Morgunblaðið - 18.01.2002, Qupperneq 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 43
Hagstæð skíðafargjöld með
Flugleiðum og SAS á bestu skíðasvæði Evrópu
ÍTALÍA
Mílanó 41.875 kr.*
• Madonna di Campiglio
• Val di Fassa
• Selva Val Gardena
FRAKKLAND
Genf 42.125 kr.*
• Val d´Isère / Tignes
• Dalirnir þrír (Méribel, Courcheval og
Val Thorens)
• Chamonix
AUSTURRÍKI
München 42.365 kr.*
• Kitzbühel / Kirchberg
• Zell am See
• Lech / St. Anton
SVISS
Zürich 42.555 kr.*
• St. Moritz
• Cranz Montana
• Davos
Skíða-ævintýri
FRANKFURT – flug og bíll
47.990 kr.**
m.v. 2 í bíl í B flokki í eina viku.
PARÍS – flug og bíll
47.800 kr.**
m.v. 2 í bíl í B flokki í eina viku.
Snjórinn
færir okkur
nær hvert
öðru…
* Verð með flugvallarsköttum og þjónustugjaldi. Flogið er í gegnum Kaupmannahöfn og áfram með SAS.
Ferðir skulu farnar á tímabilinu 5. jan. til 20. mars (síðasti heim komudagur er 27. mars). Bókunarfyrirvari
er 7 dagar. Lágmarksdvöl er 7 dagar og hámarksdvöl er 21 dagur.
** Verð með flugvallarsköttum og þjónustugjaldi. Ferðir skulu farnar á tímabilinu
26. nóv. til 31. mars (síðasti heimkomu dagur er 21. apríl). Enginn bókunarfyrirvari. Lágmarksdvöl er 7 dagar
og hámarksdvöl er 21 dagur.
*/** 2ja–11 ára börn greiða 67% og yngri en 2ja ára greiða 10% af fargjaldi.
Hafið samband við söluskrifstofur Flugleiða eða Fjarsölu Flugleiða í síma 50 50 100
(svarað mánud.–föstud. kl. 8–20, laugard. kl. 9–17 og á sunnud. frá kl. 10–16).
Nýi skíða-
bæklingurinn
liggur frammi á öllum söluskrifstofum
okkar. Náðu þér í eintak.
www.icelandair.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
16
01
2
0
1/
20
02
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands
framlengdi á miðvikudag greiðslu-
stöðvun Skjávarpsins en í Morg-
unblaðinu laugardaginn 12. janúar
sl. var ranglega greint frá því að
það hefði þá þegar verið gert.
Línubrengl í
verðkönnun
Í töflu sem fylgdi verðkönnun í
blaðinu í gær á algengum neyslu-
vörum á Íslandi og í fimm evru-
löndum varð línubrengl í þeim dálki
þar sem verð í Hollandi er tekið
saman í íslenskum krónum, án sölu-
skatts. Rétt verð kemur fram í evr-
um og ísl. krónum með söluskatti í
töflunni þannig að brenglið hefur
ekki áhrif á niðurstöður könnunar-
innar. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Rangt
föðurnafn
Rangt var farið með föðurnafn
Ingimundar Þ. Guðnasonar, vara-
oddvita Gerðahrepps, í frétt á Suð-
urnesjasíðu blaðsins í gær. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
DREGIÐ var úr lukkupotti Alþjóða-
líftryggingafélagsins 23. des. síð-
astliðinn. Á myndinni er Ólafur
Bragason tryggingaráðgjafi að af-
henda Sveini Ómari Ólafssyni vinn-
inginn, gjafakort frá ferðaskrifstof-
unni Terra Nova hf.
Einnig voru dregnir út 35 auka-
vinningar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Dregið úr
lukkupotti
MANNELDISRÁÐ hefur gefið út
nýjan bækling, Tekið í taumana –
stuðningur og ábendingar fyrir þá
sem vilja grennast. Eins og nafnið
bendir til er hann ætlaður þeim
sem eru heldur þyngri en þeim er
hollt og vilja gjarnan gera eitthvað
til að snúa þróuninni við.
Í bæklingnum er fjallað á ein-
faldan hátt um þátt hreyfingar,
mataræðis og ekki síst hugarfars
við að halda þyngdinni í skefjum
og sýnd dæmi um smávægilegar
breytingar á lífsstíl sem geta gert
gæfumuninn þegar þyngdin er
annars vegar. Þar er líka að finna
ýmis sjálfspróf og tillögur að mat-
seðlum. Ritið er myndskreytt af
Brian Pilkington. Hægt er að
skoða og panta bæklinginn á
heimasíðu Manneldisráðs, www.-
manneldi.is. Eins verður hægt að
kaupa ritið á heilsugæslustöðvum
og víðar.
Nýr bæklingur frá
Manneldisráði
Tekið í
taumana
FÉLAGAR Vinstri-grænna í Grund-
arfirði stofnuðu sérstaka félagsdeild
sunnudaginn 13. janúar. Á fundinum
var samþykkt að stefna að framboði
á vegum Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í Grundarfirði við
sveitarstjórnarkosningarnar á vori
komanda.
Stjórn Vinstri-grænna í Grundar-
firði skipa: Emil Sigurðsson vél-
stjóri, formaður, og meðstjórnendur
Matthildur S. Guðmundsdóttir leik-
skólakennari og Helena María Jóns-
dóttir verslunarmaður.
Gestir fundarins voru alþingis-
mennirnir Jón Bjarnason og Kol-
brún Halldórsdóttir og Sigurður
Helgason, Hraunholtum, formaður
Svæðisfélags Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs á Vesturlandi,
segir í frétt frá Vinstrihreyfingunni
– grænu framboði í Grundarfirði.
Félagsdeild
VG stofnuð í
Grundarfirði
SKIPULAGSSTOFNUN hefur í úr-
skurði um mat á umhverfisáhrifum
fallist á lagningu Snæfellsnesvegar í
Eyrarsveit og Helgafellssveit um
Kolgrafarfjörð samkvæmt leiðum 1, 2
og 3 eins og þeim er lýst í gögnum
framkvæmdaraðila, segir í fréttatil-
kynningu. Það skilyrði er sett að
tryggt verði að því sem næst full vatns-
skipti verði í Kolgrafarfirði að loknum
framkvæmdum. Úrskurðurinn í heild
liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úr-
skurðinn er einnig að finna á heima-
síðu Skipulagsstofnunar: www.skipu-
lag.is. Úrskurð Skipulagstofnunar má
kæra til umhverfisráðherra og er
kærufrestur til 20. febrúar 2002.
Fallist á veg um
KolgrafarfjörðHINN 16. janúar sl. á milli kl. 17.30
og 21 var ekið á vinstri afturhurð bif-
reiðarinnar TD-337, sem er grá Ren-
ault-fólksbifreið, þar sem hún stóð
kyrr og mannlaus á bifreiðastæði við
Ingólfsstræti 19. Sá sem það gerði
fór hins vegar af vettvangi án þess að
tilkynna það hlutaðeigandi eða lög-
reglu. Því er hann eða aðrir sem geta
gefið frekari upplýsingar beðnir að
hafa samband við lögreglu.
Þá var hinn 16. janúar sl. á milli kl.
10 og 11.30 ekið á bifreiðina OZ-299,
sem er rauð Daewoo-fólksbifreið,
þar sem hún stóð kyrr og mannlaus
við Gaukshóla 2. Tjónvaldur yfirgaf
vettvang án þess að tilkynna tjónið.
Hann eða aðrir sem geta gefið frek-
ari upplýsingar snúi sér til lögregl-
unnar í Reykjavík.
Lýst eftir vitnum