Morgunblaðið - 18.01.2002, Side 25
LISTIR/KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 25
Lokaumsóknarfrestur Nýsköpunaráætlunar ESB er 15. mars n.k. Kallað er eftir verkefnaumsóknum
sem innihalda tækniyfirfærslu og áherslur á almenn atriði sem eru til þess fallin að greiða fyrir
frumlegum tækniyfirfærslum. Sjálfbær þróun og þekkingarstjórnun eru þættir sem tekið verður
tillit til en mikilvægast er að verkefnin skapi þekkingu og getu til að styðja við nýsköpun til lengri
tíma. Hægt er að sækja um allt að 50% af kostnaði verkefnis. Umsækjendur geta verið fyrirtæki,
háskólar, rannsóknastofnanir, svæðisbundnar stuðningsstofnanir, samtök og fl.
Umsóknargögn og upplýsingar er að finna á vefsíðu ESB:
http://www.cordis.lu/innovation-smes/calls/200102.htm
RANNÍS býður upp á styrki til undirbúnings verkefnaumsókna í Nýsköpunaráæltun ESB
(sjá: http://www.rannis.is/althjodasamstarf.htm)
Nánari upplýsingar og aðstoð:
Dagana 15. - 25. janúar veita Þorvaldur Finnbjörnsson, stjórnarnefndarfulltrúi Íslands í
Nýsköpunaráætlun ESB thorvald@rannis.is og Hjördís Hendriksdóttir forstöðumaður alþjóðasviðs
RANNÍS hjordis@rannis.is upplýsingar og aðstoð við væntanlega umsækjendur, sem geta pantað
tíma í síma 515 5800.
Laugavegi 13, 101 Reykjavik, sími: 515 5800, fax: 5529814, netfang: rannis@rannis.is, www.rannis.is
Nýsköpunaráætlun ESB
Umsóknarfrestur er 15. mars n.k.
KALLAÐ
EFTIR VERK
EFNAUM
SÓKNUM
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
R
Í
5
0
0
-0
2
ÞESSI kvikmynd er afskaplega
klaufaleg á margan hátt, og lítur út
fyrir að vera skólamynd, gerð af
ungum strákum. Alla vega fjallar
hún um áhugamál þeirra og áhyggj-
ur: ungar konur, og hversu erfiðar
þær geta nú verið.
Max og Henry eru nemendur í há-
skóla og vinna við klónunarvél sem
Max hefur að mestu hannað, þótt að
kennarinn hans vilji helst taka allan
heiðurinn. Af miklum mistökum
klónar Max hinn aðlaðandi blaða-
mann Kötu sem er að skrifa grein
um vélina. Klónaða Kata er einsog
nýfætt barn, sem ekkert kann og
ekkert veit, og Henry kemur með þá
„frábæru“ hugmynd að móta hana
að þeirra smekk, svo hún vilji helst
bara drekka bjór, borða pizzu,
stunda kynlíf og horfa á hafnabolta.
Og þannig verður hún blessunin.
Drengirnir munu þó fljótlega kom-
ast því að það er ástæða fyrir því að
kynin dragast að hvort öðru og að
mismunurinn á þeim skapar visst
jafnvægi. Já, alltaf er nú unga fólkið
að læra eitthvað um samskipti
kynjanna, og það er boðskapur
myndarinnar.
Þessi mynd er afskaplega mikið
bull, bjánalegur farsi með léttum
klámbröndurnum, sem reyndar eru
nokkrir ágætir. En það er næstum
því það eina góða við myndina. Leik-
ararnir eru næstum alveg hræðileg-
ir. Eugene Levy er vinsæll eftir að
hafa leikið í American Pie-myndun-
um en frammistaða hans er ekkert
til að hrópa húrra fyrir. Svona í stíl
við allt annað.
Dáðadrengir og dónar
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: Frank Longo. Handrit: Stuart
Gibbs og Russ Ryan. Kvikmyndataka: Al-
an Caso. Aðalhlutverk: Ali Landry, James
Roday, Desmond Askew, Todd Robert
Anderson og Eugene Levy. USA. Fusion
Int. Sales 2001.
REPLI-KATE / KLÓNAÐA KATA Hildur Loftsdóttir
Í GEGNUM tíðina hafa menn velt
fáum hugtökum jafn mikið fyrir sér
og fegurðinni. Heimspekingar,
skáld, guðfræðingar og vísindamenn
hafa verið ötulir þátttakendur í eilífri
umræðunni um hinar margflóknu
hliðar hennar og dulúð. Sumir finna
hana úti í náttúrunni, aðrir í einu dul-
arfullu brosi. Þeir eru til sem flengst
hafa um heiminn þveran og endi-
langan til að leita hennar.
Hal Larsen (Jack Black), er með
eindæmum hrekklaus og grunn-
hygginn piltur. Leitar fegurðarinnar
eingöngu í ofurfyrirsætum og mið-
opnugellum í karlablöðum. Það
fyrsta sem vekur athygli hans í fari
kvenmanns er útlitið. Það hvarflar
ekki að honum að spá í annað kven-
fólk en það sem uppfyllir ströngustu
kröfur hans hvað snertir útlínur,
barmstærð, háralit, o.s.frv.
Óundirbúin dáleiðsla hjá Tony
Robbins, sjálfskipuðum hjálpar-
kokki mannssálarinnar, umturnar
fastmótuðum skoðunum Hals í garð
kvenna. Að lokinni meðferð snýst
allt um innri fegurðina: Nú skiptir
ekkert máli annað en það sem býr
innra með persónunni, hvað svo sem
útlitinu líður.
Til sögunnar kemur Rosemary
(Gwyneth Paltrow), spikfeitur bold-
angskvenmaður, sjálfboðaliði hjá
friðarsveitunum. Uppfullur af ný-
uppgötvuðum stórasannleik innri
fegurðar sér Hal ekkert annað en
innri mann stúlkunnar sem er fullur
heiðarleika, hlýju og mannkærleika.
Hal sér ekki sólina fyrir slíkum
manngæðum og rómantíkin blómstr-
ar.
Að því kemur að sannleikurinn op-
inberast fyrir Hal sem verður að fást
við sannleikann sem er þyngsta próf-
ið í lífi hans til þessa.
Höfundar Shallow Hal, Farrelly-
bræður, eru einhverjir vinsælustu
kvikmyndaleikstjórar/handritshöf-
undar Hollywood. Jafnframt þeir
fyndnustu því þeir hafa einbeitt sér
til þessa að „öðruvísi“ gamanmynd-
um, tekið fyrir umfjöllunarefni úti á
jaðrinum. Heimskuna í Dumb and
Dumber, geðklofann í Me, Myself
and Irene, nú er það offituvandamál-
ið.
Leikarar: Gwyneth Paltrow (Shake-
speare in Love, Emma, Seven) Jack
Black (High Fidelity, Bob Roberts, Evil
Woman); Jason Alexander (Brighton
Beach Memories, White Palace, Pretty
Woman). Leikstjórar: Bobby og Peter
Farrely (Kingpin, There’s Something
About Mary.).
Jack Black í gamanmyndinni Shallow Hal.
Útlit/innlit
Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó og
Borgarbíó á Akureyri frumsýna Shallow
Hal með Jack Black og Gwyneth Paltrow.
ÞAÐ fór lengri tími í að fullgera
kvikmyndina Enigma – Dulmál, frá
því að framleiðendur keyptu kvik-
myndaréttinn til síðustu aðgerðanna
í klippiborðinu, en bandamenn að
knýja fram sigur í síðari heimsstyrj-
öldinni. Að röskum sex árum liðnum
var kvikmyndagerð metsölubókar
Roberts Harris tilbúin til sýningar á
tjaldinu.
Enigma er stílfærður sannleikur,
aukinn og dramatíseraður sannleik-
urinn á bak við Bletchley Park, aðal-
aðsetur dulmálslykilsaðgerða í
seinna stríði. Þar vann hópur
snjallra fagmanna sleitulítið að því
að komast að leyndarmálum óvinar-
ins og varð oftar en ekki vel ágengt.
Sjónarhornið er að vísu óvenjulegt í
Enigma, þar sem Bretar eiga í úti-
stöðum við Bandaríkjamenn – með
aðstoð Þjóðverja.
Seinnastríðsmyndin Enigma er sú
fyrsta sem kemur frá nýstofnuðu
framleiðslufyrirtæki Micks Jaggers.
Efnið þótti alltof „breskt“, fyrir
kvikmyndaverin í Hollywood, sem
vísuðu hugmyndinni á dyr. Það er
sannarlega kaldhæðnislegt að það
voru að lokum tvenn þýsk fram-
leiðslufyrirtæki, Intermedia og
Senator Films, sem útveguðu Jagg-
er þær 14 milljónir punda sem til
þurfti. Myndin gerist 1943, á fæðing-
arári rokkarans (kannske hefur það
ráðið úrslitum!).
Söguhetjan í Enigma er Jericho
(Scott), bráðsnjall dulmálssérfræð-
ingur sem rambar á barmi tauga-
áfalls eftir slysalegt sambandsrof
hans og Claire (Burrows), annars
sérfræðings í Bletchley Park. Jer-
icho er látinn hætta störfum í fram-
haldinu, en fljótlega endurráðinn
þegar nasistar koma með nýtt,
óárennilegt dulmál. Málin gerast
enn flóknari er grunur beinist að því
að Claire sé njósnari fyrir Möndul-
veldin. Til að komast til botns í þess-
um ráðgátum öllum fær Jericho vin-
konu Claire og herbergisfélaga,
Hester (Winslet), sér til aðstoðar. Á
meðan líður tíminn, ráðning nýja
dulmálsins getur ráðið úrslitum í
hernaðinum.
Leikarar: Dougray Scott (Deep Impact,
Mission Impossible 2); Kate Winslet
(Quills, Titanic); Saffron Burrows (Deep
Blue Sea, Miss Julie) Jeremy Northam
(The Golden Bowl, The Winslow Boy).
Leikstjóri: Michael Apted (Nell, Gor-
illa’s In the Mist, The World Is Not
Enough).
Ástir og njósnir
Sambíóin frumsýna Enigma, með
Dougray Scott, Kate Winslet, Jeremy
Northam og Saffron Burrows.
Atriði úr kvikmyndinni Enigma.
FRANK Morrison (John Travolta).
býr ekki lengur með Susan (Teri
Polo), fyrverandi konu sinni, og
Danny (Matt O’Leary), syni þeirra
hjóna. Susan og Danny búa með Rick
Barnes (Vince Vaughn), verðandi eig-
inmanni Susan. Danny hefur fengið á
sig orð fyrir að vera lyginn, hefur
m.a. sakað stjúpföður sinn um morð.
Enginn trúir honum annar en Frank,
sem reynir að gera allt sem hann get-
ur fyrir son sinn.
Barnes er nýkominn til borgarinn-
ar, það þekkir hann enginn en hann
hefur orð á sér fyrir að vera maður
vellauðugur, örlátur á fé til góðgerð-
armála. Hann hefur efni á að gefa
Danny hluti sem ekki voru á færi
Franks. Ekki líður á löngu uns
Danny fer að segja föður sínum ljótar
sögur af Barnes, og veit hann ekki
hverju hann á að trúa þar sem dreng-
urinn þykir skröksamur. Þegar
morðsagan kemur upp finnst Frank
óráðlegt að halda lengur að sér hönd-
um og fer að rannsaka málinm, og
ýmislegt gruggugt kemur í ljós.
Leikstjórinn, Harold Becker, er
velþekktur fagmaður sem vakti tals-
verða athygli með frumrauninni, The
Ragman’s Daughter (’72), sem vann
til verðlauna á Feneyjahátíðinni. Þá
var hann vel þekktur ljósmyndari í
New York, en ákvað að skipta um
hlutverk og helga sig kvikmyndunum
frekar en ljósmyndun. Næsta mynd,
Laukakurinn – The Onion Field, með
James Woods, vakti óhemju athygli.
Jafnvel enn betri viðtökur fékk næsta
mynd hans, Taps, með Sean Penn og
Tom Cruise, og gerist í hinum fræga
herskóla í West Point. Þekktasta
mynd leikstjórans til þessa er þó hin
víðfræga háspennumynd, Sea of
Love, með Al Pacino og Ellen Barkin.
Leikarar: John Travolta (Grease, Sat-
urday Night Fever, Pulp Fiction, Primary
Colors); Teri Polo (Meet the Parents,
Felicity); Vince Vaughn (Swingers,
Psycho, The Cell); Steve Buscemi (Myst-
ery Train, Miller’s Crossing, Fargo, The
Big Lebowski, Con Air, Armageddon)).
Leikstjóri: Harold Becker.
Grunsamlegur stjúpi
Háskólabíó og Sambíóin Reykjavík og
Akureyri frumsýna Domestic Disturb-
ance, með John Travolta, Vince Vaughn,
Teri Polo og Steve Buscemi.
Matthew O’Leary og John Travolta í myndinni Domestic Disturbance.