Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI 14 FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Brekkugötu 27a · Akureyri · Sími 462 1285 · GSM 692 7278 ÁSGEIR Magnússon, formaður bæjarráðs og framkvæmdaráðs Ak- ureyrar, sagði að ekki yrði ráðist í framkvæmdir í göngugötunni á þessu ári eins og til stóð. Hug- myndin var að bjóða út umfangs- miklar framkvæmdir í miðbænum en Ásgeir sagði að ákveðið hafi ver- ið að fara í lagfæringar á göngugöt- unni eins og hún er og setja þar niður götugögn eins og hugmyndin um framkvæmdir í götunni gerðu ráð fyrir. Um er að ræða m.a. steina, kassa og blómaker, sem eiga að afmarka akstursleiðina þar í gegn. „Það var ákveðið að setja þessar framkvæmdir ekki inn á fram- kvæmdaáætlun nú í sumar,“ sagði Ásgeir. Áætlaður kostnaður við framkvæmdir í göngugötunni er um 50 milljónir króna og fram- kvæmdir í Skátagilinu upp á aðrar 50 milljónir króna. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær hefur verslunum fækkað umtalsvert í miðbænum undanfarin misseri og sagði Ragnar Sverrisson, formaður Kaupmanna- félags Akureyrar, að bæjaryfirvöld þyrftu að gera eitthvað fyrir miðbæinn, til þess að auka umferð fólks þar um. Ragnar sagði að bær- inn þyrfti að setja hálfan milljarð króna í miðbæinn á næstu 10 árum. Ásgeir sagði kaupmenn hefðu helst fett fingur út í að ekki væri hægt að keyra í gegnum göngugöt- una. Nú væri búið að hleypa umferð þar í gegn og setja niður bílastæði. „Ég get tekið undir það að heil- mikið megi gera fyrir miðbæinn. Þar eru margir blettir sem kalla á að tekið sé til hendinni. En það er í mörg horn að líta með peningana og menn þurfa því að velta hlut- unum fyrir sér. Við komum þó aldr- ei til með að breyta þeirri stað- reynd að húsnæði sem reist er á fyrri hluta síðustu aldar og skipu- lagning hverfa, hentar kannski ekki þeirri verslunarstarfsemi sem menn eru með í dag.“ Ásgeir sagði það sjálfsagt rétt að einhverjar verslanir í miðbænum hafi lagt upp laupana og aðrar flust til. Hins vegar væru þær verslanir sem hefðu lagst af vegna aðstöðu- leysis í miðbænum eða vegna til- komu Glerártorgs ekki margar. Hann sagði að hús í miðbænum, sem áður hýstu verslanir og voru komin í niðurníðslu, hefðu tekið miklum breytingum til batnaðar og fengið ný hlutverk . Hann nefndi í því sambandi París og húsnæðið þar sem Kaffi Akureyri er til húsa. „Sú breyting sem hefur átt sér stað í fjölmörgum þessara húsa, sem menn eru að telja upp að verslanir hafi horfið úr, eru mjög jákvæðar og af hinu góða,“ sagði Ásgeir. Formaður bæjarráðs um framkvæmdir í miðbænum Margir blettir sem kalla á að tekið sé til hendinni ÞRÁTT fyrir ungan aldur hefur Helga Bjarkadóttir haft mikil kynni af sjúkrahúsum og hefur farið í nokkrar aðgerðir en hún fæddist með augnsjúkdóm sem kallast drer (cataract) og upp úr því fékk hún barnagláku. Helga er 19 mánaða gömul, fædd 24. ágúst 2000, og eru foreldrar hennar ung hjón á Akureyri, þau Rut Sverrisdóttir og Bjarki Hilm- arsson. Þau fór í alls fimm ferðir til Lundúna á síðasta ári með stúlkuna í augnaðgerðir. Augasteinar hennar voru ónýt- ir, óskýrir og skyggðir og þurfti að fjarlægja þá þegar Helga var aðeins þriggja og fjögurra vikna gömul. Rut, móðir hennar, fædd- ist með sama sjúkdóm. Hún sagði að í sínu tilfelli hefði orðið um stökkbreytingu að ræða og hún ekki vitað af því að sjúkdóm- urinn erfðist. „Okkur var sagt að litlar líkur væru á að sjúkdóm- urinn erfðist, en nú vitum við að á því eru um 50% líkur,“ sagði Rut, en hún hefur 10% sjón. Ekki er enn vitað hver sjón Helgu er. Ýmsir fylgikvillar komu fljótt í ljós Hægri augasteinn Helgu var fjarlægður þegar hún var þriggja vikna og sá vinstri viku seinna og fimm vikna var hún komin með sterk gleraugu. Rut sagði að aðgerðir sem þessar tækjust yfirleitt vel, en í tilviki Helgu litlu hefðu fljótlega ýmsir fylgikvillar komið í ljós. Augn- þrýstingur, einkum á hægra auga, hefði verið mikill og augndropar ekki dugað til. Þessi mikli augnþrýstingur leiddi til þess að Helga fékk barnagláku. Vegna þrýstingsins stækkaði auga hennar mjög, það af- skræmdist og hún varð blind á því um tíma. Í kjölfarið héldu þau Rut og Bjarki með hana til Lundúna í maí í fyrra þar sem hún gekkst undir fjögurra tíma aðgerð á Morsfield sjúkrahúsinu sem sérhæfir sig í augn- aðgerðum. Þar var sett rör í aug- að og diskur þar fyrir aftan. Þau héldu á ný út í júní og fengu góða skoðun, en þegar á leið júlí kom í ljós að örvefsmyndun var mikil í auganu. Diskurinn sem átti að taka við frárennslinu frá rörinu í auganu hafði fyllst af ör- vef og því stíflast. Hann var skrapaður í burtu og saumar voru einnig losaðir. Fjölskyldan kom heim í ágúst, en í september þótti sýnt að aftur þyrfti að skrapa örvef í burt og þess freistað með aðgerð að koma í veg fyrir að augað framleiddi svo mikinn örvef. Aftur var reynt í fimmtu ferð fjölskyldunnar til Lundúna í október og þá heppn- aðist aðgerðin vel að sögn þeirra Bjarka og Rutar. „Okkur var sagt að hún væri óvenju erfitt til- felli,“ segja þau. Til stóð að þau héldu enn á ný utan til skoðunar eftir áramót, en þá veiktist Helga þannig að enn hefur ekki orðið af ferðinni. „Það er biðstaða hjá okkur núna, en það getur eitthvað gerst hve- nær sem er,“ sagði Rut. „Við vit- um í rauninni aldrei hvenær við þurfum að rjúka af stað, fyr- irvarinn er oftast ekki mikill,“ bætti Bjarki við. Höfum fengið ótrúlega mikla hjálp Rut er heima við með Helgu og Bjarki er nemandi við trésmíða- deild Verkmenntaskólans á Ak- ureyri. Fimm ferðir til Lundúna á einu ári auk ferða suður á Landspítala – háskólasjúkrahús hafa því gengið nærri fjárhag fjölskyldunnar. Þau sögðu að þar sem ekki væri um að ræða lífs- hættulegan sjúkdóm, líkt og hjartagalla væri einungis greitt fyrir annað foreldrið. „Við höfum fengið ótrúlega mikla hjálp frá ættingjum og vinum og líka frá fólki sem við þekkjum lítið sem ekkert. Við höfum oft orðið hissa þegar fólk hefur bankað upp á hjá okkur til að rétta hjálp- arhönd,“ sögðu þau og nefndu sérstaklega til sögunnar fólk úr Ólafsfirði, en þaðan er faðir Bjarka. „Við erum afskaplega þakklát, þetta sýnir okkur í hve góðu samfélagi við búum þar sem allir eru tilbúnir að hjálpa.“ Helga Bjarkadóttir fæddist með sjaldgæfan augnsjúkdóm Fimm að- gerðir í Lundúnum á síðasta ári Morgunblaðið/Kristján Helga litla skoðar myndaalbúm þar sem hún sjálf er í aðalhlutverki. Mynd /Bjarki Hilmarsson Helga með mömmu sinni, Rut Sverrisdóttur, skömmu áður en farið var í eina af mörgum augnaðgerðum síðasta árs. Mynd/Bjarki Hilmarsson Helga nýkomin úr sinni fyrstu aðgerð, þar sem auga- steinarnir voru fjarlægðir. NOKKUÐ er síðan tófan fór að gagga sig saman í Svarfaðardal, en félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ á Dalvík segja það boða gott vor þegar tófurnar fari að gagga sig saman snemma. Veðurklúbbsmenn segja votan einmánuð boða gott vor og svo hafi verið það sem af er. Annars segja fé- lagar í klúbbnum að vorið sé enn ekki komið en það sé þó á næsta leiti þótt hann eigi eftir að gusa aðeins úr sér eins og þeir orða það í veðurspá sinni fyrir aprílmánuð. Stuttur norðanskellur Nokkrir félaganna telja að það komi óvæntur hraustlegur norðan- skellur en standi stutt. Að öðru leyti verði veðrið í apríl líkt og svo oft í þeim mánuði; hríðarlenja, slydda, rigning og svo sól og gott á milli. Tófan farin að gagga í Svarfaðardal Boðar gott vor Dalvíkurbyggð FRAMFARAFÉLAG Eyjafjarðar er heiti á nýju félagi sem nýlega var stofnað í Eyjafjarðarsveit. Á stofn- fundinum gengu um fjörutíu manns í félagið. Einkunnarorð félagsins eru að sögn stofnenda heiðarleiki, opin samskipti og samheldni og til- gangur þess að efla samfélagið í Eyjafjarðarsveit í hvívetna. Á fundinum kom fram mikill áhugi fyrir því að félagið stæði að framboði fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar 25. maí næstkomandi. Stofnfélagar skráðu sig í áhuga- hópa um málefni sveitarfélagsins og munu þeir hefja starfsemi á næst- unni. Fram kom á fundinum að eitt aðalmarkmið félagsins er að al- menn og opin umræða standi að baki heildarstefnumótun og for- gangsröðun verkefna í sveitarfé- laginu. Í stjórn félagsins voru kjörin: Aðalsteinn Hallgrímsson, Garði, Arnar Árnason, Hranastöðum, Sig- urður Eiríksson, Vallartröð 3, og til vara Jófríður Traustadóttir, Tjarnalandi, og Karl Frímannsson, Hrafnagilsskóla. Stjórn félagsins hvetur íbúa sveitarinnar til að ganga til liðs við félagið og taka virkan þátt í að gera gott samfélag enn betra. Framfara- félag Eyja- fjarðar stofnað Eyjafjarðarsveit ÞORSTEINN Haukur Þorsteinsson frá Tollgæslunni og Þorsteinn Pét- ursson lögreglumaður heimsóttu nemendur í 8.-10. bekk í grunnskól- um Akureyrar í vikunni, þar sem Þorsteinn Haukur ræddi við ung- mennin um skaðsemi fíkniefna og ýmislegt tengt fíkniefnamálum. Með Þorsteini Hauki í för var fíkniefna- hundurinn Bassi, sem einnig er á starfssamningi hjá Tollgæslunni. Bassi er þjálfaður af Þorsteini Hauki og í hans umsjá og hefur hann reynst mjög vel við leit að fíkniefnum. Heimsóknin er liður í forvarnarverk- efni, þar sem Tollgæslan og lögregl- an vinna saman. Skaðsemi fíkniefna til umfjöllunar ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.