Morgunblaðið - 18.01.2002, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA fannst hálfömurlegtað sjá myndina af útitaflinu við
Lækjargötu í Morgunblaðinu í gær.
Vatn stóð á taflinu vegna stíflaðs nið-
urfalls og það var nú eiginlega of-
rausn að segja að það líktist tjörn;
drullupollur í hjarta borgarinnar fer
nær því að lýsa raunverulegu ástandi.
Víkverja er spurn: Á Reykjavíkur-
borg ekki að sjá um að þessu mann-
virki sé sýndur tilhlýðilegur sómi? Á
sínum tíma urðu harðar deilur um
gerð útitaflsins, bæði kostnaðinn við
það – en það þótti mjög dýrt – og um
þann verknað að leggja grasblettinn
framan við Bernhöftstorfuna undir
það. Fylgjendur taflsins (þ.á m. for-
verar flokkanna, sem mynda núver-
andi borgarstjórnarmeirihluta)
sögðu að taflið yrði prýði miðborg-
arinnar, enda væri til þess vandað.
Þarna mætti halda útiskákmót á góð-
viðrisdögum og svo gæti almenning-
ur teflt, bæði á stóra taflborðinu og á
litlu borðunum í kring.
x x x
NÚ ER svo komið að útitafliðbreytist öðru hvoru í drullupoll,
þar sem ýmislegt misaðlaðandi drasl
flýtur, litlu taflborðin eru útkrotuð og
búið að brjóta plötuna af einu þeirra
og „taflmennirnir eru sjaldan hafðir
uppi við núorðið heldur geymdir í
geymslu á vegum Kjarvalsstaða“, að
því er segir í frétt blaðsins í gær. Ein
ástæðan fyrir því að taflmennirnir
hafa lítið verið notaðir mun reyndar
vera sú að þeir þykja bæði þungir og
of fínir til að leyfa almenningi að tefla
með þá. Rætt hefur verið um að fá
aðra léttari og ódýrari til hversdags-
brúks, en ekkert hefur orðið úr því.
Þetta finnst Víkverja í meira lagi
hörmulegt ástand og langt frá þeim
göfugu áformum, sem lagt var upp
með og áttu að sæma mikilli skák-
þjóð. Kannski er bara bezt að færa
blettinn við Bernhöftstorfuna í fyrra
horf og moka og tyrfa yfir taflið, ef
borgin getur ekki séð sóma sinn í að
halda því við. Forseti Skáksam-
bandsins situr í borgarstjórn – varla
finnst honum að þetta eigi að við-
gangast?
x x x
ÞAÐ ER reyndar víðar, sem fariðer að falla á framkvæmdir sem
áttu að fegra miðbæinn. Ingólfstorg
er t.d. farið að láta á sjá eftir nokk-
urra ára tilveru, enda finnst Víkverja
því ekki hafa verið sinnt sem skyldi
að halda við t.d. bekkjum og hand-
riðum, sem upphaflega voru skínandi
fín og stíflökkuð en eru nú bara grá
og flögnuð. Það þarf einfaldlega að
nostra við hlutina og tryggja þeim
gott viðhald til að viðhalda fallegu yf-
irbragði – ekki sízt í miðborginni, þar
sem kófdrukknir nátthrafnar skeyta
stundum skapi sínu á eigum almenn-
ings.
x x x
VISSULEGA gerist þó margtgott í miðbænum. Svo Víkverji
endi nú á jákvæðu nótunum vill hann
t.d. benda fólki á að fá sér göngutúr
um Grjótaþorpið og skoða hvílík um-
skipti hafa orðið þar á nokkrum ár-
um. Fyrir u.þ.b. 20 árum var þorpið
hálfgert „slömm“ og húsin máttu
flest muna fífil sinn fegri. Nú hafa ný-
ir eigendur gert þau nánast öll upp og
borgin hefur lagt sitt á móti með því
að helluleggja götur og stíga.
Skemmst er frá því að segja að Vík-
verja finnst Grjótaþorpið nú orðið
augnayndi og borgarprýði.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 framan á hálsi, 8 logar,
9 brúkar, 10 eyktamark,
11 verða óljósari, 13
mátturinn, 15 gljálausa,
18 rok, 21 útlim, 22
dökkt, 23 gufa, 24 ferða-
dóts.
LÓÐRÉTT:
2 andstaða, 3 ílát, 4
þekkja, 5 smá, 6 loðskinn,
7 andvari, 12 veiðarfæri,
14 lengdareining, 15 tala,
16 fugl, 17 hindra, 18
karlfugl, 19 snákur, 20
mannvíg.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 eyrir, 4 eldur, 7 gæfur, 8 mátum, 9 und, 11
ansa, 13 maur, 14 ginna, 15 megn, 17 nagg, 20 gat, 22
terta, 23 játar, 24 reisa, 25 norpi.
Lóðrétt: 1 eygja, 2 rófan, 3 rýru, 4 eymd, 5 dotta, 6 rím-
ur, 10 nenna, 12 agn, 13 man, 15 mítur, 16 gerpi, 18 aft-
ur, 19 gerði, 20 gata, 21 tjón.
K r o s s g á t a
Jóga fyrir
eldri borgara
SIGRÚN spurði í Velvak-
anda 15. janúar sl. hvar
væri að finna jóga fyrir eldri
borgara hér í Reykjavíkur-
borg. Nú er nýhafið nám-
skeið fyrir eldri borgara hjá
Guðjóni Bergmann í Ár-
múla 38.
Námskeiðið er ekki fullt
þannig að Sigrún er vel-
komin sem og aðrir áhuga-
samir. Nánari upplýsingar
fást í síma 690-1818 eða á
www.gbergmann.is.
Rauðará fær fimm
stjörnur
ÞAÐ er góð tilfinning að
koma heim að kvöldi eftir
vel heppnað kvöld, hafa
borðað góðan mat, notið frá-
bærrar þjónustu og finna að
allt er gert til að kvöldið
verði sem fullkomnast.
Þetta fengum við þrenn
hjón að reyna þegar við fór-
um út að borða á Rauðará,
notalegu veitingahúsi við
Rauðarárstíg. Samverkandi
þættir höfðu áhrif á að
kvöldið varð gríðarlega vel
heppnað og er það ekki síst
því að þakka hve fullkomin
þjónustan var. Staðurinn er
hlýlegur og um leið og við
komum þangað vorum við
umvafin yndislegu starfs-
fólki sem vildi allt fyrir okk-
ur gera. Ég nefndi það við
kokkinn, eftir að hafa borð-
að nánast yfir mig af ljúf-
fengum mat, að ég myndi
hringja í Velvakanda því allt
of oft er kvartað yfir þjón-
ustu. Sjaldnar heyrast já-
kvæðu raddirnar. En ég
mæli fyrir munn okkar sem
vorum saman þetta kvöld að
þessi staður bregst ekki
þegar maður vill gera sér
dagamun með vinum. Við
gefum því Rauðará fimm
stjörnur. Innilegar þakkir
fyrir okkur.
Tapað/fundið
Bíllyklar töpuðust
BÍLLYKLAR töpuðust í
miðbæ Reykjavíkur föstu-
daginn 4. janúar sl. Lykl-
arnir hanga á svartri fjar-
stýringu og á kippunni eru
samtals þrír lyklar. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband við
Jóhann í síma 864-4484.
Fundarlaun.
Gullarmband tap-
aðist á Akureyri
GULLARMBAND með
þrem hengjum tapaðist á
Akureyri í október sl. Gæti
hafa tapast á Pollinum eða
þar í nágrenninu. Armband-
ið hefur mikið tilfinninga-
legt gildi fyrir eigandann.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 690-8792.
Kvenhringur
í óskilum
KVENHRINGUR fannst í
miðbæ Reykjavíkur í des-
ember. Upplýsingar gefur
Erna í síma 557-1854 eftir
kl. 18.
Gullarmband tapaðist
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ
11. janúar sl. tapaðist gull-
armband í miðbæ Reykja-
víkur. Ef einhver hefur
fundið það er sá hinn sami
vinsamlegast beðinn um að
hafa samband í síma 862-
6408.
Dýrahald
Villimey
er týnd
VILLIMEY er hvít og grá
læða, með bleika ól, tvær
bjöllur og merkimiða í hólk
á ólinni. Hún er eyrnamerkt
og var að flytja í Hlíðarnar
en þaðan hvarf hún. Hún er
því ókunnug staðháttum og
gæti leynst hvar sem er.
Hennar er sárt saknað og
allir sem geta veitt upplýs-
ingar eru beðnir um að hafa
samband í síma: 698-5442,
562-9996, 567-2878 eða 587-
2868. Fundarlaun í boði.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÉG sá í sjónvarpinu viðtal
við hæstvirtan fjár-
málaráðherra varðandi
verðbólgudrauginn, sem
núna er að rumska. Ég
heyrði ekki betur en að
hann kenndi hækkunum á
matvöru og þess háttar um
vaxandi verðbólgu, og þar
þyrfti að taka til hendinni.
„Ríkið ætti þar enga sök
á.“ Inn um bréfalúguna
hjá mér kom núna í byrjun
þessa árs gluggapóstur
með rukkun um bifreiða-
gjald fyrir tímabilið 1. jan
– 30. júní 2002 að upphæð
10.952 kr. Í ljósi orða fjár-
málaráðherra fletti ég upp
bifreiðagjaldinu fyrir 1.
júlí – 31. des 2001.
Sá seðill hljóðaði uppá
9.960kr. Þarna er um að
ræða um 10% hækkun frá
síðustu rukkun. Þegar ég
spurði fjármálaráðuneytið
um hverju þetta sætti, var
svarið að þetta hefði verið
ákveðið í svokölluðum
bandormi og þar með væri
þetta allt klappað og klárt.
Ég spyr hvort ekki sé
tímabært að hæstvirt rík-
isstjórn fari nú að taka til í
eigin ranni bæði hvað
álögur og þjónustugjöld
varðar, svo og það sem
þeim ber að standa skil á
til þegnanna lögum sam-
kvæmt.
Helgi K. Hjálmsson
kt. 240829-2749
Er „ríkið“ eins saklaust af verðbólgunni
og það vill láta í veðri vaka?
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Mána-
foss, Olga og Björn RE
koma í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 leik-
fimi og vinnustofa, kl.
12.45 dans, kl. 13 bók-
band, kl. 14 bingó. Jóga-
námskeið hefst þriðju-
daginn 22. janúar og
verður á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 17. Um
er að ræða átta tíma, lág-
marksfjöldi er 10 manns.
Skráning afgreiðslu í s.
562-2571. Þorrablót
verður haldið föstudag-
inn 1. febrúar, húsið opn-
að kl. 18 með fordrykk,
þorrahlaðborð, borðhald
hefst kl. 18.30 gestur
kvöldsins Ingibjörg Sól-
rún borgarstjóri. Flosi
Ólafsson flytur gam-
anmál. Karlakvartett
syngur, Hjördís Geirs
leikur fyrir dansi, að-
gangsmiði gildir sem
happdrætti. Skráning í
Aflagranda, s. 562-2571,
fyrir miðvikudaginn 30.
janúar. Allir velkomnir.
Árskógar 4. Kl. 13–16.30
opin smíðastofan. Allar
upplýsingar í síma 535-
2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–12 bókband, kl.
9–16 handavinna, kl. 10–
17 fótaaðgerð, kl. 13
glerlist, kl. 13.30 fé-
lagsvist. Þorrablót verð-
ur föstudaginn 1. febr-
úar. Þorrahlaðborð hefst
kl. 17, salurinn opnaður
kl. 16.30. Ómar Ragn-
arsson skemmtir við
undirleik Hauks Heiðars
Ingólfssonar, Ágústa
Sigrún Ágústsdóttir
syngur við undirleik
Sváfnis Sigurðssonar,
Ragnar Leví og félagar
leika fyrir dansi. Skrán-
ing í s. 568-5052 fyrir
föstudaginn 1. febrúar.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og fönd-
ur.
Kóræfingar hjá Vorboð-
um, kór eldri borgara í
Mosfellsbæ á Hlaðhömr-
um fimmtudaga kl. 17–
19. Jóga á föstudögum
kl. 11.
Púttkennsla í íþrótta-
húsinu kl. 11 á sunnu-
dögum. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586-8014 kl.
13–16. Uppl. um fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og fót-
anudd, s. 566-8060 kl. 8–
16.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum, boðið
verður upp á sparidaga á
Hótel Örk dagana 14.–
19. april. Áhugasamir
hafi samband við ferða-
nefnd sem fyrst.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–12
aðstoð við böðun, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan
opin, kl. 9 opin handa-
vinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Bingó spilað í Gullsmára
13, í dag kl. 14.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 10. 30 guðþjónusta,
kl. 10–12 verslunin opin,
kl. 13. „Opið hús“, spilað
á spil.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Föst. kl. 9
snyrtinámskeið kl. 11
dans. Nokkur pláss laus
í Postulínsmálun og
Trésmíði. Skráning á
þorrablótið sem fyrst.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Myndlist kl. 13, bridge
kl. 13.30. Sæludagar á
Örkinni 3.–8. mars,
þorrablót félagsins
verður í Hraunseli laug-
ardaginn 26. jan. kl. 19,
skráning í Hraunseli í
síma 555 0142. Sækið
miðana mánudaginn 21.
jan. kl. 13–16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi – blöðin og
matur í hádeginu.
Sunnudagur: Félagsvist
kl. 13.30. Verðlaunaaf-
hending frá keppninni
fyrir jól. Dansleikur kl.
20. Caprí-tríó leikur fyr-
ir dansi. Brids fyrir
byrjendur hefst í febr-
úar. Stjórn Ólafur Lár-
usson. Silfurlínan er op-
in á mánu- og
miðvikudögum kl. 10–
12. Skrifstofan er flutt
að Faxafeni 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Uppl.
á skrifstofu FEB. kl.
10–16, s. 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
myndlist og rósamálun á
tré, kl. 9–13 hárgreiðsla,
kl. 9.30 gönguhópur, kl.
14. brids. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Félagsstarfið, Furu-
gerði. Kl. 9 aðstoð við
böðun, smíðar og út-
skurður, kl. 14 messa,
prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson, Furugerð-
iskórinn syngur undir
stjórn Ingunnar Guð-
mundsdóttur. Kaffiveit-
ingar eftir messu.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, leikfimi og postu-
lín, kl. 12.30 postulín.
Fótsnyrting og hár-
snyrting.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 boccia,
súpa og salatbar í há-
deginu í veitingabúð, frá
hádegi spilasalur opinn,
myndlistarsýning Bryn-
dísar Björnsdóttur
stendur yfir. Allir vel-
komnir. Fimmtudaginn
24. janúar kl. 13.15 verð-
ur félagsvist í samstarfi
við börn úr Seljaskóla,
stjórnandi Eiríkur Sig-
fússon, vegleg verðlaun.
Allir velkomnir.
Upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9. 15 rammavefn-
aður, kl. 9.30 málm- og
silfursmíði, kl. 13 bók-
band. Uppl. í síma 554-
3400. Þorrablót verður í
Gjábakka 26. janúar
skráning í s. 554-3400.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 10 glerlist. Bingó
kl. 14.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 9 handavinna,
bútasaumur, kl. 11 spurt
og spjallað. Klukkan 14
er spilað bingó. Þorra-
blótið verður föstudag-
inn 1. febrúar.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 10 boccia.
Myndlistarkennsla hefst
föstudaginn 1. febrúar
leiðbeinandi Hafdís
Benediktsdóttir. Uppl.
og skráning hjá Birnu og
ritara, s. 568-6960.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 13.30 sungið
við flygilinn, kl. 14.30
kaffi og dansað í aðalsal.
Þorrablót verður fimm-
tud. 7. febrúar. Húsið
opnað kl. 17. Veislu-
stjóri: Gunnar Þorláks-
son. Ragnar Páll Ein-
arsson verður við
hljómborðið. For-
drykkur, þorrahlaðborð.
Magadansmeyjar koma í
heimsókn kl. 19.
Skemmtiatriði, KKK
syngja, fjöldasöngur og
fleira. Hljómsveit Hjör-
dísar Geirs leikur fyrir
dansi. Aðgangsmiði gild-
ir sem happdrætti. Upp-
lýsingar og skráning í
síma 562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30 bók-
band og morgunstund,
kl. 10 leikfimi og fótaað-
gerðir, kl. 12.30 leir-
mótun, kl. 13.30 bingó.
Háteigskirkja – aldr-
aðir. Söngur með Jónu,
kl. 13.30 vöfflur með
kaffinu.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13,
kl. 10 á laugardögum.
Borgfirðingafélagið í
Reykjavík, félagsvist
laugardaginn 19. janúar
kl. 14 á Suðurlandsbraut
30 í sal Trésmiðafélags-
ins, Íslandsbankahúsinu.
Allir velkomnir.
ITC-samtökin á Íslandi.
Námstefna ITC-
samtakana verður haldin
á Grand Hóteli laugard
19. janúar kl. 11–16.
Flutt verða erindi um:
verkkvíða og frestunar-
áráttu, óhefðbundnar
lækningar, frammi-
stöðumat og flug í flug-
væng. Allir velkomnir.
Í dag er föstudagur, 18. janúar, 18.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Faðir, gjör mig nú dýrlegan hjá þér
með þeirri dýrð, sem ég hafði hjá
þér, áður en heimur varð til.
(Jóh. 17, 5.)