Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ GERT er ráð fyrir því að þriðju og síðustu umræðu um frumvarp um Kárahnjúkavirkjun og stækkun Kröfluvirkjunar ljúki á Alþingi í dag og að það verði afgreitt sem lög frá Alþingi í dag eða á morgun. Annarri umræðu um frumvarpið lauk fyrir hádegi í gær með atkvæðagreiðslu um efnisgreinar frumvarpsins. Hafði þá önnur umræða farið fram á nokkrum þingfundum og stóð fram til klukkan þrjú í fyrrinótt. Alls sam- þykktu 43 þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, Framsóknarflokksins og meirihluti þingflokks Samfylkingar- innar fyrstu grein frumvarpsins en í henni er kveðið á um að Landsvirkj- un sé heimilt að reisa og reka vatns- aflsvirkjun í Fljótsdal með allt að 750 MW afli ásamt aðalorkuveitum og virkja til þess vatnsföllin Jökulsá á Brú og Jökulsá í Fljótsdal í tveimur áföngum, þ.e. Kárahnjúkavirkjun. Níu þingmenn; þingmenn Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs og tveir þingmenn Samfylkingarinn- ar, þær Þórunn Sveinbjarnardóttir og Rannveig Guðmundsdóttir, auk Sverris Hermannssonar, formanns Frjálslynda flokksins, greiddu at- kvæði gegn fyrstu greininni en tveir þingmenn sátu hjá, þau Guðjón A. Kristjánsson, þingmaður Frjáls- lynda flokksins, og Katrín Fjeldsted, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Svipuð niðurstaða fékkst þegar greidd voru atkvæði um aðra til fjórðu grein frumvarpsins nema hvað Sverrir Hermannsson sat þar hjá en hafði áður greitt atkvæði gegn fyrstu greininni. Í annarri til fjórðu grein frumvarpsins er m.a. kveðið á um að iðnaðaráðherra sé heimilt að veita Landsvirkjun leyfi til að stækka Kröfluvirkjun í allt að 220 MW ásamt aðalorkuveitum. Áður en atkvæði voru greidd um efnisgreinar frumvarpsins í gær var borin upp tillaga Árna Steinars Jó- hannssonar, þingmanns VG, um að frumvarpinu verði vísað frá. Hafði þingmaðurinn lagt fram frávísunar- tillöguna „í ljósi þess að allt er í óvissu um framvindu Noral-verkefn- isins“, eins og segir m.a. í tillögunni. Tillagan var hins vegar felld; 42 þingmenn Sjálfstæðisflokks, Fram- sóknarflokksins og meirihluta þing- flokks Samfylkingarinnar, greiddu atkvæði gegn tillögunni en sjö þing- menn, þingmenn VG og Sverrir Her- mannsson greiddu atkvæði með henni. Fjórir þingmenn sátu hjá, þ.e. þau Guðjón A. Kristjánsson, Katrín Fjeldsted, Rannveig Guðmundsdótt- ir og Þórunn Sveinbjarnardóttir. Árni Steinar sagði m.a. þegar at- kvæðagreiðslan fór fram að með Kárahnjúkafrumvarpinu væri verið að leggja drög að gríðarlegum nátt- úruspjöllum. Ennfremur sagði hann að deildar meiningar væru um arð- semi Noral-verkefnisins. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra sagði hins vegar að Kárahnjúkavirkjun væri stór og metnaðarfull fram- kvæmd og kvaðst hún þakklát fyrir þann stuðning sem frumvarpið hefði hlotið innan þings og utan. Katrín á móti Einstaka þingmenn gerðu grein fyrir afstöðu sinni til frumvarpsins þegar atkvæðagreiðsla fór fram um það fyrir hádegi í gær. Bryndís Hlöðversdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, tók fram að frumvarpið nyti stuðnings meiri- hluta þingflokks Samfylkingarinnar. Sá stuðningur væri þó með ákveðnum fyrirvörum, m.a. þeim að áætlanir um arðsemi framkvæmdar- innar stæðust og að þjóðhagsleg áhrif framkvæmdanna yrðu jákvæð þegar og ef farið yrði út í þær. „Tveir þingmenn Samfylkingarinnar sem hafa lýst yfir andstöðu við fram- kvæmdina gera það vegna umhverf- issjónarmiða,“ sagði Bryndís og vís- aði þarna til Þórunnar Sveinbjarnar- dóttur og Rannveigar Guðmunds- dóttur. Katrín Fjeldsted, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði þegar hún greindi frá því að hún væri á móti frumvarpinu að við blasti að meirihluti væri fyrir því á Alþingi að virkja við Kárahnjúka og reisa álver við Reyðarfjörð. „Mín sýn á framtíð- ina er önnur og hið sama má segja um marga sjálfstæðismenn sem ég er málsvari fyrir,“ sagði hún. „Nú- verandi virkjunaráform munu skaða hálendi Íslands meira en hægt er að sætta sig við þrátt fyrir þær mót- vægisaðgerðir sem umhverfisráð- herra hefur krafist með úrskurði sín- um. Ég tel að arðsemi á fyrirhuguð- um framkvæmdum sé ekki slík að hún réttlæti svo stórfelld náttúru- spjöll.“ Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður iðnaðarnefndar þingsins, minnti á að átta fulltrúar iðnaðarnefndar væru fylgjandi frumvarpinu, einn nefndar- manna hefði verið á móti því, þ.e. Árni Steinar Jóhannsson. Sagði Hjálmar að rökin fyrir því að átta nefndarmenn styddu frumvarpið væru m.a. þau að Noral-verkefnið gæti lagt grunninn að mikilli hag- sæld á Íslandi. Guðjón Guðmunds- son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði m.a. að yrði frumvarpið ekki samþykkt mætti líta á það sem skila- boð um að Kárahnjúkavirkjun væri frátekin fyrir Norsk Hydro. Það væri því nauðsynlegt að afgreiða frumvarpið sem lög frá Alþingi á næstu dögum. Að síðustu má geta þess að Guðjón A. Kristjánsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði frá því að stuðningur sinn við frumvarpið hefði verið skilyrtur við það að tryggt væri að orka frá Kára- hnjúkavirkjun yrði nýtt til atvinnu- uppbyggingar á Austurlandi. „Nú er það mál allt í uppnámi,“ sagði hann og kvaðst myndu sitja hjá við at- kvæðagreiðslu um frumvarpið. Fleiri þingmenn gerðu grein fyrir af- stöðu sinni þegar atkvæðagreiðsla fór fram um efnisgreinar frumvarps- ins. Að síðustu fór fram atkvæða- greiðsla um það hvort vísa ætti frumvarpinu til þriðju og síðustu umræðu og var það samþykkt með 48 atkvæðum gegn sex atkvæðum þingmanna VG. Eftir atkvæða- greiðsluna í gær hófst þriðja og síð- asta umræða um frumvarpið. Litið alvarlegum augum Í umræðum á Alþingi í gær véku þingmenn VG aftur að því að iðn- aðarráðherra, Valgerður Sverris- dóttir, hefði leynt þingið upplýsing- um með því að skýra ekki frá því strax og hún vissi að Norsk Hydro treysti sér ekki til að standa við tímasetningar vegna Reyðarálsverk- efnisins. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, vitnaði m.a. í orð Þórð- ar Friðjónssonar, formanns sam- ráðsnefndar um Reyðarálsverkefnið, þar sem hann hefði sagt í fjölmiðlum að í lok febrúar hefðu ákvarðanir verið teknar hjá Norsk Hydro sem leiddu til þess að fyrirtækið treysti sér ekki til þess að standa við tíma- setningar varðandi verkefnið. Full- yrti hann að slíkt framferði, að halda upplýsingin frá þingi, hefði verið litið alvarlegum augum á öllum nálægum þjóðþingum. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra ítrekaði hins vegar að það skipti máli hvenær endanleg ákvörð- un hefði verið tekin hjá Norsk Hydro. „Á meðan engin ákvörðun var tekin um að breyta út af tíma- áætlunum og vinna ekki samkvæmt undirritaðri viljayfirlýsingu þá stóð sú yfirlýsingin,“ sagði ráðherra m.a. Kárahnjúkafrumvarp að lögum í dag eða á morgun Morgunblaðið/Golli Valgerður Sverrisdóttir og Össur Skarphéðinsson ræðast við á Alþingi í gær. ÁSTANDIÐ fyrir botni Miðjarðar- hafs var til umræðu utan dagskrár á Alþingi í gær en Ögmundur Jónas- son, þingflokksformaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs, var málshefjandi umræðunnar. Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra var til andsvara. Ögmundur sagði að óhugnanlegar fréttir bærust frá Pal- estínu á degi hverjum og svo virtist sem ofbeldið magnaðist jafnt og þétt. „Úr fjarlægð verðum við vitni að of- beldi sem framið er á frumstæðan en yfirvegaðan hátt,“ sagði hann. „Þótt ljóst sé að einstakir menn eða hópar úr röðum Palestínumanna hafa framið hryllileg hryðjuverk þá er engu að síður greinilegt hver hef- ur yfirhöndina,“ sagði hann enn- fremur, „mótmæli okkar eiga að beinast gegn Ísrael og þeim sem halda yfir þeim verndarhendi; bandarískum stjórnvöldum. Án stuðnings þeirra fengju ísraelskir ráðamenn engu áorkað.“ Spurði hann því næst utanríkisráðherra m.a. að því hvort hann teldi koma til álita að draga úr eða jafnvel slíta stjórnmálasambandi við Ísrael dragi þeir ekki herlið sitt til baka af svæð- um Palestínumanna og láti þeir ekki af ofbeldisaðgerðum. Í máli Halldórs Ásgrímssonar ut- anríkisráðherra kom fram að ábyrgð Ísraelsmanna væri mikil og að þeir væru ekki hafnir yfir lög og rétt. „Við hljótum…að fordæma harðlega ofbeldisaðgerðir beggja aðila, bæði Ísraelsmanna og annarra á þessu svæði,“ sagði hann. Ítrekaði hann þá skoðun sína að hann teldi nauðsyn- legt að senda alþjóðlegt friðargæslu- lið eða eftirlitssveitir til Palestínu. „Ég tel að það sé vonlaust að tryggja varanlegan frið á svæðinu án dvalar slíkra alþjóðlegra sveita.“ Að síðustu svaraði ráðherra því til að það hefði ekki „verið hugleitt“, eins og hann orðaði það, að slíta stjórnmálasam- bandi við Ísrael. „Ég tel að það þjóni ekki tilgangi á þessu stigi málsins að gera slíkt. Það er mat flestra þjóða í heiminum.“ Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, notaði tækifærið og minnti þingmenn á þingsályktunartillögu Samfylkingar- innar um sjálfstæði Palestínu. „Ég tel brýnt að sú tillaga verði afgreidd sem allra fyrst,“ sagði hún og benti á að í tillögunni væri einnig lagt til að alþjóðlegar öryggissveitir eða friðar- gæslusveitir yrðu sendar til verndar Palestínumönnum. Bandaríkjamenn leika lykilhlutverk Sigríður Anna Þórðardóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins og for- maður utanríkismálanefndar þings- ins, minnti á að Ísland hefði frá upphafi stutt stofnun og tilverurétt Ísraelsríkis og að það styddi einnig sjálfsákvörðunarrétt Palestínu- manna. „Það er brýnt að á alþjóðlegum vettvangi verði stórhertum þrýstingi beitt til að leysa deilurnar fyrir botni Miðjarðarhafs en slík lausn þarf að fela í sér að Ísraelum verði tryggt ör- yggi innan alþjóðlegra viðurkenndra landamæra og síðan með stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu.“ Sverrir Hermannsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði m.a. að Bandaríkjamönnum bæri skylda til að skerast í leikinn í Mið-Austur- löndum og Þuríður Backman, þing- maður VG, sagði að ástandið hefði fengið að þróast vegna þess að í „gildi væri alveg sérstakt bandalag Bandaríkjamanna og Ísraels“. Magnús Stefánsson, Framsóknar- flokksi, sagði að það hlyti að fara styttast í að alþjóðasamfélagið beitti beinum aðgerðum til að setja niður deilurnar á svæðinu og sagði ljóst að í því tilfelli lékju Bandaríkjamenn lykilhlutverk. „Við hljótum að gera auknar kröfur um að Bandaríkja- menn beiti sínu valdi til að setja nið- ur þær deilur sem þarna eru.“ Rannveig Guðmundsdóttir Sam- fylkingunni, minnti m.a. á fyrr- greinda þingsályktunartillögu Sam- fylkingarinnar og taldi að Alþingi ætti að álykta um ástandið og senda frá sér yfirlýsingu en Einar K. Guð- finnsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, taldi hins vegar varasamt að Alþingi beindi mótmælum sínum eingöngu til annars aðilans. „Við hljótum að fordæma hryðjuverk í hvaða formi sem þau eru af hvaða að- ila sem þau eru gerð.“ Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur VG, lýsti yfir vonbrigðum með að engin mótmæli hefðu verið send frá íslenskum stjórnvöldum til ísr- aelskra yfirvalda. Þingmenn hafa áhyggjur af stöðu mála í Palestínu ALÞINGI samþykkti í gær frumvarp til laga um tíma- bundna lækkun á almennu vörugjaldi af bensíni um 1,55 kr. eða úr 10,50 kr. í 8,95 kr. Gert er ráð fyrir því að lögin öðlist þegar gildi en ákvæði laganna gilda til júníloka 2002. Þingmenn stjórnarand- stöðunnar töldu það þó of skamman tíma. Lögðu þing- menn Samfylkingarinnar, Jó- hanna Sigurðardóttir og Öss- ur Skarphéðinsson, það til að lögin myndu gilda til 1. nóv- ember 2002. Sú tillaga var hins vegar felld í atkvæða- greiðslu. Vöru- gjald af bensíni lækkar ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Meðal þess sem verður á dagskrá er þriðja um- ræða um Kárahnjúkafrum- varpið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.