Morgunblaðið - 18.01.2002, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG ER oft að velta því fyrir mér
hversu margir bæði viljandi og
óviljandi þjóna frekar því vonda en
góða og ég hefi líka hugsað til þess
hversu hið góða á erfiða leið gegn-
um lífið og tilveruna. Það er sama
hvað er predikað yfir fólkinu, það
er eins og orð spámannsins séu allt-
af í sama gildi en þau eru: Það góða
sem ég vil geri ég ekki en hið illa
sem ég vil ekki það geri ég. Þetta
kemur nú sérstaklega upp í hugann
þar sem ég er að lesa bók Péturs
Péturssonar um Einar í Betel.
Hann var mér kær og sérstaklega
fyrir hversu hann var einlægur og
sannur boðberi gilda lífsins fyrir
einstaklinginn. Ég man hann svo
vel og hann var mér og minni fjöl-
skyldu kær. Ég man hversu hann
var skýr og skorinorður þegar hann
talaði og varaði áheyrendur við
áfengisneyslu og sagði: Varið ykkur
á djöflinum. Hann er alls staðar á
hælunum á ykkur til að fella ykkur
og eyðileggja líf ykkar, og hans
besta vopn er brennivínið. Fleira
sagði hann í þessum dúr.
Ég var ekki fyrir löngu að ræða
við kunnan lækni um vímuna og
sérstaklega þessi eiturefni sem nú
ógna æskunni og framtíð hennar.
Hann var ekki í vafa um hverjar
væru uppsprettur þessa ægilega
böls. Hann sagði: Þetta byrjar á
bjór og léttum vínum og svo eykst
þetta og endar oft með því að sterk-
ari vímuefni ná yfirtökunum og þá
er ekki að spyrja að leikslokum.
Hann sagði meira: Eftir því sem
fullorðnir og valdhafar koma þessu
nær fólkinu verða vandræðin meiri
og þá duga vímuvarnir lítið, enda
byrja þær oftast á afleiðingunum en
ekki uppsprettunni. Það er eins og
að moka sandi í botnlausa tunnu og
allir vita hve sú tilhögun er lítils
virði. Og meira að segja nú vill
hjörð þingmanna koma áfenginu
sem allra næst fólkinu og láta selja
það í öllum matvörubúðum lands-
ins. Þannig eru þeirra vímuvarnir.
Ég hefi margbent á það að hver
slökun á áfengislögunum hefur
dregið dilk á eftir sér, svo ekki sé
meira sagt.
Mér fannst ömurlegt að sjá
myndina af biðröðinni á aðfangadag
fyrir utan ÁTVR. Hún var ekki
svona mikil á góðgerðarstofnanir
landsins fyrir jólin. En áfengisauð-
valdið hefir alltaf séð um sig og
fundvíst á leiðir til að eitra mann-
lífið. Aldrei hefir verið betra að lifa
á þessu indæla landi en nú og þess
vegna er það sárt þegar lífið er eitr-
að af skaðlegum efnum. Ég hefi
alltaf sagt og endurtek það enn að
eftir því sem bindindismönnum
vegnar betur í sínum boðskap og
fleiri bætast í þann hóp, þá blessast
þjóðlífið okkar og færri slys og
óheilindi verða á leið okkar. Það er
vissulega gaman að lifa og sérstak-
lega þegar við lútum leiðsögn hins
góða. Eflum bindindi og það borgar
sig.
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
Lútum leiðsögn
hins góða
Frá Árna Helgasyni:
NÚ ÞEGAR þeir RÚV-menn hafa
gefið frá sér aumingjalega yfirlýs-
ingu þess efnis, að HM verði ekki á
þeirra boðstólum í sumar, þá lang-
ar mig til þess að vita hvernig Í.Ú.
miðar í þeim málum? Það vita allir
að vandlega auglýst yfirlýsing
RÚV-manna var einungis dulbúið
hróp á hjálp, en er það virkilega
rétt aðferð? Hefðu þeir ekki frekar
átt að semja bak við tjöldin og
stæra sig síðan seinna af lausninni?
Því þessi HM-umræða hefur aðeins
ýtt undir hatur manna á hinum sí-
óvinsælu afnotagjöldum, sem virð-
ast missa tilverurétt sinn með
hverjum liðnum degi, sem nær
dregur HM. Og þó svo að efna-
hagsleg lægð sé hjá ýmsum fyr-
irtækjum, þá hefur enginn efni á
því að auglýsa ekki. Þó svo að
tímamismunur sé okkur í óhag
varðandi útsendingartíma, þá er
vel hægt að sýna leikina á hent-
ugum tíma, þó ekki verði það í
beinni útsendingu.
Einnig gætu raftækjaverslanir
farið af stað með átak, þar sem
myndbandstækjaeigendum er
kennt að stilla á upptöku fram í
tímann.
En eitt er víst, að HM verður
sýnt beint í íslensku sjónvarpi í
sumar. Annað gæti raskað jafn-
vægi því sem þjóðin notar sem við-
miðun velsæmis og siðferðislegra
samskipta hvers við annan, öðru
nafni bylting.
TRAUSTI SALVAR
KRISTJÁNSSON,
knattspyrnuáhugamaður,
Hrauntungu 97, Kópavogi.
HM í knattspyrnu
Frá Trausta Salvari Kristjánssyni:
Reuters
Greinarhöfundur óttast bylt-
ingu, verði ekki sýnt frá HM í
fótbolta í sumar.