Morgunblaðið - 18.01.2002, Side 54
Sjálfhæðni smekkleysu-
sérfræðingsins
Cecil B. Demented
Gamanmynd
Bandaríkin 2000. Bergvík VHS. Bönnuð
innan 16 ára. (87 mín.) Leikstjórn og
handrit John Waters. Aðalhlutverk Steph-
en Dorff, Melanie Griffith.
HÁÐFUGLINN hárbeitta John
Waters þarf vart að kynna fyrir ann-
áluðum bíófíklum. Í nær fjóra áratugi
hefur þessi svarti sauður Baltimore
búið til myndir sem
fólk annaðhvort
hatar eða elskar,
myndir sem eru al-
veg sér á báti í ger-
vallri kvikmynda-
sögunni. Smekk-
leysan er hans aðal
og er kannski ýkt-
asta dæmið „lykt-
armyndin“ Polyest-
er sem sýnd var árla níunda áratugar
í Borgarbíói í Kópavogi. Eða hét það
þá Bíóbær? Eða Bíó? Allavega var
Bíó lokaútgáfan því hún breyttist á
endanum í Ríó þegar bíóinu varð að
skemmtistað. (Augljós nafnabreyt-
ing í ljósi þess að neonskilti eru dýr.)
Ekta John Waters saga þar og dag-
sönn í þokkabót ef minnið svíkur
ekki. En Polyester þessi varð fræg að
endemum því lyktarmynd sú gekk út
á að fólk fékk spjald við innganginn
með númeruðum reitum sem það átti
síðan að krafsa í með nöglinni skv.
fyrirmælum myndarinnar og þefa vel
af. Þannig gat áhorfandinn fundið
viðeigandi fnyk er einhver seldi upp,
gerði stórt eða eitthvað þaðan af
ógeðfelldara fyrir þefskynið. Og bíó-
gestir ku hafa þefað af í gríð og erg
þrátt fyrir að vita hvað í vændum
væri (fá sem mest fyrir bíómiðann
auðvitað). En þetta er uppfinning
hins uppátækjasama Waters, sem
reyndar hefur dannast aðeins með
árunum.
Maðurinn er stríðnari en flestir
aðrir kvikmyndagerðarmenn núlif-
andi og í sinni síðustu mynd Cecil B.
Demented gerir hann stólpagrín að
Hollywood, bíóborginni sem hann
hefur aldrei getað þrifist í sjálfur.
Og tilraunin heppnast ágætlega.
Skotin eru föst. Ekki einasta á heila-
daufa fjöldaframleiðslu drauma-
smiðjunnar heldur, mesta furða, eru
einnig nokkuð býsna föst látin rata í
átt að þeim sem snobba niður á við í
þessum bransa, þeim sem fyrirlíta
allt sem kostar pening og kemur frá
Hollywood en tilbiðja hitt, sama
hversu ómerkilegt og andlaust það
er. Og þótt nokkrir smellnir fjúki um
Hollywood-heimskuna, eins og
ímynduð gerð Forrest Gump 2, þá
eru sterkustu punktarnir þessi aug-
ljósa sjálfhæðni Waters.
Leikaraliðið er skrautlegt eins og
vera ber í Waters-mynd. Sumir fara
á kostum á meðan aðrir kunna ekki
að leika. Dorff og Griffith er þunga-
vigtarliðið og skilar sínu en þó engu
nýju, allra síst Griffith sem segja má
að sé að endurtaka netta blöndu af
rullum sínum í Something Wild og
Born Yesterday. Er ekki kominn tími
á aðra lyktarmynd Waters? Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
FÓLK Í FRÉTTUM
54 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Lord of the Rings: The
Fellowship of the Rings/
Hringadróttinssaga
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Peter Jackson.
Aðalleikendur: Elijah Wood, Ian McKellen,
Christopher Lee, Cate Blanchett.
Þessi fyrsti hluti kvikmyndaútgáfu Ný-Sjálend-
ingsins Peters Jacksons á Hringadróttinssögu
JRR Tolkiens er hrein völundarsmíð. Aðrar æv-
intýra- og tæknibrellumyndir fölna í saman-
burði og hvergi er slegið af kröfunum við miðl-
un hins merka bókmenntaverks Tolkiens yfir í
kvikmyndaform. Smárabíó, Laugarásbíó, Stjörnubíó, Borgar-
bíó, Akureyri.
Moulin Rouge
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Baz
Luhrman. Aðalleikendur: Nicole Kidman, Ew-
an McGregor, Jim Broadbent.
Sannkölluð himnasending í skammdeginu.
Stórfengleg afþreying sem er allt í senn: Dans-
og söngvamynd, poppópera, gleðileikur,
harmleikur … nefndu það. Baz Luhrman er
einn athyglisverðasti kvikmyndagerðarmaður
samtímans sem sættir sig ekki við neinar
málamiðlanir og uppsker eins og hann sáir;
fullt hús stiga. Regnboginn.
Amélie
Frönsk 2001. Leikstjóri: Jean-Pierre Jeunet.
Aðalleikendur: Audrey Tautou, Mathieu Kass-
ovitz, Yolande Moreau, Dominique Pinon.
Yndislega hjartahlý og falleg kvikmynd um það
að þora að njóta lífsins. Stórkostlegur leikur,
frábær kvikmyndataka og sterk leikstjórn
Jeunet gera myndina að góðri og öðruvísi
skemmtun en við flest erum vön. Háskólabíó.
The Man Who Wasn’t There/
Maðurinn sem reykti of
mikið
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Joel Coen. Aðal-
leikendur: Billy Bob Thornton, Frances
McDormand, James Gandolfini, Tony Shaloub.
Billy Bob fer hamförum sem keðjureykjandi
undirtylla á rakarastofu sem hefnir sín á þeim
sem hafa hann undir að öllu jöfnu. Sér ekki
fyrir afleiðingarnar. Coenbræður í fágaðri og
meinfyndinni, s/h film noir-sveiflu með af-
burðaleikhópi. Stjörnubíó.
Elling
Noregur 2001. Leikstjóri: Peter Næss. Aðal-
leikendur: Per Christan Ellefsen, Sven Nordin,
Pia Jacobsen.
Norsk mynd um tvo létt geðfatlaða náunga
sem fá íbúð saman og þurfa að læra að bjarga
sér. Bráðfyndin og skemmtileg mynd með fullri
virðingu fyrir aðalpersónunum. Háskólabíó.
Harry Potter og viskusteinn-
inn/Harry Potter and the
Sorcerer’s Stone
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Chris Columbus.
Aðalleikendur: Daniel Radcliffe, Rupert Grint,
Emma Watson, Robbie Coltrane, John Cleese.
Aðlögun hinnar lifandi sögu J.K. Rowling um
galdrastrákinn Harry Potter yfir í kvikmynda-
handrit tekst hér vel. Útkoman er ekki hnökra-
laus en bráðskemmtileg ævintýramynd engu
að síður. Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri, Há-
skólabíó.
K-PAX
Bandarísk. 2001. Undarlegur náungi lendir á
geðspítala, segist geimvera. Binst vinabönd-
um við lækninn sinn sem reynir allt til að fá
botn í málin. Slakar aðeins á undir lokin, en
athyglisverð, vel skrifuð og forkunnarvel leikin.
Sambíóin, Reykjavík, Akureyri. Háskólabíó.
Mávahlátur
Tilkomumikil kvikmynd Ágústs Guðmundsson-
ar byggð á samnefndri skáldsögu Kristínar
Marju Baldursdóttur. Þar skapar leikstjórinn
söguheim sem er lifandi og heillandi og hefur
náð sterkum tökum á kvikmyndalegum frá-
sagnarmáta. Frammistaða Margrétar Vil-
hjálmsdóttur og Uglu Egilsdóttur er frábær.
Háskólabíó, Sambíóin.
The Pledge/Skuldbindingin
Leikstjóri: Sean Penn. Aðalleikendur: Jack
Nicholson, Robin Wright Penn, Aaron Eckhart.
Nicholson hefur ekki verið betri í háa herrans
tíð en sem lögga með þráhyggju. Áhorfandinn
finnur að undir niðri er kengur í hegðun þessa
góða manns, sem loks virðist búinn að finna
tilgang og hamingju í heldur aumu lífi, en
hættir öllu, heilsu og fjölskyldu, vegna skuld-
bindingar. Penn firrir okkur hinum ófrávíkjan-
lega, hamingjusamlega endi, hrindir okkur
þess í stað út á eyðimörk geðveiki og rústaðra
persóna. Athyglisverð, seiðmögnuð. Sambíóin.
Regína
Íslensk. 2001. Leikstjóri: María Sigurðardóttir.
Aðalleikendur: Sigurbjörg Alma Ingólfsdóttir,
Benedikt Clausen, Baltasar Kormákur, Hall-
dóra Geirharðsdóttir.
Fyrsta íslenska dans- og söngvamyndin. Bráð-
skemmtileg mynd fyrir alla aldurshópa, vel
skrifuð og uppfull af ferskum listrænum vídd-
um. Háskólabíó, Sambíóin.
Bandits /Rænt og ruplað
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Barry Levinson.
Aðalleikendur: Bruce Willis, Billy Bob Thorn-
ton, Cate Blanchett.
Gamansöm spennumynd um farsæla banka-
ræningja, þar sem ástamál koma jafnframt
sterklega við sögu. Myndin nær á köflum mikl-
um hæðum í gamansemi og fer Thornton þar
á kostum. Smárabíó, Laugarásbíó.
Ljós heimsins
Íslensk heimildarmynd. 2001. Höfundur:
Ragnar Halldórsson. Fjallar um stjörnu í nýju
hlutverki; frú Vigdísi Finnbogadóttur eftir
Bessastaði. Forvitnileg en vantar skarpari fók-
us. Regnboginn.
Ocean’s Eleven/ Ellefu menn
Oceans
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Steven Soder-
bergh. Aðalleikendur: George Clooney, Brad
Pitt, Matt Damon, Julia Roberts.
Soderbergh setur á svið meiriháttar útspekúl-
erað rán í spilavítum LasVegas. Myndin er
stórum stjörnum prýdd, og meira en laglega
gerð en nær aldrei að verða nógu spennandi.
Sambíóin.
Glass House/ Í glerhúsi
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: David Sackheim.
Aðalleikendur: Leelee Sobieski, Stellan Skars-
gård, Diane Lane.
Glerþunn flétta drepur niður væntingar um
hrollvekjandi spennu í þokkalega leikinni
mynd um skelfd systkini hjá vafasömum stjúp-
foreldrum Smárabíó, Stjörnubíó.
Atlantis: Týnda borgin/
Atlantis: The Lost Empire
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John McHarris.
Teiknimynd með enskri og íslenskri talsetn-
ingu. Af þessari teiknimynd um týndu borgina
Atlantis má sjá að Disney-risinn færist sífellt
nær hinni stöðluðu Hollywood-spennumynd í
teiknimyndagerð sinni. Myndin er víða bráð-
fyndin en heildin er óttaleg samsuða. Sambíóin, Háskólabíó.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Íslenska dans- og söngvamyndin Regína er „[b]ráðskemmtileg mynd fyrir
alla aldurshópa, vel skrifuð og uppfull af ferskum listrænum víddum“.
Lest lífsins
(Train de vie)
Drama/gaman
Belgía/Frakkland/Ísrael/Holland,
1998. Skífan VHS. (103 mín). Leikstjórn:
Radu Mihaileanu. Aðalhlutverk: Lionel
Abelanski, Rufus og Clement Harari.
ÍTALSKA myndin Lífið er fallegt,
sem vann hug og hjörtu kvikmynda-
unnenda 1997, vakti um leið áleitnar
siðferðilegar og sagnfræðilegar
spurningar, þ.e. hvort réttlætanlegt
væri að draga upp gamansama mynd
af veru gyðinga í útrýmingarbúðum
nasista. Þó svo myndin hafi fyrst og
fremst sett fram hugmyndir um leiðir
til að halda velli í lífinu, m.a. með ást
og húmor, þótti
mörgum full
brengluð mynd
dregin upp af þeim
veruleika útrým-
ingarbúðanna sem
fjölmargir eftirlif-
endur hafa lýst í
frásögnum. Lest
lífsins skipar sér
beint í þessa umræðu, en þar segir frá
íbúum gyðingaþorps í Frakklandi,
sem ákveða að reyna að flýja ofsóknir
nasista eftir að Þjóðverjar hernema
Frakkland í síðari heimsstyrjöldinni.
Þeir ákveða að nota handverkskunn-
áttu sína og útsjónarsemi og smíða
eftirlíkingu af flutningalestum þeim
er nasistar notuðu til að flytja gyðinga
og aðra óæskilega hópa í fangabúðir.
Hér er eiginlega á ferð enn óraun-
særri og kannski lakari útgáfa af fyrr-
nefndri Lífið er fallegt. Lokaatriðið
gefur þó heildinni nýja vídd, sem
styrkir hana til muna, þ.e. gefur í
skyn að frásögnin af flóttanum tákni
vonina um líf og drauminn um frelsi
sem verið hefur eina leið fórnarlamba
helfararinnar til að lifa af – að minnsta
kosti í einn dag í viðbót. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Draumur-
inn um líf
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.isÍ I - .s ara i .is5 hágæða bíósalir
Miðasala opnar kl. 15
Sýnd 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd í LÚXUS kl. 6 og 10. B.i. 12 ára
Glæný leysigeislasýning í sal-1
á undan myndinni
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
„Þvílík bíóveisla“ HVS Fbl
Ævintýrið lifnar viði i li i
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.I.16 ára.
1/2
Ungfrú Skandinavía
Íris Björk
Ljóskur
landsins
sameinist!
DV
Mbl
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
HK. DV
Dúndrandi gott
snakk með
dúndrandi góðri
gamanmynd
Gwyneth Paltrow Jack Black
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 4 og 6.
Frá höfundum
„There´s Something
About Mary“ og
„Me myself & Irene“
kemur Feitasta
gamanmynd
allra tíma