Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 05.04.2002, Blaðsíða 53
AFMÆLI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 53 Það eru viss tíma- mót á ævi hvers manns sem fá menn til þess að hrökkva við og líta yfir farinn veg. Og í dag 5. apríl er hún Bergljót frænka mín 90 ára. Hún er að- eins þremur árum eldri en ég og ég spyr sjálfa mig er það mögulegt að við séum orðnar svona gamlar? Mér finnst svo stutt síðan kynni okkar hóf- ust og tengslin á milli okkar hafa orðið æ nánari eftir því sem árin liðu. Páll Vigfússon á Hallormsstað og sr. Guttormur Vigfússon í Stöð, afar okkar, voru bræður. Páll dó snemma frá ungum börnum en kona hans og stjúpa héldu heimilinu gangandi og ólu upp börnin. Þeir bræður höfðu verið mjög samrýndir og ég held að afa mínum hafi alltaf fundist hann þurfa að fylgjast með og vera einhvers konar ráðgjafi. Seinna gifti hann yngstu dóttur sína Guttormi Pálssyni, bróðursyni sín- um. Og þó að fjöll og dalir skildu að Stöð og Hallormsstað voru árvissar sumarheimsóknir milli heimilanna. Þegar hjónin á Hallormsstað komu „ofan yfir“ eins og það var kallað héldu þau til í Stöð og fóru þaðan í heimsókn til kunningjanna. Það var örskammt frá Stöð út að Óseyri. Sigríður móðursystir mín þurfti oft að skreppa út eftir og þá var æv- inlega glatt á hjalla. Það var ekki bara að þær mamma þyrftu að BERGLJÓT GUTTORMSDÓTTIR skrafa saman því þegar pabbi var ungur maður við nám hjá séra Gutt- ormi var Sigríður 7 ára og það var greinilegt að þeim hafði verið vel til vina því þau voru alltaf að rifja eitthvað upp og hlógu mikið. Þetta eru mín fyrstu kynni af Hallormsstað- arheimilinu. En árin liðu. Ég lærði að lesa og skrifa og ég var þá látin skrifa Bergljótu. Systir mín sem var uppalin í Stöð, 7 árum eldri en ég, fór að Hallormsstað eftir að hún fermdist og átti að verða sjálfbjarga í lífinu. Halldór bróðir minn fór einnig að Hallormsstað eftir fermingu. Áfram leið tíminn. Haustið 1930 dó Sigríður móðursystir mín eftir uppskurð við heilaæxli. Bergljót var þá 18 ára, elst fjögurra systkina, og yngsti bróðir hennar Þórhallur 5 ára. Ég hafði verið í kaupavinnu þetta sumar og var ekki fyrr komin heim en mamma segir mér að Gutt- ormur hafi beðið um mig sem hjálp- arstúlku og selskapsdömu fyrir Bergljótu. Mamma hafði tekið vel undir þetta en beið þó eftir sam- þykki mínu sem fékkst. Ég fór svo með Esju á Reyðar- fjörð og með þeirri ferð kom einnig kista Sigríðar svo það var tekið á móti mér strax á Reyðarfirði. Frá Reyðarfirði var farið yfir Fagradal í Egilsstaði og gist þar. Næsta dag borðuðum við hádegismat á Gunn- laugsstöðum á Völlum. Þá stakk Guttormur upp á því að ég riði ein á undan þeim í Hallormsstað. Ég átti að telja bæina og láta hestinn ráða ferðinni. Það brást heldur ekki að hesturinn nam staðar í hlaðinu á Hallormsstað svo ég vissi að nú var ferðinni lokið. Bergljót tók á móti mér og sá til þess að ég gæti hvílt mig. Þetta haust tók Húsmæðraskól- inn á Hallormsstað til starfa. Þegar ég vaknaði fyrsta morguninn á Hall- ormsstað var komin stúlka ofan úr skóla til þess að aðstoða við und- irbúning jarðarfararinnar. Að útför- inni lokinni féll allt í fastar skorður. Mér voru fljótlega falin viss störf sem voru einkum að taka til á skrif- stofu og í svefnherbergi þeirra feðga Guttorms og Þórhalls. Ég vissi ekki hvað aðrir aðhöfðust nema Bergljót sá um símann nokkra tíma á dag því þá var símstöð á Hall- ormsstað og ekki kominn sími í skól- ann svo þaðan var sífellt „rennirí“ á símatíma. Þá kynntist ég strax að nokkru stúlkunum sem voru í skól- anum fyrsta veturinn. Hallormsstaður var rótgróið myndarheimili, mannmargt og gest- kvæmt. Ég skynjaði satt að segja aldrei hver stjórnaði innanhúss. Seinna varð mér ljóst að það var ekki lítið álag á 18 ára unglings- stúlku að halda öllu í horfinu en það varð Bergljót að gera. Þennan vetur skapaðist milli okkar trúnaðarsam- band sem aldrei hefur rofnað. Síðan hefur hún skipað sama sess í hjarta mínu og Pálína systir mín nema hvað samband okkar var nánara þar sem aldursmunur okkar var minni. Ég á margar hlýjar minningar frá þessum vetri svo sem skautaferðir á Fljótinu og ferðalög með skólanum. Fljótlega tókst að útvega stúlku til hjálpar við heimilisstörfin. Hún hét Ólöf og var að mig minnir úr Rang- árvallasýslu. Eftir það átti Bergljót frístundir til þess að taka þátt í skólalífinu hjá frænku sinni. Um vorið fór ég heim en áður hafði Guttormur ráðið mig fyrir kaupakonu um sumarið. Þegar ég kom til baka hafði orðið bylting á heimilinu, komin var ráðskona, Guð- rún Pálsdóttir frá Þykkvabæ. Um haustið giftist hún Guttormi. Guð- rún reyndist mér ágæt húsmóðir. Með sumrinu fór að verða gest- kvæmt og til þess að rýma til í hús- inu fékk ég að sofa í tjaldi niðri við Fljót og þar með varð þetta eitt- hvert unaðslegasta sumar sem ég hef lifað. Mér voru ekki ætluð nein störf utan heyskaparins nema mjólka tvær kýr kvölds og morgna. En samverustundum okkar Berg- ljótar fækkaði. Um haustið réðst ég til frænku minnar Sigrúnar Blöndal, forstöðukonu Húsmæðraskólans. Ég ætlaði að vinna mér fyrir skóla- vist. Bergljót fór líka að heiman þetta haust. Samband okkar rofnaði þó ekki, við skrifuðumst á og hitt- umst öðru hverju allt til þessa dags. Við Bergljót áttum það sameiginlegt að við þráðum að menntast. Henni tókst þetta betur en mér að því leyti að hún lauk prófi frá Kennaraskóla Íslands en ég varð að láta mér nægja tveggja vetra nám við Hús- mæðraskólann á Hallormsstað. Dvöl mín hjá þeim Blöndalshjónum varð alls 5 ár. Haustið 1936 ætlaði ég að skreppa suður á Akranes til þess að heimsækja systur mína sem þá hafði stofnað heimili og var búin að eign- ast son. Þegar þangað kom þurfti ég að leita læknis og greindist þá með berkla. Ég þurfti að dvelja ein- hverja daga í Reykjavík í frekari rannsókn. Ég leitaði til konu sem var vinkona foreldra minna. Þegar hún vissi að ég var í berklarannsókn þorði hún ekki að hýsa mig. Svo vildi til að Bergljót hafði leigt her- bergi í sama húsi við hliðina á íbúð konunnar. Þegar hún vissi mála- vöxtu tók hún mig í herbergið til sín. Sem betur fer reyndist ég ekki með smit en var ráðstafað á hress- ingarhæli á Reykjum í Ölfusi og dvaldi þar einn vetur. Þá eins og oft- ar var Bergljót mín hjálparhella. Eftir þetta lá leið mín ekki að Hall- ormsstað. Ég var nú nokkur ár á faraldsfæti. Bergljót giftist og settist að í Reykjavík. Ég átti alltaf athvarf á hennar heimili hvernig sem á stóð. Ólafur Bjarnason maður hennar, fóstursonur Þorsteins kaupfélags- stjóra á Reyðarfirði, var líka ein- stakur ágætismaður. Sem dæmi um hjálpfýsi þeirra hjóna vil ég nefna eitt. Ég var gift og átti heima austur á landi. Ég var þá á ferð með tvö börn, telpu á öðru ári og dreng á því fjórða. Ég ætlaði upp á Akranes en þurfti nú að bíða nokkra daga í Reykjavík eftir að komast til læknis með telpuna. Á heimili þeirra Berg- ljótar og Ólafs stóð þannig á að Ólafur var að mála íbúðina. En þetta var allt í lagi. Það kom ekki til mála að ég leitaði annað. Þau bjuggu um mig í stofunni með börn- in og ekki nóg með það. Bergljót vildi að ég skryppi í bæinn mér til gagns og gamans. Það var ekkert mál að passa börnin og Ólafur með opnar málningarfötur. Þannig voru þau hjón. Ég held að það hafi ekkert verið til sem þau vildu ekki leggja á sig fyrir náungann. Bergljót er nú níræð. Hún er furðu ern en ellin vinnur á öllum. Ég veit að Bergljót á dálítið bágt með að leita umönnunar annarra, hún er vanari hinu. Elsku frænka mín, ég þakka þér allt gamalt og gott og vona að þú njótir enn góðra og glaðra daga. Innilegar hamingjuóskir, Anna Þorsteinsdóttir. TILKYNNINGAR GREIÐSLUÁSKORUN Bæjarsjóður Kópavogs skorar hér með á þá gjaldendur sem hafa ekki staðið skil á sorp- gjaldi og heilbrigðiseftirlitsgjaldi fyrir árið 2002 með eindaga 1. apríl 2002, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá birtingu áskorunar þessarar. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna að þeim tíma liðnum. Kópavogi, 4. apríl 2002 Bæjarsjóður Kópavogs KÓPAVOGSBÆR Auglýsing um starfsleyfistillögur                                             !       "            Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar: 1. Sá, sem sótt hefur um starfsleyfi, svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi. 2. Íbúar þess svæðis, sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar. 3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir, sem málið varðar. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendast Umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík, fyrir 5. maí 2002. Reykjavíkurborg. Umhverfis- og heilbrigðisstofa. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1  182458  8½ I I.O.O.F. 12  182458½  Sunnudagur 7. apríl Óvissu- ganga. Gengið verður í óviss- una, um 4—5 tíma ganga. Verð kr. 1.500/1.800. Brottför frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6. Miðvikudagur 10. apríl kl. 20.30 Myndakvöld. Á slóðum árbókar 2002. Hjörleifur Gutt- ormsson sýnir myndir frá sunn- anverðum Austfjörðum. Aðgangseyrir kr. 500. Kaffiveitingar innifaldar. Laugardagur 13. apríl Bak- pokinn. Námskeið í því hvernig á að raða í bakpokann. Leiðbein- andi Gestur Kristjánsson. Frír aðgangur. Heitt kaffi á könnunni. Í kvöld kl. 21 heldur Sigurður Örn Stefánsson erindi: „Muster- ið í Jerúsalem og sálmur númer 87“ í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á morgun, laugardag kl. 15-17, er opið hús með fræðslu og um- ræðum, kl. 15.30. Sýnt verður myndband með Joseph Campb- ell: „Máttur goðsagna“. Á sunnudögum kl. 17-18 er hugleiðingarstund með leiðbein- ingum fyrir almenning. Á fimmtudögum kl. 16.30- 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bók- mennta. Guðspekifélagið hvetur til samanburðar trúarbragða, heimspeki og náttúruvísinda. Félagar njóta algers skoðana- frelsis. www.gudspekifelagid.is Teiknimiðilinn vinsæli Ragnheiður Ólafsdóttir verður með einkatíma í versluninni Betra Lífi í Kringlunni, 8., 9. og 10. apríl nk. Pantanir í síma 581 1380. DULSPEKI R A Ð A U G L Ý S I N G A R Rafvirkjar, rafvélavirkjar, rafveituvirkjar Munið aðalfund Félags íslenskra rafvirkja á morgun laugardag kl. 10.00. Morgunkaffi fyrir fund. Stjórn Félags íslenskra rafvirkja. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.