Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 26
ERLENT 26 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍSKIR kardínálar, sem rætt hafa við Jóhannes Pál páfa undanfarna tvo daga í Páfagarði, hafa samþykkt að taka upp þá stefnu, að hver sá prestur er verði uppvís að kynferðislegri misþyrmingu skuli tafarlaust láta af embætti. Framvegis muni kirkjunnar þjónar því ekki fá „annað tækifæri“ að því er Theo- dore McCarrick, erkibiskup í Washington, greindi frá í gær. McCarrick sagði að enn væri óvíst hvort þessi stefna yrði aft- urvirk, þ.e. yrði látin gilda um mál sem þegar væri orðið uppvíst um. Kardínálarnir hugðust birta lokayfirlýsingu sína í gærkvöld. McCarrick sagði að ekki léki vafi á hver hefði verið afstaða páfa er hann ávarpaði kardínál- ana á þriðjudaginn og sagði m.a. að innan kirkjunnar væri ekkert rúm fyrir menn sem ynnu ungu fólki mein. Páfi hefði ítrekað þessa afstöðu sína er hann snæddi hádegisverð með banda- rísku sendinefndinni í gær. Fjöldi hneykslismála er tengj- ast rómversk-kaþólsku kirkjunni í Bandaríkjunum hefur komið upp undanfarið. Hefur þess m.a. verið krafist að sumir æðstu menn kirkjunnar segi af sér vegna þess, að þeir hafi reynt að hylma yfir ítrekuð kynferð- isafbrot presta gagnvart börnum og unglingum. Prestar verði sviptir embætti Reuters Bandaríski kardínálinn Theodore McCarrick ræðir við fréttamenn við Péturskirkjuna í Páfagarði eftir viðræður við Jóhannes Pál páfa í gær. Vatíkaninu. AP. BRESKA lögreglan réðst í gær til atlögu gegn barnaníðingum, sem stundað hafa starfsemi sína á Netinu. Voru tuttugu og fimm menn handteknir víðs vegar á Bretlandi og ýmis tölvubúnaður gerður upptækar, en talið er að á tölvum hinna meintu barnaníð- inga megi finna myndir er sýna kynferðislegt ofbeldi gegn börn- um. Um er að ræða stærstu sam- hæfðu aðgerðir sinnar tegundar sem breska lögreglan hefur efnt til. Alls gerði lögreglan húsleit á 75 stöðum í Englandi, Skotlandi, Wales og á Norður-Írlandi. Voru sex menn handteknir í London, tólf á öðrum stöðum í Englandi og sjö í Wales. Meðal hinna handteknu var fólk sem starfar við umönnun, kennslu og hjúkr- un. Þá var fimmtán ára gamall drengur handtekinn. Lögreglan upplýsti að fylgst hefði verið með fólki í sex mán- uði áður en gripið var til aðgerð- anna í gær. Meðal annars notaði lögregla ýmiss konar búnað til þess að rekja tölvur, þar sem notendur stunduðu spjallrásir er snerust um barnaklám. Telur lögreglan að margir af þeim sem áttu þátt í að miðla klámefni um Netið hafi einnig stundað kyn- ferðisofbeldi gegn börnum. Mikil fjölgun barnaklámsmynda Terry Jones, lögreglufulltrúi á Manchester-svæðinu í Englandi, sagði að lögreglan væri fullfær um að koma höndum yfir barna- níðinga, sem noti Netið, þrátt fyrir að barnaníðingar beiti ýms- um aðferðum við dreifingu mynda og sá fjöldi sem er í um- ferð aukist stöðugt. Hann benti á máli sínu til stuðnings að lög- reglan hefði komist yfir 12 myndir árið 1994 en þær hafi verið orðnar rúmlega 40 þúsund árið 1999. Sagði Jones að fjöldinn væri orðinn yfirgengilegur. „Við erum einfaldlega hættir að telja.“ Atlaga gegn barnaníðingum London. AFP. JORGE Batlle, forseti Uruguays, tilkynnti í fyrra- kvöld, að stjórnvöld í landinu hefðu ákveðið að slíta stjórnmálasambandi við Kúbu. Sagði hann ástæð- una vera móðgandi yfirlýsingar Fidels Castros, forseta Kúbu, en hann kallaði Batlle „Júdas“ fyrir að hafa staðið að ályktun, sem fordæmdi ástand mannréttindamála á Kúbu á fundi mannréttinda- nefndar Sameinuðu þjóðanna í Genf í síðustu viku. Ályktunin var samþykkt með 23 atkvæðum gegn 21 en níu sátu hjá. Studdu hana næstum öll ríki Rómönsku-Ameríku en þar var skorað á Kúbustjórn að tryggja landsmönnum meiri borg- araleg og stjórnmálaleg réttindi. Var hún einnig hvött til að leyfa fulltrúum Sameinuðu þjóðanna að koma til landsins en Kúbustjórn hafnar því. Castro kallaði raunar ekki aðeins Batlle „Júdas“ vegna þessarar samþykktar, heldur alla leiðtoga þeirra ríkja í Rómönsku-Ameríku, sem hana studdu. Batlle sagði óþolandi að sitja undir svívirðingum Castros, sem sagði meðal annars um stjórnmálin í Ururguay, að þau væru „fyrirlitleg“ og Felipe Perez Roque, utanríkisráðherra Kúbu, sagði, að Uruguaystjórn væri handbendi Bandaríkjastjórn- ar. „Viðbrögð okkar eru mjög einföld,“ sagði Batlle í fyrrakvöld. „Það er ekkert, sem mælir lengur með stjórnmálasambandi við Kúbu.“ Sakar forseta Mexíkó um lygar Alvarleg snurða hefur einnig hlaupið á þráðinn í samskiptum milli Kúbu og Mexíkó en þau hafa verið mjög náin hingað til. Castro hefur birt op- inberlega hljóðupptöku, sem hann segir sýna, að Vicente Fox, forseti Mexíkó, sé lygari. Á upptökunni biður Fox Castro að yfirgefa þró- unarráðstefnu SÞ í Monterrey í Mexíkó í síðasta mánuði áður en George W. Bush Bandaríkjafor- seti komi þangað. Castro gerði það en mexíkanskir embættismenn hafa neitað því harðlega, að Mexíkóstjórn hafi átt einhvern hlut í því. Uruguay rýfur stjórn- málasamband við Kúbu Samskipti Mexíkó og Kúbu einnig mjög slæm Montevideo. AP, AFP. SPÁNSKA lögreglan handtók í gær- morgun Spánverja af sýrlenskum ættum, sem hún segir hafa verið einn höfuðpauranna í að fjármagna hryðjuverkastarfsemi al-Qaeda-sam- takanna í ýmsum löndum, þar á meðal í Bandaríkjunum. Muhammed Galeb Kalaje Zouaydi, öðru nafni „Abu Talha“, sá meðal ann- ars um að fjármagna „innsta hring- inn“ undir stjórn Mohameds Atta, foringja hryðjuverkamannanna, sem stóðu að árásunum í Bandaríkjunum 11. september sl., að því er fram kom í tilkynningu lögreglunnar. Zouaydi var handtekinn árla morg- uns og hafa verið birtar myndir af því er hann var leiddur á brott. „Fanginn sá um að senda mikið fé til hryðjuverkahópa, íslamskra öfga- manna í Bandaríkjunum, Sádi-Arab- íu, Belgíu, Kína, Tyrklandi, Jórdaníu, Sýrlandi, Palestínu og víðar,“ sagði í tilkynningunni og þar kom fram, að Zouaydi hefði notað byggingarfyrir- tæki sem skálkaskjól fyrir fjármála- umsvifin. Spánska lögreglan nefndi tvo al- Qaeda-hópa, sem fengu fé frá Zouaydi: Annar hópurinn var undir stjórn Imads Yarkas en hann var handtek- inn í nóvember ásamt 10 félögum sín- um. Hann er sakaður um að hafa fengið menn til liðs við al-Qaeda og tekið þátt í að undirbúa hryðjuverkin í Bandaríkjunum. Hinn var eða er undir stjórn Mamouns Darkazanlis, sýrlensks inn- og útflytjanda í Ham- borg í Þýskalandi, en hann er sagður hafa verið í nánum tengslum við hryðjuverkahóp Mohameds Atta. Þýsk stjórnvöld telja sig þó ekki hafa nægar sannanir gegn honum. Um miðjan þennan mánuð var Als- írmaðurinn Ahmed Brahim handtek- inn í Barcelona en talið er, að hann hafi verið helsti fjármálastjóri al- Qaeda á Spáni. Rak hann ýmis fyr- irtæki í borginni og á Mallorca og er talinn hafa fjármagnað árásirnar á bandarísku sendiráðin í Kenýa og Tanzaníu í ágúst 1998. Alls hafa 20 ísl- amskir öfgamenn verið handteknir á Spáni eftir 11. september en nokkrum verið sleppt. Háttsettur al-Qaeda-liði handtekinn á Spáni Talinn hafa kom- ið að fjármögnun hryðjuverka AP Lögreglumaður ásamt Zouaydi, sem talið er að hafi fjármagnað hryðjuverk víða um heim. Madrid. AP, AFP. EINN maður beið bana og yfir eitt hundrað særðust í borginni Gnjilane í Suðaustur-Kosovo í gær þegar jarðskjálfti reið yfir þennan hluta Balkanskagans. Skjálftinn mældist 5,4 á Richter og fannst einnig í norð- urhluta Makedóníu, sem og víða í Serbíu. Talsverðar skemmdir urðu í mið- borg Gnjilane við skjálftann í gær. Jón Guðni Kristjánsson, sem starfar í Gnjilane, á vegum Íslensku friðar- gæslunnar fyrir Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu (ÖSE), sagði í samtali við Morgunblaðið að menn hefðu haldið sig úti við í gær, af ótta við að annan skjálfta. Einn dó í skjálfta í Kosovo Gnjilane. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.