um líf mitt. Nú
get ég það ekki.“
Telja margir að ef bráðabirgða-
stjórn Hamids Karzai takist ekki
að tryggja frið og ró muni talib-
anahreyfingin auðveldlega geta
komið aftur fram á sjónarsviðið.
„Margir þora ekki að segja sann-
leikann en það eru ekkert allir
múslimir hér ánægðir með breyt-
inguna,“ sagði Mohammed Halim,
sem er 19 ára. „Talibanar voru
ekki allir glæpa- eða hryðju-
verkamenn; þeir voru fólk eins og
við hin og þeir eru enn til staðar.
Ef stjórnin stendur sig ekki í
stykkinu geta þeir komið saman á
ný og náð Kandahar á sitt vald á
örfáum dögum,“ sagði hann.
EKKI fagna allir Afganar falli
talibanastjórnarinnar í Afganist-
an. Margir íbúar borgarinnar
Kandahar í suðurhluta landsins
líta t.d. með eftirsjá til stjórn-
artíðar talibana og segjast frekar
kjósa öfgar í trúmálum en póli-
tískan óstöðugleika eins og þann
sem svo lengi einkenndi Afganist-
an, og sem þeir telja nú að ráði
ríkjum að nýju.
Á hverjum degi laumar hópur
fólks sér inn í grafreit talibana í
útjaðri Kandahar, sem var höf-
uðborg talibanastjórnarinnar er
hún var og hét. Þar rétta menn
hljóðlega við fallna legsteina og
virða fyrir sér áletranir, sem oft-
ar en ekki rekja nákvæmlega þátt
viðkomandi stríðsmanns í heilögu
stríði talibana gegn „hinum van-
trúuðu“.
Annars staðar í Kandahar hef-
ur verið lagður nýr grafreitur og
hafa 74 erlendir liðsmenn talib-
ana og al-Qaeda hryðjuverka-
samtakanna verið greftraðir þar
en þeir féllu í sprengjuárásum
Bandaríkjanna í október og nóv-
ember. Koma fjöldamargir Afg-
anir á hverjum degi til að heiðra
minningu þessara manna, gjarnan
sjúkt fólk sem leitar blessunar
hinna dauðu en þeir sem gerst
hafa píslarvottar í þágu íslam eru
taldir búa yfir sérstökum kröft-
um. Ungir menn heimsækja líka
grafreitinn og henda í reiði sinni
grjóti í útlendinga sem gera sig
líklega til að skoða áletranir á
grafsteinunum.
„Þessir drengir dóu einir, fjarri
heimabyggðum sínum. Þeir voru
trúbræður okkar og við fellum
tár í minningu þeirra,“ segir Sher
Mohammed, sem er 65 ára. „Það
er skylda hvers múslíma að
tryggja að þessir menn fái þá
greftrun sem þeir eiga skilið.“
Búa nú við stöðugan ótta
Fólkið í Kandahar leggur allt
annað mat á fall talibana en aðrir
íbúar Afganistan. Í Kandahar
voru höfuðstöðvar talibanastjórn-
arinnar, sem réð ríkjum í 5 ár, og
íbúar borgarinnar eru af sömu
þjóð og leiðtogar talibana, þ.e. af
þjóð Pastúna.
Nú þegar bráðabirgðastjórn,
sem hefur að geyma fulltrúa allra
þjóðanna sem byggja Afganistan,
hefur tekið við völdum syrgja
margir íbúar Kandahar talibana,
en þeir segja stjórnartíð þeirra
hafa fært sjö ár friðar, stöð-
ugleika og sátta milli þjóðarbrot-
anna.
Segja sumir íbúanna að þeir búi
nú við stöðugan ótta við vopnaða
illvirkja, þrátt fyrir að meira en
þrjú þúsund bandarískir hermenn
séu í Kandahar í því skyni að
tryggja friðinn. Vilja margir að
Bandaríkjamennirnir taki á of-
beldisseggjum í stað þess að eyða
kröftum sínum í leitina að þeim
liðsmönnum al-Qaeda sem enn
þrjóskast við.
Íbúarnir lýsa miklu vantrausti
á hinn nýja héraðshöfðingja, Gul
Agha Shirzai, sem gegndi sama
starfi snemma á síðasta áratug
síðustu aldar við lítinn orðstír.
Og þó að ekki hafi endilega all-
ir verið hlynntir því, hversu
strangt talibanar túlkuðu ýmis
lög og reglur íslamstrúar, þá lýsa
allir söknuði eftir ströngum við-
urlögum talibana við glæpum og
„Kjósum frek-
ar öfgar en
óstöðugleika“
The Washington Post/Pamela Constable
Afganskar konur syrgja fallna talibana í Kandahar. Borgin var höfuðvígi talibanastjórnarinnar.
Margir íbúar Kandahar syrgja fallna
talibana og heiðra grafir þeirra
Kandahar. The Washington Post.
’ Talibanar voruekki allir glæpa- eða
hryðjuverkamenn;
þeir voru fólk eins og
við hin og þeir eru
enn til staðar. Ef
stjórnin stendur
ekki í stykkinu geta
þeir komið saman á
ný og náð Kandahar
á sitt vald á örfáum
dögum. ‘
ÁHRIFAMIKLIR Pastúnar,
þeirra á meðal nokkrir ráðherrar í
bráðabirgðastjórninni í Afganistan,
hafa gert múllanum Mohammed
Omar, leiðtoga talibana, kleift að
komast hjá handtöku, að sögn virts
fréttaskýranda í Kabúl.
Faizullah Jalal, kennari í stjórn-
málafræði við Kabúl-háskóla, segir
að nokkrir hópar Pastúna í suður-
hluta Afganistan hafi skotið skjóls-
húsi yfir Mohammed Omar og vilji
ekki að hann verði handtekinn.
Jalal telur að Hamid Karzai, leið-
togi bráðabirgðastjórnarinnar, hafi
ekki gert upp hug sinn um hvort
handtaka eigi Omar. „Hann mun
ekki greiða fyrir því að Omar flýi
en vilji hann flýja mun enginn
reyna að hindra það.“
Karzai er Pastúni frá suðurhluta
Afganistans eins og Omar og
áhrifamikill meðal ættflokkanna
þar. Hreyfingar í Pakistan, sem
studdu talibana til valda árið 1996,
eru einnig sagðar hafa veruleg
áhrif á ættflokkana.
„Siglir milli skers og báru“
„Karzai getur ekki gert upp við
sig hvað gera eigi við talibanaleið-
togana sem hafa verið handteknir,“
sagði Jalal. „Hann vill að þeir verði
látnir lausir svo hann geti haldið
nánum tengslum sínum við ætt-
bálkana í suðurhluta Afganistans.
Hann telur einnig að áhrif þeirra
minnki verði þeir leystir úr haldi.“
Karzai er hins vegar milli steins
og sleggju því Bandaríkjastjórn
leggur fast að honum að framselja
talibanaleiðtogana til að hægt verði
að draga þá fyrir rétt.
„Flestir Afganar vilja að Omar
verði leiddur fyrir alþjóðlegan
dómstól, líkt og Slobodan Milosevic
[fyrrverandi forseti Júgóslavíu],“
sagði Jalal. „En fámennur hópur
manna vill hins vegar ekki að hann
verði handtekinn.“
Jalal kvaðst ekki geta neitað því
að í þessum hópi væru nokkrir ráð-
herrar í bráðabirgðastjórninni en
taldi ekki að Karzai væri einn af
þeim. Hann sagði að Karzai sigldi
milli skers og báru, vildi halda
Bandaríkjamönnum ánægðum án
þess að ergja áhrifamikla hópa í
suðurhluta Afganistans.
„Þar sem stjórn hans verður að-
eins við völd í hálft ár þarf hann að
hugsa um framamöguleika sína til
lengri tíma litið í Kandahar-hér-
aði.“
Áhrifamiklir
Pastúnar sagðir
vernda Omar
Kabúl. AFP.
YFIRVÖLD í Bandaríkjunum
hafa birt níu ákærur á hendur
Bretanum Richard Reid, sem
grunaður er um að hafa ætlað að
sprengja bandaríska farþegaþotu
í loft upp með sprengju sem
fannst í skó hans 22. desember.
John Ashcroft, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að
Reid hefði meðal annars verið
ákærður fyrir tilraun til mann-
dráps og ætti allt að fimm lífstíð-
arfangelsisdóma yfir höfði sér.
Reid var m.a. ákærður fyrir til-
raun til að drepa bandaríska
borgara og fólk í flugvél, tilraun
til að eyðileggja flugvél og beita
henni sem gereyðingarvopni, og
fyrir að lauma sprengju í flugvél.
Varað við frekari árásum
hryðjuverkamanna
Fimm af ákærunum geta varð-
að lífstíðarfangelsi. Áður hafði
Reid verið ákærður fyrir að trufla
áhöfn farþegaþotunnar og ógna
henni.
Ashcroft sagði að samtök
Osama bin Ladens, al-Qaeda,
hefðu þjálfað Reid í hryðjuverk-
um. „Ákærurnar á hendur Reid
sýna, svo ekki verður um villst, að
hætta er á að al-Qaeda geri aftur
árás í Bandaríkjunum. Við verð-
um að vera á varðbergi. Hryðju-
verkamenn, sem al-Qaeda hefur
þjálfað, geta gert árásir af eigin
rammleik eða sem félagar í
hryðjuverkasamtökunum. Við
verðum að gera ráð fyrir því að
þeir grípi til aðgerða.“
Ashcroft lauk lofsorði á áhöfn-
ina og farþega sem yfirbuguðu
Reid þegar hann reyndi að
kveikja í sprengiþræði í skó sín-
um á leiðinni frá París til Miami í
Bandaríkjunum 22. september.
Reid er nú í fangelsi í Boston.
Reid, 28 ára múslími, gekk í
sömu mosku í London og Zac-
arias Moussaoui, eini maðurinn
sem hefur verið ákærður fyrir að-
ild að hryðjuverkunum í Banda-
ríkjunum 11. september. Breska
leyniþjónustan er sögð hafa hler-
að símasamtöl þeirra og hermt er
að Reid hafi verið þjálfaður í
hryðjuverkum í sömu þjálfunar-
búðum al-Qaeda og Moussaoui.
„Skósprengjumaðurinn“ ákærður í Bandaríkjunum
Á fimm lífstíðarfang-
elsisdóma yfir höfði sér
Washington. AFP.
Reuters
Richard Reid
Mun hafa fengið þjálfun í hryðjuverkum hjá al-Qaeda