Morgunblaðið - 18.01.2002, Síða 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 49
Útsala Útsala
SUÐURLANDSBRAUT 54 (BLÁA HÚSIÐ Á
MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 12.00-18.00
LAUGARDAG FRÁ KL. 10.00-16.00
Nú er tækifæri
til að gera góð
kaup
50% afsláttur
af öllum skóm
Útsala
Hverfisgötu 6
101 Reykjavík
STÓR hluti þjóðarinnar er undir svo-
kölluðum lögaldri og yfir 67 ára sem
nefndur er eftirlaunaaldur, og þegar
með er talið fólk sem er öryrkjar af
völdum sjúkdóma slysa eða erfðagalla
er það vafalaust fullur helmingur
þjóðarinnar.
Þeir sem fullvinnandi eru, leggja
mikið af mörkum til að hlynna að
þessu fólki, en það er ekki til neitt sér-
stakt stjórnmálaafl sem beitir sér fyr-
ir hagsmunum þess. Þótt þetta fólk
hafi með ævistarfi sínu byggt upp það
sem unga fólkið lifir á, þá er nú litið á
það gamla sem gustukalið sem þó sé
rétt að veita einhverja ölmusu, en það
hefur engan rétt til að semja um kjör
sín.
Þótt margt af þessu fólki sé fullt af
baráttuvilja og hafi auk þess mikla lífs-
reynslu og gáfur sem það örugglega
vildi nýta þjóðinni til gagns eftir getu
sinni þá hafa fæstir heilsu til að setjast
á þing heilt kjörtímabil og gæta þar
hagsmuna umbjóðenda sinna.
Ég tel að þessi stóri hópur ætti að
stofna stjórnmálaflokk. Til þess að
hann geti starfað af fullum krafti þarf
hann að fá lögleidda heimild til að
ráða starfsfólk úr röðum fullvinnandi
fólks til að taka sæti á þingi með full-
um kosningarétti fyrir flokkinn . Full-
trúaráð flokksins hefði heimild til að
víkja þeim frá störfum og ráða nýja,
ef þeir störfuðu ekki í anda umbjóð-
enda sinna.
Konur eru oftar en ekki misskiptar
með laun, samanborið við karlmenn.
Þær hafa um langa fortíð haft það
hlutskipti að hjúkra og hlúa að öðrum,
svo og að halda við stofninum, á með-
an karlarnir hafa barist hver við ann-
an um konurnar og aflað fjölskyldum
sínum fæðu, í mörgum tilfellum með
drápum og ránum. Því hafa þeir í
gegnum tíðina fengið meiri líkams-
krafta og orðið harðskeyttari í við-
skiptum en konur. Þess vegna eru oft-
ast boðin í þá hærri laun. Mér dettur í
hug að margar konur mundu skipa
sér í þennan nýja flokk, því hann mun
gangast fyrir, auk jafnra launa og
karlmenn, að þær fengju sérstakar
heiðursbætur til að jafna sakir sínar
við karlmenn vegna fortíðarinnar.
Yngsta fólkið þarf að fá sína full-
trúa á Alþingi.Til þess þarf það að fá
kosningarétt. Foreldrar eða aðrir lög-
ráðendur færu með atkvæði barna
sinna þangað til þau fá skilning og
vilja til að kjósa sjálf, þá fengju þau
strax að kjósa. Auðvitað eru börnin
hvert fyrir sig sjálfstæðir einstakling-
ar sem eiga að fá að velja sér framtíð
að eigin þörfum með aðstoð sinna leið-
toga og hafa áhrif á kjör sín með hjálp
sinna umbjóðenda. Það er sanngjörn
krafa foreldra að hafa aukin áhrif á
landsmálin, á meðan þeir eru með
börn á framfæri.Við verðum að hafa
það að leiðarljósi að landið er eign
allrar þjóðarinnar og laun aldraðra og
öryrkja er arður af því og á að miðast
við þjóðartekjur. Helst að miðast við
meðallaun fullvinnandi manna.
Að lokum vísa ég til draga að
stefnuskrá fyrir hugsanlegan nýjan
flokk, en hún var birt í bréfi til blaðs-
ins fyrir nokkru.
En nú er komin hreyfing hjá for-
ustumönnum eldri borgara og ör-
yrkja um að hasla sér völl í stjórnmál-
unum og bjóða fram fólk til alþingis.
Óska eg þeim góðs gengis, og vona að
þeir hafi þessar hugrenningar til hlið-
sjónar.
KRISTLEIFUR ÞORSTEINSSON
frá Húsafelli.
Nýtt afl í stjórnmálin
Frá Kristleifi Þorsteinssyni: