Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 71
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 71 RAÐGREIÐSLUR Sölusýning - Sölusýning 10% staðgreiðsluafsláttur Sími 861 4883 á nýjum og gömlum handhnýttum austurlenskum gæðateppum á Grand Hóteli við Sigtún, Reykjavík, í dag, sumardaginn fyrsta, frá kl. 13-19, á morgun, föstudag 26. apríl, frá kl. 13-19, á laugardag 27. apríl frá kl. 12-19, á sunnudag 28. apríl frá kl. 13-19. Glæsileg teppi á mjög góðu verði Ágæti lesandi. Í dag, sumardaginn fyrsta, sýnir Ríkissjónvarpið heimildamynd um garðinn Skrúð, stofnanda hans Sig- trygg Guðlaugsson og þá miklu vinnu sem lögð var í að endurnýja garðinn fyrir nokkrum árum. Okkur þykir viðeigandi að hvetja þá mörgu velunnara sem lagt hafa garðinum lið með ýmsum hætti, til þess að sjá myndina, sem sýnd er að kvöldi áð- urnefnds dags en myndin er gerð af Gísla Gestssyni kvikmyndargerðar- manni. Þá viljum við einnig fara ör- fáum orðum um það fjáröflunarstarf sem stjórn framkvæmdasjóðs Skrúðs hefur unnið markvisst að undanfarin ár. Fjögur ár eru liðin frá því að kallað var eftir liðveislu við sjóðinn. Viðbrögð við þessu ákalli okkar voru mjög góð og söfnuðust þá þegar um 2,4 milljónir króna. Í tengslum við útgáfu á fallegum og vönduðum kynningarbæklingi um Skrúð, sem samgönguráðuneytið styrkti og framkvæmdanefnd Skrúðs stóð fyrir á síðasta ári, var leitað til allmargra fyrirtækja sem styrktu Framkvæmdasjóð Skrúðs með ríflegu framlagi. Firmamerki þessara aðila er prentað í bæklingn- um. Þá stóð Framkvæmdasjóður Skrúðs fyrir þremur viðburðum á síðasta ári. Fræðsludagskrá um Skrúð, haldin í maí í Mörkinni 6, þar sem valinkunnir fyrirlesarar fluttu erindi, hvert örðu betra, um efni er tengdust garðinum. Í byrjun júlí var svo kallað til samkomu í Skrúði, er bar yfirskriftina „Stefnumót í Skrúði – Maður er manns gaman“. Skemmst er frá því að segja að sam- koman var afar vel sótt, en milli 4 og 500 manns nutu þar góðviðrisdags við leik og þess sem þar var á boð- stólum. Í byrjun september stóð fram- kvæmdasjóðurinn, í samvinnu við Garðyrkjuskóla ríkisins, að tveggja daga umhirðu- og viðhaldsátaki í garðinum. Um 30 manns, nemendur og kennarar skólans, komu þá vestur og var unnið að margvíslegum að- kallandi endurbótum við garðinn. Umhverfissjóður verslunarinnar styrkti viðhaldsverkefnið á myndar- legan hátt. Með einum eða öðrum hætti var unnið að fjáröflun fyrir sjóðinn í tilefni af þessum viðburð- um. Segja má að þokast hafi í rétta átt og margir aðilar hafa af rausn- arskap lagt sjóðnum til veglegar upphæðir. Hér verða ekki tíundaðar einstakar gjafir en benda má á að í hollvinabók Skrúðs, sem liggur frammi í garðskála garðsins á sumr- in, er yfirlit yfir stuðningsaðila. Inn- eign sjóðsins um sl. áramót er um 5 milljónir króna en stefnt er að því að sjóðurinn verði enn stærri þannig að raunvextir af höfuðstól standi undir árlegu viðhaldi og rekstri garðsins. Með þessum pistli er á ný kallað eftir liðveislu ræktunarfólks hvar- vetna á landinu, Vestfirðinga og gamalla nemenda á Núpi og ekki síst þeirra sem láta sér annt um rækt- arsemi við garðinn góða. Það fé sem safnast mun bætast við núverandi höfuðstól sem ekki verður skertur. Vextirnir verða notaðir til þess að standa undir rekstri garðsins. Það er von þeirra sem að þessu söfnunar- átaki standa að sem flestir geti léð þessu málefni frjálst framlag og beitt áhrifum sínum málefninu til stuðnings. Reikningsnúmer söfnun- arinnar er 1175-26-757 í Sparisjóði vélstjóra. Öll framlög verða mikils metin og gefendur verða skráðir í hollvinabók Skrúðs. Myndum öflugan bakhjarl við garðinn Skrúð. BRYNJÓLFUR JÓNSSON, form. Framkvsjóðs Skrúðs. Skrúður – kall- að eftir liðveislu Frá Brynjólfi Jónssyni: ÍSRAEL státar af því að vera eina landið í Mið-Austurlöndum þar sem ríkisstjórnin er kjörin í al- mennum kosningum. Einnig er litið svo á að landið sé í rauninni hluti af Evrópu að því leyti að Ísrael tekur þátt í Evrópukeppni í knatt- spyrnu, handknattleik og körfu- knattleik. Í landi þar sem heim- ilaðar eru í lögum pyntingar á föngum og aftökur án dóms og laga. Í landi þar sem stjórnmála- menn afla sér fylgis meðal þjóð- arinnar fyrir kosningar með því að líkja nágrönnum sínum Palestínu- mönnum við veirufaraldur sem beri að útrýma. Þetta er lýðræðisríkið Ísrael. Ekki er hægt að kalla að þetta séu sönn gildi lýðræðisins sem við þekkjum á Vesturlöndum, að því leyti að öll evrópuríki hafa fyrir löngu hætt pyntingum og dauða- refsingum á sakamönnum. En vegna hinna sterku tengsla sem Ísrael hefur náð að skapa sér á Vesturlöndum hefur þessi veikleiki lýðræðis landsins verið látinn óáreittur af stjórnmálamönnum Vesturlanda. Fréttaflutningur af átökunum sem nú eru fyrir botni Miðjarðarhafs er líka oft á tíðum til skammar. Þar eru Ísraelsmenn í hlutverki fórnarlambsins á meðan Palestínumenn eru ótíndir hryðju- verkamenn. Auðvitað er þessu öf- ugt farið í raunveruleikanum. Það eru ekki stjórnvöld í Palestínu sem skipa palestínskum ungmennum að ganga um götur og torg Ísraels og sprengja sig í loft upp. Þvert á móti fordæma stjórnvöld þar í landi slík verk. Hernaðaraðgerðir Ísraelsmanna í Palestínu eru þó ekki annað en ríkisrekin hryðju- verkastarfsemi, í þeim aðgerðum er ekki gerður greinamunur á því hvort þú sért blaðamaður, sjúkra- flutningamaður eða kirkjuklukku- hringjari í Betlehem, allt sem hreyfist er skotið niður. Er það stríð gegn hryðjuverkum? Nei, það er þvert á móti hryðjuverk í sinni verstu mynd. Það er misskilningur að ætla að Palestínumenn og Ísraelsmenn geti leyst deiluefni sín einir. Þeir sem bera ábyrgð á því ástandi sem nú ríkir eru Vesturlönd, og þess vegna ber þeim að grípa inn íog það strax. Gleymum ekki að það voru Bandaríkin og Evrópa sem studdu að ríki gyðinga yrði stofnað í Pal- estínu. Palestínumenn áttu sér hins vegar formælendur fáa og þeirra afstaða var í rauninni aldrei rædd af neinni alvöru. Þó var ákveðið að Palestínumenn myndu líka fá að stofna sjálfstætt ríki, ekkert bólar á því enn. Þó er hægt að segja Vesturlöndum það til vorkunnar að árið 1947, þegar SÞ samþykktu að gyðingaríkið yrði stofnað, þá var samúð með gyðingum mjög mikil vegna þeirrar viðbjóðslegu kúgun- ar sem þeir höfðu gengið í gegnum af hálfu nasista. Hins vegar hlýtur það að teljast varhugavert að Vest- urlönd skyldu kaupa fyrirgefningu syndanna af einni þjóð en fórna annarri í staðinn. SIGURÐUR ÞÓRARINSSON, Selvogsgrunni 22, Reykjavík. Lýðræðisríkið Ísrael Frá Sigurði Þórarinssyni: Bómullar-satín og silki-damask rúmföt Skólavörðustíg 21, sími 551 4050 Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Brandtex fatnaður Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Stretchbuxur kr. 2.90 Konubux r frá kr. 1.790 ragtir, kjólar, blús ur og pils. Ódýr nát fatna Nýjar línur á nýjum stað undirfataverslun Síðumúla 3-5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.