Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 33
Í ÍSALDARHESTUM er bent á
þá staðreynd að ein af gersemum
landsins er allt þetta svala og ómeng-
aða vatn. Nokkuð sem við tökum sem
sjálfsögðum hlut. En önnur heim-
ildamynd, Who Hangs the Laundry?
Washing, War and Electricity in
Beirut – Hver hengir upp þvottinn?
Þvottur, stríð og rafmagn í Beirút,
fær okkur til að endurmeta þessi
verðmæti. Ein athyglisverðasta
myndin á hátíðinni er þetta óvenju-
lega og ásækna verk, gert af Hrafn-
hildi Gunnarsdóttir, íslenskri heim-
ildamyndagerðarkonu í San Franc-
isco, um dag í lífi stórmerkilegrar og
heillandi líbanskrar húsmóður, at-
hafnakonu og femínista.
Hrabba og hennar fólk kynntist
Tinu Naccache í Beirútborg fyrir fá-
einum árum. Myndavélinni er lengst
af beint að Tinu að þvo þvottinn sinn
og gefa okkur samtímis nýja skil-
greiningu á stríði. Í augum Tinu eru
fórnarlömb stríðsins ekki þeir sem
falla. „Dauðir eru dauðir“, segir hún.
Stríð hefst þegar því er lokið og
borgararnir þurfa að rísa aftur upp á
fæturna, hið raunverulega stríð er að
heyja lífsbaráttuna í öllum ómennsk-
um eftirhreytum þess. Berjast í
miðri eyðileggingunni. Húsin löskuð,
sundurtætt eða hrunin. Rafmagnið
kemur og fer, hver vatnsdropi dýr-
mætur, skortur á nauðsynjum. Tina,
sem einnig er lögfræðimenntuð, út-
listar sínar feminísku og sjálfstæðu
skoðanir af fljúgandi mælsku og víð-
sýni. Óbugandi gróðurvin í grárri
eyðimörk þess sem eitt sinn var feg-
urst borga við Miðjarðarhafið. Þvott-
urinn á óhreinu tauinu er táknrænn;
með eljusemi, vandvirkni og nýtni
verður tauið hennar Tinu hreint og
hvítt, flaggar að lokum einsog gunn-
fáni viljans yfir rústum eyðilegging-
ar og heimsku mannsins. Síðan notar
hún vatnið til að skúra með því gólf
og svalir.
Tina vinnur sín heimilisstörf sjálf.
Vill enga óviðkomandi hjálp inná sér
við heimilisstörfin. Bendir okkur á
flóttakonu sem er á kafi í húsverk-
unum handan götunnar, konan sú er
enn í stríði og hefur tapað. Tina er
öðrum þræði mannréttindafrömuður
sem nýtir nám sitt til hjálpar þessu
allslausa og landlausa fólki sem er
selt á hálfgildings þrælamörkuðum í
Arabaríkjunum og verður síðan að
strita nánast kauplaust. Tina er að
reyna að finna því leið útúr þessum
harmkvælum.
Hver hengir upp þvottinn er ekki
löng í mínútum talið en tekst að
segja sína athyglisverðu og óvæntu
sögu svo skýrt og skilmerkilega,
vekja áhorfandann til meðvitundar
um misjafnt mannanna lánið, að hún
víkur örugglega ekki frá manni í
bráð.
Stríð og
eftirmálar
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: Heimilda- og stutt-
myndahátíð í Reykjavík
Leikstjórn og handrit: Hrafnhildur Gunn-
arsdóttir. 20 mín.
WHO HANGS THE LAUNDRY...? /HVER
HENGIR UPP ÞVOTTINN? 1⁄2
Sæbjörn Valdimarsson
<
Laugavegi 91, s. 511 1717
diesel
kookai
tark
miss sixty
energy
camper
laura aime
the seller
studio n.y.
billi bi
shelly's
ck.jeans
mia
mao
dkny jeans
matinique
4you
paul smith
eva
Gleðilegt sumar
Opið í dag 13-18
15% sumarafsláttur
af öllum vörum
GERARD DAREL
VIRMANI
BZR
CUSTO
DKNY
PAUL ET JOE
Laugavegi 91,
2. hæð, s. 562 0625
...verið velkomin
GLEÐILEGT SUMAR
Opið í dag frá kl. 13-18
Galleri Sautján húsinu — Sautján Jeans
Laugavegi
15% afsláttur af öllum vörum
...því við erum í sumarskapi
Frí bílastæði
...komdu í sumarstemmningu
og góðan kaffibolla
s. 511 1750
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum