Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 41
okkar ólust upp saman. Ég gætti
hennar mikið meðan foreldrar henn-
ar voru við nám og störf. Hún var
mér eins kær, líkt og hún væri mín
eigin dóttir. Samband okkar var alla
tíð mjög náið.
Arna Hildur var sérstaklega bráð-
þroska og greind, altalandi eins ár
gömul, hafði mjög ljúfa skapgerð,
geislandi bros og blikandi augu. Hún
var mjög nærgætin og hlý, góð við þá
sem minna máttu sín í samfélaginu.
Skólagangan fór vel af stað, hún var
alltaf með hæstu einkunnir og stóð
sig með prýði. Unglingsárin runnu
upp, þessi viðkvæmi aldur, sem for-
eldrar óttast hvað mest í okkar sam-
félagi. Þessi ár reyndust henni erfið
og brautin varð skrykkjótt, og af
þessu mótuðust hennar fáu fullorð-
insár. Við vorum oft hrædd um hana,
oft bjartsýn. Hún átti góða foreldra
og sterkar fjölskyldur, báðum megin
frá, allir tilbúnir að styðja hana, en
við biðum ósigur í baráttunni, eins og
svo margir á undan okkur.
Ég vildi að ég hefði getað hjálpað
henni meira þegar lífið var henni
svona erfitt. Hún skilur eftir sig sól-
argeisla, litlu Kristínu Líf, sem lýsti
upp líf hennar síðastliðin átta ár. Við
munum öll hjálpast að við að bæta
henni móðurmissinn eftir bestu
getu. Það verður okkur öllum erfitt
að takast á við lífið án hennar, sorgin
og söknuðurinn eru yfirþyrmandi.
Eina huggunin er að nú er hún frjáls
á nýjum og betri stað.
Elsku bróðir minn, mágkona, Sig-
rún, Þórdís og litla Kristín Líf, megi
algóður Guð styrkja ykkur og hugga
í sorginni.
Ykkar,
Bjarndís.
Nýliðnir eru páskar og þeim eyddi
ég í Minneapolis. Glöð borðaði ég
páskaeggið mitt og hugsaði um
hversu mikið ég hlakkaði til vorsins,
sem er á næsta leiti. Síðastliðin tvö
ár hafa verið erfið. Miklar breyting-
ar eftir að pabbi dó snögglega og allt
breyttist. En ég fann svo innilega að
við vorum á réttri leið og ákveðið
jafnvægi að komast á daglegt líf okk-
ar allra. En núna stend ég frammi
fyrir að hefja nýtt sorgarferli. Að
syrgja litlu frænku mína, sem hefur
kvatt okkur langt um aldur fram. Ég
er sorgmædd. Þetta er svo ósann-
gjarnt. Mig langar að vera reið út í
einhvern, en veit ekki hver það á að
vera.
Ég er búin að vera að hugsa til-
baka, líkt og maður gerir á stundum
sem þessari. Ég brosi. Hugsa um
þegar við vorum með mömmu þinni
og pabba í Kaupmannahöfn. Ég var
6 ára og þú 4 ára. Þú labbaðir á póst-
kassa og fékkst gat á hausinn. Á spít-
alann fórum við til að láta sauma þig.
Læknirinn blés upp plasthanska og
teiknaði andlit á hann. Þú varst
hæstánægð með þetta framtak hans,
en ég fór í fýlu – fannst ég skilin út
undan.
Við vorum nánar frænkur – meira
eins og systur. Þú varst góð og falleg
manneskja. Reyndir að sjá það góða
í öllum og varst alltaf tilbúin að
hjálpa öðrum. Mörg eru skiptin sem
ég bað þig um að hjálpa mér og ég
hafði vart sleppt orðinu, að verkinu
var lokið. Ég reyndi líka alltaf að
vera til staðar fyrir þig.
Elsku litla Kristín okkar er sú sem
missir mest. Þú veist hvað mér þykir
vænt um hana. Ég mun vaka yfir vel-
ferð hennar og hún getur alltaf leitað
til Fríðu frænku sinnar. Þú munt lifa
áfram í henni. Foreldrar þínir voru
mér, mömmu, Evu og Snorra, stoð
og stytta eftir að pabbi dó. Ég ætla
að reyna að vera þeim það núna.
Elsku Arna mín. Ég á mikið af
minningum um þig og þær munu lifa
áfram, en ekkert verður aftur eins...
Þín,
Fríða Dóra.
…til er það einnig að mönnum sé lýst
þannig að oss skilst að þeir leggja allt und-
ir í spili sem þeir spila víst ekki sér til
skemmtunar: Hvatir sínar hafa þeir keypt
við dýru verði neyðarinnar.
(Sigfús Daðason.)
Það er vandi að lýsa mönnum;
maðurinn breytist stöðugt og er ekki
endilega sá sami frá einu augnabliki
til annars. Og jafnvel þó að eðliskost-
ir mannsins séu alltaf þeir sömu þá
birtast þeir manni með mismunandi
hætti – stundum í styrkleika og
stundum í veikleika. Og þegar
grannt er skoðað verða styrkurinn
og veikleikinn ekki aðskildir. Þetta
eru eins og tvær hliðar á sama pen-
ingi og stundum eins og hending ráði
hvor hliðin snýr upp.
Þannig var það með Örnu. Hún
var skynug og skemmtileg lítil stelpa
þegar ég kynntist henni fyrst. Ræð-
in, snaggaraleg, úrræðagóð, viljug,
kvik og gerði alla hluti hratt. Upplag
hennar, eðliskostir og aðstæður
hefðu átt að gera henni kleift að
leggja heiminn svo gott sem að fót-
um sér. En það fór á annan veg –
heimurinn lagði hana að velli. Ein-
hvers staðar í hennar óþreyjufulla
og kvika eðli var meinsemd sem hún
réð engan veginn við og sem raskaði
öllu jafnvægi í lífi hennar. Stundum
var hún eins og í hvirfilbyl sem skók
ekki bara hana heldur líka allt það
fólk sem næst henni stóð. Hún
reyndi að standa af sér byljina, hún
vildi takast á við sjálfa sig, hana
langaði að finna jafnvægi og öðlast
ró í sínum beinum, hún þráði að
höndla hamingjuna en þrátt fyrir
margar erfiðar tilraunir og mikla
hjálp frá sínum nánustu þá tókst
henni ekki að brjótast út úr vítahring
vímuefnaneyslunnar. Hversu mjög
sem hún þráði það þá tókst henni
ekki að stöðva ferli sjálfseyðilegg-
ingarinnar. Hún sat föst og lagði allt
undir í spili sem hún spilaði ekki sér
til skemmtunar.
Ég kann ekki frekar en aðrir skýr-
ingu á því hvernig þetta gat gerst.
Hvernig við gátum glatað ungri konu
sem hefur svona margt til brunns að
bera, á svo margt að gefa, hefur svo
margt að lifa fyrir. Það fékk bara
enginn við neitt ráðið – hvorki hún
né aðrir. Hvatir sínar keypti hún við
dýru verði neyðarinnar. Og kannski
eru það einmitt hvatirnar sem eiga
að verða okkur að umhugsunarefni.
Hjá flestum eru þær í sæmilegu jafn-
vægi eða leita a.m.k. í jafnvægi ef
þær raskast um stundarsakir. En
það á ekki við um alla. Á síðari árum
hafa sjónir manna beinst að ýmsum
þroskafrávikum s.s. misþroska, of-
virkni og athyglisbresti sem geta
haft veruleg áhrif á þróun og atferli
fólks. Þessum frávikum hefur verið
lítill gaumur gefinn en ef þau væru
betur rannsökuð gætum við kannski
fundið leiðir til að fækka þeim ein-
staklingum sem ekki fá við neitt ráð-
ið í lífi sínu. Kannski gætum við skil-
ið þá og hjálpað þeim að skilja sjálfa
sig. Kannski gætum við dregið úr
fordómum og dómhörku sem að jafn-
aði á uppruna sinn í þekkingarskorti.
Sigfús Daðason segir í fyrrnefndu
ljóði, Vandinn að lýsa mönnum, að
sumir menn hætti skinni sínu ,,vegna
þess að þeim eru settir afarkostir
sem þeir verða annaðhvort að rísa
gegn eða kikna fyrir…“. Þannig var
það með Örnu. Það var enginn milli-
vegur. Elsku Kristín, Valur, Kristín
Líf, Sigrún og Þórdís, megi minn-
ingin um alla hennar góðu kosti, um
allt það sem hún gaf og reyndi að
gefa á sinni stuttu ævi verða ykkur
til huggunar í sorginni og sársauk-
anum. Hugur okkar Hjölla, Svein-
björns og Hrafnkels er hjá ykkur.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
Það var erfitt af fá símtal frá
Kristínu vinkonu minni þegar hún
sagði mér að Arna Hildur væri dáin.
Það er eins og lífsins hjól fari í öfug-
an hring þegar ungt fólk hverfur á
braut og það er mikil sorg að horfa á
eftir barni sínu fara á undan í ferðina
miklu. Það er líka erftitt fyrir litla
stúlku að sjá á eftir mömmu sinni.
Þetta er á einhvern hátt óbærilegt,
þó svo að þetta eigi fyrir öllum að
liggja. Við viljum alltaf hafa meiri
tíma, tíma með hvort öðru, tíma til að
klára svo margt sem er ógert.
Hugsanir og minningar streymdu
fram um þessa glaðlegu stelpu sem
hafði svo margt og mikið til brunns
að bera. Hún var afar greind en hafði
jafnframt ríka þörf fyrir að standa
fremst á brúninni, kannski til þess
eins að prófa hveru langt hún gæti
gengið og hvað hún þyldi. En það var
jafnframt það sem var svo heillandi
við hana, þó erfitt væri. Hún vissi í
raun alltaf hvað hún var að gera og
hverjar afleiðingarnar gætu orðið.
Hún var opin og gat talað af miklum
þroska og innsæi um dekkri hliðar
samfélagsins.
Hún var félagslega meðvituð og
eru þeir eflaust ófáir sem hún hefur
hjálpað og stutt í gegnum tíðina. Og
kannski var það þannig að hún sjálf
þurfti stærstu hjálpina, en vildi á
stundum ógjarnan nýta sér hana.
Hún gat allt sjálf, fannst henni, hún
var bara þannig. Ég hef fylgst með
Örnu í talsverðan tíma og það var
gaman að fylgjast með Örnu þegar
hún fékk vinnuna á Féló. Þar öðl-
aðist hún þekkingu og skilning og
naut sín afar vel í vinnunni. Fann til
ábyrgðar og langaði að leggja sitt af
mörkum. Hún varð strax reynslunni
ríkari á einhvern hátt.
Eitt af því sem var svo sérstakt við
Örnu: hún var á einhvern hátt gömul
þó ung væri, og hafði lifað ævi sem
margir áttræðir hafa ekki reynt.
Hún lifði hratt, vildi lifa hratt, þurfti
að gera allt í hvelli, sama hvað það
var. Hún var líka ung þegar hún
eignaðist hana Kristínu Líf. Það
veitti henni óumræðanlega gleði og
ánægju. Hún vildi allt gera til þess
að standa sig með henni og fyrir
hana. Hennar vegna reyndi hún
ýmsar leiðir til að fá stuðning í sínum
málum og á sinni vegferð. En ekkert
af þessu hefði verið mögulegt ef ekki
hefði komið til afar sterkir og ástrík-
ir foreldar þar sem Kristín og Valur
voru. Þau voru boðin og búin, vak-
andi, sofandi yfir hverju fótmáli
hennar og Kristínar Lífar. Það var
ekki lítið að eiga slíkar stoðir fyrir
Örnu Hildi.
En nú er komið að kveðjustund og
vil ég óska Örnu velfarnaðar á nýrri
leið þar sem ég veit að hún er umvaf-
in ljósinu. Ég vil kveðja hana með
þessum línum um leið og ég votta
Kristínu, Val, Kristínu Líf, Sigrúnu
og Þórdísi og öllum öðrum ástvinum
samúð mína.
En ljósið kviknaði.
Ljósið brann svo skært og rótt,
það dansaði ofurhægt og það sindraði
og blakti.
Ljósið titraði. Titraði einsog lífið. Því ef
eitthvað titrar eins og tár,
skelfur eins og strá, slær einsog hjarta eða
blaktir eins og ljós,
þá veit maður að það er lífið.
Og í loganum birtust þeim allar þeirra
þrár og vonir,
allar þeirra ástríður og háleitu draumar
og göfugu hugsanir.
(Elísabet Jökulsdóttir.)
Blessuð sé minning Örnu.
Guðrún Ögmundsdóttir.
Fleiri minningargreinar
um Örnu Hildi Valsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 41
!
"
#
$
% & '
"
'
() '
"
'
*
&+$,-, . /.00$
$0$-/1 /$.0
!
"#
$ $% &
*
"!
'
( )*+,,
'"!
' 2
3
$
4
5 (5
#
$$
-
.
/"
"
$ $% $ $ $%
%00$% &
12 '
( 12 , +,,
6
&
"!
'! 5 &
3
5
5
7
!
0 '
&
0
/.
1
'&
0 &
3
$ $% $ $ $% &
37
, ,4 5' ,2
6 #!
6
5 &
3
5
71 #
67 ,
! +#!
#,
+ -
)8,
4 $
,
8 8
$ $% $ $ $% &
9+
+,, ## :
7 7
5
' 2 5
8 "
-/
4
'
)8)
&"
8
8
7
!
'7"5
'
1 #
7"0
0
"1 #
! 8 1 #
#3 1 #
7!
!
$%
$ $% $ $ $%
*
4
5 +,, $
;
'"!
' 9
-
'
)8)
'
:
7
!
2
8
. '
'"!
' 9 )
'7"
! 7
!
!7
$ $% $ $ $% &