Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þingmenn óska eftir upplýsingum um endurbætur við Þjóðminjasafnið Miðað við að endurbótum ljúki í mars á næsta ári sama streng og sagði stöðu Þjóð- minjasafnsins gjörsamlega óviðun- andi. Þá sagði hún það til mikilla vansa að kostnaður vegna endurbót- anna væri kominn upp í tæpar 900 milljónir kr. Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, tók hins vegar fram að ekkert lægi fyrir um það að kostnaðaráætl- anir vegna endurbóta Þjóðminja- safnsins hefðu farið úr böndunum. „Og það er sjálfsagt að upplýsa menn um það, ef því er að skipta, í skýrslu,“ sagði hann. Síðan tók hann fram að verið væri að þróa hugmynd að grunnsýningu í Þjóðminjasafninu og að endanleg útfærsla á henni lægi enn ekki fyrir. Hins vegar væri ljóst að verið væri að vinna að því máli með eðlilegum hætti. Að lokum sagði hann að mikilvægt væri að vel yrði að málum staðið í tengslum við Þjóð- minjasafnið og að sú sýning sem þar yrði sett upp yrði öllum til sóma. Minna máli skipti hins vegar hvenær nákvæmlega húsið yrði tekið í notk- un. framkvæmdum hingað til; þessum drætti, þessu sleifarlagi og þessari framúrkeyrslu, auk áætlunar um það hvernig á að ljúka verkinu.“ Þegar Steingrímur talaði um fram- úrkeyrslu vísaði hann til frétta um það að kostnaður við endurbæturnar hefði aukist frá því sem upphaflega hafði verið gert ráð fyrir. Síðan sagði hann: „Það er til vansa að hafa Þjóð- minjasafnið lokað árum saman- …nema það sé sérstakt aðalsmerki ráðherra Sjálfstæðisflokksins að þannig sé.“ Sigríður Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tók í tárum tæki að Íslendingar þyrftu að horfast í augu við það að Þjóðminja- safn Íslands skyldi vera lokað fimmta sumarið í röð. „Sumarið 1998 var sýningum safnsins lokað og gerð var verk- og tímaáætlun um endurbætur húsnæð- isins sem síðan hefur verið til endur- skoðunar oftar en einu sinni,“ sagði Kolbrún og benti jafnframt á að áætl- að væri að um ein og hálf milljón ferðamanna hefði átt leið um Reykja- vík á þeim árum sem safnið hefði ver- ið lokað. Skelfilegt væri til þess að vita að safn, sem ætti að geyma minj- ar um menningu okkar frá miðöldum, skyldi vera lokað svo lengi. Fleiri þingmenn tóku undir þessa gagnrýni Kolbrúnar og sagði Stein- grímur J. Sigfússon, formaður VG, að húsnæðið væri tæplega fokhelt þrátt fyrir að endurbætur hefðu staðið yfir í fjögur til fimm ár. „Ég vil segja að það er að mínu mati algjörlega óhjá- kvæmilegt að það verði tekin saman skýrsla um stöðu þessa máls og að Alþingi fái í haust úttekt á þessum TÓMAS Ingi Olrich menntamálaráð- herra upplýsti í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að miðað væri við að endurbótum á húsnæði Þjóðminja- safns Íslands við Suðurgötu í Reykja- vík verði lokið í mars 2003. „Eftir stendur þá endanlegur frágangur á lóð hússins og uppsetning sýningar- innar í húsinu. Unnið er að útfærslu á uppsetningu sýningarinnar en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvenær því verki lýkur. Þá er verkefnið í heild sinni að sjálfsögðu háð því að Alþingi veiti til þess nægjanlegum fjárveitingum til að unnt verði að ljúka því endanlega. Samkvæmt framansögðu liggur því ekki fyrir endanleg dagsetning um opnun húss- ins,“ sagði menntamálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdótt- ur, þingmanns Vinstrihreyfingarinn- ar – græns framboðs. Kolbrún benti á að menningar- málastofnun Sameinuðu þjóðanna hefði tekið ákvörðun um það að árið 2002 yrði helgað varðveislu menning- arverðmæta og því væri þyngra en GUÐRÚN Ögmundsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður tillögu til þingsályktunar um unglinga- móttöku og getnaðarvarnir. Meg- inefni tillögunnar er að Alþingi álykti að fela heilbrigðisráðherra að hefja viðræður við heilsugæsl- una í Reykjavík um opnun ung- lingamóttöku, t.d. við eina af stöðvum hennar. Jafnframt feli ráðherra landlækni að koma á fót tilraunaverkefni innan heilsu- gæslunnar með ókeypis eða ódýr- ar getnaðarvarnir fyrir fólk á aldrinum fimmtán ára til tvítugs. Meðflutningsmenn Guðrúnar eru níu þingmenn úr öllum flokkum nema Vinstri hreyfingunni -grænu framboði. Heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis hefur fjallað um tillögu Guðrúnar og segir nefndin í áliti sínu að hún taki undir efnisatriði hennar sem og þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð með henni. Nefndin telur þó eðli- legt að tillagan verði skoðuð sam- hliða sambærilegum tillögum og leggur til að henni verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Í greinargerð tillögunnar segir að mikil umræða hafi verið á undanförnum árum um stöðu ungs fólks í samfélaginu, ábyrgð þess og hlutverk. „Afar mik- ilvægt er að bregðast við þörfinni fyrir sérstaka móttöku fyrir ungt fólk, þar sem það getur rætt sín mál við fagaðila á eigin for- sendum en ekki á forsendum hinna fullorðnu. Þegar hefur ver- ið stofnað til unglingamóttöku á Akureyri og í Hafnarfirði. Slík þjónusta er mikilvæg bæði í kyn- fræðslumálum og sértækum vandamálum ungmenna sem upp geta komið.“ Þá segir í greinargerðinni að flutningsmenn tillögunnar telji mikilvægt að gera fræðslu og ráðgjöf um getnaðarvarnir að- gengilegri fyrir ungt fólk enda sé það í samræmi við nýsamþykkta heilbrigðisáætlun til ársins 2010. Ungt fólk fái ódýrari getn- aðarvarnir TÓMAS Ingi Olrich menntamálaráð- herra sagði á Alþingi í gær að menntamálaráðuneytið myndi ekki fallast á annað en að Hafnarfjarðar- bær sæi Kvikmyndasafni Íslands fyr- ir húsnæði undir starfsemi þess. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hef- ur bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákveð- ið að rífa öll hús á norðurbakka hafn- arinnar í Hafnarfirði en þar hefur Kvikmyndasafn Íslands aðstöðu. „Ráðuneytið mun ekki geta fallist á annað en að Hafnarfjarðarbær sjái safninu fyrir húsnæði undir starf- semina og greiði fyrir þær endurbæt- ur þannig að húsakynni Kvikmynda- safnsins verði sambærileg við safnið eins og það er nú,“ sagði ráðherra. Rannveig Guðmundsdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, vakti at- hygli á þessu máli í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær og spurðist fyrir um áform menntamálaráðherra varð- andi húsnæði undir Kvikmyndasafn Íslands í ljósi þess að til stæði að rífa það húsnæði sem safnið væri nú í. „Fyrir þremur árum tók Kvik- myndasafnið húsnæði á leigu í Hafn- arfirði,“ sagði Rannveig og benti á að samkvæmt samningi við Hafnar- fjarðarbæ hefði húsaleigusamning- urinn verið óuppsegjanlegur til fimmtán ára. „Húsnæðið hefur að mörgu leyti virst ákjósanlegt og jafnvel betra en húsnæði sem mörg önnur söfn geta státað af m.a. vegna gömlu frystiklef- anna í frystihúsinu en þeir eru mjög góðir geymslustaðir fyrir gamlar filmur. Nú ber svo við að bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ákveðið að fara út í byggingar á hafnarsvæðinu þar sem safnið er til húsa og þar með verða öll húsakynni á norðurbakkan- um þar sem safnið er rifin. Þetta er mjög bagalegt þar sem safnið hefur eytt tugum milljóna við að koma sér upp sértækum geymslum. Safnið heyrir undir menntamálaráðuneytið sem sér um að greiða rekstrarkostn- að, reyndar hefur starfsmönnum ver- ið fækkað úr þremur í tvo, en gert er ráð fyrir að safnið verið að flytja í júní eða júlí,“ sagði Rannveig m.a. Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra sagði m.a. að sér fyndist ástæða til að harma þá stöðu sem nú væri komin upp varðandi Kvik- myndasafn Íslands. Minnti hann á að í gildi væri samningur við Hafnar- fjarðarbæ um flutning Kvikmynda- safns Íslands til Hafnarfjarðarbæjar sem skv. samningnum leggi safninu til ókeypis húsnæði við Strandgötu í Hafnarfirði í allt að fimmtán ár en eigi skemur en í tíu ár. „Þegar litið er á þennan samning í heild er ljóst að hann lýsir sameig- inlegum vilja og lítur á það sem sam- eiginlegt verkefni að hlúa að safninu í Hafnarfirði. Það er því fullkomlega eðlilegt að rætt sé við Hafnarfjarð- arbæ hvernig þeim anda samnings- ins verður framfylgt; það eru viðræð- ur sem eiga að fara fram milli ríkisins og Hafnafjarðarbæjar og í því skyni hefur verið skipaður vinnuhópur í ráðuneytinu sem hefur verið falið að ræða við forsvarsmenn Hafnarfjarð- arbæjar. Á þessu stigi málsins og í anda þessa samkomulags eru engin efni til þess að ætla annað en að nið- urstaða fáist í því máli,“ sagði ráð- herra. Húsnæði Kvikmyndasafns Íslands til umræðu á Alþingi Hafnarfjarðarbær finni annað húsnæði undir starfseminaHEILBRIGÐIS- og trygginganefndAlþingis tekur undir efnisatriðiþingsályktunartillögu Katrínar Fjeldsted, þingmanns Sjálfstæð- isflokksins, um átraskanir. Meg- inefni tillögunnar er að Alþingi álykti að fela heilbrigðisráðherra að sjá til þess að þverfagleg þjón- usta þeirra sem hafa sérþekkingu á átröskunum verði sameinuð þannig að bjóða megi sérhæfða meðferð fyrir átröskunarsjúklinga á öllum aldri. Auk Katrínar standa fjórtán þingmenn úr öllum þing- flokkum Alþingis að tillögunni. Heilbrigðis- og trygginganefnd hefur nú fjallað um tillöguna og segist taka undir efnisatriði henn- ar sem og þau sjónarmið sem fram komi í greinargerð með henni. Telur nefndin eðlilegt að efni til- lögunnar verði skoðað samhliða öðrum tillögum um sambærileg málefni og leggur til að henni verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Tekið vel í tillögu um átraskanir HALLDÓR Blöndal, forseti Alþing- is, tók í gær við stærðarinnar mynd að gjöf sem krakkarnir í leikskól- anum Sæborg í vesturbæ Reykja- víkur sameinuðust um að teikna af Alþingishúsinu. Halldór sagði við Morgunblaðið að það hefði verið virkilega skemmtilegt að fá þessi mynd- arlegu börn í heimsókn. Sagðist hann vera sannfærður um að í þeim byggi listamaður, myndin væri fal- leg og þar væri engu gleymt af út- liti þinghússins. Halldór sagði að myndinni yrði komið fyrir á viðeig- andi stað og sýndur fullur sómi. Að sögn Soffíu Þorsteinsdóttur, leikskólastjóra á Sæborg, er teikn- ingin afrakstur samvinnuverkefnis leikskólanna í vesturbænum, „Vesturbærinn okkar“. Lokaverk- efni krakkanna á Sæborg var að teikna Alþingishúsið. Þess má geta að sýningar á verkum leikskóla- barna í vesturbæ hefjast á morgun og standa yfir næstu tvær vikur. Krakkarnir í Sæborg gáfu mynd af Alþingi Morgunblaðið/Ásdís Halldór Blöndal, forseti Alþingis, ásamt fulltrúum barna á leikskólanum Sæborg. F.v: Teitur Helgi Skúlason, Elín Arna Kristjánsdóttir, Ragnheiður Davíðsdóttir, Anton Emil Albertsson og Sigmundur Páll Freysteinsson. NÆSTI þingfundur Alþingis verður á föstudaginn og hefst kl. tíu. Á dagskrá verða ýmis mál sem tekin verða til annarr- ar umræðu. Ekki liggur ljóst fyrir, þegar þetta er skrifað, hvenær þingfrestun verður en samkvæmt starfsáætlun þings- ins hefði hún átt að vera í gær. Þingfundur Alþingis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.