Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 36
LISTIR 36 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ LÚÐRASVEIT Verkalýðsins heldur sína ár- legu vortónleika í dag, sumardaginn fyrsta, kl. 16.15. Þetta eru 49. vortónleikar sveitarinnar og er vettvangur þeirra ekki hefðbundinn, frekar en oft áður, því lúðrasveitin leikur á verkstæði Vélamiðstöðvar Reykjavíkur, Gylfaflöt 9. Tón- leikarnir eru helgaðir tónlist frá Rússlandi og Sovétríkjunum sálugu og verða jafnt leikin þekkt verk rússnesskra tónbókmennta sem og gleymd baráttutónlist frá tíma Sovétríkjanna. Yfirskrift tónleikanna er „Þar sem sólin aldrei sest“ og meðal verka á efnisskránni eru Konsert fyrir básúnu og blásarasveit eftir Rimsky Korsakoff, þar sem Ingi Garðar Er- lendsson leikur einleik; Dans sovésku sjólið- anna eftir Gliere og Mars Sovét-æskunnar eft- ir Tulikov og fleiri verk sem horfið hafa af efnisskrám hljómsveita með falli Sovétríkj- anna. Í hléi verður kaffisala til styrktar ferðasjóði sveitarinnar. Eins og ævinlega er aðgangur að tónleikum Lúðrasveitar Verkalýðsins ókeypis. Lúðrasveit Verkalýðsins á vortónleikum Rússneskir verkstæðistónleikar Morgunblaðið/Kristinn Lúðrasveit Verkalýðsins á æfingu í húsakynnum sínum. Fimmtudagur – Sumardagurinn fyrsti Bókabúð Máls og menning- ar, Laugavegi 18. Kl. 12–17: Dagskrá til heiðurs Astrid Lindgren. Norræna húsið. Kl. 14: Sam- tökin Börn og bækur, Íslands- deild IBBY, veita árlega Vor- vindaviðurkenningu sína fyrir menningarstarf í þágu barna. Borgarbókasafn – Aðalsafn í Grófarhúsi. Kl. 15.30: Viður- kenning fyrir bestu barnabók ársins 2001 að mati 6–12 ára barna. Borgarbókasafn Barnabókaverðir safnsins verða til ráðgjafar um val á les- efni fyrir börn og unglinga í eft- irtöldum söfnum: Gerðubergi kl. 13–16. Foldasafn kl. 13–16. Kringlusafn kl. 13–16. Selja- safn kl. 14–16. Sólheimasafn kl. 14. Guðmundur Ólafsson rithöfundur og leikari les úr bók sinni Lísa og galdrakarlinn í Þarnæstugötu. kl. 13–16. Hamrar, Ísafirði. Kl. 20: Bráðum kemur betri tíð er yf- irskriftin á Laxnesshátíð sem Tónlistarskóli Ísafjarðar og Menntaskólinn á Ísafirði sam- einast um. Lesið verður úr verkum Halldórs og flutt verð- ur tónlist tengd skáldinu. Laxnesshátíð í Mosfellsbæ Gljúfrasteinn. Kl. 9: Göngu- leiðir í Mosfellsdal. Gengið frá Gljúfrasteini undir leiðsögn Bjarka Bjarnasonar. Góður skóbúnaður æskilegur. Listahátíð barna og ungmenna í Mosfellsbæ Opið hús verður í Lágafells- skóla og Varmárskóla kl. 10– 12. Leikskólarnir Hulduberg, Reykjakot, Hlaðhamrar, Hlíð og Birkibær kl. 10–16. Skrúðganga barna verður frá leik- og grunnskólum Mosfellsbæjar kl. 12.30–13.30. Gengið að Bæjarleikhúsinu við Þverholt og þaðan að Íþrótta- miðstöðinni að Varmá. Hátíðadagskrá barna og ungmenna Íþróttamiðstöðin að Varmá kl. 14–15. Kór leikskólabarna. Nemendur allra skóla bæjarins syngja, spila og lesa upp. Skólahljómsveit Mosfellsbæj- ar. Bæjarleikhúsið við Þverholt. Kl. 20: Leikfélag Mosfells- sveitar frumflytur dagskrá úr verkum Halldórs Laxness í samantekt Birgis Sigurðsson- ar. Álafosskórinn frumflytur lög eftir Helga Einarsson við ljóð skáldsins. Vika bókar- innar SÍUNG, samtök íslenskra barna- og unglingabókahöfunda, opnuðu aðsetur sitt á veraldarvefnum á dögunum í Gunnarshúsi. Það var barnabókahöfundur á níræð- isaldri, Jenna Jensdóttir, sem opnaði vefinn að viðstöddu fjöl- menni. Vefurinn verður vettvangur fyrir skoðanaskipti og félagsstarf barna- og unglingabókahöfunda, en flytur auk þess fréttir og upp- lýsingar fyrir alla sem hafa áhuga á þessari bókmenntagrein. Á vefnum er að finna ýtarlegar upplýsingar um félaga í samtök- unum og reglubundið birtast pistlar sem snerta málefni tengd barna- og unglingabókum. Hönnuður og vefstjóri er Anna Heiða Pálsdóttir. Í undirbúningi er ensk útgáfa vefjarins. Í bókavikunni eru birt á vefn- um sýnishorn og textabrot úr þeim fjölbreyttu verkum sem höf- undarnir eru að vinna að þessa dagana. Slóðin á Netinu er www.rsi.is/ siung. Jenna Jensdóttir opnar vefinn. Með henni er Iðunn Steinsdóttir. Jenna Jensdóttir opnar vef SÍUNG LEIKFÉLAGIÐ á Sólheimum í Grímsnesi frumsýnir Hárið í dag, sumardaginn fyrsta, undir leik- stjórn Eddu Björgvinsdóttur. Sýn- ingar verða tvær, kl. 14 og kl. 20. Leikfélagið, sem er 71 árs, hefur á að skipa fötluðum og ófötluðum leikurum og gerðar eru sömu kröf- ur til allra. Í leiksýningunni taka þátt 53 leikarar sem eru á aldr- inum 3ja–69 ára. Einnig taka þátt í verkinu skiptinemar sem dvelja á Sólheimum og eru þeir víðs vegar að úr heiminum. Á hverri sýningu verður leynigestur, kunnur leikari eða söngvari sem mun óvænt stökkva upp úr sæti sínu í salnum og taka eitt lag með hópnum. Það verður nýr leynigestur á hverri sýningu. Nemendafélag Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti, sem setti nýverið upp Hárið, hefur aðstoðað Sól- heimafólkið og lánað ýmislegt úr sínum fórum varðandi sýninguna. Uppselt er þegar á fyrri frum- sýninguna. Miðaverð er kr 500 fyr- ir fullorðna og 25 krónur fyrir börn 6–12 ára. Aðrar sýningar á Hárinu í íþróttaleikhúsinu á Sólheimum verða laugardaginn 27. apríl, sunnudaginn 28. apríl og miðviku- daginn 1. maí. Sýningarnar hefjast kl. 16. Hárið sett upp á Sól- heimum Morgunblaðið/Sig. Jóns. Leikarar Leikfélags Sólheima á sviðinu á einni æfingunni á dögunum. Selfossi. Morgunblaðið. KAMMERHÓPUR Salarins – „KaSa“ á nýlegu prenti – efndi til tón- leika í fimmtu Tíbrárröðinni sl. sunnudag. Því miður við slakari að- sókn en efni stóðu til. Það er eins og hafi komið aukið los á fólki um helg- arsíðdegin, nú þegar bæði er farið að birta og hlýna fyrir alvöru. Engin var heldur matarkynningin til aðlöðunar að þessu sinni. Og m.a.s. hinn marg- fróði tónlistarspjallari Atli Heimir Sveinsson þóttist ekkert vita um verkefni dagsins og lét nægja að spinna sig áfram á almennum nótum um land og höfunda. Sem var svolítið miður hvað verkin snerti, enda stóð ekki aukatekið orð um þau í tónleika- skránni. Ekki einu sinni þáttarheita var getið. Verkin áttu betra skilið, því þó að ekkert atriða dagsins teldist kannski meðal öndvegissmíða sígildra kammerbókmennta, voru tékknesku tónskáldin þrjú, með Dvorák í broddi fylkingar, samt í fremstu röð á sínum tíma, og músíkin reyndist bæði áheyrileg og vel flutt. Líkt og Mussorgsky lét Leoš Janá- èek (1854–1928) mótast í lagferli af hrynjandi og inntónun móðurmálsins. Úr þríþættu svítu hans fyrir selló og píanó, Pohádka (ævintýri), voru leikn- ir tveir. Svítan mun frá árinu 1910; sérlega ljóðræn og falleg tónlist með fífusveifu impressjónísku yfirbragði, sem lyftist enn meir í seinni þættinum með ámóta fisléttum tökum Bryndís- ar Höllu og Peters Máté. Allmikið var plokkað á knéfiðluna, og vakti nokkra eftirtekt hvað fortissimó-„pizzið“ á háa A-strenginn svarraði furðusterkt við háls, svo minnti nærri á indversk- an sítar. Næst var Tríó fyrir flautu, selló og píanó eftir Bohuslav Martinu (1890–1959). Verkið var afar aðgengi- legt, vakurt og „gallískt“ að skapgerð – til marks um hvað höfundur dvaldi lengi í París, tónlistarhöfuðborg heimsins á millistríðsárum. Martinu hefur reyndar þótt nokkuð mistækur, enda afköstin ekki skorin við nögl, en í beztu verkunum nær hann að halda bæði léttlyndu fasi og athygli hlust- andans. Það er meira en hægt er að segja um marga kammerhöfunda ný- klassísismans. Átti téður kostur einn- ig vel við þetta verk frá seinni stríðs- árum, nema e.t.v. í lokaþætti (III.), þar sem teygðist ögn úr andagiftinni. Þau Áshildur Haraldsdóttir, Bryndís Halla og Peter túlkuðu ósvikinn „bon vivant“ gáskann með snöfurlegum elegans, og ekki sízt gustaði af flautu- leik Áshildar, er leiddi hugann að hressari augnablikum frönsku flautu- kompónistanna Françaix og Jolivets. Píanótríó Antoníns Dvoráks í g- moll var samið 1876, tveim árum áður en hann sló loks alþjóðlega í gegn með hljómsveitarútgáfu Slavnesku dans- anna. Af fjórum þáttum þess sögðu síðustu tveir manni mest. Í III. þætti (Scherzo?) vakti athygli sérkennilega ósamhverf hendingaskipan (þ.e.a.s. sitt hvorum megin við sallareglulegan Tríókaflann), þar sem 6/8 og 9/8 virt- ust skiptast á í sífellu. Hinn polka- kennt dillandi lokaþáttur iðaði af fjöri og óviðjafnanlegu ferska lagferli tékkneska meistarans. Sigrún Eð- valds, Bryndís Halla og Miklós Dal- mey áttu hér sannkallaðan stjörnu- samleik. Voru báðir þættir fluttir af smitandi krafti, innlifun og snerpu, eða á vondu en útbreiddu máli: tón- listin var „fíluð í botn“. Þrír meistarar TÓNLIST Salurinn Janaèek: Dúó fyrir selló og píanó (Poh- ádka). Martinu: Tríó í F dúr fyrir flautu, selló og píanó. Dvorák: Tríó fyrir fiðlu, selló og píanó í g Op. 26. Kammerhópur Salarins: Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla; Ás- hildur Haraldsdóttir, flauta; Peter Máté, Miklós Dalmay, píanó; Bryndís Halla Gylfadóttir, selló. Tónleikaspjall: Atli Heimir Sveinsson. Fimmtudaginn 18. apríl kl. 19:30. KAMMERTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.