Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA,
Guðni Ágústsson, hefur hafnað
beiðni Nautgriparæktarfélags Ís-
lands, NRFÍ, um leyfi til innflutn-
ings fósturvísa úr norskum kúm,
miðað við þær forsendur sem NFRÍ
gaf sér. Á blaðamannafundi í höfuð-
stöðvum Rannsóknarstofnunar land-
búnaðarins, RALA, í gær sagði
Guðni m.a. að lög um innflutning
dýra, nr. 54/1990, heimiluðu ekki
þennan innflutning þar sem ekki
mætti hefja ræktun íslenskra kynja
með innfluttu erfðaefni fyrr en að
undangengnum verulegum rann-
sóknum.
Sagðist ráðherra ekki getað heim-
ilað svona innflutning nema að hann
væri liður í sameiginlegri ræktunar-
stefnu íslenskra bænda og rökstudd-
ur með þörf búgreinarinnar að leið-
arljósi. Ef Landssamband kúa-
bænda og NRFÍ sameinuðust um
tilraunainnflutning væri ekki útilok-
að að hann kæmist að annarri nið-
urstöðu en hann hefði nú gert. Ís-
lenskir kúabændur væru það fáir að
þeir yrðu að standa saman sem ein
heild í málum sem þessum.
Forsaga málsins
Vegna þessa skal rifjað upp að fyr-
ir um tveimur árum heimilaði ráð-
herra innflutning á samskonar fóst-
urvísum samkvæmt umsókn Bænda-
samtaka Íslands og Landssambands
kúabænda. Hafði ráðherra þá legið
undir feldi í sautján mánuði, eins og
hann rifjaði upp í gær á fundi með
blaðamönnum. Framkvæma átti
samanburðarrannsókn á íslenska
kúakyninu og hinu norska NRF-
kyni. Til þessa innflutnings kom ekki
þar sem kúabændur höfnuðu tilraun-
inni í atkvæðagreiðslu með nokkuð
afgerandi hætti sl. haust.
Í nóvember sl. sótti NRFÍ um
heimild til að flytja inn fósturvísa af
þessum sama kúastofni í Noregi. Í
umsókninni var gert ráð fyrir að
koma fósturvísunum fyrir í fóstur-
kúm í einangrunarstöðinni í Hrísey.
Að einangrun lokinni átti að dreifa
sæði og fósturvísum til félagsmanna
í NRFÍ. Landbúnaðarráðherra
sagði í gær að ekki hefði komið fram
í umsókninni hve félagsmenn væru
margir eða hversu margir hefðu
hugsað sér að nýta erfðaefnið.
Guðni sagði að umsókn NRFÍ
væri mjög ólík umsókn Bændasam-
takanna og kúabænda. Annars vegar
hefði verið gert ráð fyrir innflutningi
til samanburðarrannsókna og hins
vegar til frjálsra afnota hjá bændum
án undangenginna rannsókna. Í
greinargerð með umsókninni hefði
þess verið getið að haft hefði verið
samband við Rannsóknarstofnun
Háskólans á Akureyri um að hún
mæti árangur af innflutningi og áhrif
hans á afkomu kúabænda. Guðni
sagði að það rannsóknarferli hefði
ekki verið skýrt nánar.
Ráðherra vísaði einnig til þeirrar
skyldu landbúnaðarráðuneytisins að
hafa eftirlit með innflutningi búfjár
og fylgjast með framræktun inn-
flutts erfðaefnis. Þar bæri ráðuneyt-
ið mikla ábyrgð.
Niðurstaðan vonbrigði
„Viðbrögð okkar við ákvörðun
landbúnaðarráðherra eru fyrst og
fremst vonbrigði. Við ætlum að hitta
lögfræðing okkar og fara yfir stöð-
una. Ég hef nú frekar á tilfinning-
unni núna að það sé hálfleikur í mál-
inu en ekki leikslok,“ sagði Jón
Gíslason, formaður NRFÍ, við Morg-
unblaðið um synjun ráðherra.
Hann átti fundi með landbúnaðar-
ráðherra í gærmorgun, áður en sá
síðarnefndi tilkynnti ákvörðun sína.
Aðspurður hvort sá fundur hefði
gefið einhverjar vonir um að af
innflutningi fósturvísa gæti orðið
sagði Jón: „Nei, þvert á móti. Hann
mæltist til þess að við sættumst við
þessa niðurstöðu og létum málið
kyrrt liggja. Það er erfitt að kyngja
þessu og nú munum við hitta okkar
lögfræðing og kanna stöðuna með
tilliti til dómsmáls. Ég lít svo á að
það sé hálfleikur í málinu en ekki
leikslok.“
Landbúnaðarráðherra hafnar beiðni NRFÍ um innflutning á fósturvísum úr norskum kúm
Lög um innflutning
dýra heimila ekki
innflutninginn
Morgunblaðið/Sverrir
„Lögin heimila mér ekki að leyfa þennan innflutning,“ sagði Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra á fundi með fréttamönnum í gær.
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
byggði ákvörðun sína m.a. á um-
sögnum nokkurra stofnana um um-
sókn Nautgriparæktarfélags Ís-
lands til að flytja inn norska
fósturvísa. Hér verður stiklað á
stóru í þeim umsögnum:
Fagráð í nautgriparækt skilaði
inn tvískiptu áliti, annars vegar um-
sögn meirihluta ráðsins, þar sem
mælt er með því að NRFÍ fái leyfi til
innflutnings, og hins vegar séráliti
Ara Teitssonar, formanns Bænda-
samtakanna. Telur Ari það álitamál
hvort ferli innflutningsins sé í sam-
ræmi við 12. grein laga nr. 54/1990
um innflutning dýra. Hann telur til-
raunainnflutning þó réttlætanlegan
þar sem NRF-kynið geti bætt eig-
inleika íslenska kúastofnsins. Það
sé hins vegar utan verkahrings fag-
ráðsins að taka afstöðu til lög-
fræðilegra álitamála.
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins (RALA) og Landbúnaðarháskól-
inn á Hvanneyri skiluðu inn sam-
eiginlegri umsögn þar sem mælt er
gegn því að veita leyfi til innflutn-
ings, miðað við þær forsendur sem
NRFÍ gaf sér.
Yfirdýralæknir mælir ekki með
því að NRFÍ sé veitt heimild til
framhaldsræktunar á afkvæmum
norskra fósturvísa, það samrýmist
ekki 6. gr. laga um innflutning
dýra. Hins vegar telur yfirdýra-
læknir í öðru áliti að „ásættanleg
áhætta“ skapist af innflutningi fóst-
urvísanna ef öllum kröfum sé full-
nægt varðandi sjúkdómahættu.
Dýralæknaráð leggst ekki gegn
innflutningnum, sé ákveðnum skil-
yrðum fullnægt af hálfu NRFÍ.
Náttúruvernd ríkisins leggst
gegn innflutningnum þar sem
mörgum spurningum í umsókn
NRFÍ sé ósvarað.
Erfðanefnd búfjár mælir ekki
með innflutningi fósturvísanna
eins og umsókn NRFÍ var lögð
upp.
Hagþjónusta landbúnaðarins
tekur ekki afstöðu til einstakra at-
riða í umsókn NRFÍ en telur þörf á
hagræðingu í mjólkurframleiðslu.
Stofnunin vann fræðilega rekstr-
argreiningu á kúabúi og komst að
því að auka mætti hagkvæmnina
með innflutningi fósturvísa af NRF-
kyni.
Umsagnir um umsókn NRFÍ
HVERGI virðast stórfelldar brota-
lamir á innra eftirlitskerfi með
fjárreiðum Reykjavíkurborgar
þótt ýmsar úrbætur megi gera á
innra eftirliti borgarkerfisins.
Þetta eru helstu niðurstöður
vinnuhóps sem skipaður var um
eftirlit og endurskoðun hjá
Reykjavíkurborg og er nú að ljúka
störfum. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri kynnti helstu
niðurstöður hópsins á borgar-
stjórnarfundi í gær.
Sjálfstæðismenn sögðu fjölmörg
dæmi, þar sem framkvæmdir á
vegum borgarinnar hafa farið fram
úr áætlun, sýna að víða sé pottur
brotinn. Þeir hafa lagt fram tillögu
í borgarráði sem gerir m.a. ráð
fyrir því að eftirlit með fyrirtækj-
um sem Reykjavíkurborg á 50%
hlut í eða meira verði aukið. Einn-
ig segja þeir að eftir breytingar
sem gerðar hafa verið á rekstr-
arformi margra fyrirtækja í eigu
borgarinnar, sé erfiðara en áður
að fylgjast með fjárreiðum þeirra
og stjórnsýslu. Í tillögunni, sem
sjálfstæðismenn lögðu fram í borg-
arráði 26. mars, er einnig lagt til
að skoðað verði hvernig best verði
staðið að reglubundnu og sjálf-
stæðu eftirliti með fjárreiðum og
stjórnsýslu borgarsjóðs.
Segir hluta tillög-
unnar óþarfan
Borgarstjóri sagði þennan hluta
tillögunnar óþarfan þar sem vinnu-
hópurinn sem skipaður var fyrir
rúmu ári hefði einmitt það hlut-
verk að koma með tillögur þar um.
Nú væri í burðarliðnum skýrsla
sem KPMG endurskoðun vann
með hópnum. Ingibjörg sagðist
vonast til að geta lagt skýrsluna
fyrir borgarráð á þriðjudag, en
hún hefur fengið drög að henni í
hendur.
„Það sem er athyglisvert í þess-
ari skýrslu er að hvergi virðast
stórfelldar brotalamir á þeim innri
eftirlitskerfum sem sett hafa verið
hjá borginni, þótt ýmsar úrbætur
megi gera,“ sagði Ingibjörg. Hún
sagði ýmislegt koma fram í tillög-
unum um hvernig betur megi
standa að eftirliti hjá borginni,
bæði hvað varðar vinnuferla og
staðsetningar stofnana í eigu borg-
arinnar. Vinnuhópurinn hafi ekki
síst verið skipaður til að tryggja
aukið eftirlit með framkvæmdum á
vegum borgarsjóðs. Í tillögunum
sé m.a. gert ráð fyrir yfirliti yfir
stöðu einstakra framkvæmda
þannig að betur verði hægt að
fylgjast með framvindunni.
Eftirlit með fjárreiðum
fyrirtækja erfiðara en áður
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
Sjálfstæðisflokki, sagði starfsum-
hverfi borgarfulltrúa hafa breyst
mjög síðustu ár með breytingum
sem hafa orðið á rekstri fyrirtækja
í eigu borgarinnar. Erfiðara sé
fyrir borgarfulltrúa að fá upplýs-
ingar um fjárreiður og stjórnsýslu
fyrirtækja í eigu borgarinnar sem
hafa farið inn í byggðasamlög,
sameignafélög og hlutafélög á síð-
ustu árum. „Þetta er ótækt. Það
þarf að kanna réttarstöðu borg-
arfulltrúa, kjörinna fulltrúa, til að-
gangs að upplýsingum, hvort sem
fyrirtækin heita Lína.Net ehf.,
Höfði eða Félagsbústaðir,“ sagði
Vilhjálmur.
Tillögu sjálfstæðismanna ætti að
taka fyrir með jákvæðum huga þar
sem vinnuhópurinn, sem nú er að
ljúka störfum, taki ekki á þessum
málum.
„Við erum að tala um að komið
verði upp reglubundnu og sjálf-
stæðu eftirliti þannig að hægt
verði að framkvæma stjórnsýslu-
legt eftirlit eins og Ríkisendur-
skoðun er að framkvæma í fyr-
irtækjum. Það sé stofnunin sjálf
sem ákveði hvenær hún leggi til
atlögu við einstaka fyrirtæki eða
stofnanir borgarinnar og fari ofan
í saumana á allri stjórnsýslu og
leggi spilin á borðið,“ sagði Vil-
hjálmur.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði
Borgarendurskoðun ekki hafa
nógu öflug stjórntæki og að auka
þurfi frelsi stofnunarinnar til að
rannsaka sjálfstætt einstök mál.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarfulltrúi Reykjarvíkurlista,
sagði Borgarendurskoðun sjálf-
stæða stofnun sem hafi fullt frelsi
til að annast innra eftirlit og að
stofnunin geti haft frumkvæði til
að kalla eftir upplýsingum.
Ekki taldar brotalamir í
fjárreiðum borgarsjóðs
Breytingar á rekstrarformi sagðar torvelda eftirlit
BISKUP Íslands, Karl Sigurbjörns-
son, hefur sent frá sér eftirfarandi
yfirlýsingu vegna ástandsins í Pal-
estínu og Ísrael:
„Hinar skelfilegu fréttir frá
Betlehem hljóta að hitta okkur öll í
hjartastað. Í sjálfri fæðingarkirkj-
unni er verið að deyða fólk. Á þeim
stað þar sem Jesús fæddist, boðberi
friðar og sátta, eru engin heilög vé
virt og hatrið eitt ræður för. Þessir
hryllilegu atburðir hrópa upp í him-
ininn. Biðjum fyrir þessu þjáða
fólki! Áköllum Guð friðarins um frið
– réttlátan frið sem tryggi börnum
Ísraels og Palestínu öryggi og
frelsi, hvert svo sem þjóðerni þeirra
er og trú. Biðjum Guð sáttargjörð-
arinnar að milda hjörtu leiðtoga
Ísraels og Palestínu að þeir leiti
sátta en ekki hefnda.
Ég hvet íslensk stjórnvöld til að
beita sér af fullum þunga á al-
þjóðavettvangi gegn þessu blóðbaði.
Við Íslendingar getum ekki horft á
aðgerðarlausir meðan fólk er lítils-
virt, limlest og deytt í fæðingarborg
friðarhöfðingjans, né annars staðar
í þessu stríðshrjáða landi.
Sömuleiðis vil ég hvetja alla
landsmenn til að leggja sitt af
mörkum til hjálparstarfs kirkna við
fjölskyldur á Gaza-ströndinni
(reikningur Hjálparstarfs kirkjunn-
ar nr. 27 í Spron á Skólavörðustíg)
en hjálparstarfið hyggst veita þar
matvælaaðstoð en ástandið þar er
ískyggilegt.“
Yfirlýsing vegna ástands-
ins í Palestínu og Ísrael
BÍLSTJÓRI, sem var að sturta
kjarna ofan í gryfju við gerð brim-
varnargarðs við höfnina á Húsavík,
lenti í því óhappi í gær að fara of
aftarlega þannig að afturendinn fór
ofan í gryfjuna en framendinn stóð
upp í loftið og þar við sat. Starfs-
menn Ístaks hf., sem er verktaki við
framkvæmdina, brugðust skjótt við
og komu með stórvirkar vinnuvélar
og drógu bílinn upp. Engan sakaði
og bíllinn er lítt skemmdur.
Morgunblaðið/Hafþór
Óhapp við Húsavíkurhöfn
Húsavík. Morgunblaðið.