Morgunblaðið - 05.04.2002, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 05.04.2002, Qupperneq 57
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2002 57 Afmælishátíð í Sissu tískuhúsi 6 ára afmælili Við fögnum 6 ára afmæli verslunarinnar, um þessar mundir og bjóðum upp á fullt af nýjum og töff vörum í öllum stærðum fyrir allar konur. Góð afmælistilboðOpið alla helgina Dragtir - Kjólar - Blússur Vorlínan er komin Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Mikið úrval EKKI er laust við að manni blöskri virðing borgaryfirvalda fyrir skattfé því er þeim er treyst fyrir. Fyrir sprungna verksmiðju kaus R-listinn að greiða tólf hundruð og áttatíu milljónir króna. Er það svipað verð og nokkrir kaupsýslumenn greiddu fyrir verksmiðjuna nokkrum árum áður. Þeir fengu verksmiðjuna í heilu, ásamt birgðum sem metnar voru á rúmlega sjö hundruð milljónir króna, fyrir svipað verð og R-listinn stað- greiðir þeim nú. Landið sem verk- smiðjan stendur á er þegar í eigu borgarbúa þannig að það sem keypt var er varla mikið annað en húsnæði. Hvergi hefur komið fram að búnaður til áburðarframleiðslu hafi fylgt með í kaupunum. Einhvers staðar kom það fram að seljendur húsnæðis áburðar- verksmiðjunnar væru að leita að nýrri staðsetningu fyrir verkmiðjuna. Verksmiðjan mun þannig ekki hætta starfsemi heldur færast annað. Selj- endurnir hafa líklega farið hlæjandi í bankann. Reykvíkingar hinsvegar hafa ágæta ástæðu til að fella tár þegar þeir heyra tíðindi sem þessi. Borgar- stjóri sem þeir kusu og treystu hefur brugðist þeim. Það er líkt og engar samningaviðræður hafi farið fram um þessi kaup. Borgarstjóri hafi bara spurt eigendurna hvað þeir settu upp og samþykkt án hiks. Það allavega lít- ur þannig út. Telja verður að verðið sem greitt var fyrir verksmiðjuna hafi verið 3-400 milljónum of hátt. Ekki er hægt að setja út á seljendur í máli þessu. Eðlilega leituðu þeir eftir hæsta mögulega verði. Spurningin hinsvegar er hvort R-listinn hafi leit- að eftir lægsta mögulega verði fyrir áburðarverksmiðjuna? Þegar, eðlilega, gagnrýni kemur fram á þessi kaup fer borgarstjóri í mikla vörn til að réttlæta gjörðir sín- ar. Vísar því að bug að yfirverð hafi verið greitt og telur að fasteignamat eignanna sé á þessu bili. Borgarstjóri hefur varla áttað sig á því hver samn- ingsstaða borgarinnar var í þessu máli. Vissulega er landið sem verk- smiðjan stendur á hið ákjósanlegasta til byggðar og verður eflaust eftirsótt. Þetta háa verð á áburðarverksmiðj- unni mun tryggja að þær lóðir sem þar munu verða skipulagðar verða dýrar. Ef áfram heldur sem horfir mun sameiginlegur sjóður borgar- búa … springa. STEINÞÓR JÓNSSON, Hléskógum 18, Reykjavík. Uppsprengt verð sprunginnar verksmiðju Frá Steinþóri Jónssyni bakara: ÉG hef nú oft lesið yfir þau bréf sem send hafa verið til blaðsins og oft taka þau á mikilvægum málefn- um en þó svo það sem ergir mig óheyrilega þessa stundina sé kannski ekki mikilvægt í augum allra þá snertir það mig og stóran hluta af kunningjafólki mínu mjög náið. Í gegnum tíðina hefur verið kalt á milli margra MS-inga og nem- enda Verzlunarskóla Íslands en það sem ég hef að segja nú tengist þeirri áralöngu streitu ekki neitt. Ég var að lesa grein í ónefndu blaði fyrir skömmu síðan og fjallaði hún um nýtt teiknimyndasögublað sem Verzló er að gefa út, það í sjálfu sér er ekki frásögu færandi nema nafnið á þessu líklegast ágæta riti en það fékk nafngiftina Thalía. Síðastliðið skólaár hef ég verið í stjórn leik- félags Menntaskólans við Sund sem einnig heitir Thalía. Mér persónu- lega er ekkert í nöp við þá er stjórna útgáfu þessa blaðs en við hjá leikfélaginu Thalíu höfum borið þetta nafn í þónokkur ár og bið ég því nú stjórnendur teiknimynda- blaðsins að hugsa um nafngiftina sem þeir ákváðu á þetta rit sitt. Vissulega er það satt að við höfum ekki einkarétt á nafni þessu og því er bón mín ekki meint sem árás á þessa einstaklinga sem á bak við þetta standa heldur er hún einungis til að láta í ljós óánægju mína yfir þessu málefni, og veit ég að all- margir standa með mér í þessu. Þannig er að Verzló hefur ávallt verið ofarlega í sviðsljósinu þegar kemur að menntaskólamálefnum, sérstaklega vegna þess að skóla- félagið þar er betur statt fjárhags- lega en önnur skólafélög og því gæti leikfélagið Thalía horfið í skugga þessa nýja teiknimyndasögublaðs og finnst mér það vera algerlega óviðunandi. Enn fremur vil ég benda á að hin forngríska gyðja Thalía var gyðja leiklistar en ekki teiknimynda. Ég bið enn á ný Verz- linga að athuga nafn þetta áður en meira vatn rennur til sjávar. JÓN GESTUR BJÖRGVINSSON, nemandi í MS og formaður Leikfélagsins Thalíu. Thalía Frá Jóni Gesti Björgvinssyni: KIRKJUSTARF ATHYGLI foreldra er vakin á því að sunnudagaskólinn verður næstu þrjá sunnudaga ekki í Landakirkju vegna ferminga. Þess í stað verðum við með sunnudagaskóla kl. 11 á elliheim- ilinu Hraunbúðum bæði 7. og 21. apríl. Í þessum stundum taka heimilismenn Hraunbúða þátt í helgistundinni. Það er tilvalið að koma í sunnudagaskólann á Hraunbúðum og heimsækja í leiðinni ömmu og afa, langömmu eða langafa ef því er að dreifa. Sunnudaginn 14. apríl kl. 11 verður sunnudagaskólinn í Staf- kirkjunni. Þar munum við upplifa helgi hússins og enda með bless- un og lofgjörð úti á Skans- bryggju. Ég hvet foreldra til að fjölmenna í sunnudagaskólann með börnum sínum fram á vor. Senn líður að uppskeruhátíð sunnudagaskólans og verður sú stund kynnt þegar nær dregur. Með ósk um Guðs blessun, séra Bára Friðriksdóttir. Sunnudagaskólaferð úr Garðasókn í Garðabæ LAUGARDAGINN 6. apríl næst- komandi verður lokaferð sunnu- dagaskólans í Vídalínskirkju í Garðabæ, í húsdýragarðinn í Laugardal. Farið verður í rútu frá kirkjunni kl. 11 og komið til baka kl. 13. Við munum grilla í húsdýragarðinum og gera okkur glaðan dag. Mætum vel klædd og með góða skapið með í för. Leið- beinendur sunnudagaskólans og prestar Garðasóknar í Garðabæ. Sunnudagaskóli á Hraunbúðum og í Stafkirkju Morgunblaðið/Árni Sæberg Háteigskirkja. Samverustund eldri borg- ara kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustufull- trúa. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6:45– 7:05 alla virka daga nema mánudaga. Mömmumorgnar kl. 10 í umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Kirkjuskólinn í Mýrdal. Lokasamvera. Síðasta samvera vetrarins á morgun, laugardag, kl. 11.15 í Víkurskóla. Kveðj- um brúðurnar Sollu og Kalla. Fjölmenn- um. Sóknarprestur. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 14.30 helgistund á heilbrigðisstofnun Vest- mannaeyja, dagstofu 3. hæð. Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Varmárskóla kl. 13.15–14.30. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lof- gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu- fræðsla. Barna- og unglingadeildir á laugardögum. Létt hressing eftir sam- komuna. Allir velkomnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM 105,5. Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu- fræðsla kl 10. Sameiginleg guðsþjónusta allra aðventsafnaðanna á Íslandi kl 11. Cindy Tutch frá Aðalsamtökunum, predik- ar. Hlaðborð – sameiginlegt borðhald í Suðurhlíðarskóla eftir guðsþjónustuna. Síðdegissamkoma fyrir unga fólkið í Stof- unni í Suðurhlíðarskóla kl 14:30. Biblíu- rannsókn og bænastund á miðvikudags- kvöldum kl 20. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Samlestrar- og bænastund á föstudags- kvöldum kl. 20. Allir hjartanlega velkomn- ir. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Safnaðarheimili aðventista Gagnheiði 40, Selfossi. Samlestrar og bænastund á mánudags- kvöldum kl 20. Allir hjartanlega velkomnir. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl 10. Samlestrar- og bænastund er í safnaðar- heimilinu á fimmtudögum kl 17:30. Allir hjartanlega velkomnir. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Biblíurannsókn / bænastund á miðviku- dagskvöldum kl 20. Allir hjartanlega velkomnir. Safnaðarstarf Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Eggjabikarar verð kr. 2.300 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mánudag-föstudag 11-18 , laugardag 11-15 Vandaðar heimilis- og gjafavörur Kringlunni 4-12 - sími 533 1322 DUKA bláklukkuglös – munnblásin og handslípuð glös FÓLK Í FRÉTTUM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.