Morgunblaðið - 18.01.2002, Side 42
FRÉTTIR
42 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
JÓLAKORT Símans voru með
breyttu móti fyrir nýliðin jól.
Ákveðið var að láta gera
sérstök kort fyrir Símann og
styrkja í leiðinni valið mál-
efni. Að þessu sinni varð
Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna fyrir valinu.
Ungur meðlimur félagsins,
hin fimm ára gamla Rebekka
Ingibjartsdóttir, teiknaði
mynd sem sett var á jólakort-
in sem Síminn sendi út.
Myndin sýnir jólasveininn og
eitt af hreindýrum hans gera
sig tilbúin fyrir jólin.
Af þessu tilefni afhenti
Heiðrún Jónsdóttir, for-
stöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála Símans,
Styrktarfélaginu styrk frá
fyrirtækinu. Þá var lista-
manninum einnig afhentur
styrkur frá Símanum fyrir
vel unnin störf, segir í frétta-
tilkynningu.
Morgunblaðið/Þorkell
Heiðrún Jónsdóttir, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Síman-
um, Hrefna Bachmann, markaðsstjóri hjá Símanum, Helga Þórsdóttir, móðir
listamannsins (Rebekku), Rósa Guðbjartsdóttir, frkvstj. SKB, og Rebekka Ingi-
bjartsdóttir, 5 ára, sem teiknaði myndina sem prýddi jólakort Símans.
Styrkir Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna STRÍÐ og íhlutun heimsvaldasinna í
Suður-Asíu er yfirskrift málfundar,
sem haldinn verður í dag, föstudaginn
18. janúar kl.17.30 í Pathfinder-bók-
sölunni, Skólavörðustíg 6 B (bakatil).
Framsaga um framgöngu heims-
valdastefnunnar í Indlandi og Pakist-
an, og hvað býr að baki deilunni um
Kasmír.
Málfundinn halda aðstandendur
vikublaðsins Militant og Ungir sósíal-
istar. Frjálst framlag óskast við inn-
gang, segir í fréttatilkynningu.
Fundur
um stríð í
Suður-Asíu
SEXTÁN nemendur voru útskrifað-
ir úr Stóriðjuskólanum. Í þeirra hópi
voru fyrstu konurnar sem hófu nám
við skólann; tvær sem starfa í
steypuskálanum og ein sem starfar í
kerskálum.
Skóladúx Stóriðjuskólans að
þessu sinni var Sigríður Theódóra
Eiríksdóttir, með aðaleinkunnina
9,1. Semi-dúx var Hilmar V. Guð-
mundsson, með einkunnina 8,88 og
þriðju hæstu aðaleinkunnina hlaut
Tryggvi L. Skjaldarson, 8,85.
Björn Bjarnason, menntamála-
ráðherra, upplýsti við útskriftina að
nám við Stóriðjuskólann hefði verið
metið til eininga í almenna skóla-
kerfinu (fjölbrautakerfinu) og það
jafngilti 24 einingum.
Þetta er í fimmta skipti sem stór-
iðjugreinar eru útskrifaðir úr skól-
anum og að athöfn lokinni munu 75
starfsmenn ISAL hafa lokið námi við
skólann, segir í fréttatilkynningu.
16 útskrifaðir úr
Stóriðjuskólanum
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Dansarar og borð-
dömur óskast
Starfsþjálfun í boði. Upplýsingar hjá:
Club Vegas í síma 899 9777.
Vélstjóra vantar
Vélstjóra vantar á togara sem gerður er út á
rækjuveiðar frá Siglufirði. Þarf að hafa 3.000
kw-réttindi (VFII).
Upplýsingar gefur Þórður í síma 460 5560.
Einnig má senda upplýsingar um nafn og fyrri
störf á netfang: thordur@rammi.is .
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Lækjarskóli
Skólaliða vantar sem fyrst við Lækjarskóla.
Um er að ræða 100% starf en allar upplýsingar
um starfið gefur Reynir Guðnason, skólastjóri,
í síma 555 0585. Umsóknareyðublöð er hægt
að nálgast á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar,
Strandgötu 31, en einnig er hægt að sækja um
rafrænt á hafnarfjordur.is .
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins á Ólafsvegi 1,
Ólafsfirði, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Aðalgata 32, Ólafsfirði, þingl. eig. Þrúður Marín Pálmadóttir og Bjarki
Jónsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Íslandsbanki hf., Kirkju-
sandi, Lífeyrissjóður sjómanna og Sparisjóður Ólafsfjarðar, föstudag-
inn 25. janúar 2002 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði,
16. janúar 2002.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Auglýsing um
fyrirhugað útboð
Forvalsnefnd utanríkisráðuneytisins, f.h. verk-
fræðideildar Bandaríkjaflota, United States
Naval Facilities Engineering Command, auglýs-
ir hér með eftir umsóknum um þátttöku frá
íslenskum lögaðilum í vali til fyrirhugaðs for-
vals vegna tveggja þrepa útboðs á eftirfarandi
verkframkvæmd:
Malbikun flugbrautar 11—29 á
Keflavíkurflugvelli.
Áætlaður skilafrestur tilboða í forval er 22. mars
2002 og er áætlaður verktími eitt ár frá samþykki
tilboðs.
Nánari upplýsingar ásamt upplýsingum um
kröfur forvalsnefndar til verktaka fást á varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðuneytisins á Rauðar-
árstíg 25, Reykjavík. Umsókn um þátttöku skal
vera á ensku. Forvalsnefnd áskilur sér rétt til
að hafna umsóknum sem ekki eru fullnægjandi.
Ekki verður tekið við viðbótarupplýsingum frá
þátttakendum eftir að frestur til að skila inn
umsókn rennur út. Ef þátttakendur áforma að
ráða undirverktaka til verksins að hluta eða
öllu leyti skal veita um þá sömu upplýsingar
og krafist er af þátttakendum.
Verkið verður boðið út á alþjóðlegum markaði
samkvæmt reglum Atlantshafsbandalagsins
um alþjóðleg samkeppnisútboð og verður því
hagað í samræmi við reglur bandalagsins um
slík útboð. Tilkynning þessi tekur einungis til
íslenskra lögaðila en stjórnvöld aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins velja og tilnefna verk-
taka hvert frá sínu landi.
Umsóknum skal skilað til varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins á Rauðarárstíg 25,
Reykjavík, eða ráðningardeildar varnarmála-
skrifstofu á Brekkustíg 39, Njarðvík.
Frestur til að skila inn tilkynningu um
þátttöku í vali til forvals er til þriðjudags-
ins 29. janúar 2002 16:00.
Utanríkisráðuneytið.
Forvalsnefnd.
TILKYNNINGAR
Snæfellsnesvegur um
Kolgrafafjörð í Eyrarsveit
og Helgafellssveit
Mat á umhverfisáhrifum — athugun
Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt
lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrif-
um. Fallist er á, með skilyrði, lagningu Snæ-
fellsnesvegar um Kolgrafafjörð samkvæmt
leiðum 1, 2 og 3 eins og þeim er lýst í fram-
lögðum gögnum framkvæmdaraðila.
Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu-
lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu
Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is .
Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
20. febrúar 2002.
Skipulagsstofnun.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Norður Hvammur, Mýrdalshreppi, þingl. eig. Jónas Smári Hermanns-
son, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Íslands hf., Íbúðalánasjóður
og Lánasjóður landbúnaðarins, miðvikudaginn 23. janúar 2002 kl.
14.00.
Sýslumaðurinn í Vík,
17. janúar 2002,
Sigurður Gunnarsson.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
Kínversk heilsulind
Ármúla 17, s. 553 8282
● Kennsla í kínversku nuddi.
● Kynning á kínverskum
nálastungum.
● Kínversk leikfimi.
● Kennsla í sjálfsnuddi.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 1821188 Ei.
I.O.O.F. 12 1821188½ Ei.
Í kvöld kl. 21 heldur Gunnar
Kvaran erindi: „Um bænaiðkun“
og leikur nokkur smáverk eftir
Bach í húsi félagsins, Ingólfs-
stræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Halldórs Har-
aldssonar sem sýnir myndband
með Krishnamurti.
Á sunnudögum kl. 17-18 er
hugleiðingarstund með leiðbein-
ingum fyrir almenning.
Hugræktarnámskeið
Guðspekifélagsins verður fram-
haldið fimmtudaginn 24. janúar
kl. 20.30 í umsjá Bjarna Björg-
vinssonar: “Hin mildiríka ná-
vist”.
Á fimmtudögum kl. 16.30-
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Guðspekifélagið hvetur til sam-
anburðar trúarbragða, heim-
speki og náttúruvísinda. Félagar
njóta algers skoðanafrelsis.
www.gudspekifelagid.is
Nordjobb
NORDJOBB er samnorrænt verk-
efni ætlað 18–26 ára ungmennum.
Það miðlar sumarvinnu og húsnæði á
Norðurlöndum og býður auk þess
upp á fjölbreytta menningar- og
tómstundadagskrá. Ár hvert fer hátt
á annað hundrað íslenskra ung-
menna utan á vegum Nordjobb.
Umsóknartímabil Nordjobb fyrir
sumarið 2001 er hafið. Umsókn-
areyðublöð og upplýsingar má finna
á www.nordjobb.net en einnig hjá
Norræna félaginu, Bröttugötu 3B,
101 Reykjavík, í síma og netfangi
nordjobb@norden.is segir í fréttatil-
kynningu.