Morgunblaðið - 18.01.2002, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 51
DAGBÓK
Útsala
50% afsláttur
Skólavörðustígur 8
Sími: 552 4499
tsalan
er hafin
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, 19. janúar,
verður Sólbjört Aðalsteins-
dóttir sextug. Í tilefni af af-
mælinu tekur hún á móti
gestum í dag, föstudaginn
18. janúar, frá kl. 20 í Lundi,
Lionssal, Auðbrekku 25–27,
Kópavogi.
70 ÁRA afmæli. Sjötug-ur er í dag, föstudag-
inn 18. janúar, Bergmann
Gunnarsson. Hann er bú-
settur í Noregi.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hugmyndaríkur, glað-
lyndur og sjálfstæður og
heldur enn í barnið í sjálfum
þér. Vertu viðbúinn miklum
og jákvæðum breytingum
í lífi þínu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gamlir vinir skjóta upp koll-
inum að nýju. Gleymdu ekki
að gamlir vinir hafa mikið
gildi vegna minninganna
sem þið eigið saman.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu það ekki koma þér á
óvart ef þú færð atvinnutil-
boð sem þú hefur þegar
hafnað. Aðstæður geta hafa
breyst þannig að starfið
henti þér betur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tafir á ferðaáætlunum fara í
taugarnar á þér. Huggaðu
þig við það að tafirnar eru
tímabundnar og að þú munt
brátt komast aftur á rétt ról.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sameign kallar enn einu
sinni á samningaviðræður
við maka eða vini. Eignir og
peningar eru viðkvæmustu
umræðuefni fólks.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gætir rekist á gamlan
maka eða elskhuga. Leggðu
þig fram við að líta vel út
þannig að þér líði betur.
Hamingjan er besta hefnd-
in.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Tafir og truflanir í vinnunni
hægja á þér. Það liggur bet-
ur fyrir þér að ljúka eldri
verkum en að byrja á ein-
hverju nýju.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gamalt ástarævintýri kem-
ur upp í huga þinn í draum-
um, minningum eða við end-
urfundi. Það er sama
hvernig aðstæður eru,
fyrsta ástin getur alltaf
fengið hjartað til að slá
hraðar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fjölskyldusamkomur og
umræður um gömlu góðu
dagana eru á döfinni. Fólk
kemur saman til að halda í
mikilvægar fjölskylduhefðir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að taka á vanda-
málum sem tengjast bílnum
þínum. Tafir í umferðinni
gætu komið sér illa fyrir þig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir fengið tækifæri til
að snúa til fyrri starfa.
Gerðu ráð fyrir að hitta
gamla vinnufélaga.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Minningar úr fortíðinni
sækja á þig. Það er líklegt
að þú hittir gamlan elshuga
eða aðra sem þú hefur ekki
hitt lengi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér gæti brugðið við að
komast að leyndarmáli úr
fortíðinni. Þú þarft ekkert
að óttast því þú nýtur
verndar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÞRJÚ grönd unnust á
flestum borðum í eftir-
farandi spili úr níundu
umferð Reykjavíkur-
mótsins:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁD5
♥ G1092
♦ 108
♣K1054
Vestur Austur
♠ G94 ♠ 1076
♥ K3 ♥ D865
♦ DG7 ♦ 9643
♣98632 ♣ÁD
Suður
♠ K832
♥ Á74
♦ ÁK52
♣G7
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 spaðar
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Víðast hvar spilaði
vestur út í lengsta lit, eða
laufi, en þá á sagnhafi til-
tölulega létt verk fyrir
höndum. Hann getur frí-
að tvo slagi á lauf og þar
eð spaðinn fellur 3-3 þarf
ekki að leita lengra eftir
níunda slagnum.
En nokkrir snillingar
hittu á að betra útspil –
tíguldrottningu. Sagnhafi
þarf nú að vanda sig
verulega til að ná í níu
slagi. Á einu borði þróað-
ist spilið þannig: Suður
gaf fyrsta slaginn, tók
næst tígulgosann með ás,
fór inn í borð á spaða-
drottningu og lét hjarta-
gosann rúlla yfir á kóng
vesturs. Enn kom vestur
með tígul – sjöuna – og
suður tók slaginn. Hann
spilaði spaða á ásinn og
svínaði fyrir hjarta-
drottningu. Staðan var
nú þessi:
Norður
♠ 5
♥ 92
♦ –
♣K105
Vestur Austur
♠ G ♠ 10
♥ – ♥ D8
♦ – ♦ 9
♣98632 ♣ÁD
Suður
♠ K8
♥ Á
♦ 5
♣G7
Ef sagnhafi tekur nú
tvo slagi á spaða áður en
lengra er haldið, lendir
austur í miklum vanda.
Tígli má hann auðvitað
ekki henda eða lauf-
drottningu svo hjartaátt-
an er þvingað afkast. En
þá tekur sagnhafi á
hjartaásinn og sendir
austur inn á tígulníu. Síð-
asti slagurinn fæst þann-
ig á laufkóng.
Suður missti af þessari
leið – hann tók fyrst á
hjartaásinn en þá gat
austur hent laufdrottn-
ingu í fríspaðnn og lagt
upp í lokastöðunni.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
LJÓÐABROT
Norðurljós
Veit duftsins son nokkra dýrðlegri sýn
en drottnanna hásal í rafurloga?
Sjá grundu og vog undir gullhvelfdum boga!
Hver getur nú unað við spil og vín?
Sjálf moldin er hrein eins og mær við lín,
mókar í haustsins visnu rósum.
Hvert sandkorn í loftsins litum skín,
og lækirnir kyssast í silfurósum.
Við útheimsins skaut er allt eldur og skraut
af iðandi norðurljósum.
Frá sjöunda himni að ránar rönd
stíga röðlarnir dans fyrir opnum tjöldum,
en ljóshafsins öldur, með fjúkandi földum
falla og ólga við skuggaströnd.
Það er eins og leikið sé huldri hönd
hringspil með glitrandi sprotum og baugum.
Nú mænir allt dauðlegt á lífsins lönd
frá lokuðum brautum, frá myrkum haugum,
og hrímklettar stara við hljóðan mar
til himins, með kristalsaugum.
– – –
Einar Benediktsson
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Hallgrímskirkju í
Saurbæ, 8. september sl., af
sr. Bjarna Karlssyni og sr.
Jónu Hrönn Bolladóttur.
Anna Elísabet Gestsdóttir
og Sigurður Grétar Sig-
urðsson, Heimili þeirra er á
Hvammstangabraut 21.
Ljósmyndastofan Nína
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Háteigskirkju 8.
september sl. af sr. Vigfúsi
Þór Árnasyni Fríða Kristín
Jóhannesdóttir og Guð-
mundur Stefán Björnsson.
1. d4 e6 2. c4 b6 3. a3 Bb7
4. Rc3 f5 5. d5 Rf6 6. g3
Ra6 7. Bg2 Rc5 8. Rh3 Bd6
9. O-O Be5 10. Dc2 O-O 11.
Hd1 De7 12. Bd2 c6 13.
dxe6 dxe6 14. Hab1 Had8
15. b4 Ra6 16. Rf4 Bd4 17.
e3 Be5 18. Rd3 Bb8 19. c5
e5 20. e4 Bc8 21. cxb6 axb6
22. Bg5 Kh8 23. exf5 Bxf5
24. Re4 Hc8 25. Hbc1 Da7
26. Bxf6 gxf6 27. De2 c5
28. b5 Bxe4 29. Bxe4 Rc7
Staðan kom upp í banda-
ríska meistaramótinu sem
lauk fyrir skömmu. Greg-
ory Kaidanov (2596) hafði
hvítt gegn Jesse Kraai
(2442). 30. Rxe5! Rxb5 30...
fxe5 gekk ekki upp vegna
31. Hd7 og hvítur vinnur.
31. Hd7 Hc7 32. Rf7+ og
svartur gafst upp enda yrði
hann mát eftir 32...Hxf7 33.
Hd8 + Kg7 34. Dg4+ Kh6
35. Dh4+ Kg7 36. Dxh7#.
Lokastaða efstu manna
varð þessi: 1.-2. Larry
Christiansen og Nick de
Firmian 6 ½ v. af 9 mögu-
legum. 3.-8. Boris Kreim-
an, Joel Benjamin, Alex
Yermolinsky, Alexander
Shabalov, Alex Stripunsky
og Alexander Ivanov 6 v.
Íslandsvinirnir Larry og
Nick háðu hraðskákeinvígi
um titilinn og bar sá fyrr-
nefndi sigur úr býtum og
varð þar með bandarískur
meistari 2002.
Skák
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Bridsfélag Hreyfils
Vilhjálmur Sigurðsson og Daníel
Sigurðsson sigruðu í aðaltvímenn-
ingi félagsins sem lauk sl. mánu-
dagskvöld. Hlutu þeir félagar 178
stig yfir meðalskor. Lokastaða efstu
para varð annars þessi:
Vilhjálmur - Daníel 178
Daníel Halldórss. - Ragnar Björnss. 137
Jón Sigtryggss. - Skafti Björnss. 135
Jón Ingþórss. - Eiður Gunnlaugss. 112
Rúnar Gunnarss. - Jens Jensson 109
Árni M. Björnss. - Hjálmar Pálsson 85
Nk. mánudagskvöld hefst Board-
A-Match sveitakeppni. Spilað er í
Hreyfilshúsinu, þriðju hæð og hefst
keppnin kl. 19.30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Íslandsmót í parasveitakeppni
verður haldið helgina 2.–3. febr-
úar. Þetta er fyrsta mótið sem spilað
verður í nýju húsnæði Bridssam-
bands Íslands, Síðumúla 37, 3. hæð.
Fyrirkomulagið verður með sama
sniði og undanfarin ár. Spilaðar eru 7
umferðir með 16 spila leikjum og
raðað í umferðir með Monrad-fyrir-
komulagi.
Spilamennska hefst kl. 11.00 báða
dagana. Skráning er hafin í s. 587
9360 eða www.bridge.is
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
Hinn 14. janúar voru spilaðir síð-
ustu tveir leikirnir í aðalsveitakeppni
félagsins. Sveit Unnars Atla Guð-
mundssonar bar sigur úr býtum eftir
harða keppni við sveit Huldu Hjálm-
arsdóttur. Í sveit Unnars spiluðu
auk Unnars Helgi Guðjón Sam-
úelsson, Björn Friðriksson og Elías
Ingimarsson.
Spiluð eru 16 spil á milli sveita.
Lokastaðan:
Sveit Unnars Atla Guðmundssonar 179
Sveit Huldu Hjálmarsdóttur 174
Sveit Sigurjóns Harðarsonar 159
Sveit Friðþjófs Einarssonar 145
Mánudaginn 21. janúar hefst fjög-
urra kvölda barómeter tvímennings-
mót hjá Bridsfélagi Hafnarfjarðar.
Spilamennska hefst kl. 19.30 og spil-
að er í Álfafelli í íþróttahúsinu við
Strandgötu. Allir spilarar velkomnir.
Evrópumót para í Belgíu
Evrópumótið í parasveitakeppni
og paratvímenningi verður haldið
í Oostende í Belgíu 16.–22. mars
nk.
Skráning og allar upplýsingar
um mótið á skrifstofu BSÍ. Skrán-
ingarfrestur er til 31. janúar.