Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 84

Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga STJÓRN Læknafélags Íslands hef- ur lagt til í bréfi til heilbrigðisráð- herra að komið verði á fót miðstöð fyrir neytendur svonefndra ópíata (morfínskyldra lyfja) þar sem þeir fá skyld lyf eða önnur til að mæta fíkninni og venjast af henni. Sig- urbjörn Sveinsson, formaður LÍ, segir stjórn félagsins hafa rætt mál- efni sjúklinga sem nota sterk verkjalyf til vímugjafar og málefni lækna sem kunni að sjá þeim fyrir þessum lyfjum. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra kvaðst í samtali við Morgun- blaðið fagna tillögum Læknafélags- ins. Sagðist hann eiga von á tillögum frá landlækni og Lyfjastofnun á morgun um hvernig herða mætti eftirlit. Myndi hann í framhaldi af því meta hvernig samræma mætti aðgerðir á þessu sviði. Í bréfi Læknafélagsins segir að stjórnin telji að talsverður hópur fólks sé orðinn háður þessum lyfjum og að hann fari stækkandi með hverju ári. „Stjórnin vill benda á, að erlendar rannsóknir sýna, að fíkn þessi hefst ekki við hefðbundna læknismeðferð t.d. vegna verkja nema í minnihluta tilvika. Stjórnin telur að læknar kunni að sjá þessum fíklum fyrir lyfjum að verulegu leyti. Hún vill leggja sitt af mörkum til að við því verði spornað. Jafn- framt vill hún benda á, að allar að- gerðir í því skyni þurfa að taka tillit til þeirra mörgu sjúklinga sem þurfa á þessum lyfjum að halda í lögmæt- um tilgangi og lækna, sem þá stunda,“ segir í bréfinu. Þá leggur stjórn LÍ ríka áherslu á að verði menn fíklar vegna lyfseðla á umrædd lyf muni það ekki leysa vanda þeirra. „Kann það að leiða til þess, að til verði markaður á Íslandi fyrir innflutt ópíöt, rekinn með skipulagðri glæpastarfsemi. Því verður að finna leiðir fíklunum til hjálpar um leið og saumað er að þessari lyfseðlaútgáfu,“ segir einnig. Auk miðstöðvar sem lagt er til að komið verði á fót leggur Lækna- félagið til að miðlæg verkjameðferð verði styrkt á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi þannig að læknar eigi auðveldara með að vísa þangað sjúklingum sem þurfa flókna verkja- meðferð og þeir treysta sér ekki til að meðhöndla sjálfir. Einnig er lagt til að embætti landlæknis verði eflt til að fylgjast með útgáfu lyfseðla á eftirritunarskyld lyf og að nauðsyn- legum tæknilegum útfærslum verði mætt í þeim tilgangi með endur- skoðun á lögum ef þess gerist þörf. TVEIR Vestmannaeyingar voru fluttir á sjúkrahúsið í Vest- mannaeyjum eftir að hafa verið um 30 mínútur í sjónum við Elliða- ey í gær áður en þeim var bjargað. Mennirnir voru í gúmbát ásamt tveimur öðrum á leið til eyjarinnar og voru þrír bátsverjanna, sem eru í veiðifélagi Elliðaeyjar, á leið í vorverkin. Bátnum hvolfdi fyrir ut- an eyna skömmu eftir kl. 16 og tókst tveimur bátsverjum að kom- ast í land en hinum tveimur var bjargað úr sjónum af áhöfn björg- unarbáts Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Þór frá Vest- mannaeyjum, 14 mínútum eftir út- kall. Ívar Atlason varð fyrir tilviljun vitni að óhappinu þar sem hann var staddur við útsýnispall austur af Hrauni í Heimaey og hringdi í Neyðarlínuna. „Þegar ég kem á pallinn þá er veiðifélagi minn, Þór- arinn Sigurðsson, að fylgjast með þeim úr kíki. Þeir ætluðu að lenda austan megin á eynni, sem sést ekki frá útsýnispallinum, en voru komnir vestan megin við hana þannig að við gátum fylgst með þeim í kíki. Allt í einu sjáum við að báturinn er á hvolfi og menn eru í sjónum. Við þorðum ekki annað en hringja í Neyðarlínuna og láta ræsa út Björgunarfélagið og þegar það kom á staðinn voru enn tveir menn í sjónum en tveir höfðu kom- ist upp í eyna. Einn var víst orðinn töluvert þrekaður þannig að það mátti litlu muna.“ Þeir sem var bjargað úr sjónum voru strax fluttir í land en félagar þeirra sem komust til Elliðaeyjar gátu gefið merki um að ástand þeirra væri í lagi. Náð var í þá skömmu síðar og komið með þá til Heimaeyjar kl. 16.30. Fjórir menn hætt komnir við Elliðaey – tveimur bjargað úr sjónum „Mátti litlu muna“ Morgunblaðið/Sigurgeir Skipbrotsmönnunum mun ekki hafa orðið alvarlega meint af, en einn þeirra var orðinn mjög þrekaður. Læknafélag Íslands sendir heilbrigðisráðherra bréf um eftirritunarskyld lyf Vill miðstöð fyrir neyt- endur morfínskyldra lyfja segir að exi hafi verið notuð sem vopn í þremur tilfellum þetta kvöld. Fyrir utan íslensku hjónin í Ange- red var ráðist á mann og konu með exi um klukkustund fyrr, en fólkið var í útilegu í Askim. Var það flutt á sjúkrahús en gat farið þaðan sömu nótt. Hefur lögreglan gripið mann sem grunaður er um verknaðinn. Þá var manni, sem var á kvöld- göngu, ógnað með exi. Hafði hann séð til manns vera að höggva í tré og spurt hverju sætti. Skipti þá engum togum að sá með exina réðst að honum en tókst ekki að höggva til hans. Var maðurinn með öxina handtekinn skömmu síðar en sleppt eftir yfirheyrslu. fólkinu með exinni með þeim afleið- ingum að maðurinn hlaut áverka á höfði og á handlegg en konan meiddist í andliti auk þess sem tönn var slegin úr henni. Hjónin voru flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús með töluverða áverka en eru ekki í lífshættu og voru útskrif- uð í gær. Þjófarnir höfðu á brott með sér peninga, að sögn lögreglu. Tæknideild lögreglunnar í Gautaborg hefur girt húsið af og rannsakar nú hvort þar megi finna einhverjar vísbendingar um hverjir voru þarna á ferð, en málið er í höndum rannsóknarlögreglunnar í Gautaborg. Á vefsíðum Gautaborgarpóstsins ÞRÍR menn vopnaðir exi réðust á þriðjudagskvöld inn á heimili ís- lenskra hjóna sem búsett eru í Gautaborg. Mennirnir veittu hjón- unum áverka með exinni og höfðu á brott með sér fjármuni að sögn lög- reglunnar í Gautaborg. Maðurinn og konan, sem bæði eru 55 ára að aldri, eru búsett í rað- húsahverfi sem kallast Angered. Að sögn lögreglunnar ruddust ofbeld- ismennirnir inn á heimili fólksins þegar klukkan var kortér gengin í tólf að staðartíma. Samkvæmt upp- lýsingum blaðsins höfðu þeir bank- að á dyr eftir að hjónin voru gengin til náða og fór maðurinn þá til dyra. Réðust innrásarmennirnir að Þjófar ruddust inn á heimili Íslendinga í Gautaborg Réðust að hjónum með exi MORGUNBLAÐIÐ kemur út á morgun, föstudaginn 26. apríl. Er það liður í að fjölga útgáfu- dögum blaðsins og kemur blaðið einnig út fimmtudaginn 2. maí, föstudaginn 10. maí og þriðju- dag eftir hvítasunnu, 21. maí. Í dag, sumardaginn fyrsta, verður venjuleg þjónusta á Fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. GENGI krónunnar styrktist um 0,72% í gær, en viðskipti á milli- bankamarkaði voru um 14 milljarðar króna, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Landsbankans. Gengisvísitala krónunnar fór lægst niður í 128,75 stig, en endaði í 130,80 stigum. Þegar gengi krónunnar tók að falla fyrir einu ári stóð gengisvísi- tala í 123 stigum. Hún fór hins vegar hæst í um 150 stig í desember í fyrra. Gengi Bandaríkjadals er nú 94,43 krónur og hefur krónan ekki staðið betur gagnvart dollar í heilt ár. Gengi evrunnar er nú skráð 84,23 krónur. Krónan ekki sterk- ari í heilt ár FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar í Reykjavík handtók í gærkvöldi tvo menn á fertugsaldri sem hafa játað aðild að innflutningi á 30 kílóum af hassi til landsins og færði þá í gæslu- varðhald. Þessir sömu menn voru leystir úr haldi 19. apríl sl. eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur varð ekki við kröfu lögreglunnar um framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir mönnunum. Þessum úrskurðum hér- aðsdóms hnekkti Hæstiréttur í gær og úrskurðaði mennina í gæsluvarð- hald til 16. maí nk. Lögreglustjórinn í Reykjavík fór á sínum tíma fram á framlengingu á gæsluvarðhaldinu á grundvelli þess að brotið væri svo alvarlegt að al- mannahagsmunir krefðust þess að þeir sætu í gæsluvarðhaldi þar til dómur félli en brot mannanna getur varðað allt að 12 ára fangelsi. Hér- aðsdómur féllst ekki á kröfu um framlengt gæsluvarðhald, en Hæsti- réttur tók undir það með lögreglu að eðli brotsins og umfang væri slíkt að gæsluvarðhald væri nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Aftur í gæsluvarðhald
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.