Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 16
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NORÐLENSKA náði besta árangr-
inum í árlegri Fagkeppni Meist-
arafélags kjötiðnaðarmanna, sem
fram fór í tengslum við sýninguna
Matur 2002.
Alls hlaut Norðlenska 18 af 28
gullverðlaunum Fagkeppninnar,
en til að vinna gullverðlaun þarf
innsend kjötvara að fá 49 til 50 stig
af 50 mögulegum. Auk þessa höfn-
uðu kjötiðnaðarmenn frá Norð-
lenska í þremur efstu sætunum í
keppninni um kjötmeistara ársins,
en þá nafnbót hlýtur sá kjötiðn-
aðarmaður sem fær flest stig úr öll-
um flokkum.
Arnar Guðmundsson varð kjöt-
meistari ársins með 294 stig og
náði hann bestum árangri í tveimur
flokkum af sex fyrir hrátt hangi-
læri og lambasviðasultu. Einnig
hlaut hann lambaorðuna, sem veitt
er þeim einstaklingi sem fær flest
stig fyrir innsendar afurðir úr
lambakjöti.
Í öðru sæti varð Elvar Ósk-
arsson, með 293 stig og Kristján R.
Arnarson hafnaði í því þriðja með
283 stig.
Loks má geta þess að Norðlenska
náði bestum árangri í fjórum af sex
flokkum keppninnar, m.a. fyrir
lambahamborgarhrygg. Þá unnu
kjötiðnaðarmenn fyrirtækisins þre-
faldan sigur í flokki soðinna matar-
og áleggspylsa, allir fyrir Goða vín-
arpylsur, en dómnefnd gat ekki
gert upp á milli þeirra.
Yfirdómari var Jens Munch, kjöt-
iðnaðarmeistari, verslunar- og
kjötvinnslueigandi í Skage.
Fagkeppni Meistarafélags kjötiðnaðarmanna haldin um síðustu helgi
Norð-
lenska náði
besta ár-
angrinum
Morgunblaðið/Kristján
Hlaðnir verðlaunum, f.v., Rögnvaldur Óli Pálmason, Óskar Erlendsson, Arnar Guðmundsson, kjötmeistari ársins,
Magnús Sigurólason, Kristján Arnarson, Elvar Óskarsson, kjötmeistari ársins 1998 og 2000, og Jón Knútsson.
DAGUR umhverfisins er í dag,
fimmtudaginn 25. apríl á fæðingar-
degi Sveins Pálssonar, fyrsta ís-
lenska náttúrufræðingsins.
Garðyrkjufræðingar verða til ráð-
gjafar um vorverkin á Glerártorgi
frá kl. 13 til 16 og á sama tíma verður
opið hús í ræktunarstöðinni ofan við
Gróðrarstöðina á Krókeyri.
Vor í skógi, hugað að fuglum og
trjám er yfirskrift gönguferðar um
Kjarnaskóg sem hefst kl. 13 við
Kjarnakot. Stutt ganga með leiðsögn
um neðsta hluta Glerárgils verður
farin kl. 16 og á eftir mun jarðfræð-
ingur útskýra svonefnt „rautt milli-
lag“ við Borgarbraut.
Gönguferðir
á degi um-
hverfisins
JÓNA Þrúður Jónatansdóttir, ein
þeirra sem sagt var upp störfum
hjá Símanum á Akureyri í liðinni
viku, segir að á einu ári hafi starfs-
fólki fyrirtækisins á Akureyri fækk-
að um 11. Hún segir að ástæður
uppsagnanna á Akureyri hafi verið
taprekstur á deildinni og það sé
sorgleg staðreynd í ljósi yfirlýsinga
um að markaðssetning fyrirtækis-
ins hafi tekist með ágætum. Full-
yrðir Jóna að það séu ekki starfs-
mennirnir á lágu laununum sem séu
að sliga fyrirtækið, fremur séu það
of margir, of dýrir og misvirtrir
stjórnendur sem séu að éta fyrir-
tækið upp innan frá.
„Það eru víða smákóngar, en
þessar uppsagnir fólks sem veitir
þjónustu skaðar fyrirtækið. Góð
þjónusta er grundvöllur fyrirtæk-
isins,“ sagði Jóna og taldi að þjón-
ustan við viðskiptavini um austan-
vert Norðurland myndi versna í
kjölfar þessara aðgerða.
Jóna sagði að sá stórfelldi nið-
urskurður sem verið hefði hjá Sím-
anum á Akureyri gengi þvert á
stefnu ríkisstjórnarinnar um að
fjölga störfum á landsbyggðinni.
Hún sagði atvinnuástandið á Ak-
ureyri brothætt um þessar mundir
og mætti ekki við því að störfum
fækkaði. Benti hún á að fyrir um
þremur árum þegar störfum hjá
118 var fjölgað nyrðra hefðu stöðu-
gildin verið 37 talsins. Svo væri enn,
ekkert hefði bæst við þrátt fyrir
áform um annað. Starfsmenn hafi
margoft bent á að unnt sé að fjölga
störfum á Akureyri á einfaldan og
ódýran hátt, m.a. með því að því að
flytja Þjónustuver Símans og auka
svörun varðandi innheimtu og
reikninga.
Jóna kvaðst í sjálfu sér ekki vilja
gera athugasemdir við að uppsagn-
irnar, einungis benda á að illa hafi
verið að þeim staðið. Sér virtist sem
mjög skorti á að stjórnendur
byggju yfir mannvirðingu, hin
harða peninga- og gróðahyggja
væri allsráðandi. Hún telur ekki úr
vegi að áhersla verði lögð á mann-
gildishugsjónir í skólakerfinu, allt
frá leikskólum og upp á háskólastig.
Störfum hjá Símanum á Akureyri fækkað um 11 á einu ári
Of margir og dýrir stjórn-
endur éta fyrirtækið upp
VERKSAMNINGUR milli stjórnar
Rekstrarfélagsins Lundar og verk-
takafyrirtækjanna Árfells á Dalvík
og Viðars í Reykjavík um smíði
nýrra nemendagarða fyrir nem-
endur framhaldsskólanna á Ak-
ureyri var undirritaður á Sal
Gamla skólahúss Menntaskólans á
Akureyri í gær.
Árfell og Viðar buðu sameig-
inlega í verkið og var tilboð þeirra
lægst þeirra 12 tilboða sem bárust,
eða 87% af áætluðu kostn-
aðarverði. Fullbúið með tækjum
búnaði og fullfrágenginni lóð mun
húsið kosta um 800 milljónir
króna.
Nýju nemendagarðarnir verða
reistir austan við núverandi heima-
vistarhús MA, á lóðinni númer 28
við Eyrarlandsveg. Aðkoma að
húsinu verður frá Þórunnarstræti,
þar sem verða um 150 bílastæði.
Nemendagarðarnir verða að
meginhluta fimm hæðir en sex að
hluta. Reist verður nýtt anddyri
sem tengir saman gamla og nýja
húsið um tengibrú. Alls verða í
húsinu 118 smáíbúðir, um 40 fer-
metrar hver með snyrtingum, eld-
unaraðstöðu og geymslurými,
síma, sjónvarpi og tengingum fyrir
tölvur og fjarskipti. Hver íbúð er
ætluð tveimur einstaklingum.
Framkvæmdir við nýbygginguna
hefjast næstu daga og á verkinu að
vera að fullu lokið næsta sumar.
Fanney Hauksdóttir, arkitekt
hjá Arkitekta- og verkfræðistofu
Hauks ehf. á Akureyri, hannaði
nemendagarðana.
Smíð nýrra nemendagarða fyrir framhaldsskólanema
Verk-
samning-
ur undir-
ritaður
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Framkvæmdir við byggingu nemendagarða fyrir framhaldsskólanema
hefjast innan tíðar. Hér undirrita Jón Ellert Lárusson, formaður
Rekstrarfélagsins Lundar, Daníel Hilmarsson, frá Árfelli, Viðar Dan-
íelsson, frá Viðari, og Bjarni Jónasson, frá Lundi, verksamninginn.
REKSTRARTAP Sparisjóðs Norð-
lendinga á síðasta ári nam 122 millj-
ónum króna en árið áður var hagn-
aður sjóðsins um 39 milljónir króna.
Bókfært eigið fé sjóðsins í lok síðasta
árs nam um 330 milljónum króna og
lækkaði um tæpar 93 milljónir króna
á árinu. Eiginfjárhlutfall sparisjóðs-
ins er reiknað samkvæmt lögum um
sparisjóði og er 11,2% en samkvæmt
lögunum má hlutfallið ekki vera
lægra en 8%.
Á síðasta ári var hlutafé spari-
sjóðsins í Íslenskum verðbréfum hf.
aukið og nam eignarhlutur spari-
sjóðsins eftir þá breytingu 46,7% en
var áður 54,7%. Íslensk verðbréf eru
nú færð sem hlutdeildarfélag spari-
sjóðsins og er ekki lengur dóttur-
félag hans. Tap á rekstri Íslenskra
verðbréfa á síðasta ári nam 131 millj-
ón króna eftir skatta og þar af er
hlutdeild Sparisjóðs Norðlendinga
rúmar 70 milljónir króna.
Ein breyting varð á stjórn spari-
sjóðsins, Oddur Gunnarsson, oddviti
Hörgárbyggðar, kom inn í stjórnina í
stað Eiríks Sigfússonar á Sílastöðum
og hafði sú breyting nokkurn að-
draganda. Á fundi hreppsnefndar
Hörgárbyggðar sl. laugardag var Ei-
ríkur kjörinn sem fulltrúi sveitarfé-
lagsins í stjórn sparisjóðsins, þar
sem hann fékk 1 atkvæði en 6 fulltrú-
ar í hreppsnefnd sátu hjá. Rúmlega
20 stofnfjáreigendur í Sparisjóði
Norðlendinga í sveitarfélaginu skrif-
uðu undir yfirlýsingu þar sem því
var mótmælt að Eiríkur yrði fulltrúi
Hörgárbyggðar í stjórn sparisjóðs-
ins.
Í kjölfarið var boðað til aukafund-
ar í hreppsnefnd á mánudag og þá
var Oddur Gunnarsson, oddviti,
kjörinn fulltrúi sveitarfélagsins í
stjórn sparisjóðsins í stað Eiríks
með fjórum atkvæðum af sjö. Oddur
sagði í samtali við Morgunblaðið að
mótmæli stofnfjáreigenda gegn Ei-
ríki væru til komin vegna þess að Ei-
ríkur var formaður stjórnar Íslands-
fugls.
Sparisjóður Norðlendinga
Rekstrartap
síðasta árs 122
milljónir króna
Í DAG, sumardaginn fyrsta,
stendur Karólína í Listagilinu
fyrir opnu húsi frá kl. 14.00–
17.00. Opnaðar verða tvær
myndlistasýningar og heima-
síða Karólínu verður formlega
opnuð og kynnt. Boðið verður
uppá léttar veitingar. Allir vel-
komnir. Á Café Karólínu opnar
Ólafur Sveinssson sýningu á
verkum sínum. Verkin á sýn-
ingunni eru akrýlmálverk, öll
unnin á þessu ári, og fjalla um
mannslíkamann með mismun-
andi stílbrögðum.
Á Karólínu Restaurant opn-
ar kanadíski listamaðurinn
Aaron Mitchell sýningu á verk-
um sínum.
Aaron Mitchell hefur undan-
farið starfað sem gestakennari
og ráðgjafi við Myndlistaskól-
ann á Akureyri.
Karólína í
sumarskapi
SJÁLFSTÆÐISMENN á Akureyri
fagna sumri á Kaffi Akureyri í dag,
sumardaginn fyrsta klukkan 15–17.
Frambjóðendur flokksins ætla að
baka vöfflur fyrir gesti og gangandi
en einnig verður boðið upp á kleinur,
svaladrykki og kaffi og öll helstu
sumarlögin. Veitingarnar eru í boði
D-listans og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og taka börnin með
Sjálfstæðismenn
Frambjóðendur
baka vöfflur
♦ ♦ ♦