Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 63
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 63
OD
DI
H
F
I2
84
2
...vísa þér veginnwww.lmi.is
Landmælingar Íslands óska lands-
mönnum ánægjulegs ferðasumars
með nýrri, fjölbreyttari og glæsilegri
Ferðakortabók
Bókin er nú 96 síður full af fróðleik
og mikilvægum upplýsingum sem
ferðamaðurinn þarf á að halda. Nýtt
ferðakort í mælikvarðanum 1:500 000
með helstu upplýsingum um vega-
kerfi landsins
Sérkort af Mývatni, Skaftafelli,
Landmannalaugum, Þingvöllum
og Vestmannaeyjum
Nýr ferðafélagi
Ferðakortabók
• Götukort af Reykjavík, Akureyri og Seyðisfirði
• Útbreiðslusvæði útvarpsstöðva
• GSM og NMT þjónustusvæði Símans
• Friðlýst svæði og þjóðgarðar
• Þjóðminjakort, hringsjár, stjórnsýslukort
• Jarðfræði- og gróðurkort
• Nafnaskrá með yfir 3000 örnefnum
• Upplýsingar um gististaði, bensínstöðvar, söfn,
upplýsingamiðstöðvar, sundstaði og golfvelli
• Upplýsingar um þjónustu FÍB, vegalengdartafla og margt fleira
Á undanförnum ár-
um hefur sú óheilla-
vænlega þróun átt sér
stað að nemendum í
hjúkrunarfræði sem og
í sjúkraliðanámi hefur
fækkað hér á landi.
Svipað mynstur hefur
einnig sést hjá öðrum
þjóðum og víða er mik-
ill skortur á hjúkrunar-
fræðingum. En í hverju
felst hjúkrun, hvert er
starfssvið hjúkrunar-
fræðinga og hvernig er
námi í greininni háttað?
Hjúkrun er fræði-
grein sem snýst um
manneskjur, bæði heil-
brigðar og sjúkar. Hjúkrunarfræð-
ingum er ekkert mannlegt óviðkom-
andi og starf þeirra felst m.a. í því að
gera það sem sjúklingurinn mundi
gera hefði hann til þess heilsu og
getu. Starfið felst einnig í fræðslu til
fólks um þætti sem lúta að heilsu og
heilbrigði og hvernig takast má á við
erfiðleika sem tengjast sjúkdómum
eða heilsubresti. Hjúkrunarfræðing-
ar starfa m.a. í skólum, á vinnustöð-
um, öldrunarstofnunum, sjúkrahús-
um, heilsugæslustöðvum, hjá lyfja-
fyrirtækjum, í heimahúsum og víðar.
Hjúkrunarfræðingar eru fjölmenn-
asta heilbrigðisstéttin á Íslandi.
Nám í hjúkrunarfræði tekur fjög-
ur ár við hjúkrunarfræðideild Há-
skóla Íslands. Því miður eru karl-
menn í miklum minnihluta nemenda
þótt hjúkrunarfræðin sé ekki síður
fyrir karla en konur. Ég held að það
megi segja að óvíða innan háskólans
sé að finna jafnfjölbreytta námsskrá
og í hjúkrunarfræði og þar ættu
flestir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Hjúkrunarfræðingar þurfa m.a. að
hafa þekkingu á lífeðlisfræði, sálar-
fræði, örverufræði, fósturfræði og
lyfjafræði ásamt umfangsmikilli
þekkingu í hjúkrunarfræði til að öðl-
ast leyfi til starfa. Sterkur fræðilegur
bakgrunnur er grundvöllur góðrar
hjúkrunar og stöðugt er unnið að því
að styrkja þann grunn með rann-
sóknum.
Hjúkrunarfræði er sjálfstæð
fræðigrein og um hana gilda sérstök
lög. Hjúkrunarfræðingar eru því
ekki aðstoðarmenn lækna og vinna
ekki undir þeirra stjórn, eins og
margir telja, heldur eru þeir sjálf-
stæðir meðferðaraðilar sem bera
ábyrgð á gjörðum sín-
um. Læknar og hjúkr-
unarfræðingar eru hins
vegar samstarfsstéttir
sem vinna sameigin-
lega að heill og heil-
brigði fólksins í land-
inu.
En af hverju geir-
fuglar? Jú því miður er
því þannig farið að und-
anfarin ár hefur þeim
fækkað sem sækja nám
í hjúkrunarfræði hér á
landi. Haldi sú þróun
áfram blasir við
ófremdarástand í heil-
brigðismálum enda er
nú þegar skortur á
hjúkrunarfræðingum. Eflaust hafa
launakjör eitthvað að segja í þessum
málum, vaktavinna er óvinsæl, álag í
starfi er oft mikið og því miður hefur
umræða um heilbrigðismál verið á
mjög neikvæðum nótum hin síðustu
ár sem hugsanlega hefur dregið úr
áhuga fólks á störfum innan heil-
brigðiskerfisins, svo einhverjar
mögulegar orsakir séu nefndar.
Tilgangur þessarar greinar er að
vekja athygli á því hversu fjölbreytt
og krefjandi starf hjúkrun er, bæði
fyrir konur og karla, og ég vil hvetja
fólk í námshugleiðingum til að skoða
hvað nám í hjúkrunarfræði hefur upp
á að bjóða. Hægt er að nálgast upp-
lýsingar um námið á www.hi.is undir
hjúkrunarfræðideild. Þaðan er einn-
ig hægt að komast á heimasíðu nem-
endafélagsins og kynna sér hvernig
félagslífinu er háttað. Hafir þú áhuga
á fagi sem sameinar fræðimennsku
og lifandi starf þá er hjúkrun eitt-
hvað fyrir þig.
Geirfuglar
Sigríður
Zoëga
Höfundur er nemandi á 4. ári í
hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands.
Hjúkrun
Vert er að vekja
athygli á, segir Sigríður
Zoëga, hversu fjöl-
breytt og krefjandi
starf hjúkrun er, bæði
fyrir konur og karla.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111alltaf á föstudögum