Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 48
MINNINGAR 48 FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Herdís MargrétGunnfríður Pálmadóttir fæddist á Reykjavöllum í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði, 5.9. 1922. Hún andaðist á Heil- brigðisstofnuninni á Sauðárkróki hinn 29. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Pálmi Sigurður Sveinsson, bóndi á Reykjavöllum, f. 13. des. 1883, d. 6. mars 1967, og kona hans Guðrún Andrésdótt- ir, f. 2. mars 1889, d. 17. mars 1955. Herdís var næstelst af sex systk- inum. Elst var Herdís Margrét Gunnfríður, f. árið 1920, lést 2ja ára gömul og var nafna hennar skírð við kistuna hennar. Hólm- fríður Sigrún Jóhanna, f. á Reykja- völlum 11. nóv. 1923, húsmóðir. Maður hennar var Bjarni Kristinn Ólafsson rafvirkjameistari, f. 18. okt. 1918, d. 7. jan. 1986. Áslaug Rósa húsmóðir, f. á Reykjavöllum 26. sept. 1925. Maður hennar er Pétur Kristófer Guðmundsson, bóndi á Hraunum í Fljótum, f. 28. júlí 1923. Andrés Pétur, bóndi á Reykjavöllum, f. á Reykjavöllum 19. ágúst 1930. Sveinn Skagfjörð, forstjóri í Reykjavík, f. á Reykja- völlum 27. júní 1933. Kona hans er Guðný Ásdís Hilmarsdóttir, ritari og húsmóðir, f. 4. maí 1936. Hinn 26. okt. 1941, giftist Her- dís, Sighvati Péturssyni Sighvatz sjómanni, f. 12. sept. 1915, d. 30. nóv. 1991. Foreldrar hans voru hjónin Pétur Sighvatsson, úrsmið- ur og símstöðvarstjóri frá Höfða í Dýrafirði, og kona hans Rósa Dan- íelsdóttir frá Skáldstöðum í Eyja- firði. Þau eignuðust níu börn. 1) ar og uppeldisbörn Sigurðar eru Daníel Henrik Pétursson, f. 20. des. 1970, og Hilda Dröfn Eich- mann, f. 21. des. 1973. 6) Björn Jó- hannes, vélfræðingur og kennari á Sauðárkróki, f. 21. febr. 1957. Kona hans er Sigurdríf Jónatans- dóttir söngkona og sjúkraliði, f. 4. des. 1960. Börn þeirra Gunnfríður, f. 15. júlí 1982, og Jónatan f. 22. apríl 1991. 7) Sigrún Alda, launa- fulltrúi og sveitastjórnarfulltrúi á Sauðárkróki, f. 12. jan. 1961. Mað- ur hennar er Jón Pálmason raf- virki. Synir þeirra eru Pálmi, f. 20. sept. 1980, og Snævar Örn, f. 13. apríl 1988. 8) Sighvatur Daníel, símsmíðameistari á Sauðárkróki, f. 7. apríl 1964. Kona hans er Sólveig Anna Jóhannsdóttir, skrifstofu- tæknir og húsmóðir, f. 8. mars 1964. Dóttir Sólveigar og uppeld- isdóttir Daníels er Tinna Björk Guðmundsdóttir, f. 6. maí 1982. 9) Dóttir fædd andvana 14. maí 1967. Barnabarnabörnin eru 14. Herdís ólst upp á Reykjavöllum, sótti þeirra tíma skólavist á Nauta- búi. Fór 18 ára í vist til Egils Mel- sted á Siglufirði og á vorfardögum 1941 réð hún sig í vist til Péturs símstöðvarstjóra á Sauðárkróki. Herdís og Sighvatur bjuggu all- an sinn búskap á Aðalgötu 11, eða gömlu Stöðinni eins og húsið var alla jafnan kallað. Alla tíð var heimið fjölmennt, bæði voru þau afar gestrisin og höfðu gaman af að veita kaffi og mat. Sighvatur stundaði sjó- og veiðimennsku, en var einnig loftlínueftirlitsmaður í sumarvinnu mörg ár hjá Lands- síma Íslands. Herdís sá aftur á móti um heimilishaldið, verkstjórn inn- an þess og uppeldi allra barnanna. Eftir að Sighvatur dó, bjó Herdís áfram á Aðalgötunni og hélt heim- ili með reisn til síðustu áramóta, en þá var heilsan þrotin og lagðist hún þá inn á heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki. Útför Herdísar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 16. Pétur Ragnar, útgerð- armaður og sjómaður Sauðárkróki, f. 3. apríl 1942, sambýliskona hans er Ágústa Sigur- björg Ingólfsdóttir, tækniteiknari og hús- móðir, f. 21. ágúst 1958. Synir hennar eru: Ágúst Heiðar Friðriksson, f. 9. júlí 1974, og Ingólfur Örn Friðriksson, f. 11. sept 1981. 2) Rósa Guðrún, húsmóðir á Akureyri, f. 9. des 1943, maður hennar var Ívar Krist- jánsson iðnverkamaður, f. 22. sept. 1934, d. 11. júlí 1999. Börn þeirra eru Snævar, f. 25. maí 1961, Pálmi Þór, f. 26. okt. 1962, Sighvatur Víðir, f. 24. mars 1967, Herdís Mar- grét, f. 25. nóv. 1973, og Þórður Ív- ar, f. 19. júní 1979. 3) Pálmi Sig- urður, bólstrari á Sauðárkróki, f. 24. jan. 1946. Kona hans er Birgitta Karlotta Pálsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, f. 3. febr. 1946. Dætur þeirra eru Júlía, f. 5. mars 1975, og Herdís, f. 5. ágúst 1981. 4) Ingvar Bjarni, rafvirkja- meistari á Sauðárkróki, f. 17. mars 1948. Kona hans er Elsa Björk Sig- urjónsdóttir húsmóðir og ræsti- tæknir, f. 23. júlí 1960. Börn þeirra eru Anna Karítas, f. 13. júní 1992, og Birgir Þór, f. 14. júlí 1993, sonur Elsu og uppeldissonur Ingvars er Sigurjón Elí Jónsson, f. 28. febrúar 1983. 5) Þórunn Erla, safnstjóri hjá Landmælingum ríkisins á Akra- nesi, f. 19. okt. 1951. Maður hennar er Sigurður Örn Búason, jarð- lagnatæknir hjá Orkuveitu Reykjavíkur á Akranesi, f. 15. apríl 1952. Dætur þeirra eru Margrét Elfa, f. 7. febr. 1979, og Anna Guð- rún, f. 26. sept. 1983. Börn Þórunn- Sómakonu syrgjum hér sindra tár á hvörmum okkar, þegar aðra vér allþétt vefjum örmum. Upp úr miðri síðustu öld, þegar ég flutti til Sauðárkróks, var Stöðin heimili Herdísar og Sighvats eitt af einkennum kaupstaðarins. Sighvatur stundaði sjóinn og sjó- mannskonan Herdís var aðeins 18 ára þegar hún kom til dvalar og vinnu á Sauðárkróki. Hún gætti bús og 8 barna auk annarra sem bjuggu á heimilinu. Einnig ól Herdís upp 2 börn Þórunnar, dóttur þeirra Sig- hvats. Herdís skilaði húsmóðurstarfinu með dugnaði og sæmd, öll börnin og þorri bæjarbúa bera þess vitni nú og jafnframt hvað gestrisni hennar og gjafmildi gáfu heimilinu mikinn töfraljóma. Það kom enginn í heimsókn til Herdísar án þess að þiggja veitingar, sem líkari voru veislu en venjulegu kaffiborði. Margir voru við brottför leystir út með gjöfum, sjófangs eða listmuna, og þá var Herdís glöð. Gesta til að létta lund ljúfum töfrum beitti. Gestrisni á góðri stund gleði henni veitti. Ég kynntist Herdísi nánar þegar Jón sonur minn féll fyrir yngstu stelpunni á Stöðinni, henni Sigrúnu Öldu, þau reistu sitt heimili að Háuhlíð 12 og þaðan er síðasta minn- ing mín um Herdísi og fjölskyldu- tryggð hennar. Hún mætti á pálma- sunnudag í hjólastól til að fagna með öðrum fermingu dóttursonarins Snævars. Listhneigð Herdísar bera margir munir vitni, sem hún vann í föndri með eldri borgurum, þar virtist hún geta allt, listsaumur lék í höndum hennar, málverkasköpun og útskurð- ur í tré auk þess sem hún var góður upplesari. Lítið atvik frá árinu 2000 kemur mér í hug þegar frændi minn, Friðrik Pálmason, hringdi til mín af fundi eldri borgara og bað mig að sækja sig, sem ég gerði. Fundinum var ekki lokið og þegar ég spurði Friðrik hvers vegna hann hefði ekki verið til loka samkomunnar svaraði hann að það hefði ekkert verið gaman vegna þess að Herdísi á Stöðinni hefði vantað, hún væri skemmtileg að lesa upp og segði svo vel frá gömlum atburðum. Friðrik getur nú, ásamt Sighvati og öðrum gengnum vinum, tekið fagnandi á móti Herdísi handan við tjaldið. Stöðin, sem nú er Aðalgata 11, stendur á milli þriggja veitingahúsa og dansstaða. Hávaði frá umferð glaðra dansgesta undir svefnher- bergisglugga Herdísar hlýtur æði oft að hafa truflað hennar næturhvíld. Eitt sinn barst þessi hávaði í tal við hana og hvort nokkur leið væri að sofa um slíkar helgar og hún svaraði af sinni alkunnu hægð: „Þetta er lífið og það angrar mig ekki.“ Síðasta árið var erfitt, verkjalyf dauf en baráttu- andinn óbugaður til hinstu stundar. Mætti Herdís mæla hér mundi hún segja okkur að hætta öllu voli; nú liði sér vel. Ég er ríkari eftir kynni við hana og á kveðjustundinni votta ég fjölskyldu hennar innilega samúð. Guð blessi minningu Herdísar. Pálmi Jónsson. Ótal minningarbrot renna gegnum hugann þegar ég kveð tengdamóður mína Herdísi Pálmadóttur. Við vor- um báðar á varðbergi þegar fyrstu fundum okkar bar saman, í minning- unni örlaði ofurlítið á kvíða, hvernig mundu samskiptin verða? Til þessara kynna var því stofnað á varfærinn og óhlutbundinn hátt. Síðan áttum við eftir að kynnast náið, og eiga góð og einlæg samskipti. Báðar létum við skoðanir okkar hreinskilnislega í ljós, forðuðumst að tala undir rós, og við vorum langt frá því að vera alltaf sammála, en létum það ekki hafa áhrif á trúnað og virðingu hvor til annarrar. Því var svo gott að leita til hennar ef eitthvað bjátaði á, þar var alltaf skjól að finna og góð ráð gefin, sem lærst höfðu á lífsins göngu. Minningarbrot og þakklæti geymast í huganum. Herdís fór 18 ára að heiman frá foreldrum sínum á Reykjavöllum, fór þá til Siglufjarðar einn vetur, en réð sig svo í vist til Péturs Sighvatz sím- stöðvarstjóra á Króknum, en með Reykjavallahjónum og Stöðvarhjón- um var mikil og góð vinátta. Og eins og segir í ævintýrunum þá féllu hugir prinsins á Stöðinni og bóndadóttur- innar saman, þau giftust og eignuð- ust börn og buru. Heimili þeirra var alla tíð á gömlu Stöðinni. Ég hef hugsað um það síðustu daga að eflaust hefur bóndadóttirin unga, sem kvaddi foreldra sína á haustdögum 1940, átt sína drauma um lífið og tilveruna, og kannske ekki endilega ætlað að festa sig í barn- eignum og basli svo ung sem hún var. En draumar ungra stúlkna þá, eru ólíkir draumum ungra kvenna í dag, enda tímar ekki þeir sömu, aðstæður aðrar og ekki réttmætt að bera slíkt saman. Alla vega varð hennar starfs- vettvangur heimilið, með öllu því sem fylgir fjölmennu og gestkvæmu heimili. Börnin urðu átta, sem kom- ust á legg, yngsta barnið fæddist andvana. Tvö af barnabörnunum áttu heimili hjá afa og ömmu fyrstu ár ævi sinnar og alltaf voru barnabörnin vel- komin. Eins og víða annars staðar voru fleiri heimilisfastir en börnin og foreldrarnir, frænkur og frændur áttu þar alltaf skjól. Herdís sá um heimilishaldið, stjórnaði öllu sem þar þurfti að gera á sinn hljóðláta hátt og allir hlýddu. Sighvatur stundaði sjó- inn eða símavinnu, aflaði heimilinu tekna og matar, en hann var óvenju- slyngur veiðimaður til sjós og lands. Bæði voru þau hjón einstaklega gest- risin og hreint ótrúlegt hvað alltaf var til með kaffinu, margar sortir af ljúffengu heimabökuðu brauði, brún- tertur, jólabrauð, kleinur og vöfflurn- ar með rúsínunum. Það var hreint ótrúlegt hverju var hægt að koma í verk, þó var alltaf tími til að sinna gestum og gangandi. Herdís hafði gaman af ljóðum, vís- um og stökum. Hún var gagnrýnin á vísnagerð og fann að, ef eitthvað passaði ekki inn í hefðbundið form. Hún hafði afskaplega gaman af handavinnu og útsaumi, var hún afar vandvirk og vandaði vel allt litaval. Síðustu árin sótti hún föndur í safn- aðarheimilinu, naut sín þar í góðum félagsskap, málaði hún þá öll ósköp af nytjahlutum og gaf til barna og barnabarna. Síðastliðið haust var hún að velja uppfyllingarlit í gamla renni- braut, eftir miklar vangaveltur var liturinn valinn, en því miður tókst ekki að byrja á verkinu, tíminn varð of naumur. Eftir að Sighvatur dó, hélt hún heimili áfram á Stöðinni, í skjóli barna sinna, sama rausnin og mynd- arskapurinn einkenndi heimilishald- ið. Heilsan bilaði og síðasta ár ein- kenndist af þverrandi þreki. Henni tókst að halda síðustu jól og áramót heima, með sínu lagi og var þar veit- andi eins og hún var vön. Í byrjun janúar lagðist hún síðan inn á Heil- brigðisstofnunina á Sauðárkróki, fór í erfiða aðgerð á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri, þar sem taka þurfti af henni annan fótinn. Með reisn og myndarskap mætti hún í fermingu dóttursonar síns á pálmasunnudag, þar var hún sjálfri sér lík og lét engan bilbug á sér finna. Þannig er gott að minnast hennar. Herdís nafna henn- ar, sem dvalið hefur erlendis, náði að sjá og kveðja ömmu sína á skírdag. Fyrir það erum við mæðgur afar þakklátar. Júlía, sonardóttir hennar, sem er í námi erlendis kemst ekki til að fylgja ömmu sinni til grafar en þakkar henni í huganum fyrir alla góðvildina og væntumþykjuna. Nú er ævintýri bóndadótturinnar frá Reykjavöllum lokið, en börnin hennar og afkomendur munu halda merki hennar og minningu á lofti. Ég þakka Herdísi samfylgdina, vináttuna, tillitsemina og gæðin til okkar Pálma og dætra okkar. Ég mun minnast hennar sem einnar af hetjum hversdagslífsins. Starfsfólki öllu á deild 1, Heil- brigðisstofnuninni Sauðárkróki, eru sendar innilegar þakkir fyrir einstak- lega góða umönnun. Lítið ljóð eftir Kristján Árnason frá Skálá er kveðjuorð okkar fjöl- skyldunnar. Að loknum starfsdegi löngum hér ljúfust er næturværð. Í værum blundi nú birtist þér blessun af himni færð. Þú miðlaðir okkur mild og hlý af móðurkærleikans gnótt. Heiminn þú fæddir okkur í og annaðist dag og nótt. Sofðu nú róleg, mamma mín, við munum hafa hljótt. Þau breiða on’á þig börnin þín, og bjóða þér góða nótt. Birgitta Pálsdóttir. HERDÍS M. G. PÁLMADÓTTIR ✝ Skúli Jenssonfæddist í Bolung- arvík 13. janúar 1920. Hann lést á Landspítala Landa- koti 31. mars síðast- liðinn. Foreldar hans voru hjónin Jens E. Níelsson kennari, f. 7. apríl 1888, d. 26. maí 1960, og Elín Guðmundsdóttir, f. 30. nóvember 1894, d. 1. janúar 1997. Bræður Skúla eru 1) Guðmundur kennari, f. 3. júlí 1917, d. 30. ágúst 1998, kvæntur Sigríði Þor- kelsdóttur snyrtifræðingi, f. 6. júní 1915. 2) Ólafur verkfræðing- ur, f. 17. ágúst 1922, kvæntur Mar- gréti Ólafsdóttur, f. 19. október 1920. Skúli varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1943. Hann tók lög- fræðipróf frá Há- skóla Íslands 1949. Hann var eftirlits- maður Íslenskra get- rauna frá 1953 til 1956, skrifstofumað- ur á Vífilsstöðum lengst af. Hann hef- ur þýtt yfir hálft annað hundrað skáldsagna og ung- lingabóka eftir ýmsa höfunda. Útför Skúla fer fram frá Nes- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Skúli fæddist í Bolungarvík árið 1920 og ólst þar upp. 15 ára gamall veiktist hann alvarlega af lömunar- veiki og gat í byrjun aðeins hreyft höfuðið, nokkra fingur og setið í stól. Seinna fékk hann aðeins meiri mátt í hendurnar. Samt lauk hann stúd- entsprófi og lögfræðiprófi aðeins tveim árum á eftir jafnöldrum sínum. Fjölskylda Skúla fluttist frá Bol- ungarvík til Reykjavíkur þegar hann var 18 ára gamall en í kringum árið 1957 fékk hann berkla og fluttist til Vífilsstaða sem varð heimili hans upp frá því. Þar vann hann sem skrif- stofumaður og við símavörslu. Hann þýddi hátt á annað hundrað bóka þar á meðal ævintýri Toms Swift sem margir miðaldra Íslendingar minn- ast eflaust frá bernsku sinni. Skúli var óvenjulegur maður að öllu leyti. Hann bjó yfir fágætum gáfum og hafði óvenju jákvætt við- horf til allra hluta. Skúli var bróðir tengdaföður míns og ég minnist ennþá minna fyrstu kynna af Skúla er ég var rúmlega tvítugur lækna- nemi nýbyrjaður að vera með konu minni. Þarna hitti ég mann sem var mjög líkamlega fatlaður, en bjó yfir svo jákvæðu lífsviðhorfi að ég hugs- aði með mér þegar ég kvaddi hann: hvað er ég að kvarta yfir smámunum í lífinu, þegar hann með sín raun- verulegu vandamál hefur þetta lífs- viðhorf. Ég hef ekki verið samur maður síðan og ætíð farið betri mað- ur af hans fundi í þau 35 ár sem ég bar gæfu til að hitta hann. Hann er merkasti maður sem ég hef kynnst. Ég vil gera orð Valdimars Briem að mínum og kveð þig með söknuði með eftirfarandi versi hans: Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Elsku Skúli, hvíl í guðs friði. Hafsteinn Skúlason. SKÚLI JENSSON @   8       8    7    !   '7'  5    !  3      , - 9  2   "  !E= 6 #! &  9      1 $% 9   7 & B9   ' 9   8  9! 9   89   -     9       &
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.