Morgunblaðið - 18.01.2002, Qupperneq 36
MINNINGAR
36 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Gunnar KristinnJósteinsson
fæddist á Stokkseyri
21. nóvember 1927.
Hann lést á Hrafnistu
í Hafnarfirði 11. jan-
úar síðastliðinn.
Gunnar var næst-
yngstur sjö systkina.
Hin eru Guðrún, f.
1918, Jón, f. 1919,0
Kristján, f. 1921, lát-
inn 1994, Einar, f.
1923, Björgvin, f.
1925, og Kristín, f.
1932. Foreldrar
þeirra voru hjónin
Jósteinn Kristjánsson, kaupmað-
ur á Stokkseyri, f. 7. júní 1887, d.
31. janúar 1964, og Ingibjörg Ein-
arsdóttir, f. 1. september 1891, d.
13. júní 1976. Gunnar ólst upp á
Stokkseyri, lauk barnaskóla-
göngu sinni þar og fór sem ung-
lingur að vinna ýmis störf. Um
miðjan sjötta áratuginn flyst hann
til Reykjavíkur, um líkt leyti og
foreldrar hans. Hann starfaði
lengst af hjá Ríkisspítulunum eða
í hartnær þrjátíu ár
en hann lét af störf-
um 1996.
Eiginkonu sinni,
Þóru Abigael Þor-
varðardóttur, f. 20.
ágúst 1922, kvæntist
hann 26. desember
1962. Þau eignuðust
eina dóttur, Hafdísi
Abigael, f. 18. októ-
ber 1961. Eiginmað-
ur hennar er Garðar
Smári Gunnarsson,
f. 4. apríl 1959. Þau
eiga þrjú börn,
Kristin Þór, f. 31. júlí
1983, Ágúst Bjarna, f. 29. septem-
ber 1987, og Þóru Björgu, f. 10.
nóvember 1994. Áður átti Þóra
Hafstein Viðar Halldórsson, f. 9.
nóvember 1948, kvæntan Erlu S.
Engilbertsdóttur, f. 21. október
1948. Þau eiga þrjú börn, Önnu
Maríu, Halldór Viðar og Engil-
bert, ásamt fimm barnabörnum.
Útför Gunnars fer fram frá
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Í dag kveð ég tengdaföður minn,
það eru um tuttugu ár síðan ég kom
fyrst inn á heimili Gunnars og Þóru
tengdaforeldra minna á Hringbraut-
inni í Hafnarfirði. Allt frá fyrstu tíð
var einlæg vinátta og trúnaður á
milli okkar sem aldrei bar skugga á.
Gunnari var umhugað um velferð
fjölskyldu sinnar og nutu börn okk-
ar Hafdísar einkadóttur hans þess í
ríkum mæli, enda var hann mættur
ef eitthvað þurfti og gilti þá einu
hvort það var akstur, pössun eða
kaup á einhverju sem þau þurftu
nauðsynlega með. Gunnar var trú-
rækinn og mótaðist viðhorf hans til
manna og málefna mjög af því.
Hann hallmælti engum þótt hann
væri ósammála heldur sagði að hver
um sig hefði sína eigin skoðun og
teldi sig eflaust trúan eigin sannfær-
ingu.
Breyting varð á högum tengda-
foreldra minna er Gunnar veiktist
alvarlega haustið 1997 og svo aftur
sl. haust er hann greindist með
krabbamein og við tók erfið barátta.
Í þeirri baráttu naut hann sérlega
góðrar aðhlynningar starfsfólks
Hrafnistu í Hafnarfirði og erum við
fjölskylda hans þakklát öllu því
ágæta fólki er annaðist hann þar.
Desembermánuður var Gunnari
mjög erfiður. Mikið var af honum
dregið, en þrátt fyrir það tókst okk-
ur að eiga stutta samverustund á
heimili okkar á öðrum sunnudegi að-
ventu. Segja má að þá hafi fjölskyld-
an haldið sín eigin jól. Við sátum í
stofunni og ræddum um helgi
jólanna og hlustuðum á jólalögin. Ó,
helga nótt var hans uppáhaldsjóla-
lag og mátti sjá hversu mikið hann
naut þess á þessari stuttu samveru-
stund okkar að hlusta á það og láta
þannig helgi jólanna ná til sín. Þessi
samverustund var síðasta heimsókn
hans á heimili okkar. Við tók erfið
sjúkralega þar sem hann var um-
kringdur fjölskyldu sinni.
Hinn 11. janúar sl. lauk þrautum
Gunnars þegar hann lést í faðmi eig-
inkonu sinnar og dóttur, sem varla
viku frá honum síðustu vikurnar.
Að lokum vil ég þakka Gunnari
samferðina þau ár er við gengum
saman og bið algóðan Guð að blessa
minningu hans.
Garðar Smári.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem.)
Það er skrýtið að heyra ekkert í
þér lengur, afi, þú sem hringdir
næstum daglega í okkur til að
spjalla um námið okkar, fótbolta og
öll okkar áhugamál, velferð okkar
var þér efst í huga, við söknum þín
sárt.
Þú varst besti afi og við vonum að
þú hafir hlotið besta stað í himna-
ríki.
Þínir
Kristinn Þór og Ágúst Bjarni.
Elsku afi. Alltaf þegar ég hef beð-
ið bænirnar mínar á kvöldin hef ég
beðið Guð um að láta þér batna til að
þú getir verið hjá mér, en ég skil
ekki af hverju hann gat það ekki.
Mamma segir að nú sé þér batnað
og þú sért engill á himnum hjá hon-
um og munir vaka yfir mér. Ég
heimsótti þig síðast á aðfangadags-
kvöld og þú brostir út í annað þegar
þú sást mig og strákana, mamma
hafði ekki séð þig brosa svona í
marga daga.
Þú borðaðir smá af jólaísnum
okkar sem þér þótti alltaf bestur.
En ég gat ekki heimsótt þig oftar,
mér leið illa að sjá þig svona veikan,
ég teiknaði bara mynd og sendi þér
og fær ein að hvíla hjá þér. Nú bið
ég Guð á kvöldin að hann passi þig
vel fyrir mig og mamma segir að ég
megi vera viss um að hann geri það.
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson.)
Þín afastelpa,
Þóra Björg.
Í dag kveð ég stjúpa minn, Gunn-
ar Kristin Jósteinsson. Þegar hann
er fallinn frá koma margar góðar
minningar upp í hugann. Efst í huga
eru þó minningar um góðan mann,
sem reyndist mér og síðar konu
minni og börnum ávallt vel. Gunnar
var ætíð reiðubúinn að rétta hjálp-
arhönd og kærleikurinn, sem hann
bar til fjölskyldu sinnar, var mikill.
Kynni okkur hófust þegar ég var
ellefu ára, en þá hófu Gunnar og
móðir mín sambúð á Ölduslóð 34.
Ári seinna kom augasteinninn hans,
hún Hafdís, í heiminn. Við bjuggum
um tvö ár á Ölduslóðinni en þá var
flutt á Hringbraut 70. Í millitíðinni
bjó ég í rúmt ár hjá ömmu minni,
eftir að hún varð ekkja, en þá veikt-
ist hún og það varð úr að við fluttum
bæði á Hringbraut 70. Stjúpi var allt
í einu kominn með fimm manna fjöl-
skyldu og orðið fremur þröngt á
heimilinu, en þetta var ekkert mál,
ekkert var sjálfsagðara.
Gunnar var heimakær, hann var
ekkert að leggjast í ferðalög til út-
landa, hann fór ekki upp í flugvél
þessi rúm fjörutíu ár sem við þekkt-
umst. Það var farið í stuttar ferðir
innanlands í fríum, að öðrum kosti
var þeim varið í tiltektir heima við.
Stjúpi fylgdist vel með þjóðmál-
um en var ekkert að velta sér upp úr
hlutabréfum, ef hann átti nóg fyrir
sig og sína var hann ánægður. Hann
hafði gaman af að tefla og tefldi oft á
sunnudögum við svila sinn og hafði
gaman af. Mér er minnisstætt, og
það lýsir stjúpa vel, að ef hann hafði
betur þá tjáði hann mér eftir á, að
andstæðingurinn hefði ekki verið
upplagður.
Þegar stjúpi ákvað að hætta að
vinna tæplega sjötugur, nýbúinn að
endurnýja bílinn og ætlaði að fara
að gera meira fyrir sjálfan sig, fór
að blæða inn á heilann. Í framhaldi
af því gat hann ekki ekið meira og
nokkrum árum seinna var hann
kominn á Hrafnistu í Hafnarfirði í
dagvist þrisvar í viku. Þar undi hann
hag sínum vel, var kominn í kór,
með góðum kórstjóra, sem á þakkir
skilið, en stjúpi var söngelskur og
kunni mörg ljóð og sálma og hann
var kirkjurækinn. Það blæddi síðan
smátt og smátt og sl. haust kom
reiðarslagið þegar hann greindist
með krabba. Síðustu vikurnar voru
stjúpa erfiðar og nokkrum dögum
fyrir andlátið hafði hann ekki tjáð
sig í nokkra daga en þá vorum við
móðir mín stödd hjá honum og hún
byrjar að syngja eftirfarandi ljóð og
hann tók undir. Þetta ljóð ætla ég að
láta vera mín lokaorð um leið og ég
þakka þér, elsku stjúpi, fyrir það,
sem þú hefur gert fyrir mig og fjöl-
skyldu mína.
Blessuð sé minning þín.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Hafsteinn Viðar Halldórsson.
GUNNAR KRISTINN
JÓSTEINSSON
✝ Helgi Guðmunds-son, síðast til
heimilis í Furugerði
1 hér í borg, fæddist í
Reykjavík hinn 18.
janúar 1926 .Hann
lést á gjörgæsludeild
Landspítalans í Foss-
vogi að morgni 11.
janúar. Foreldrar
hans voru Guðmund-
ur Jónsson og Jóna
Ólafsdóttir og eru
þau bæði látin. Helgi
átti þrjá bræður, Ólaf
og Ellert, sem báðir
eru látnir, og Jón,
sem lifir bræður sína.
Hinn 18. september 1948
kvæntist Helgi Katrínu Gunnars-
dóttur, f. 13.4. 1927, d. 27.12.
1997. Foreldrar hennar voru
Gunnar Bjarnason og Margrét
Magnúsdóttir, esm bæði eru látin.
Dætur Helga og Katrínar eru: 1)
Margrét, f. 6.2. 1949, starfsmaður
Orkuveitunnar.
Dóttir hennar er
Katrín Eva Erlars-
dóttir, f. 13.8. 1975,
lögreglumaður. 2)
Guðný, f. 27.11.
1954, starfsmaður
Landsbankans.
Hennar synir eru Os-
wald Heilmann Dav-
íðsson, f. 6.1. 1986,
nemi; og Jón Helgi
Davíðsson, f. 26.8.
1987, nemi. 3) Jóna, f
3.6. 1957, d. 29.9.
1983.
Helgi ólst upp í
Reykjavík. Hann vann í 35 ár sem
vörubifreiðarsjóri og rak sinn eig-
in vörubíl. Síðar vann hann sem
verkstjóri hjá Reykjavíkurborg
þangað til hann lét af störfum 58
ára gamall sökum heilsubrests.
Útför Helga fer fram frá Krists-
kirkju í Landakoti í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Í dag verður elskulegur afi minn,
Helgi Guðmundsson, borinn til
hinstu hvílu eftir erfið veikindi. Í
hjarta okkar sem eftir lifum ríkir
mikil sorg en jafnframt þakklæti,
þakklæti fyrir það að nú ertu laus
frá þínum kvölum og frjáls í faðmi
ömmu sem fór rúmum fjórum árum
á undan þér.
Þú varst góður maður og ég mun
sakna þín sárt, en eftir lifir minn-
ingin um þig og mun það hjálpa mér
í því að hafa þig ekki lengur hjá
mér.
Elsku afi, ég þakka þér fyrir að
hafa verið alltaf til staðar þegar ég
þarfnaðist þín, þú varst alltaf boð-
inn og búinn að gera allt og stund-
um meira en það.
Þú varst alltaf svo stoltur af öllu
sem ég tók mér fyrir hendur og
fylgdist grannt með því sem var að
gerast í mínu lífi. Alveg sama hvað
það var þá ljómaðir þú alltaf þegar
ég ákvað að taka mér eitthvað nýtt
fyrir hendur, hvort sem það var að
vinna á bensínstöð eða þegar ég fór
í háskólanám. Alltaf hafðir þú líka
fulla trú á að ég gæti allt sem ég
stefndi að og hjálpaði það mér mjög
mikið. Ekki síst þegar ég ákvað að
ganga í lögregluna og er mér mjög
minnisstætt þegar ég leit á þig á út-
skriftinni minni. Þú varst bókstaf-
lega að springa úr stolti og ég man
hvað ég varð ánægð yfir að geta
glatt þig svona. Ófáar voru líka
heimsóknirnar heim til mín og var
þá oft rætt um lögreglustarfið, þú
hafðir svo gaman af því. Minnis-
stæðir eru líka allir bíltúrarnir sem
við fórum í, hvort sem það var hér
innanbæjar eða aðeins skroppið út
fyrir borgarmörkin.
Allar mínar bernskuminningar
eru tengdar þér þar sem ég bjó hjá
ykkur ömmu fyrstu árin og eftir að
ég flutti þá var ég samt alltaf hjá
ykkur. Það var svo gott að vera hjá
þér, það var gaman að ræða við þig
um hin ýmsu málefni, hvort sem það
var nýi bíllinn sem þú varst að
kaupa, hlusta á þig segja sögur um
það þegar þú varst að alast upp, já,
eða bara að fara með þér í Hagkaup.
Alveg fram á fullorðinsár leit ég
alltaf á heimili ykkar ömmu sem
mitt heimili, þó að ég ætti heima
annars staðar. Þið voruð yndisleg
hjón og báruð velferð dætra ykkar
og barnabarna ætíð fyrir brjósti og
fylgdist þú grannt með hvað allir
voru að gera.
Ég þakka fyrir það að hafa náð að
kveðja þig almennilega, en það var
kvöldið áður en þú fórst. Þá töluðum
við saman í stutta stund. Ég náði að
kyssa þig bless og sagðist kíkja til
þín daginn eftir en nú verð ég að
fresta því um óákveðinn tíma, en ég
veit að einhvern tíma seinna munum
við hittast og þá verða fagnaðar-
fundir.
Síðustu ár varstu mikið með bróð-
ur þínum Jóni (Dedda) og áttuð þið
margar góðar stundir saman. Ég
veit að hann á erfitt núna og votta
ég honum alla mína samúð.
Elsku mamma, Guðný, Oswald og
Helgi, ykkur votta ég alla mína
samúð en við stöndum saman á
þessum erfiðu tímum.
Elsku afi, ég kveð þig með sökn-
uði en ég hef tekið frá stað í hjarta
mínu og það er tileinkað öllum mín-
um minningum sem ég á um þig.
„Og hvað er að hætta að draga
andann annað en að frelsa hann frá
friðlausum öldum lífsins, svo að
hann geti risið upp í mætti sínum og
ófjötraður leitað á fund Guðs síns.
Aðeins sá sem drekkur af vatni
þagnarinnar, mun þekkja hinn vold-
uga söng. Og þegar þú hefur náð
ævitindinum, þá fyrst munt þú hefja
fjallgönguna. Og þegar jörðin krefst
líkama þíns, muntu dansa í fyrsta
sinn.“ (Khalil Gibran.)
Katrín Eva Erlarsdóttir.
HELGI
GUÐMUNDSSON
!
""#
! ""#
$
$%
&'
( ))
%
&
*""! (+
+"
&,-&("( "
.( (+
/ "
%(""(("
'0"$+1(+
+((("
!"! "
" ! "
" " ! "#
'(
23$
14*
4' !0( '&55
% !
)
*
+
)##
(""#