Morgunblaðið - 18.01.2002, Qupperneq 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 39
✝ Alfa JennýGestsdóttir
fæddist á Lækjar-
bakka á Árskógs-
strönd í Eyjafirði 6.
september 1944.
Hún lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
11. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Kristjana
Steinunn Ingimund-
ardóttir, f. 4. ágúst
1903, d. 8. febrúar
1990, húsmóðir og
verkakona frá Hlíð í
Garði, og Gestur
Sölvason, f. 17. sept. 1896, d. 21.
okt. 1954, frá Litla-Árskógssandi.
Alfa Jenný var yngst í röð sjö
systkina. Hin eru í aldursröð:
Magnús Ragnar, f. 11. júní 1927, d.
og Karl Jónasson, f. 19. febr. 1909,
d. 14. apríl 1980, véla- og renni-
smiður frá Rimakoti Landeyjum.
Börn Jennýjar og Magnúsar eru:
1) Magnea Inga, f. 13. desember
1963, gangavörður, búsett í Kefla-
vík, maki Þorsteinn Magnússon, f.
5. okt. 1961, bílstjóri. Börn þeirra
eru: Magnús Sverrir, f. 22. sept.
1982, Þorsteinn, f. 24. des. 1988, og
Jenný, f. 19. sept. 1991. 2) Karl, f.
28. apríl 1968, bílstjóri, búsettur í
Sandgerði. Barn hans er: Krist-
jana Björg, f. 11. janúar 1995. 3)
Kristjana, f. 16. júlí 1980, dag-
mamma, búsett í Keflavík, maki
Elías Sigvarðarson, f. 19. mars
1973, trésmiður. Börn þeirra eru:
Guðríður Elísabet, f. 15. mars
1999, og Magnús Ægir, f. 16. mars
2001. Fyrir átti Karl Magnús son-
inn Ægi, f. 13. mars 1959, d. 19.
apríl 1990.
Útför Jennýjar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30. Jarðsett
verður í Hólmbergskirkjugarði í
Keflavík.
22. sept. 1962, Odd-
geir, f. 24. sept. 1930,
d. 12. desember 1995,
Gestur Bergvin, f. 12.
apríl 1933, d. 29. mars
1959, Líney Hulda, f.
3. nóv. 1935, d. 19. júlí
1998, Vordís Inga, f.
28. maí 1938, d. 10.
ágúst 1998, og Oddný
Sigríður, f. 14. sept.
1940, leikskólastjóri,
búsett í Garðabæ.
Árið 1962 hóf Jenný
búskap með eftirlif-
andi manni sínum,
Karli Magnúsi Karl-
syni, f. 6. mars 1939, Baadermanni
frá Stokkseyri. Foreldrar hans
voru Aðalheiður Gestsdóttir, hús-
móðir, f. 15. okt. 1907, d. 8. apríl
1997, frá Pálshúsum á Stokkseyri,
Það eru komin rúm tuttugu ár síð-
an ég kynntist Jenný, en þá vorum
við Inga að slá okkur upp rétt innan
við tvítugt. Allan þennan tíma hefur
Jenný verið mér sem móðir og alltaf
hægt að leita til hennar með allt sem
við þurftum hjálp með og það stóð
aldrei á því hjá henni. Hún skilur eftir
sig stórt sár í hjörtum okkar allra
sem aldrei grær. Hver hefði trúað því
að hún svona hraust eins og hún var
alltaf myndi kveðja svona snögglega.
Hennar líf snerist meira og minna um
börnin og barnabörnin hennar sem
hún var svo stolt af. Það verður skrít-
ið að fá hana ekki í heimsókn með
Magga eins og þau gerðu svo oft, en
samrýndari hjón er erfitt að finna.
Þau unnu nánast alltaf saman og
eyddu sínum frístundum saman.
Missir Magga tengdaföður míns og
vinar er mikill og sár.
Lífið hjá Jenný breyttist mikið
þann 18. september þegar hún slas-
aðist illa á hendi og var hún ekki far-
inn að vinna aftur og ekki víst hvort
hún myndi vinna meira. Síðan byrj-
uðu veikindin í desember og allir
héldu að þetta væri bara flensa eða
röngum lyfjum um að kenna, en svo
var ekki. Þessi hræðilegi sjúkdómur
tók sér svo rækilega bólfestu í henni
að ekki var við neitt ráðið og lést hún
síðan langt fyrir aldur fram þann 11.
janúar.
Kæra Jenný ég kveð þig nú og
þakka þér fyrir allt,
Ég bið algóðan guð að styrkja okk-
ur öll á þessari sorgarstundu.
Þinn tengdasonur
Þorsteinn.
Ég hef augu mín til fjallanna.
Hvaðan kemur mér hjálp?
Hjálp mín kemur frá Drottni,
skapara himins og jarðar.
(Davíðssálmur 121.)
Skyndileg veikindi Jennýjar syst-
ur minnar komu eins og þruma úr
heiðskíru lofti.
Miðvikudaginn 2. janúar var hún
flutt fársjúk á Landspítalann í Foss-
vogi til rannsóknar og rúmri viku
seinna var hún öll.
Jenný greindist með illkynja æxli.
Með miklum söknuði kveð ég hjart-
kæra systur mína. Hún var yngst
okkar sjö systkina og eru sex nú látin.
Það hefur verið skammt stórra
högga á milli í fjöldskyldum okkar
síðustu árin.
Jenný ólst upp í Sandgerði frá níu
mánaða aldri og bjó þar alla sína ævi.
Mjög ung fór hún að vinna við fisk-
vinnslu eins og algengt var á þessum
árum á Suðurnesjum. Hún stundaði
nám við Húsmæðraskólann á Hall-
ormsstað 1959–1960. Hún hóf búskap
með eftirlifandi manni sínum í Sand-
gerði 1962 og bjó þar til dauðadags.
Alla sína starfsævi starfaði hún við
fiskvinnslu, lengst af í Sandgerði, en
seinni ár í Keflavík eða þar til hún
slasaðist mjög alvarlega á handlegg
18. sept. síðastliðinn er hún var við
vinnu. Jenný var harðdugleg og ósér-
hlífin kona og kærði sig ekki um vor-
kunnsemi.
Mér var sagt að eftir slysið í Kefla-
vík í haust, þegar búið var að losa
handlegginn frá færibandinu, hefði
hún tekið undir hann með heilu hend-
inni og strunsað óstudd út í bíl, hún
þurfti sko enga hjálp. Þetta minnti
mig óneitanlega á móður okkar. Ekk-
ert nema dugnaður og harka. Jenný
var ákaflega létt og kát í lund og mik-
ill húmoristi, en ef hún reiddist veru-
lega gat setið lengi í henni. Hún var
ekki allra en mjög trygg vinum sín-
um. Fjölskyldan var henni allt.
Maggi og Jenný voru ákaflega sam-
rýnd og veit ég að missir hans, barna
þeirra og barnabarna er mikill. Ég
held að það hafi varla liðið sá dagur
að þau litu ekki inn hjá dætrum sín-
um í Keflavík til að líta á barnabörn-
in, en sonur þeirra bjó heima hjá
þeim í Sandgerði. Á nýársdag hélt
hún matarboð fyrir börnin, barna-
börnin og tengdabörnin, þó svo að
hún stæði varla í fæturna. Hún sagði
við mig eitt kvöldið er ég sat hjá
henni uppi á spítala. „Odda ekki veit
ég hvernig ég fór að þessu en mikið
er ég fegin að hafa getað þetta.“
Maggi og Jenný störfuðu nær alltaf
hjá sama fyrirtækinu og urðu því
samferða í og úr vinnu í gegnum árin.
Þau stefndu að því síðustu árin að
flytja til Keflavíkur, bæði vegna
dætranna og fjölskyldna þeirra og
einnig vegna vinnunnar, þar sem
enga vinnu var lengur fyrir þau að fá í
Sandgerði. Það er mikið tómarúm og
söknuður í hjarta mínu. Mestur er þó
söknuðurinn og missirinn hjá eigin-
manni Jennýjar, börnum, barnabörn-
um og tengdabörnum.
Ég bið Drottin að hugga þau og
styrkja um ókomin ár.
Blessuð sé minning hennar.
Oddný S. Gestsdóttir.
Góður Guð, þig bið ég nú
þú gefir mér mína barnatrú.
Ef kallar þú mig á þinn fund,
þá komið er að kveðjustund.
(Höf. ók.)
Mig langar með fáum línum að
kveðja kæra frænku mína, Ölfu Jenn-
ýju Gestsdóttur, sem ég kallaði oftast
Jennu, eins og margir aðrir. Við vor-
um systkinadætur. En við vorum
ekki aðeins frænkur. Við vorum líka
góðar vinkonur og nágrannar síðustu
áratugina, eftir að Jenna og Maggi
fluttust til Sandgerðis frá Hafnar-
firði.
Árin sem við unnum saman hjá
Miðnesi urðu líka mörg, um eða yfir
þrjátíu. Jenna var ákaflega dugleg og
samviskusöm, við hvað sem hún
vann. Dugnaðurinn kom líka fram í
öðru en vinnu, hún var dugleg að
heimsækja mig. Við sátum þá saman í
eldhúsinu á Uppsölum yfir kaffibolla,
seinni árin kannski á litla sólpallinum
í góðu veðri, og það var létt yfir okk-
ur. Síðast heimsótti hún mig um miðj-
an desember, rétt áður en ég datt og
lenti inni á sjúkrahúsi. Hún var þá
glöð og kát eins og hún átti að sér.
Jenna var alltaf tilbúin til að aðstoða.
Hún hringdi til mín rétt fyrir jól, eftir
að ég kom heim af sjúkrahúsinu, og
bauðst til að sitja hjá mér ef Geiri,
maðurinn minn, færi á sjó eða eitt-
hvað langt. Þannig var Jenna. Sjálf
var hún frá vinnu, í fyrsta skiptið í
mörg ár, eftir að hafa handleggs-
brotnað í vinnunni. Kveðjuorðin okk-
ar voru oftast stutt og laggóð: „Við
sjáumst.“ Þau notuðum við þegar við
kvöddumst á tröppunum á Uppsölum
um miðjan desember. Það verður bið
á því að kveðjuorðin rætist. Maggi og
Jenna eignuðust þrjú börn. Nokkur
barnabörn eru líka komin. Jenna lét
sér mjög annt um fjölskyldu sína.
Kæri Maggi, Inga, Magga, Steini,
Kolli, Kristjana, Elli og barnabörnin,
megi góður guð gefa ykkur styrk í
sorginni.
Elsa.
ALFA JENNÝ
GESTSDÓTTIR
Allt leitar guðs
í alheimi,
sérhvert smáblóm
og síungt líf.
Máttug er hönd
hins milda föður,
án hans værum við
ekki neitt.
Þig vil ég kveðja
með þúsund óskum
um gæfu og gleði
í góðu lífi.
Lýsi þér ávallt
ljúfir englar.
HRAFNHILDUR A.
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ HrafnhildurAuður Guð-
mundsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 2.
mars 1959. Hún lést
á Landspítalanum
við Hringbraut 28.
nóvember síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Fossvogskirkju 5.
desember.
Far þú í friði
á framtíðarbraut.
(Aðalsteinn Herbertsson.)
Hrafnhildur. Ég
mátti til að senda þér
smákveðju. Það er ég
viss um að nú líður þér
vel, því nú ertu loksins
laus við sjúkdóma og
fleiri erfiðleika. Í raun
og veru þekktumst við
ekki nema í um það bil
16 mánuði, en á þessu
tímabili hafðir þú oft
þörf fyrir að tala við
einhvern sem gat hlust-
að og þú sagðir mér svo fjölmargt úr
lífi þínu að mér finnst næstum eins
og ég hafi þekkt þig mjög lengi og
mér varð líka strax ljóst að þarna var
góð sál og mér finnst það dýrmæt
lífsreynsla að hafa fengið að kynnast
þér.
Svo vil ég senda börnum þínum,
foreldrum, systkinum og vinum,
mínar bestu samúðarkveðjur.
Aðalsteinn.
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru
nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect
einnig auðveld í úrvinnslu.
Birting afmælis- og
minningargreina
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
$
0
6$;
> ( ! 5@A
, %
-
6
2##
7-
!
)##
1" 14"(+
(("&"(4"#
/-
3
-
-
-
2 % ; 14"1(
34( B#
0"(+
C ""(+
94""$+1(("
"& ' ""(+
9( "" (("
"" ' ""(+
"0(9+(("
"%(" ""(+
> ""(("
(>! ""(("
6+""%(0"6+"(+
C3"& ""(+
""3 "(("
!"! "#
8
+
- + 3
% 3%
-
-
-
==236 2 6
2
2' B
( ?('#
+"6+"(("
'! +
; 6+"(+
3 " (("
$6+"(+
% "(
D 6+"(("
"" 9! (+
6+"(+
' " +&
!"! " !"!"! "#