Morgunblaðið - 27.01.2002, Blaðsíða 38
FRÉTTIR
38 SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
á einum fegursta og veð-
ursælasta stað landsins í
landi Efri-Víkur rétt hjá
Kirkjubæjarklaustri í
Skaftárhreppi. Svæðið
heitir Álfabyggð og er í
hinum sérstæðu Land-
brotshólum.
Lóðirnar eru að stærð
4.000 til 10.000 fermetrar.
Um er að ræða 60 fermetra sumarbústaði fullbúna eða á öðru bygging-
arstigi. Möguleiki er að selja gistingu í umboðssölu í bústöðunum, frá
Ferðaþjónustunni Efri-Vík.
Efri-Vík er fjölskylduvænn staður. Þar er seld gisting, veitingar og veiði-
leyfi, einnig er 9 holu golfvöllur á staðnum, heitur pottur, sána, ljósa-
bekkur o.fl.
Skaftárhreppur vinnur að vistvænni umhverfisstefnu samkvæmt alþjóða-
staðli og var tilnefndur fyrir Íslands hönd til Evrópsku umhverfisverð-
launa ferðaþjónustunnar.
Upplýsingar hjá Ferðaþjónustunni Efri-Vík í síma 487 4694,
tölvupóstur efrivik@simnet.is
Sumarbústaðir og lóðir til sölu
Skrifstofan opin í dag frá kl. 12-14
MÁVAHLÍÐ - BÍLSKÚR Efri hæð í fjórbýli ásamt bílskúr. Tvær
samliggjandi stofur og tvö svefnherbergi. Góðar suðursvalir. Hús í
góðu ástandi. Áhv. 6,3 millj. Verð 14,5 millj. 1920
LAUGATEIGUR - BÍLSKÚR Mjög góð miðhæð í þríbýli ásamt bíl-
skúr. 2 svefnherbergi og 2 stofur. Suðursvalir. Parket og flísar.
Gott hús. Áhv. 6,8 millj. húsbréf. Verð 14,9 millj. Mjög góð stað-
setning. 1900
HLÍÐARVEGUR - KÓP. Gott parhús á tveimur hæðum með 4
svefnherbergjum og tveimur stofum. Góðar innréttingar. Parket og
flísar. Stærð 162,5 fm. Húsið stendur á hornlóð. Hús í góðu
ástandi. Ath. skipti á minni eign möguleg. 1793
LAMBASTEKKUR - BÍLSKÚR Fallegt einbýlishús á einni hæð
ásamt sérb. bílskúr. 3 svefnherb. Góðar stofur. Parket og viðar-
klædd gólf. Frábær staðsetning. Góður garður. Verð 17,9 millj.
1823
SALTHAMRAR - ÚTSÝNI Stórglæsilegt og vandað einbýlishús
ásamt tvöf. bílskúr og rými á jarðhæð. 5 svefnherbergi. Góðar
stofur með arni. Sólstofa. Massíft parket og marmari á gólfum.
Stórt eldhús með sérlega glæsilegri innréttingu og vönduðum
tækjum. Stærð ca 280 fm. Húsið er allt í mjög góðu ástandi, fal-
legur garður og útsýni út á sjóinn. Þetta er einstök eign. Allar nán-
ari uppl. á skrifstofu. 1908
Opið hús
Grettisgata 9, íb. 0202 + bílskýli
Falleg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð og
meðfylgjandi stæði í bílskýli í nýlegu húsi
í miðbænum. Falleg gólfefni og innrétt-
ingar. Bjarni og Ásdís taka á móti áhuga-
sömum frá kl. 13-16 í dag. V. 10,9 m.
Áhv. 5,9 m. 2122
Dynsalir 14, Kóp., íb. 0201
Nýleg falleg og fullbúin 110 fm íb. á 2.
hæð með sérinngangi og 25 fm bílskúr.
Glæsil. innréttingar. Sérþvottahús innan
íbúðar. Parket. Glæsil. baðherbergi með
sturtu og baðkari. Örstutt í barnaskóla,
íþróttaaðstöðu og aðra þjónustu. Guð-
mundur og Heiða taka á móti áhugasöm-
um frá kl. 14-17 í dag. V. 15,9 m. Áhv.
13,5 m. hagstæð lán. 6523
Fannafold 31
Fallegt 110 fm einbýli á einni hæð á góð-
um stað með fallegu útsýni. Stór gróinn
garður. Bílskúrsréttur fyrir stóran skúr.
Húsið er vel skipulagt og rúmast vel.
Möguleiki á 4 svefnherbergjum. Þorberg-
ur og Lára taka á móti áhugasömum frá
kl. 14-17 í dag. V. 16,8 m. Áhv. bygg-
sj./lífeyrissj ca 5,3 m.
Síðumúla 27, sími 588 4477,
fax 588 4479.
www.valholl.is Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Skúlagata 17
Sími 595 9000
Fax 595 9001
holl@holl.is
www.holl.is
Hafðu þá samband við okkur
hjá fasteignasölunni Hóli og
við munum eftir bestu getu
uppfylla þarfir ykkar og
væntingar. Þjónusta, þekking
og reynsla er það sem við
erum best þekktir fyrir á
markaðnum, láttu sjá þig sem
fyrst eða hringdu.
Páskakveðja, Reynir Björnsson, sölumaður
Þarft þú að selja fasteign?
NÁMSKEIÐIÐ „Skjalastjórnun 2;
skjöl í gæðaumhverfi“ verður haldið
miðvikudaginn 30. og fimmtudaginn
31. janúar eftir hádegi. Skipulag og
skjöl ehf. standa fyrir námskeiðinu
og kennari er Sigmar Þormar MA.
Farið verður í tengsl skjalastjórnun-
ar og gæðastjórnunar og hvernig
þessar tvær greinar geta saman
tryggt betri skjalameðferð á vinnu-
stað. Gæðastjórnun er nokkuð þekkt
grein hér á landi en skort hefur
þekkingu á skjalastjórnun.
Hádegisverður ásamt kaffi báða
dagana er innifalinn í námskeiðs-
gjaldi, sem er kr. 20.000. Sjá nánar
heimasíðuna www.skjalastjornun.is.
Námskeiðið er öllum opið en þó er
ætlast til að nemendur hafi grunn-
þekkingu á skjalastjórnun. Skráning
hjá Skipulagi og skjölum ehf., segir í
fréttatilkynningu.
Skjalastjórnun í
gæðaumhverfi
DANSPARIÐ Karen Björk Björg-
vinsdóttir og Adam Reeve kepptu
sl. miðvikudag og fimmtudag í
United Kingdom Open Dance
Championship eða bresku opnu
meistarakeppninni sem haldin er á
hverju ári í Bournemoth á Englandi
en þetta er fyrsta keppni þeirra á
þessu ári. Á miðvikudag kepptu
þau í standard dönsum og dönsuðu
að 24 para úrslitum og höfnuðu í
30. sæti en þess má geta að í sömu
keppni í fyrra voru þau í því 40. Á
fimmtudag kepptu þau í latin-
dönsum og dönsuðu einnig að 24
para úrslitum en þetta er í fyrsta
skiptið sem þau dansa latin í þess-
ari keppni. Alls tóku 175 bestu pör
heims þátt í þessari keppni en þetta
er önnur sterkasta opna alþjóðlega
keppni sem haldin er fyrir utan
Blackpool-keppnina. Ekkert dans-
par, nema Adam og Karen, sem
keppir í báðum greinum komst inn í
48 para úrslit og því er árangur
þeirra mjög góður, segir í frétta-
tilkynningu.
Karen og
Adam kepptu í
bresku opnu
meistara-
keppninni
SEX þingmenn úr öllum flokkum á
Alþingi hafa lagt fram þingsálykt-
unartillögu um mannréttindabrot
gegn samkynhneigðum karlmönn-
um í Egyptalandi. Fyrsti flutnings-
maður tillögunnar er Guðrún Ög-
mundsdóttir (S) en meðflutnings-
menn eru Ólafur Örn Haraldsson
(B), Kolbrún Halldórsdóttir (Vg),
Sverrir Hermannsson (F), Lúðvík
Bergvinsson (S) og Katrín Fjeld-
sted (D).
Í tillögunni felst að Alþingi
álykti að fela ríkisstjórninni að
beita sér fyrir því á alþjóðavett-
vangi að mannréttindabrot stjórn-
valda í Egyptalandi gegn samkyn-
hneigðum körlum verði stöðvuð og
að þeir sem dæmdir hafa verið í
fangelsi sökum kynhneigðar sinnar
verði leystir úr haldi þegar í stað
án eftirmála. Þá skori Alþingi á
ríkisstjórnina að hvetja þjóðir
heims til nauðsynlegra aðgerða
gegn stjórnvöldum í Egyptalandi
til þess að þau sjái að sér og virði
alþjóðasáttmála um almenn mann-
réttindi.
Í greinargerð með tillögunni er
rifjað upp að hinn 14. nóvember sl.
kvað sérstakur dómstóll í Kaíró
upp dóma yfir 52 karlmönnum sem
setið hafa í haldi síðan í maí fyrir
að vera samkynhneigðir. Af þeim
voru 23 dæmdir til þrælkunarvinnu
– frá einu ári og upp í fimm. Ekki
er hægt að áfrýja þessum dómum.
Hinir 29 voru sýknaðir. Mennirnir
voru allir dæmdir af Öryggis- og
neyðardómstóli ríkisins (Emerg-
ency State Security Court) sem
telur sig ekki bundinn af þeim al-
þjóðasáttmálum sem Egyptaland á
aðild að sáttmálum sem þjóna eigi
þeim tilgangi að tryggja réttarör-
yggi og mannréttindi þegnanna.
Flutningsmenn benda á að þjóð-
þing og mannréttindastofnanir
víða um heim hafi mótmælt atburð-
unum í Egyptalandi, þar á meðal
fulltrúadeild Bandaríkjaþings og
Sameinuðu þjóðirnar. Um leið ber-
ist mannréttindasamtökum reglu-
lega fréttir af frekari fangelsunum
karlmanna fyrir samkynhneigð.
„Mikilvægt er að Ísland skipi sér
í framvarðasveit þeirra sem mót-
mæla mannréttindabrotunum sem
eiga sér stað í Egyptalandi og taki
málið upp á alþjóðavettvangi,“ seg-
ir einnig í greinargerð með tillög-
unni.
Þverpólitísk tillaga til þingsályktunar
Mannréttindi samkyn-
hneigðra í Egyptalandi
NÁMSKEIÐ verður haldið á vegum
Karuna, samfélags Mahayana-búdd-
ista, næstu þrjú þriðjudagskvöld í
Odda, Háskóla Íslands, og hefst það
þriðjudaginn 29. janúar kl. 20.
Kennari er enska búddanunnan
Ven Kelsang Nyingpo. Farið verður
í grundvallaratriði hugleiðslu og
hvernig hægt sé að hefja einfalda
hugleiðsluiðkun.
Kennslan er öllum opin og fer
fram á ensku í stofu 101. Gjald er kr.
1.000 fyrir hvert skipti en kr. 500 fyr-
ir námsmenn og öryrkja, segir í
fréttatilkynningu.
Námskeið
í hugleiðslu
GSM 896 8232
MIKIL SALA - VANTAR EIGNIR Á SKRÁ
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-17
KJARRMÓAR 21 -
GBÆ Magnús tekur á móti
áhugasömum í dag og sýnir mjög
gott um 90 fm raðhús, (auk rýmis
undir súð), á besta stað í Garðabæ.
Parket á gólfum, gott eldhús. Góð
verönd og snyrtilegur garður.
Verð 13,1 millj. Verið velkomin.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 13-15
LYNGMÓAR 1 - GBÆ
Herdís og Jörundur sýna glæsilega
íbúð sína sem er 90 fm ásamt bíl-
skúr og geymslu, samt. 110 fm.
Hér er allt tipp topp. Parket á gólf-
um, fallegt flísalagt bað. Sérlega
snyrtileg og falleg íbúð. Húsið að
utan nýlega viðgert, sameign öll
tekin í gegn og fallegur garður.
TOPP EIGN. Verð 12,5 millj.