Morgunblaðið - 05.04.2002, Qupperneq 24
ERLENT
24 FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
73
78
04
/2
00
2
YNGJUM UPP
Komdu með gamla varalitinn þinn og fáðu í staðinn
NÝJAN varalit fyrir aðeins 490 kr.
Gildir til og með 17. apríl 2002.
Veittu sjálfri þér ánægju. Gefðu lífinu lit.
YFIRVÖLD í Afganistan hafa
handtekið hundruð manna sem
grunur leikur á að hafi haft uppi
áform um að steypa bráðabirgða-
stjórn Hamids Karzais af stóli og
efna til hryðjuverka í landinu.
Flestir hinna
handteknu eru
liðsmenn Hezb-e-
Islami, samtaka
róttækra músl-
ima sem lúta for-
ystu Gulbuddins
Hekmatyars,
fyrrverandi for-
sætisráðherra
Afganistans.
Meðal hinna
handteknu var
Wahidullah Zabaoon sem á sínum
tíma gegndi ráðherraembætti í rík-
isstjórn Hekmatyars.
Yunus Qanooni innanríkisráð-
herra sagði að meira en þrjú
hundruð manns hefðu verið hand-
tekin í tengslum við samsærið og
voru um 160 enn á bak við lás og
slá í gær.
Samsærismennirnir hugðust m.a.
efna til sprengjuárása í Kabúl, höf-
uðborg Afganistans, að sögn Din
Muhammad Jurat hershöfðingja, en
hann hefur öryggismál á sinni
könnu. Þá munu þeir hafa ætlað að
hleypa upp loya jirga, höfðingja-
samkundunni sem halda á í júní, í
því skyni að velja nýja ríkisstjórn
fyrir Afganistan.
Einnig munu hafa verið áætlaðar
hryðjuverkaárásir gegn útlending-
um, sem nú dveljast í Afganistan.
Qanooni var spurður hvort eitt-
hvað benti til að samsærismenn-
irnir hygðust ráða Karzai forsætis-
ráðherra af dögum. „Þeir höfðu
uppi áform um árásir gegn ýmsum
háttsettum einstaklingum, þ.á m.
Karzai forsætisráðherra og kon-
ungnum fyrrverandi,“ sagði Qan-
ooni. Gert er ráð fyrir að Mohamm-
ad Zaher Shah, fyrrverandi kon-
ungur Afganistans, snúi aftur til
landsins síðar í þessum mánuði en
hann hefur um áratuga skeið verið í
útlegð á Ítalíu.
Skapar spennu í
samskiptum þjóðarbrota
Óttast er að handtökur mann-
anna valdi aukinni spennu í sam-
skiptum þjóðarbrotanna sem
byggja Afganistan. Pastúnar eru
fjölmennastir en hins vegar eru
flestir liðsmanna Norðurbandalags-
ins, sem ráða ríkjum í afganska inn-
anríkisráðuneytinu, Tadjíkar. Vitað
er að stuðningsmenn Hekmatyars,
fyrrverandi forsætisráðherra, eru
flestir Pastúnar og hætta er á að
leiðtogar Pastúna túlki handtökurn-
ar sem tilraun til að skaða tilraunir
þeirra til að tryggja samstöðu Past-
úna á samkundunni, loya jirga, sem
framundan er.
Raunar segir í frétt The New
York Times að þar sem margir
hinna handteknu séu kunnir and-
stæðingar Karzais forsætisráðherra
sé óhjákvæmilegt að því verði hald-
ið fram að stjórnin hafi skáldað upp
þetta samsæri í því skyni að út-
rýma allri stjórnarandstöðu í Afg-
anistan.
Bar talsmaður Hezb-e-Islami,
flokks Hekmatyars, algerlega til
baka fregnir þess efnis í gær að
hann hefði nokkuð með samsærið
að gera. Sagði hann aðgerðirnar
einfaldlega lið í tilraunum Norður-
bandalagsmanna til að auka áhrif
sín á stjórn landsins.
Frægur að endemum
Hekmatyar varð frægur á níunda
áratugnum fyrir að sýna fádæma
hörku í bardögum heimamanna við
sovéska innrásarherinn í landinu.
Hann varð síðan forsætisráðherra
Afganistans í forsetatíð Burhanudd-
ins Rabbanis fyrri hluta síðasta
áratugar en stjórnartíð hans ein-
kenndist af óreiðu og hjaðningavíg-
um og óhætt er að segja að Hekm-
atyar sé frægur að endemum.
Hekmatyar fór í útlegð þegar tal-
ibanar hrifsuðu til sín völdin árið
1996 og fór þá til Írans. Þarlend
stjórnvöld létu hins vegar nýlega
loka skrifstofum hans í Teheran og
ekki er vitað hvar hann er nú nið-
urkominn. Hekmatyar hafði hins
vegar verið duglegur við að gagn-
rýna Karzai á opinberum vettvangi,
sem og þá staðreynd að bandarískir
hermenn skyldu fá að athafna sig
sem raun ber vitni á afganskri jörð
undanfarna mánuði.
Yfirvöld í Afganistan handtaka hundruð manna
Sagðir hafa lagt á
ráðin um valdarán
Kabúl. AP.
Gulbuddin
Hekmatyar
YFIRMENN stjórnarhersins í
Angóla og hersveita uppreisnar-
hreyfingarinnar UNITA undirrit-
uðu í gær vopnahléssamning sem á
að binda enda á langvinnustu borg-
arastyrjöld Afríku. „Stríðinu í Ang-
óla er lokið og komið hefur verið á
friði til frambúðar,“ sagði Jose
Eduardo dos Santos, forseti lands-
ins. Hann ræddi síðar um daginn
við framkvæmdastjóra UNITA,
Paulo Lukama „Gato“, og var það
fyrsti fundur forsetans með leið-
toga uppreisnarhreyfingarinnar frá
1994.
Kostaði hálfa milljón
manna lífið
UNITA samþykkti að afvopna
50.000 hermenn sína og leggja upp-
reisnarherinn niður fyrir árslok
undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna.
Stjórnarherinn og UNITA lofuðu
einnig að virða skilmála friðarsamn-
ings, sem var undirritaður 1994 en
rofinn fyrir tæpum fjórum árum.
Efnt verður til viðræðna um
hvernig útfæra eigi friðarsamning-
inn og m.a. verður þá samið um
skipun forystumanna UNITA í op-
inber embætti.
Friðarviðræðurnar hófust eftir
að Jonas Savimbi, leiðtogi UNITA,
féll í bardaga 22. febrúar. Tugir
herforingja hans lágu einnig í valn-
um eða voru teknir til fanga.
Savimbi hafði stjórnað UNITA í
meira en 30 ár og var álitinn helsta
fyrirstaða friðar í Angóla. Borgara-
styrjöldin hófst þegar landið fékk
sjálfstæði frá Portúgal fyrir 27 ár-
um og talið er að hún hafi kostað
a.m.k. hálfa milljón manna lífið. Um
fjórar milljónir manna, eða um
þriðjungur íbúa landsins, flúðu af
átakasvæðunum og hafa verið háð-
ar aðstoð erlendra hjálparstofnana.
Vopnahléssamningurinn var und-
irritaður í Luanda. Kvaðst Dos
Santos ætla að efna til þing- og for-
setakosninga eins fljótt og mögu-
legt væri. Kosningar áttu að fara
fram 1997 en þeim var aflýst vegna
stríðsins.
„Stríðinu í
Angóla lokið“
Vopnahléssamningur í höfn í Luanda
Luanda. AP, AFP.
BANDARÍSKUR piltur, sem eign-
aðist tvö börn með kennara sínum
þegar hann var í 6. bekk grunn-
skóla, hefur stefnt skólastjórn og
borgaryfirvöldum í Des Moines í
Washingtonríki og krafist einnar
milljónar dala skaðabóta, um 100
milljóna króna, á þeirri forsendu að
stjórnvöld hafi brugðist skyldu
sinni og ekki varið hann fyrir kyn-
ferðislegri áreitni kennarans.
Vili Fualaau, sem nú er 18 ára,
bar fyrir rétti í gær að hann hefði
verið skotinn í kennaranum, Mary
Kay Letourneau, þegar hann var 12
ára. Hún var þá 34 ára gömul, gift
og fjögurra barna móðir. Hún var á
sínum tíma sakfelld og dæmd í 7½
árs fangelsi fyrir barnanauðgun,
eftir að samband hennar og piltsins
komst upp, og situr nú í fangelsi.
Fualaau sagði fyrir réttinum að
Letourneau hefði gefið honum und-
ir fótinn með ýmsum hætti og m.a.
lofað að hún myndi kyssa hann á
síðasta skóladeginum og síðan að
hún myndi fara úr einni spjör fyrir
hverja spurningu sem hann svaraði
rétt á söguprófi. Þau borðuðu sam-
an í júní 1996 og Fualaau sagði að
þau hefðu síðan eytt næstu þremur
nóttum saman heima hjá Letourn-
eau meðan eiginmaður hennar og
börn sváfu annars staðar í húsinu.
Fualaau og Letourneau eign-
uðust fyrra barn sitt árið 1997 þeg-
ar hann var 13 ára og það síðara
tveimur árum síðar. Mál þeirra
vakti mikla athygli, einkum eftir að
þau skrifuðu saman bók um ást-
arsambandið og er talið að Fualaau
og móðir hans hafi fengið greitt
jafnvirði um 18 milljóna króna frá
bókaútgáfum og fjölmiðlum. Þeir
peningar eru uppurnir og þeir sem
skaðabótakrafan beinist nú að
segja að mæðginin séu einungis að
reyna að afla sér meira fjár.
AP
Vili Fualaau ásamt móður sinni, Soona Vili, í réttarsalnum í gær.
Krefst nú skaðabóta
Unglingspiltur sem átti tvö börn með
kennara sínum stefnir yfirvöldum
YFIRVÖLD í Bandaríkjunum sögðu
í gær líklegt að litið yrði á Sádí-
Araba, sem nú er haldið föngnum í
Guantanamo-herstöðinni á Kúbu,
sem bandarískan ríkisborgara en
fundist hafa gögn sem sýna að mað-
urinn fæddist í Baton Rouge í Louis-
iana-ríki.
Maðurinn heitir Yasser Esam
Hamdi og er 22 ára gamall. Hann
mun hafa fæðst í Bandaríkjunum en
foreldrar hans sneru aftur heim til
S-Arabíu þegar hann var ungabarn.
Ákveði yfirvöld að líta á hann sem
bandarískan ríkisborgara mun hann
fá sömumeðferð og bandaríski talib-
aninn, John Walker Lindh, sem nú
bíður réttarhalda í Bandaríkjunum.
Hefur bandarískan
ríkisborgararétt
Washington. AFP.