Morgunblaðið - 18.01.2002, Page 38
MINNINGAR
38 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
✝ Guðrún Hlíf Guð-jónsdóttir fædd-
ist í Ási í Ásahreppi í
Rangárvallasýslu 9.
desember 1914. Hún
andaðist á Landspít-
ala 9. janúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Guðjón Jónsson,
bóndi í Ási, f. 9. júlí
1878, d. 2. júní 1965,
og kona hans Ingi-
ríður Eiríksdóttir, f.
14. desember 1884,
d. 18. desember
1972. Systkini Guð-
rúnar voru: Hermann, f. 13. des-
ember 1911, Eiríkur, f. 2. febrúar
1913, d. 31. ágúst 1988, Ingveld-
ur, f. 5. apríl 1918, og Jón Hauk-
ur, f. 12. júlí 1920, d. 14. október
2001. Guðrún ólst
upp í föðurhúsum og
vann þar að öllum
hefðbundnum
sveitastörfum þar til
hún fluttist til
Reykjavíkur. Hún
starfaði á prjóna-
stofunni Hlín uns
hún fluttist aftur að
Ási og bjó þar til
dauðadags.
Guðrún var fé-
lagslynd kona og
nutu Ungmenna-
félag Ásahrepps,
kirkjukórinn og
kvenfélagið Framtíðin lengst
starfskrafta hennar.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Kær vinkona og afasystir barna
minna hefur kvatt mánuði eftir 87
ára afmæli sitt. Öllu lífi fylgir dauði.
Af tilvist Gunnu heyrði ég fyrst
er ég var barn að aldri þegar hún
og móðursystur mínar unnu saman
á prjónastofunni Hlín í Reykjavík.
Frá því fyrsta að ég kom í fjölskyld-
una tók hún mér opnum örmum og
seinna börnum mínum. Gunna gift-
ist ekki né átti börn, en börn systk-
ina hennar og þeirra börn voru
hennar fjölskylda.
Það var mikið áfall fyrir hana
þegar bróðir hennar Eiríkur lést en
hún stóð fyrir búi hans. Einnig þeg-
ar jarðskjálftarnir riðu yfir árið
2000 og lögðu ættaróðalið Ás nán-
ast í rúst. Þá þurfti hún að flytja í
nýrra hús sem Eiríkur lét byggja
og við kölluðum Nýja húsið. Það
hafði verið athvarf okkar yngra
fólksins í mörg ár og Nýja húsið
reyndist notalegt hús.
Ófáar stundirnar áttum við sam-
an í eldhúsinu í Ási þar sem vel var
gert við okkur í mat og drykk en
mikil formfesta var í heimilishaldi
þar á bæ; hádegismatur kl. 12, kaffi
kl. 15, þar sem sú regla var höfð að
brauð og álegg var ávallt á undan
sætabrauði, og ekki má gleyma hin-
um sívinsælu flatkökum og klein-
um.
Sannarlega var hún dugnaðar-
forkur, hún Gunna. Gekk í öll úti-
verk ef þurfti mannskap. Áttatíu
ára henti hún heyböggum, 15–20
kílóa, af færibandinu og inn í hlöðu,
eða raðaði böggum sem komu af
færibandinu í hlöðuna sem var enn
erfiðara starf. Borgarbörnin horfðu
með aðdáun á frænku sína sem svo
að kvöldi bauð jafnvel í steik og
sveskjugraut með rjóma og ís á eft-
ir.
Fyrir framan bæinn í Ási var
matjurtagarður sem Gunna hafði
mikla ánægju af. Á haustin fórum
við klyfjuð heim úr sveitinni með
kartöflur og gulrætur í poka og
rifsberjagel í krukkum.
Til síðasta dags hélt hún fullri
andlegri heilsu, fylgdist vel með öll-
um ættingjum sínum, mundi afmæli
flestra og því fylgdi símhringing
með afmæliskveðjum.
Trúlega var enginn eins viðbúinn
kallinu og hún sjálf en fráfall henn-
ar bar að með nokkuð skjótum
hætti. Síðustu árin voru henni lík-
legast erfið; nokkrar innlagnir á
sjúkrahús síðasta ár og missir
yngsta bróður, Jóns Hauks, sem
lést í október 2001.
Gunna var ekki ýkja mannblend-
in en ávallt kát í góðra vina hópi og
mikill gestgjafi.
Heimilið í Ási var þekkt fyrir
myndarskap og háttvísi. Þar var
búið við góðan efnahag á mæli-
kvarða þess tíma. Ás er landnáms-
jörð og hefur sama fjölskyldan búið
þar síðan árið 1909. Þau systkinin
nutu þeirrar gæfu að alast upp á
menningarheimili í sveit og hlutu
flest skólagöngu í Héraðsskólanum
á Laugarvatni.
Gunna var mikil dama, alltaf vel
klædd og vel til höfð. Hún spurði
okkur yngra fólkið hvaða litir færu
best saman og hrósaði okkur ef við
vorum fín.
Þegar ég fékk að tala við Gunnu í
þráðlausan síma, mikið veika á
gjörgæsludeild Landspítalans sól-
arhring áður en hún lést, var það
henni líkt að spyrja hvað væri að
frétta af okkur. Ég fékk lítið að
frétta af hennar líðan nema frá
hjúkrunarfræðingi, því sjálfsvor-
kunn eða væl tamdi hún sér ekki.
Nú verður enginn í Ási en þín
verður sárt saknað og minningin
um þig lifir áfram. Sá sem ræður
blessi minninguna um Guðrúnu
Hlíf, vinkonu mína.
Þín
Ólöf (Lóla).
Okkur systkinabörnin langar í fá-
einum orðum að minnast kærrar
frænku okkar Guðrúnar H. Guð-
jónsdóttur sem við ávallt kölluðum
Gunnu.
Gunna var fædd í Ási og ólst þar
upp við hefðbundin sveitastörf á
mannmörgu heimili. Fyrstu minn-
ingar okkar um hana eru frá þeim
tíma þegar hún starfaði og bjó í
Reykjavík en þangað flutti hún frá
Ási um tvítugt. Allan þann tíma
sem hún dvaldi í Reykjavík vann
hún á prjónastofunni Hlín við
Skólavörðustíg. Hún bjó fyrstu árin
á Þórsgötu en flutti síðar á Skóla-
vörðustíg og átti heimili sitt í sama
húsi og prjónastofan var. Þangað
komum við oft í heimsóknir enda
fengum við höfðinglegar og
skemmtilegar móttökur sem við
krakkarnir kunnum svo sannarlega
að meta. Gunna tók okkur öllum
opnum örmum og fengum við ávallt
alla hennar athygli. Hún giftist
aldrei og eignaðist ekki börn sjálf
og þess vegna nutum við systkina-
börnin enn frekar kærleika hennar
og umhyggju.
Vegna breyttra heimilisaðstæðna
í Ási kom það í hennar hlut að flytj-
ast aftur heim á æskuheimilið og
annast aldraða foreldra sína og sjá
um heimilishald ásamt Eiríki bróð-
ur sínum.
Gunna var einstaklega ósérhlífin
og mikill dugnaðarforkur til allra
starfa en jafnframt vandvirk og
vann öll sín verk af mikilli alúð.
Hún flíkaði ekki tilfinningum sínum
og var hógvær gagnvart sjálfri sér
en setti þarfir annarra frekar í önd-
vegi en sínar eigin. Hún var fé-
lagslynd og tók virkan þátt í störf-
um Ungmennafélags Ásahrepps,
kvenfélagsins Framtíðarinnar og
eins starfaði hún í kirkjukórnum.
Eftir lát ömmu og afa bjó hún
áfram með Eiríki bróður sínum og
verður upp frá þeim tíma fastur
punktur í tilveru okkar í Ási enda
dvöldum við þar langdvölum öll
sumur sem börn og unglingar.
Minningar okkar um Gunnu eru
ekki síst tengdar störfum hennar í
eldhúsinu enda gerði hún heimsins
bestu flatkökur, kleinur og pönnu-
kökur. Það var ósjaldan sem hún
stakk að okkur kleinupoka eða flat-
kökum þegar farið var til Reykja-
víkur. Í framhaldi af því er gaman
að minnast þeirrar reglu hennar að
ávallt skyldum við fyrst fá okkur
smurt brauð og hollustu áður en
sætabrauðið tæki við. Þetta sýnir
vel umhyggju hennar í okkar garð
því við skildum ekki alltaf „holl-
ustu-regluna“ hennar sem börn en
þegar við síðar eignuðumst okkar
eigin þá skildum við betur hvað bjó
að baki. Gunna var ótrúlega minnug
á afmælisdaga ættingja og vina
sinna og það brást ekki að alltaf
fengum við hringingu frá henni á
slíkum dögum. Hún var mikil
smekkmanneskja sem endurspegl-
aðist í natni hennar við heimilið og
eins fylgdist hún vel með fatatísku
hvers tíma og gerði sér far um að
vera ávallt vel til höfð. Þessi áhugi
hennar á fötum og fatatísku fylgdi
henni til hinstu stundar.
Árið 1988 féll Eiríkur bróðir
hennar frá og varð hún þá ein til
heimilis í Ási. Haukur bróðir henn-
ar dvaldi mikið þar eftir lát Eiríks
og stundaði ýmis útistörf. Hann var
ólatur við að keyra Gunnu og hjálpa
henni við ýmsar útréttingar. Þetta
var ein af forsendum þess að Gunna
gat dvalist áfram í Ási en lífið í
sveitinni var henni allt. Hún tengd-
ist sveitinni og æskuheimili sínu
sérstaklega sterkum böndum og
það reyndist henni því ákaflega erf-
ið lífsreynsla þegar jarðskjálftarnir
í júní árið 2000 neyddu hana til að
flytja úr því húsi sem hún fæddist
og ólst upp í og tók það mikið á
hana. Hún tók þessu samt af miklu
æðruleysi og það var þó huggun
harmi gegn að geta flutt í „nýja“
húsið á staðnum og geta dvalið þar
áfram á æskuslóðum sínum.
Það er táknrænt að Gunna og
Haukur veiktust bæði í ágúst sl. og
áttu ekki afturkvæmt að Ási eftir
það. Jafnframt var það ósk þeirra
beggja að fá sína hinstu hvíld í
kirkjugarðinum í Ási og hvíla þar
við hlið foreldra sinna og bróður.
Að leiðarlokum þökkum við
Gunnu af heilum hug fyrir kærleika
hennar og hjálp í okkar garð.
Blessuð sé minning hennar.
Guðjón, Guðríður, Gústaf,
Jónas og fjölskyldur.
Alin upp við afl og fjör,
er það fagur leikur:
Hermann, Guðrún, Eiríkur
Ingveldur, Jón Haukur.
Guðrún Hlíf Guðjónsdóttir hefur
lokið sínu dagverki, kvatt okkur og
lagt í ferð sína til Austursins eilífa.
Gunnu sá ég fyrst seint í ágústmán-
uði 1972 er ég kom fyrst í Ás. Eftir
því sem árin liðu og ég kynntist
henni betur kom skýrt fram hvers
konar kostamanneskja hún var.
Hún var ætíð blíð á manninn, af-
burða kurteis og með eindæmum
hjálpleg og nákvæm. Aldrei féll frá
henni styggðaryrði um nokkra
manneskju, henni var svo eðlilegt
að sjá það jákvæða í fari hvers og
eins. Ekki oft, en þó nokkrum sinn-
um, sinnti ég smáerindum fyrir
Gunnu og voru það ætíð ljúf spor að
ganga því í hvert eitt sinn var eins
og ég hefði unnið stórvirki. Hún var
óspör á að hrósa fólki í kringum sig
og fá það til þess að finna til sín,
finna að tilvist þess skipti máli.
Sjálfsagt deildi ég með fleirum
mörgum ánægjustundum í eldhús-
inu í Ási, þar sem hún bar fram, á
svipstundu, mikil veisluföng, annað
kom ekki til greina. Ef leiðir okkar
lágu saman úti, þar sem ég var að
snudda, í Ási var ekki við annað
komandi en að líta inn og fá eitt-
hvað í gogginn.
Alltaf þótti mér athygli vert
hversu vel Gunna var inni í öllum
landsmálum. Hún fylgdist mjög vel
með fréttum og ekki leyndi sér að
hún hafði mjög mótaðar skoðanir á
ýmsum málum, þótt hún bæri þær
ekki á borð. Hún hélt þeim út af
fyrir sig. Kristin trú var henni mik-
ils virði og tryggur förunautur
henni í lífinu. Ekki var hægt að
finna fyrir því að Gunna gerði stór-
ar eða miklar kröfur til lífsins, þol-
inmæði og nægjusemi voru hennar
dyggðir. Oft kom upp í spjalli okk-
ar, yfir kaffibolla, söngur og leyndi
sér ekki að af söng og tónlist hafði
hún mikið yndi enda söngmann-
eskja sjálf til margra ára.
Nú síðustu árin var heilsu hennar
farið að hraka og fannst mér eft-
irtektarvert hversu vel hún sætti
sig við það ástand sem ríkir í heil-
brigðiskerfinu. Hún átti í fórum sín-
um allan þann skilning sem þörf var
á vegna þessa. Gunna var stór hluti
af mannlífinu sem myndaðist vegna
nálægðar Ásbæjanna og gerði okk-
ur öll ríkari sem kynntumst henni.
Henni þakka ég samfylgdina og
óska henni góðrar ferðar. Vanda-
mönnum sendum við Arnheiður
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Jakob. S. Þórarinsson,
Selfossi.
GUÐRÚN HLÍF
GUÐJÓNSDÓTTIR
Það var mikill blessaður dagur
þegar ég hitti Erling Vilhjálmsson
á gangi fyrir framan Samkomuhús-
ið á Akureyri í nóvember 1982. Ella
á Rauðá, eins og hann var jafnan
kallaður, hafði ég þekkt í gegnum
árin. Foreldrar mínir höfðu sett bú
sitt saman á Rauðá kringum 1920
og var góður kunningsskapur með
þeim og Rauðárfólki alla tíð. Þarna
við Samkomuhúsið spjölluðum við
og það kom á daginn að Elli var að
hjálpa kunningjafólki sínu við end-
urbætur á íbúð hér í innbænum. Ég
vissi að Elli var þjóðhagi, völundur í
höndunum og eftirsóttur til margs-
konar smíðavinnu langt út fyrir
sína sveit. Ég færði það í tal við
ERLINGUR
VILHJÁLMSSON
✝ Erlingur Vil-hjálmsson fædd-
ist á Rauðá í Ljósa-
vatnshreppi í S-Þing-
eyjarsýslu 10. júlí
1941 og bjó þar alla
tíð. Hann lést á heim-
ili sínu 8. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Friðrik
Vilhjálmur Grímsson
smiður frá Rauðá og
Hólmfríður Hall-
dórsdóttir frá Stöng
í Mývatnssveit.
Systkini Erlings eru
Grímur Vilhjálms-
son, Þórhildur Vilhjálmsdóttir,
Hreinn Vilhjálmsson og fóstur-
bróðir hans er Kormákur Jóns-
son.
Útför Erlings fer fram frá
Ljósavatnskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
hann hvort hann væri
ekki fáanlegur að
koma í leiktjaldasmíði
hjá Leikfélagi Akur-
eyrar. Hann taldi það
ekki fráleitt, en skýrði
mér frá því að hann
væri ekki að öllu leyti
kóngsins lausamaður
þar sem hann byggi
félagsbúi með bróður
sínum Grími. En það
liðu ekki margir dagar
þar til Elli var kominn
og byrjaður að vinna á
smíðaverkstæði LA.
Og það hefur hann
gert allflesta vetur frá þeim tíma.
Stundum vann hann fyrir okkur
meira og minna allan veturinn,
stundum í einu verkefni og fyrir
kom að hann var kallaður í nokkra
daga til að gera frumsýningu mögu-
lega. Fyrsta stóra verkefnið sem
Elli bar ábyrgð á sem yfirsmiður,
var leikmyndin í My Fair Lady. Þá
kom vel í ljós hverslags afbragðs-
maður Elli var. Smiður af Guðs náð,
útsjónarsamur og nýtinn með af-
brigðum. Flóknustu vandamál
leysti hann af hendi á undraverðan
hátt og fyrir kom, ef leikmynda-
hönnuðir áttu í tæknilegum vanda,
að leitað var til Ella. Og oftar en
ekki fann hann viðunandi lausn.
Flókna útfærslu átti hann auðvelt
með að einfalda og leysa á ódýrari
hátt en í upphafi var gert ráð fyrir,
án þess það kæmi niður á gæðum
eða notagildi. Hann hamaðist aldrei
við smíðarnar en var alltaf að og
vannst vel, bað ógjarnan um aðstoð
enda vanastur því að bjarga sér
sjálfur. Á upphafsárum Ella hjá LA
var vélakostur til smíða ekki upp á
marga fiska og undruðust margir
hvernig hann gat bjargað sér, til
dæmis að renna „pílára“ í handrið í
hjólsöginni. Öllum geðjaðist vel að
Ella.
Hann var þægilegur í umgengni,
afskipalaus um annarra hagi,
grandvar í orðum og prúðmenni hið
mesta. Hann hafði gaman af því að
rökræða um landsins gagn og nauð-
synjar og lét aldrei hlut sinn fyrir
neinum. Nú er þúsundþjalasmiður-
inn fallinn. Hann var að vinna fyrir
okkur nokkra daga nú eftir áramót-
in. Það síðasta sem hann gerði var
að smíða „himnastiga“ í leiksýn-
inguna Slava, sem frumsýnd verður
25. þessa mánaðar. Hann lauk því
verki á sunnudagskvöld 6. janúar
og ók þá heim að Rauðá. Þegar
hann kvaddi, hvarflaði ekki að
nokkrum manni að þar væri síðasta
kveðjan.
Aðfaranótt þriðjudagsins áttunda
var hann burtkallaður úr þessum
heimi á hljóðlátan hátt. Leikfélag
Akureyrar þakkar Ella öll hans
störf í gegnum árin. Við sjáum á
eftir góðum dreng og miklum hag-
leiksmanni. Við sendum systkinum
Ella, ættingjum og vinum innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Hafðu þökk fyrir allt, kæri vinur.
Fyrir hönd LA,
Þráinn Karlsson.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.