Morgunblaðið - 18.01.2002, Page 26
MENNTUN
26 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÚNA í janúar hófst út-gáfa á nýju tímariti umuppeldis- og menntamálá vegum Kennarahá-
skóla Íslands. Tímaritið er veftíma-
rit og öllum aðgengilegt á slóðinni
http://netla.khi.is/. Það heitir
NETLA og í því birtast fræðigrein-
ar, frásagnir af þróunarstarfi, um-
ræðugreinar, hugleiðingar, pistlar,
viðtöl og ritdómar.
Í NETLU geta höfundar jafn-
framt birt efnið sitt með hljóðdæm-
um, myndskeiðum og krækjum.
Lesendur geta svo brugðist við og
sent inn athugasemdir eða umræð-
ur út frá greinunum. Undir heitinu
Sprotar birtast stuttar greinar, frá-
sagnir eða kynningar á góðum hug-
myndum. Eins og heitið ber með
sér eiga heima í þeim hluta ferskar
og nýstárlegar hugmyndir sem
gætu vaxið og dafnað ef að þeim er
hlúð. Ekki verður um fastan út-
gáfutíma að ræða heldur birtast
greinar um leið og þær eru tilbún-
ar.
Meðal efnis í fyrsta „tölublaði“
má nefna grein eftir Heimi Pálsson
dósent við Kennaraháskólann sem
hann nefnir Aravef og fjallar um Ís-
lendingabók Ara fróða. Sigríður
Pálmadóttir lektor við Kennarahá-
skólann skrifar grein um rannsókn
sína á barnagælum og þulum í
flutningi Ásu Ketilsdóttur kvæða-
konu og fylgja greininni nótur og
tóndæmi. Jörgen Pind, prófessor
við Háskóla Íslands, skrifar grein-
ina Hverju breyta nýlegar heila-
rannsóknir fyrir kennara? Þar lýsir
hann nýlegum heilarannsóknum
með tilliti til náms og beinir athygli
að lestrarnámi og lesblindu.
Aðstandendur stefna að því að
NETLA verði vettvangur lifandi
umræðu um uppeldis- og mennta-
mál og er ritinu ætlað að höfða til
allra sem láta sig þau mál varða. Í
ritstjórn NETLU eru Ingvar Sig-
urgeirsson prófessor, Sólveig Jak-
obsdóttir dósent, Torfi Hjartarson,
lektor, Þórunn Blöndal lektor og
Þuríður Jóhannsdóttir verkefnis-
stjóri hjá Rannsóknarstofnun
Kennaraháskólans en stofnunin er
bakhjarl útgáfunnar.
Náttúrufræði
þarf tíma
Hér verður skyggnst í eina af
greinum NETLU, þar sem Þor-
valdur Örn Árnason líffræðingur og
kennari setur fram harða gagnrýni
á hvernig staðið er að undirbúningi
fyrsta samræmda prófsins í nátt-
úrufræðum í grunnskólum, en það
verður í 10. bekk í apríl 2002. Bein-
ist gagnrýnin einkum að prófatriða-
lista sem Námsmatsstofnun gaf út
sumarið 2001 og könnun sem gerð
var í grunnskólum í des. 2000. Höf-
undur telur könnunina og listann
hvorki taka nægilegt mið af nám-
skránni né viðleitni skóla til að
nálgast markmið hennar.
Þorvaldur spyr hvort það breyti
einhverju þótt gefin sé út ný nám-
skrá. „Geta menn ekki sleppt því að
fara eftir henni líkt og hægt var
með fyrri námskrá?“ Hann dregur
það í efa, því það hefur fleira breyst
en komið hafi út ný bók, og skrifar:
1. Samræmd próf í náttúrufræði
munu (vonandi) miðast við nám-
skrána. Hvaða skóli vill ekki að
nemendur hans skori sem flest
mörk á samræmdu prófi? Ég held
að skólastjórar séu nú að átta sig á
að náttúrufræði er eitt af því sem
þarf að vanda til, gefa góðan tíma
og góða kennara.
2. Verið er að auka náttúrufræði-
kennslu í grunnskóla á sama tíma
og dregið er úr henni í almennum
kjarna í framhaldsskóla. Gerðar
eru kröfur um að allmargir náms-
þættir sem kenndir voru í fram-
haldsskóla verði afgreiddir í grunn-
skóla fyrir fullt og allt. [...]
3. Samkvæmt aðalnámskránni á
kennslutími í náttúrufræði að
aukast nokkuð, hlutfallslega meira
en í öðrum greinum. [...].
4. Nú er loks til meira en nóg af
góðum námsbókum fyrir elstu ár-
ganga grunnskóla þó enn skorti
handhæg gögn fyrir þau yngstu.
Flest þessi námsgögn eru samin
með hliðsjón af eldri námskrá og
passar efnisval í þeim ekki sem
skyldi við þrepamarkmið þeirrar
núgildandi.
Allt þetta kostar verulega upp-
stokkun í grunnskólunum. Þar þarf
að færa nánast allt námsefni til
milli ára. Nú verður þess krafist af
miklum fjölda almennra bekkjar-
kennara að kenna ýmislegt sem
þeir hafa aldrei lært og skilja mjög
takmarkað.
Ég held að grunnskólarnir standi
frammi fyrir miklu átaki til að
koma náttúrufræðikennslunni á
góðan skrið í sæmilegu samræmi
við námskrána.“
Að skilja
flókið samhengi
Fáir virðast hafa hingað til gefið
sér tíma til að skoða nýju aðal-
námskrána með gagnrýnum huga.
Rúmlega tvö ár eru liðin frá út-
komu hennar, en það var fyrst í
haust sem t.d. Þorvaldur Örn segist
hafa fengið tíma til að rýna veru-
lega í hana. „Ég fann mér t.d. ekki
tíma til að móta mér skoðun á
plagginu í heild fyrr en nú, eftir að
ég hef neyðst til að hjakka tvisvar í
gegnum það lið fyrir lið vegna
samningar og endurskoðunar skóla-
námskrár skólans sem ég kenni við.
[...] Nú er framundan samræmt
próf í náttúrufræði, það fyrsta í
rúma 2 áratugi. Þá reynir á aðal-
námskrána og menn hljóta að fara
að rýna í hana af fullri alvöru. “
Hann segir kosti og galla á nám-
skrá um náttúrufræði. „Á nokkrum
stöðum finnst mér of mikil krafa til
ungra nemenda um að skilja flókið
samhengi og að yfirfæra þekkingu.
Ég byggi þá skoðun mína ekki á
rannsóknum heldur á reynslu, ég
hef reynt að kenna eldri nemendum
þessi eða mjög svipuð atriði og
þeim hefur reynst erfitt að læra
þau.
Mér finnst ekki sanngjarnt að
krefjast þess:
að nemandi í 4. bekk geri sér
grein fyrir að kraftur kemur
ávallt við sögu þegar breyting
verður á hreyfingu (bls. 20).
að sami nemandi þekki að
jörðin er byggð upp af nokkrum
lögum og geti ályktað um hitastig
og þrýsting þegar innar dregur
(bls.22).
að hugtakið ljósár sé á 3. þrepi
(bls.31), áður en nemendur hafa
almennilega skilið hvað km/klst.
þýðir.
að nemandi á 1. þrepi þjálfist í
að flokka lífverur eftir skyldleika
(bls.28).
að nemandi við lok 7. bekkjar
geri sér grein fyrir að vísindaleg
þekking felst í alhæfingum út frá
takmörkuðum staðreyndum og
því geti hún aldrei orðið algildur
sannleikur (bls.38).
að nemandi í 8. bekk geti skil-
greint hugtökin massatala og
samsæta (bls.68).
að nemendur í 10. bekk geti
beitt hugtakinu endurröðun gena
(bls.63); gert greinarmun á flæði
og osmósu (bls.64); gert sér grein
fyrir „hverju mögulegt er að leita
svara við innan náttúruvísind-
anna“ (bls.64); eða „geta flokkað
upplýsingar eftir gerð og vægi og
metið áreiðanleika þeirra sam-
kvæmt því“ (bls.66).
Mér finnst sem sagt skotið yfir
markið á nokkrum stöðum, en á all-
flestum stöðum ætti boltinn að geta
legið laglega í markinu eftir mikið
og markvisst puð kennara og nem-
enda.“
Skriflegt svar
eða krossar?
Þorvaldur fjallar um væntanlegt
samræmt próf í náttúrufræði, og
leiðir að því rök að áherslur í próf-
inu verði að líkindum í óþarflega
litlu samræmi við aðalnámskrána,
en þó í betra samræmi við náms-
bækur. Ályktun sína byggir hann á
könnun Námsmatsstofnunar og
kynningu hennar á vefnum:
Svo spyr hann hvernig verður
prófið? Verður t.d. kannað hvort
nemendur geti „komið frá sér á
vandaðan hátt og vel ígrunduðum
greinargerðum … skriflega með
tölum og orðum ... eða … mynd-
rænt með líkönum og teikningum“?
(Aðalnámskrá bls. 67). „Ætli sú
verði raunin?“ spyr hann. „Nei, því
miður. Á vefsíðu Námsmatsstofn-
unar segir nefnilega: „Stefnt er að
því að prófið samanstandi af 40–60
fjölvalsspurningum“.“
Fjölvals- eða krossapróf eru
ágæt sem þáttur í prófi en „að taka
krossapróf er eins og að versla í
kjörbúð,“ skrifar Þorvaldur Örn.
„Maður þarf bara að velja úr því
sem aðrir hafa búið til og sett í hill-
urnar. Maður þarf ekki að búa neitt
til sjálfur eða muna eftir neinu sem
ekki er fyrir augunum. Spurningin
er hvort við ætlum einungis að
þjálfa hæfileika nemenda til að
velja úr því sem aðrir hafa stillt upp
fyrir framan þá – og kalla það vís-
indi!“
Hver er staðan í raun?
Þorvaldi sýnist að það hafi verið
kastað til höndum við samningu
spurningalista (könnunin) Náms-
matsstofnunar með þeim slæmu af-
leiðingum að samræmda prófið
verði í allt of litlu samræmi við að-
alnámskrá. Sú ákvörðun að ætla að
prófa með fjölvalsspurningum
finnst honum bæta gráu ofan á
svart.
„Af framansögðu er ljóst að
nauðsynlegt er að stofnunin geri
sem fyrst könnun á því hvar grunn-
skólarnir á landinu eru staddir í
viðleitni sinni til að sníða náttúru-
fræðikennsluna að aðalnámskrá,“
segir Þorvaldur Örn að lokum.
Hér hefur verið sagt frá
ákveðnum þáttum í grein Þorvaldar
Arnar, en á Netlu, http://
netla.khi.is/, má skoða greiningu
hans nákvæmlega og töflur, og í
framhaldi af því ítarlega greinar-
gerð á vef Námsmatsstofnunar um
samræmdu prófin 2002, http://
www.namsmat.is, þar á meðal um
náttúrufræðiprófið.
NETLA/Nýtt tímarit um uppeldis- og menntamál er gefið út á Netinu. Það er á vegum
Kennaraháskóla Íslands og er öllum aðgengilegt. Gunnar Hersveinn las tímaritið og
segir hér frá grein um væntanlega frumraun í samræmdu prófi í náttúrufræði í apríl 2002.
Samræmt
próf í nátt-
úrufræði
Morgunblaðið/Jim Smart
Náttúrufræði er öflug námsgrein, næsta vor verður í fyrsta sinn sam-
ræmt próf í greininni í 10. bekk. Hér leita nemendur jurta í teblöndu.
NETLA á að vera tímarit handa
fag- og áhugamönnum.
Meiri náttúrufræði í grunnskóla,
minni í framhaldsskóla.
AF VEF Námsmatsstofnunar:
„Samræmt próf í náttúrufræði
samanstendur af 40 til 60 spurn-
ingum sem spanna námsmarkmið
Aðalnámskrár í náttúrufræði.
Bent er á áfangamarkmið bls. 58
til 67 og nánari útfærslu á þeim í
formi þrepamarkmiða á bls. 68 til
76. Ennfremur hafa verið skil-
greindir áhersluflokkar fyrir þá
útfærslu á námsmarkmiðum í
náttúrufræði eins og fram kemur
á bls. 68 til 76 í Aðalnámsskrá
grunnskóla. Áhersluflokkar eru
útskýrðir hér að neðan. Stefnt er
að því að prófið samanstandi af 40
til 60 fjölvalsspurningum. Vægi
námsþátta er ákvarðað út frá
áhersluatriðum aðalnámsskrár og
niðurstöðum könnunar á kennslu í
náttúrufræði.“ Sjá:
http://www.namsmat.is/
samrprof/
Samræmt próf í náttúrufræði
verður föstudaginn 26. apríl kl.
9:00 – 12:00.
www.namsmat.is
CEDEFOP árið 2002
CEDEFOP, miðstöð Evrópusam-
bandsins um þróun starfsmennt-
unar, hefur sent frá sér verkáætlun
fyrir starfs-
árið 2002. Þar
koma fram
helstu
áherslur CEDEFOP á árinu, upp-
lýsingar um fyrirhugaðar útgáfur
og rannsóknir stofnunarinnar á
sviði starfsmenntamála, svo og um
ráðstefnur og viðburði ásamt
fleiru. Mennt – samstarfsvett-
vangur atvinnulífs og skóla er ís-
lenskur tengiliður við starfsemi
CEDEFOP og má nálgast stytta út-
gáfu af verkáætlun CEDEFOP
2002 á vefsíðu Menntar: http://
www.mennt.net á ensku og ís-
lensku. Nánari uppl. um CEDEFOP
fást á skrifstofu Menntar í síma 511
2660 eða í netfangi alla@mennt.is
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur í Starfs-
menntaáætlun Evrópusambands-
ins, Leonardo da Vinci er til 18. jan-
úar nk.
Meginmarkmið
Leonardó-
áætlunarinnar
er að efla starfs-
þjálfun og endurmenntun í Evrópu
þannig að sem flestir Evrópubúar
eigi kost á starfsmenntun, starfs-
þjálfun og símenntun í samræmi við
þarfir atvinnulífsins og starfsmann-
anna sjálfra á hverjum tíma. Áætl-
unin tekur til allra þátta og stiga
starfsmenntunar, hefðbundinnar
starfsþjálfunar, endurmenntunar
og starfsþjálfunar á háskólastigi.
Nánari upplýsingar hjá Lands-
skrifstofu Leonardo í síma 525 49
00 og á heimasíðu Rannsóknaþjón-
ustu Háskóla Íslands http://
www.rthj.hi.is.
Sjötta rammaáætlun
Verið er að undirbúa 6. ramma-
áætlun ESB, sem taka á gildi í árs-
byrjun 2003. Nú þegar er kominn
ramminn að áætluninni og eru tals-
verðar breytingar frá fyrri áætl-
unum. Fyrir þá sem vilja kynna sér
áætlunina eins og hún liggur fyrir
núna bendum við á Commission’s
modified proposal for a Decision of
the European Parliament and of
the Council concerning the 6th
Framework Programme (56 síður)
sem er að finna á vefsíðu ESB:
http://www.cordis.lu/rtd2002/.
Menntaáætlun ESB
– styrkir
Endurmenntun kennara á leik-,
grunn- og framhaldsskólastigi til
skemmri dvalar í e-u þátttökulandi
Sókratesar.
Evrópsk sam-
starfsverkefni
a.m.k. þriggja
skóla á leik-,
grunn- eða framhaldsskólastigi.
Nemendaskipti hópa 14 ára og
eldri – tungumálaverkefni.
Skólaþróunarverkefni – sam-
starf a.m.k. 3 skóla á leik-, grunn-
og framhaldsskólastigi.
Gerð námsgagna og endur-
menntunarnámskeiða fyrir kenn-
ara.
Starfsþjálfun verðandi tungu-
málakennara í 3–8 mánuði í Evr-
ópu.
Námsgagnagerð.
Útvegar skólum hér á landi að-
stoðarkennara í tungumála-
kennslu í grunn- og framhalds-
skólum í 3–8 mánuði.
Umsóknarfrestur rennur út 1.
mars.
Upplýsingar hjá Landsskrifstofu
SÓKRATESAR, í síma 525 4311,
með tölvupósti: rz@hi.is og kat-
ei@hi.is og á heimasíðu:
www.ask.hi.is.
Fastanefndin
Á vef fastanefndar framkvæmda-
stjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg,
www.esb.is, er að finna ýmsar
gagnlegar upplýsingar um ESB og
samstarf Íslands við það.
Upplýsingaskrifstofur
um Evrópumál