Morgunblaðið - 19.01.2002, Page 27
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2002 27
H E I L B R I G Ð S K Y N S E M I
LÝSI&LIÐAMÍN
Allra liða
bót
án A og D vítamína
Hvað er
Liðamín?
Liðamín inniheldur
amínósýruna
glúkósamín, sem er
hráefni til viðgerðar á
brjóski, og kondróítín
sem er eitt algengasta
byggingarefnið í
liðbrjóski.
Hvers vegna
lýsi?
Lýsið í Lýsi & Liðamíni
inniheldur a.m.k. 30% af
omega-3 fitusýrum.
Rannsóknir sem gerðar
hafa verið á liðagigt
benda til þess að við
reglubundna neyslu á
omega-3 fitusýrum dragi
úr einkennum eins og
stirðleika á morgnana,
verkjum og þreytu.
www.lysi.is
Y
D
D
A
/
SÍ
A
Ég hef reykt í 12 ár en vil endilega fara að hætta.
Síðustu ár hef ég þrisvar reynt að hætta, en aldrei
tekist lengi. Ég hef aldrei notað neitt til að hjálpa
mér, bara hætt sjálf. Mig langar ekki á nein nám-
skeið eða svoleiðis, en kannski væri sniðugt að nota
einhver lyf því ég þekki nokkra sem hefur tekist að
hætta að reykja þannig. Hvað ætti ég að nota?
SVAR LYF gegn reykingum geta veriðmjög hjálpleg ef þau eru notuð rétt.
Þó er það hugur reykingamanns sem er aðal-
atriðið – ef þú vilt hætta NÚNA að reykja getur
það tekist. Það er ekki nóg að hætta kannski eða
bráðum.
Ástæðuna fyrir því að mörgum reynist mjög
erfitt að hætta reykingum má rekja til þeirra frá-
hvarfseinkenna sem nikótínið í tóbaki veldur, eins
og erfiðum skapsveiflum, svefntruflunum, svita-
köstum eða ákafri matarlyst. Þessi einkenni geta
verið afar erfið viðureignar, þannig að reyk-
ingafólki finnst líkami þess beinlínis „öskra“ á
meira nikótín, jafnvel mánuðum eftir að það hefur
hætt. Af þessum sökum er í dag talað um nikótín-
fíkn sem sjúkdóm og er reykingalyfjum ætlað að
hjálpa fólki við að vinna bug á honum.
Þegar þú ert örugglega búin að taka þá ákvörð-
un að hætta er ýmislegt til sem getur hjálpað. Lyf
eru einn möguleikinn en þau hafa hjálpað mörg-
um í baráttunni gegn tóbakinu. Tveir hópar lyfja
eru til gegn reykingum: Nikótínlyf og nikótínlaus
lyf.
Nikótínlyf verka þannig að þau sjá líkamanum
fyrir lágmarksmagni af nikótíni og koma þannig í
stað nikótínsins úr tóbaksreyknum. Fjöldi mis-
munandi gerða af nikótínlyfjum er fáanlegur, svo
sem tyggjó, plástrar, soglyf, tungurótartöflur og
nefúði. Valið stendur því um það sem hverjum og
einum þykir henta sér. Sumum hefur reynst vel
að nota fleira en eitt nikótínlyf í einu, t.d. tyggjó
og plástur saman, og minnka síðan skammtana
smám saman. Einn möguleiki er að hætta fyrst að
nota plásturinn og minnka síðan notkunina á
tyggjóinu. Aðalatriðið er að fara ekki of geyst í að
minnka við sig. Það eykur líkurnar á því að maður
springi.
Nikótínlyf fást í öllum apótekum. Þau innihalda
mismikið magn af nikótíni, en algengt er að hver
skammtur innihaldi annars vegar 2 mg og hins
vegar 4 mg nikótíns. Það fer alveg eftir því hversu
mikið þú hefur reykt og hversu hörð fráhvarfs-
einkennin verða, hvor skammturinn hentar þér
betur til að byrja með.
Hinn lyfjaflokkurinn, lyf sem ekki innihalda
nikótín, er nýr hér á landi. Aðeins eitt lyf er til enn
sem komið er og nefnist það Zyban. Zyban er á
töfluformi og er ein til tvær töflur teknar á dag í
nokkrar vikur. Verkun lyfsins byggist á því að
nikótínið í tóbakinu raskar ákveðnum boðefna-
skiptum í heilanum. Fráhvarfseinkenni nikótíns-
ins eiga því upptök sín í því að líkaminn er að
koma þessum boðefnaskiptum í upphaflegt horf,
en í stuttu máli „flýtir“ Zyban fyrir því ferli. Lyfið
á þannig að draga úr hinum erfiðu fráhvarfs-
einkennum með því að minnka eða slökkva löngun
líkamans í sígarettur og nikótín. Zyban fylgir
einnig gagnlegur fræðslubæklingur með ýmsum
ráðleggingum fyrir þá sem ætla sér að hætta að
reykja. Ef þú ert að velta þessari leið fyrir þér er
rétt að athuga að Zyban er lyfseðilsskylt og því
verður þú að fara til læknis til að nota það.
Aðalatriðið er þó að þú sért alveg ákveðin í að
hætta þegar þú drepur í síðustu sígarettunni. Lyf-
in geta ekki „hætt“ að reykja fyrir þig. Aðeins þú
sjálf. Á hinn bóginn geta þau hjálpað þér yfir erf-
iða hjalla. Gangi þér vel!
Hvaða lyf eru gagnlegust til
að hætta reykingum?
Eftir Guðrúnu Jónsdóttur
...............................................................
persona@persona.is
Höfundur er hjúkrunarfræðingur og formaður
Samtaka hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra
gegn tóbaki.
Lesendur Morg-
unblaðsins geta
komið spurningum
varðandi sálfræði-,
félagsleg og vinnu-
tengd málefni til
sérfræðinga á vegum persona.is.
Senda skal tölvupóst á persona-
@persona.is og verður svarið
jafnframt birt á persona.is.
EINFÖLD blóðprufa, tekin á
heilsugæslustöð eða læknastofu,
gæti orðið til að upplýsa fjölda fólks
um að það væri með sykursýki, sjúk-
dóm sem ella gæti verið óuppgötv-
aður hjá viðkomandi. Niðurstöður
rannsókna, sem nýlega voru birtar,
leiða þetta í ljós. Einnig að þrír auð-
greindir áhættuþættir geti auðveld-
að leitina að þeim sem æskilegt er að
gangist undir þetta próf. Þetta kem-
ur fram á heilsuvef BBC.
Sykursýki getur farið leynt árum
saman og valdið skemmdum á ýms-
um líffærum,
áður en ein-
kenna verður
vart. Diabetes
UK, sem er ein
helsta líknar-
stofnun Bret-
lands á sviði
sykursýki, hefur
gefið út að ein-
staklingar geti ver-
ið með sykursýki í 9–
12 ár áður en sjúkdóm-
urinn uppgötvast. Af þessu leiðir að
heilsufar margra, sem fá fullorðins-
sykursýki, er orðið bágborið þegar
sjúkdómurinn greinist. Í Bretlandi
er áætlað að tveir af hverjum þrem-
ur sykursjúklingum deyi af fylgi-
kvillum sem unnt hefði verið að með-
höndla með góðum árangri.
Getur fundið 75% tilfella
Það er því mikilvægt að greina
sjúkdóminn snemma. Þau blóðsyk-
urpróf sem algeng hafa verið krefj-
ast föstu í margar klukkustundir áð-
ur en blóðsýni er tekið. Vísindamenn
undir forystu dr. David Edelman,
við læknamiðstöð Duke-háskóla í
Norður-Karólínu, hafa prófað nýja
aðferð við greiningu sykursýki sem
kallast HgA1c. Þetta próf krefst
ekki undanfarandi föstu og er talið
geta fundið 75% sykursýkitilfella.
Niðurstöður rannsóknarinnar birt-
ust í Journal of General Internal
Medicine.
Vísindamennirnir prófuðu 1.253
einstaklinga sem aldrei höfðu
greinst með sykursýki. Niðurstaðan
var að 4,5% þeirra höfðu sjúkdóm-
inn og hafði hann ekki fundist þótt
viðkomandi nytu læknisþjónustu.
Vísindamennirnir sögðu að nýja að-
ferðin myndi finna allt að því jafn
mörg tilfelli sykursýki ef það yrði
einskorðað við sjúklinga sem hefðu
einn eftirtalinna áhættuþátta:
offitu
háþrýsting
fjölskyldusögu um sykursýki.
Einfaldara
sykursýkipróf
„LOFT um borð í flugvélum getur
verið hættulegt farþegum,“ er haft
eftir talsmanni Bandarísku vís-
indaakademíunnar (The National
Academy of Science) um leið og
hann kallaði eftir eftirlitsáætlun
sem kvæði á um strangari kröfur á
þessu sviði á alríkisvísu.
„Upplýsingar sem við höfum
undir höndum gefa til kynna að
umhverfisþættir, þar á meðal
mengað loft, geti verið ástæða fyr-
ir nokkrum af þeim fjölmörgu
kvörtunum sem berast frá flug-
liðum og farþegum um bráðan og
þrálátan heilsufarsvanda,“ er
ályktun rannsóknarnefndar
Bandarísku vísindaakademíunnar.
„Þetta er fyrsta stóra skýrslan um
þetta efni í meira en 15 ár,“ segir í
frétt um málið sem birtist á heilsu-
vef Los Angeles Times.
Taka þarf loftræstinguna
til athugunar
Þeir 13 nefndarmenn sem hafa
unnið skýrsluna nefna nokkur
áhyggjuefni. Þau eru þrýstingur í
farþegarými, ósón- og kolmónoxíð-
hlutfallið í loftinu og mögulegt
varnarleysi gagnvart plágueyði og
stybbu frá vélarolíu, hinum ýmsu
vökvum og frostlegi.
Farþegar og flugliðar anda að
sér blöndu af lofti sem kemur að
utan og berst í gegnum vélina og
síuðu lofti sem fer í hringrás um
farþegarýmið. Segir jafnframt í
fréttinni að svo virðist sem loft-
ræstingin auðveldi ekki dreifingu
vírusa og smits í farþegarými.
Í niðurstöðu skýrslunnar kemur
fram að þótt reykingar hafi verið
bannaðar um borð í flugvélum í
meira en áratug þurfi að taka loft-
ræstinguna í faþegarýminu til end-
urskoðunar.
Stöðlum ábótavant
Nefndarmenn lögðu einnig til að
alríkisstjórnin beitti sér fyrir að
gerð yrði viðamikil rannsókn á
gæðum þess lofts sem fólk andar
að sér í flugvélum og hefði hlutlaus
vísindanefnd umsjón með rann-
sókninni og veitti ráðgjöf.
„Stöðlum er ábótavant á mörg-
um sviðum,“ segir Eileen Abt sem
er ein af forsvarsmönnum rann-
sóknarinnar. „Svo tekin séu dæmi
þá eru kröfur FAA (Federal-
Aviation Administration) varðandi
loftþrýsting í farþegarými, sem
settar voru árið 1964, lítt ígrund-
aðar. Þau mál hafa aldrei verið
endurskoðuð.“
Í farþegarými getur loftið verið
of þunnt fyrir fólk sem er með
hjarta- eða lungnasjúkdóma og
fyrir smábörn.
Íhuga málið
Dr. Russell Rayman á sæti í
nefndinni og er framkvæmdastjóri
samtaka sem fjalla um heilsufars-
leg málefni í flugvélum. Hann segir
að skýrslan knýi á um að flugmála-
yfirvöld geri eitthvað í málinu. Hve
djúpt þau fari í rannsókn á því sé
ekki hægt að segja um. „Um þessar
mundir hafa þeir um nóg annað að
hugsa vegna hryðjuverkaárásanna
í september,“ segir hann. „Tíma-
setningin á birtingu skýrslunnar er
ef til vill ekki góð. Við höfðum þeg-
ar frestað birtingu hennar vegna
atburðanna.“
FAA brást af varfærni við nið-
urstöðum hinnar 246 síðna skýrslu.
„Við þurfum tíma til að íhuga nið-
urstöðurnar,“ sagði talsmaður
þeirra, Alison Duquette. „Fyrri at-
huganir hafa ekki sýnt fram á að
óhollt sé að anda að sér lofti í far-
þegarými flugvéla. Þeir sem
standa að þessari rannsókn segja
að þær athuganir hafi verið of fáar
og ekki nógu ítarlegar til að hægt
sé að draga af þeim ályktanir.“
Reuters
Óheil-
næmi lofts
í flug-
vélum