Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 65
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 65
SJÖ nýir vagnar hjá Strætó bs.
voru nýlega teknir í notkun eftir
formlega afhendingu vagnanna,
sem keyptir voru af Heklu hf.
Vagnarnir eru af gerðinni Scania
og eru svokallaðir lággólfsvagnar
með „hneigingu“ til að lágmarka
fyrirhöfn farþega við að stíga upp í
þá.
Vagnarnir eru 5 cm breiðari en
þeir sem fyrir eru í flota Strætó bs.
og hærra er til lofts í þeim en öðr-
um vögnum. Nýju vagnarnir sjö eru
hluti af alls sautján vögnum sem
Strætó kaupir af Heklu og verða
hinir tíu afhentir á næstu tveimur
árum. Hver vagn kostar um 20
milljónir króna.
Morgunblaðið/Golli
Vagnarnir nýju tilbúnir á götuna. Frá vinstri er Skúli Bjarnason, stjórn-
arformaður Strætó bs., Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu hf., Ásgeir Ei-
ríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs., og Ásmundur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri véladeildar Heklu hf.
Nýir vagnar hjá Strætó bs.
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur í
nýlegu áliti að „verulegur annmarki“
hafi verið á meðferð landbúnaðar-
ráðuneytisins þegar það á síðasta ári
hafnaði beiðni ábúanda á jörð í eigu
Landgræðslu ríkisins að neyta kaup-
réttar samkvæmt 38. gr. jarðalaga.
Telur umboðsmaður að ráðuneytið
hafi ekki fullnægt rannsóknarskyldu
sinni í málinu, sem kveðið er á um í
stjórnsýslulögum, en það byggði
synjunina að mestu á umsögn Land-
græðslunnar og aflaði ekki sjálft upp-
lýsinga um ástand jarðarinnar. Beinir
umboðsmaður þeim tilmælum til
ráðuneytisins að taka mál ábúandans
til meðferðar að nýju, óski hann þess.
Guðmundur B. Helgason, ráðu-
neytisstjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu, sagði við Morgunblaðið að ráðu-
neytið meðtæki álit umboðsmanns.
Það myndi taka málið upp að nýju og
fara eftir þeim sjónarmiðum sem
fram kæmu í álitinu, kæmi fram ósk
þessa efnis. Guðmundur sagði að sú
ósk hefði ekki enn borist. Að öðru
leyti vildi hann ekki tjá sig um efnis-
atriði í álitinu sem sneru að ráðuneyt-
inu.
Ábúandinn, kona sem hefur búið á
jörðinni frá árinu 1938, kvartaði til
umboðsmanns í ágúst sl. og taldi að
engar sjálfstæðar röksemdir hefðu
komið fram í synjun ráðuneytisins, en
hún óskaði eftir því sl. vor að fá að
kaupa jörðina af ríkinu. Hafði hún til
þess meðmæli viðkomandi sveitar-
stjórnar og jarðanefndar, þar sem
sagði m.a. í umsögn þeirra að hún
hefði „setið jörðina vel“. Fór hún fram
á kaupin samkvæmt 38. gr. jarðalaga
sem veitir ábúendum ríkisjarða kaup-
rétt hafi þeir búið a.m.k. tíu ár á jörð-
inni og fengið tilskilin meðmæli sveit-
arstjórnar og jarðanefndar.
Eiginmaður konunnar hóf búskap
á jörðinni árið 1936 en eftir að hann
lést árið 1979 tók hún við ábúðarrétti
á jörðinni. Hafði Sandgræðsla Ís-
lands, síðar Landgræðslan, átt jörð-
ina frá árinu 1924 en hún var keypt
vegna uppblásturs þar og sandfoks.
Landgræðslan lagðist
gegn sölunni
Í bréfi landbúnaðarráðuneytisins
til konunnar, þar sem beiðni hennar
um að kaupa er hafnað, er á það bent
að Landgræðslan fari með eignarhald
á jörðinni. Vísað er til þess að Land-
græðslan leggist gegn því að jörðin sé
seld, uppgræðslu hennar sé ekki lokið
og talið að einungis afmörkuð svæði
þoli einhverja búfjárbeit þrátt fyrir að
miklum fjármunum hafi verið varið til
uppgræðslustarfa á jörðinni, einkum
á síðari árum.
Í áliti sínu bendir umboðsmaður
Alþingis á að kaupréttur sé fjárhags-
lega mikilvæg réttindi og gera þurfi
auknar kröfur á stjórnvöld þegar þau
synja ábúanda um að neyta þess rétt-
ar. Bendir umboðsmaður m.a. á að
konan hafi ekki fengið að vita að
Landgræðslunni hafi verið tilkynnt
um kaupbeiðni hennar eða að stofn-
unin hafi sent ráðuneytinu umsögn af
því tilefni. Umboðsmaður segir að
umsögnin hafi verið ábúandanum í
óhag og af skýringum ráðuneytisins
megi ráða að hún hafi haft verulega
þýðingu fyrir afstöðu þess. Er það
niðurstaða umboðsmanns að undan-
tekningarheimildir stjórnsýslulaga
hefðu ekki átt við, enda hefðu í um-
sögn Landgræðslunnar falist upplýs-
ingar sem hafi að nokkru leyti verið
matskenndar og beinst að ástandi og
aðstæðum á jörðinni.
Umboðsmaður segir að landbúnað-
arráðuneytinu hafi verið skylt sam-
kvæmt lögum að veita konunni kost á
því að tjá sig um umsögn Land-
græðslunnar áður en það tók ákvörð-
un um að hafna beiðni hennar.
Annmarki á með-
ferð ráðuneytisins
Umboðsmaður Alþingis um synjun kaupréttar á ríkisjörð
Á FUNDI sjálfstæðisfélaganna á
Akranesi laugardaginn 13. apríl sl.
var framboðslisti flokksins til sveit-
arstjórnarkosninga 25. maí sam-
þykktur einróma.
Listann skipa: 1. Gunnar Sigurðs-
son framkvæmdastjóri. 2. Guðrún
Elsa Gunnarsdóttir iðnrekstrar-
fræðingur. 3. Jón Gunnlaugsson um-
dæmisstjóri. 4. Þórður Þórðarson
bifreiðastjóri. 5. Sæmundur Víg-
lundsson byggingatæknifræðingur.
6. Sævar Haukdal framkvæmda-
stjóri. 7. Hallveig Skúladóttir hjúkr-
unarfræðingur. 8. Eydís Aðalbjörns-
dóttir landfræðingur/kennari. 9.
Lárus Ársælsson verkfræðingur. 10.
Kristjana Guðjónsdóttir nemi. 11.
Egill Ragnarsson veitingamaður. 12.
Ingþór Bergmann Þórhallsson pípu-
lagningamaður. 13. Ragnheiður
Ólafsdóttir deildarstjóri. 14. Eiður
Ólafsson skipstjóri. 15. Elín Sigur-
björnsdóttir hjúkrunarfræðingur.
16. Elínbjörg Magnúsdóttir skrif-
stofumaður. 17. Ingibjörg Ólafsdótt-
ir húsfreyja. 18. Guðjón Guðmunds-
son alþingismaður.
Listi Sjálfstæðis-
flokksins á Akranesi
ARNAR Árnason, bóndi og tækni-
fræðingur, skipar efsta sætið á H-
lista fyrir sveitarstjórnakosningarn-
ar í Eyjafjarðarsveit í vor.
Önnur efstu sæti listans skipa: 2.
Valgerður Jónsdóttir garðyrkju-
tæknifræðingur, 3. Einar Gíslason
kennari, 4. Eiríkur Hreiðarsson
garðyrkjubóndi, 5. Reynir Björg-
vinsson bóndi og húsasmíðameistari,
6. Brynjar Skúlason skógfræðingur,
7. Rannveig Vernharðsdóttir hús-
móðir, 8. Eygló Daníelsdóttir iðju-
þjálfi, 9. Sigurgeir Pálsson bóndi.
Arnar efstur á H-lista
FERÐAFÉLAG Íslands gengst fyr-
ir jarðfræðiferð í Húshólma við
Krísuvík í dag, sumardaginn fyrsta.
Leiðin er nokkuð auðveld yfirferðar
og stutt í fallega stórgrýtisfjöru.
Í Húshólma er talið að á fyrrihluta
11. aldar hafi gosið. Í Húshólma eru
bæjarrústir og garðar í neðri hluta
Ögmundarhrauns á Reykjanesi.
Fararstjóri verður Haukur Jóhann-
esson. Verð kr 1.700/2.000. Brottför
frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í
Mörkinni 6 og austan við kirkjugarð-
inn í Hafnarfirði.
Jarðfræðiferð í Húshólma
SUMAR- OG ORLOFSHÚS
Sumarbústaður til sölu
á einum besta staðnum við Skorradalsvatn.
Frábært útsýni og skógivaxin lóð.
Innbú fylgir. Laus strax.
Upplýsingar í símum 437 0063 og 899 6197.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Hrannarstígur 4, efri hæð, Grundarfirði, þingl. eig. Friðrik Rúnar
Friðriksson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 30. apríl
2002 kl. 13.30.
Sýslumaður Snæfellinga,
24. apríl 2002
Ólafur K. Ólafsson.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum
1, Selfossi, þriðjudaginn 30. apríl 2002 kl. 10.00, á eftirfarandi
eignum:
Austurmörk 18, Hveragerði. Fastanr. 220-9853, þingl. eig. Sigurður
Sigurdórsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóðurinn Framsýn.
Brautartunga, Stokkseyri. Landnúmer 165537, þingl. eig. Sævar
Jóelsson, gerðarbeiðandi Áburðarverksmiðjan hf.
Eyrargata 53, Eyrarbakka, þingl. eig. Ísfold ehf., gerðarbeiðandi Sveit-
arfélagið Árborg.
Hásteinsvegur 17, Stokkseyri. Fastanr. 219-9760, þingl. eig. Guðlaugur
Magnússon og Halldóra Brandsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalána-
sjóður og Merlin A/S, Lille Tornbjerg Vej 30, 05 5220 Odens.
Hestur lóð 64, Grímsnes- og Grafningshreppi. Fastanr. 220-7411,
þingl. eig. Bjarni Halldórsson, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingar-
bankinn hf.
Lóð úr landi Ingólfshvols, Ölfusi, matshl. 010107 (hús A), og matshl.
010108 (hús C), ásamt 15% hlutdeild í borholu í landi Sandhóls, þingl.
eig. Gerpla ehf., gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf.
Oddabraut 10, Þorlákshöfn. Fastanr. 221-2574, þingl. eig. Magnús
Georg Margeirsson og Wichuda Buddeekham, gerðarbeiðandi Íbúða-
lánasjóður.
Öndverðarnes 2, Grímsnes- og Grafningshreppi. Fastanr. 220-8648,
þingl. eig. Vilhjálmur Knudsen, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
24. apríl 2002.
ÝMISLEGT
Veitingahúsatæki óskast
Kjúklingagrill, djúpsteikningarpottur, hitaskáp-
ur, hitaborð, grænmetiskvörn, samlokugrill,
hrærivél, þrýstidjúpsteikningarpottur fyrir
kjúklingabita, sjóðsvélar og ýmislegt annað
sem við kemur veitingarekstri.
Uppl. veitir Gunnar í síma 690 5000.
S M Á A U G L Ý S I N G A RI
FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1 1834268
I.O.O.F. 12 1834268½ Fl.
MÍMIR 6002042619 I Lf.
Í kvöld kl. 20.00:
Sumarvaka. Brigader Ingibjörg
Jónsdóttir stjórnar.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20.00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Ræðum. G. Theodór Birgisson.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is .
Fagnið sumri með FÍ 25. apríl,
sumardaginn fyrsta. Hús-
hólmi við Krísuvík. Ekin Krísu-
víkurleið og gengið frá vegi
niður að Húshólma, þar sem
finna má mannvistarminjar, ein-
ar þær elstu á landinu, bæjar-
rústir og garðhleðslur. Brottför
frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í
Mörkinni 6. Fararstjóri Haukur
Jóhannesson. Verð 1.700/2.000.
Sunnudagur 28. apríl, Hafn-
arfjall. Gengið verður á Hafnar-
fjall og er það um 4—5 tíma
ganga. Verð 1.800/2.100.
Sjálfboðaliðar geta komist að
við skálavörslu í Hvítárnesi,
Breiðuvík og Húsavík. Áhuga-
samir hafi samband við skrif-
stofu FÍ, s. 568 2533 v. Hvítár-
ness, en í s. 471 2000 v. Breiðu-
víkur og Húsavíkur.
Í kvöld kl. 21 heldur Anna S.
Bjarnadóttir erindi: „Sjálfsþekk-
ing” í húsi félagsins, Ingólfs-
stræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
en kl. 15.30 Halldóra Gunnars-
dóttir „Upplestur“
Á sunnudögum kl. 17-18 er
hugleiðingarstund með leiðbein-
ingum fyrir almenning.
Á fimmtudögum kl. 16.30-
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Guðspekifélagið hvetur til sam-
anburðar trúarbragða, heim-
speki og náttúruvísinda. Félagar
njóta algers skoðanafrelsis.
www.gudspekifelagid.is
28. apríl
Skemmtileg dagsferð um Reyni-
vallaháls að Fossá í Hvalfirði.
Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Verð kr
1.500 fyrir félaga, 1.700 fyrir
aðra. Fararstjóri Hallgrímur
Kristinsson.
1. maí
Helgafell sunnan Hafnarfjarðar
(Útivistarræktin). Brottför á eigin
bílum kl. 18:30 frá skrifstofu Úti-
vistar. Ekkert þátttökugjald.
5. maí
Reykjavegur — Þorbjarnarfell —
Méltunnuklif (R-2).
Önnur ferð af átta um Reykja-
veginn. Nú verður gengið Þor-
bjarnarfell — Méltunnuklif. Ferð
frá BSÍ kl. 10:30. Verð kr. 1.500
fyrir félaga, 1.700 fyrir aðra.
5. maí
Skemmtileg ganga um Skógfella-
veg. Brottför frá BSÍ kl. 10:30.
6. maí
Myndakvöld mánudagskvöldið
6. maí kl. 20:00 í Húnabúð, Skeif-
unni 11. Skúli Sveinsson sýnir
myndir frá Borgarfirði eystra um
Víknaslóðir o.fl.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNA
mbl.is