Morgunblaðið - 27.01.2002, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 2002 25
Það skiptir
ekki máli
Silhouette
er alltaf lausnin.
Ert þú með smá appelsínuhúð
eða kannski bara meira en smá?
Vissir þú að
Silhouette vinnur líka á undirhöku, styrkir
háls og stinnir slappan maga og
upphandleggi.
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Sumardýrð og Safari í Suður-Afríku
FÁIÐ NÁNARI FERÐALÝSINGU Á SKRIFST.
PÖNTUNARSÍMI:
56 20 400
Hápunktar náttúrufegurðar heimsins - mest spennandi nátt-
úruskoðun á auðugustu villidýralendum - S a f a r i kringum
DURBAN, eina litríkustu borg heims, 23. mars-1. apríl - 10 d.
Glæsileg gisting við pálmaskrýdda strönd. Ein mesta upplif-
un á ferðalögum á hálfvirði! Ísl. fararstjórn. Fá sæti.
Suður-Afríka er ekki aðeins eitt fegursta land heims, heldur
eitt það ódýrasta með hágæðastaðli - NÚ LÆKKAÐ VERÐ
vegna hagstæðra samninga, frá aðeins kr.159.900, - ef
staðfest er fyrir 7. feb. Missið ekki af tækifærinu! Eða:
Cape Town ein fegursta borg heims undir frægu Borðfjalli.
Þú verður sólarmegin í tilverunni í páskaferðum Heimsklúbbsins:
Dvöl á lúxushótelinu CAPE SUN og ferðir um eitt fegursta landssvæði
heimsins, Cape hérað, Vínlöndin, Góðrarvonarhöfða, eða „Blómaleið-
in“, ein fegursta akstursleið í heimi, 3 d. + Cape Town 5 d. gegn
aukagjaldi, 24.3. 10 d. Ísl. fararst. - Örfá sæti, sé staðfest fyrir 7. feb.
CAPE SUN HÓTEL
Yoga Studio – Halur og sprund ehf.,
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 864 1445.
Umboðsaðili fyrir Custom
Craftworks nuddbekki og
Oshadhi ilmkjarnaolíur o.fl.
Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni
hefst 5. febrúar - Þri og fim. kl. 20.00. 4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá, sem eru að
glíma við streitu, kvíða og fælni. Traust námskeið frá árinu 1994 - byggt á reynslu.
(Sjá einnig www.yogastudio.is).
Vilt þú verða jógakennari?
Fyrstu helgina í febrúar hefst ný jógakennaraþjálfun, en þessi þjálfun hefur fest sig í sessi í starfsemi
okkar og er nú haldin í tíunda sinn. Kennari er sem fyrr Ásmundur Gunnlaugsson.
Þjálfunin er alls 6 helgar auk mætingar í jógatíma: 1.-3. febrúar, 8.-10. mars, 26.-28. apríl, 24.-26.
maí, 30. ág. - 1. sept. og 18.-20. október. Kennt er föstud. kl. 20-22, laugard. og sunnud. kl. 9-15.
Ekki er krafist mikillar reynslu af jóga. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.yogastudio.is
Ásmundur
Drög að tillögu að matsáætlun - Kynning
Mat á umhverfisáhrifum rannsóknaborana á Vestursvæði við Kröflu í Skútustaðahreppi er
hafið. Landsvirkjun er framkvæmdaraðili og aðalráðgjafi er Verkfræðistofa Guðmundar og
Kristjáns hf. Drög að tillögu að matsáætlun eru nú til kynningar á heimasíðu Landsvirkjunar,
www.lv.is. Almenningi gefst kostur á að koma athugasemdum og ábendingum á framfæri við
Landsvirkjun á netfangið arnig@lv.is.
Opið hús verður í hótel Reynihlíð í Mývatnssveit fimmtudaginn 31. janúar nk. frá kl. 16:00
til 19:00. Fulltrúar Landsvirkjunar munu veita nánari upplýsingar og svara fyrirspurnum
gesta um fyrirhugaða framkvæmd. Stutt erindi verða flutt frá kl. 16:30.
Rannsóknaboranir við Kröflu
Listasafn Reykjavíkur – Hafn-
arhúsi Leiðsögn verður um sýn-
ingar Hafnarhússins kl. 16. Um er
að ræða sýningu Bernds Koberl-
ings, Errós og Guðmundar R. Lúð-
víkssonar, Beggja skauta byr, en
þetta er síðasti sýningardagur
hennar. Þá verður einnig hefð-
bundin táknmálsleiðsögn um sýn-
ingu Bernds Koberlings.
Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10 Kvik-
myndin Dauðastríðið (Agonía) verð-
ur sýnd kl. 15. Í myndinni er fjallað
um Georgíj Raspútín, rússneska
bóndann og farandprédikarann sem
komst til ótrúlega mikilla áhrifa hjá
rússnesku keisarafjölskyldunni og
hirðinni á árunum 1907–1916. Leik-
stjóri er Élem Klimov og tónlistin
er eftir Alfreð Schnitke. Með aðal-
hlutverk fara Alexei Petrenko,
Anatolíj Romanishin, Velta Line og
Alísa Freindlich. Íslenskur texti.
Aðgangur er ókeypis.
Selfosskirkja Jóhann I. Stef-
ánsson trompetleikari frá Selfossi
og Jörg Söndermann, organisti í
Hveragerðiskirkju, halda tónleika
kl. 17. Þeir munu flytja fjölbreytt
verk fyrir trompet og orgel allt frá
barokktímanum til okkar daga.
Meðal höfunda má nefna J.S. Bach,
Giovanni Martini, Giuseppe Torelli,
Öistein Sommerfeldt og tékkneska
tónskáldið Petr Eben en eftir hann
verður flutt viðamikið verk, OKNA
eða Gluggar þar sem hann lýsir
fjórum glergluggum eftir franska
listmálarann Marc Chagall.
Jóhann hefur í mörg ár kennt við
Tónlistarskóla Árnesinga og spilað
víða í sýslunni og Jörg hefur verið
organisti við Hveragerðiskirkju um
árabil.
Aðgangseyrir er 1.000 kr., 500 fyrir
ellilífeyrisþega en frítt fyrir nem-
endur tónlistarskólans.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Jörg E. Sondermann og Jóhann I. Stefánsson.
Lífið heldur
áfram, er önnur
ljóðabók Sig-
urbjörns Þorkels-
sonar. Ljóðin eru
samin á árunum
1999, 2000 og
2001.
Í kynningu segir
m.a.: „Lífið heldur
áfram, er bók um von. Óður til lífsins.
Lífsins sem heldur áfram, þrátt fyrir
tímamót og þótt áföngum sé náð.
Þrátt fyrir gleði og sigra, sorgir, torfær-
ur og brekkur og jafnvel þrátt fyrir
sjálfan dauðann.“
Auk ritstarfa hefur Sigurbjörn á und-
anförnum árum einnig gegnt störfum
framkvæmdastjóra Laugarneskirkju,
KFUM&K og Gídeonfélagsins á Ís-
landi.
Bókin er 125 bls. Heimir Ósk-
arsson sá um útlit og umbrot. Umsjón
með prentvinnslu hafði Offset ehf.
Sigurbjörn gefur bókina út sjálfur eins
og fyrri bækur sínar en þetta mun
vera hans áttunda bók.
Bækurnar verða gefnar á biðstofur
hverskonar eftir því sem yfirferð leyfir
og á meðan birgðir endast.
Ljóð