Morgunblaðið - 18.01.2002, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 326
1/2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 4. Vit 328
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Vit 320
Sýnd kl. 8 og 10.30. Vit 319
Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 4. ísl tal. Vit 325 Sýnd kl. 4. Enskt. tal. Vit 307
1/2
RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
Tvöfaldur
Óskarsverðlaunaha
fi í magnaðri mynd
sem þú verður að
sjá og
munt tala um.
KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES
HJ MBL ÓHT Rás 2 DV
„Leikararnir standa sig einstaklega
vel, ekki aðeins stórleikararnir
Spacey og hinn óviðjafnanlegi
Bridges, heldur er valið af slíkri
kostgæfni í hvert og einasta
aukahlutverk, að minnir á
Gaushreiðrið.“
SV MBL
Sýnd kl. 8 og 10.30. Vit 327Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Vit 333. B.i. 14 ára
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.20. B. i. 16. Vit 329
Rafmögnuð spennumynd
þar sem allt er lagt undir
Hann mun gera
allt til að verja
fjölskylduna.
Frá leikstjóra Sea of Love kemur fyrsta spennumynd ársins.
Með töffaranum, John Travolta (Swordfish, Face/Off), Teri
Polo (Meet the Parents), Vince Vaughn (The Cell, Swingers)
og Steve Buscemi (Armageddon, The Big Lebowski).
FRUMSÝNING
1/2
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
Allur heimurinn
mun þekkja
nafn hans
strik.is
ÓHT Rás 2
MBL1/2
RadíóX
Sýnd kl. 5 og 10.
Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12 á miðnætti. B.i 14 ára
Ó.H.T Rás2
Strik.is
4 evrópsk
kvikmyndaverðlaun
. M.a. Besta mynd
Evrópu, Besta
leikstjórn og Besta
kvikmyndataka.
Kvikmyndir.com
Ein persóna getur
breytt lífi þínu
að eilífu.
Frá leikstjóra
Delicatessen
SG. DV
HL:. MBL
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Tvöfaldur Óskarsverðlauna-
hafi í magnaðri mynd sem
þú verður að sjá og munt
tala um.
f l r r r l -
fi í ri
r r j t
t l .
„Leikararnir standa sig einstaklega vel, ekki aðeins stórleikararnir
Spacey og hinn óviðjafnanlegi Bridges, heldur er valið af slíkri kostgæfni í
hvert og einasta aukahlutverk, að minnir á Gaushreiðrið.“
SV MBL
KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES
HJ MBL
ÓHT Rás 2
DV
Sýnd kl. 6.
Dieu seul voit kl. 6.
Jeanne et le garçon
formidable kl. 10.
Hann mun gera
allt til að verja
fjölskylduna.
Frá leikstjóra Sea of Love kemur fyrsta spennumynd ársins.
Með töffaranum, John Travolta (Swordfish, Face/Off), Teri
Polo (Meet the Parents), Vince Vaughn (The Cell, Swingers)
og Steve Buscemi (Armageddon, The Big Lebowski).
FRUMSÝNING
ÞÞ Strik.is
ÓHT Rás 2
HL Mbl
SG DV
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 8.
HJ Mbl ÓHT RÚV
Edduverðlaun6
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Powersýning
kl. 12 á miðnætti.
i
l. i i.
HÚN er sannarlega ern í anda, tón-
listarmaðurinn Sigríður Níelsdóttir.
Þrátt fyrir að vera komin á áttræð-
isaldur er hún búin að gefa út níu
geisladiska með frumsömdu efni, og
einn þeirra er meira að segja tvöfald-
ur. Segist hún svo eiga efni í annað
eins!
Tónlistina leikur Sigríður á
raforgel en fyrsti diskurinn kom út
síðasta vor og svo hefur hver rekið
annan.
Hver diskur er þematengdur, t.d
heitir frumburðurinn Sveitasæla og
svo eru þarna verk eins og Hin dag-
legu störf, Stjörnubókin (sem inni-
heldur jólalög), Það er ungt og leikur
sér (tileinkað unglingum), Barna-
diskurinn og Úr bók sálmanna svo
eitthvað sé nefnt.
Ég átti fund með Sigríði á heimili
hennar í Þingholtunum, sem er um
leið miðstöð þessarar tónlistarfram-
leiðslu og sagði hún mér góðfúslega
upp og ofan af þessu ævintýri sínu.
Samið í 35 ár
„Ég ætla að hafa þá alla með tólf
lögum á,“ tilkynnir Sigríður mér er
við handfjötlum afurðirnar í samein-
ingu. „Þá er svo auðvelt að reikna út
hversu mörg lög eru komin,“ segir
hún og hlær.
Ég spyr Sigríði hvað hafi fengið
hana til að gera þetta þar sem þetta
er óneitanlega nokkuð óvenjulegt.
Hún upplýsir mig þá um það að í
fjölmörg ár hafi hún búið í Brasilíu.
Þar hafi kunningjakona hennar, sem
er mikil söngkona, haft mikinn áhuga
á að gefa út diska með eigin söng og
hún sé nú búin að gefa þá út tvo.
„Einhvern tíma lánaði ég henni spólu
með lögunum mínum og hún varð
mjög hrifin af. Síðan skrifaði hún
mér bréf og bað mig um leyfi til að fá
að nota eitthvað af lögunum mínu.
Hún vildi hafa þetta allt rétt þannig
að ég fór niður í Stef og þeir föxuðu
eitthvað til Brasilíu, leyfi og svona.
En þetta svona vakti upp löngun hjá
mér til að gefa sjálf út. Og í fyrra
kom fyrsti diskurinn út; Sveitasæla.“
Sigríður segist hafa leitað til
þeirra sem ódýrastir væru um fjölrit-
un á diskum, „af nauðsynjum“, eins
og hún orðar það brosandi. Vinnu-
ferlið er á þá leið að Sigríður spilar á
hljómborðið sitt og tekur upp á
snældur. Myndbandavinnslan, afrit-
unarfyrirtækið sem hún skiptir við,
færir efnið svo yfir á geisladiska. Þar
eru umslögin, sem eru teiknuð og
hönnuð af Sigríði sjálfri, einnig lit-
ljósrituð. Sigríður hefur samið tón-
list í um 35 ár. Alla tíð hefur hún tek-
ið upp lög eftir sig á snældur og gefið
fjölskyldu og vinum, hér heima og er-
lendis. Hver snælda hefur svo verið
sniðin að tilefninu; lög nefnd eftir
barnabörnum o.s.frv. Einskonar
framþróuð jólakort mætti segja.
Sigríður hafði ekki velt mikið fyrir
sér þeim möguleika að tónlist hennar
kynni að berast fleirum en fjölskyldu
hennar til eyrna.
„Það kemur eitthvað lag til mín og
þá sest ég niður og spila það. Ég
hugsa ekkert hvað eigi að gera við
það,“ segir hún og er nánast hissa á
svona spurningu.
En hún þakkar Ölmu Ragnars-
dóttur, fyrrum verslunarstjóra í Jap-
is, Laugavegi 13, það skref sem hún
tók með útgáfuna og einnig kann hún
Þórdísi í Myndbandavinnslunni
miklar þakkir.
„Það er eiginlega Ölmu að þakka
að ég fór að selja,“ segir hún. „Ég var
búinn að kaupa dálítið mikið af kass-
ettum hjá henni og hún var alltaf
mjög vingjarnleg við mig. Þá var ég
búin að gera fyrsta diskinn og ætlaði
bara að gefa ættingjum og svona. En
ég sýndi Ölmu einn disk og ætlaði að
gefa henni eitt eintak í gamni. Þá
spyr hún hvort ég vilji ekki bara
koma með fleiri diska; þau geri nefni-
lega svolítið af því að styðja fólk sem
er að gefa út sjálft, svona öðruvísi
diska. Þá fékk ég blóð á tönnina eins
og villidýrin og fór að gera meira og
meira (hlær).“
Fleiri plötur í bígerð
Sigríður er alltaf að og er þegar
farin að vinna í fleiri diskum. Páska-
diskur er t.a.m. framundan og einnig
plata sem hún ætlar að kalla Medita-
tion. „Þá nota ég ekki sjálfvirka bass-
ann heldur spila bara á píanóið“. Sig-
ríður leyfir mér að heyra og þetta
hljómar bara dável. Friðrik Karlsson
má fara að vara sig!
Sigríður fer með mér í gegnum
diskana, útskýrir hugmyndirnar á
bakvið hvern og einn og segir mér
hvernig hafi gengið að koma þeim út.
Í upphafi lætur hún pressa um 50
stk. af hverjum diski og þeir hreyfast
misvel, eins og gengur og gerist.
Sveitasælu er þó búið að pressa
þrisvar; alls 110 eintök.
„Við gamla fólkið höfum svo mik-
inn tíma,“ segir Sigríður, aðspurð um
hvað haldi henni að þessu. „Ég læt
mér aldrei leiðast. Ég þarf aldrei að
láta mér leiðast. Ég spila t.d. stund-
um 5–6 tíma á dag til að ná tökum á
einhverju laginu,“ segir Sigríður að
lokum og brosir breitt.
Geisladiskar Sigríðar fást í Japis,
Laugavegi 13 og 12 Tónum, Skóla-
vörðustíg.
„Ég læt mér aldrei leiðast“
Það er ekki lítið afrek að gefa út tíu diska á
innan við ári og verður nú að teljast stóraf-
rek þegar það gerist á ævikvöldinu. Arnar
Eggert Thoroddsen ræddi við Sigríði
Níelsdóttur, einn iðnasta hljóm-
listarmann landsins um þessar mundir.
Morgunblaðið/ÁsdísSigríður Níelsdóttir með diskana góðu.
Sigríður Níelsdóttir er afkastamikill tónlistarmaður
arnart@mbl.is
Tvær plötur Sigríðar.