Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
YFIR tvö hundruð börn
hefja upp rausn sína í sam-
komusal Skóla Ísaks Jóns-
sonar í viku hverri. Þau byrja
reyndar hvern dag á því að
syngja í 20 mínútur, hver
bekkur í sinni stofu. Þessari
hefð í Ísaksskóla hefur verið
haldið í heiðri frá stofnun
hans, árið 1926, en í ár fagn-
ar skólinn 75 ára afmæli sínu.
Ísak Jónsson stofnaði skól-
ann og í ár eru 248 börn á
aldrinum 5–8 ára þar við
nám. Við skólann starfa 25
manns.
„Einkunnarorð skólans
eru: Starf, háttvísi, þroski,
hamingja,“ segir Edda Huld
Sigurðardóttir skólastjóri.
„Og hér er sungið út í eitt.“
Skólinn er sjálfseignar-
stofnun og rekinn með skóla-
gjöldum sem foreldrar greiða
og styrk frá Reykjavíkurborg
og nágrannasveitarfélögum.
Ísak Jónsson var frum-
kvöðull á sviði uppeldis og
menntunar yngri barna á Ís-
landi og fyrsti æfingakennari
í yngri barna kennslu við
Kennaraskólann. Hann hafði
mikinn áhuga á starfi með
börnum á leikskólaaldri og
byrja börnin mörg hver 5 ára
gömul í Ísaksskóla.
Það er mikið sungið í skól-
anum og innan veggja er að
finna ógrynni listaverka eftir
börnin.
Í viku hverri læra börnin
nýjar vísur og sönglög og því
má ætla að vel sé safnað í
söngsarpinn á hverjum vetri.
„Við leggjum mikið upp úr
því að börnin læri lögin og
textana og skilji um hvað
þeir fjalla. Það eykur orða-
forða og þjálfar tóneyrað,“
segir Edda Huld. „Hér er
sungið út í eitt. Börnin
syngja líka við vinnu sína,
þannig að lögin festast í
minninu. Nemendur skólans
geyma þessi lög hjá sér og
muna þau mörg hver alla
ævi.“
Áður en viðbygging skól-
ans í Bólstaðarhlíðinni var
tekin í notkun komu nemend-
ur saman á göngum skólans
og sungu saman. „Söngurinn
gefur börnunum heilmikið.
Svo hafa foreldrar líka komið
og hlustað á sönginn og það
er gaman að nefna að tveir
feður koma á hverjum föstu-
degi og hlýða á söng
barnanna.“
Opið hús í tilefni
afmælisins
Í gær var opið hús í Skóla
Ísaks Jónssonar. Var þar
margt gesta, m.a. var
fræðsluyfirvöldum borgar-
innar og fyrrum starfsmönn-
um skólans boðið að koma og
kynna sér starfsemina og
fagna afmælinu ásamt nem-
endum og starfsfólki skólans.
Börnin léku leikrit og á hljóð-
færi fyrir viðstadda en Edda
Huld segir áherslu m.a. lagða
á að börnin þjálfist í að koma
fram, leika, syngja og spila á
hljóðfæri. „Í lok söngstunda
á sal sýnir hver og einn bekk-
ur atriði.“ Í tónmenntinni fær
söngurinn auðvitað líka að
njóta sín svo og allra handa
ásláttarhljóðfæri og flautur.
Það þarf vart að taka fram
að söngurinn ómaði um Skóla
Ísaks Jónssonar á opnu húsi
og voru meðal annars sungin
lög við texta Herdísar Egils-
dóttur, sem var kennari við
skólann til margra ára.
Þá var gestum boðið að
fylgjast með kennslu
barnanna, sem kynntu sig
kurteisislega, lásu sögur eða
sýndu gestunum stolt mynd-
ir, margar hverjar tengdar
verkum Halldórs Laxness á
einhvern hátt.
„Starfið hefur að jafnaði
verið farsælt og einhugur
ríkt meðal starfsmanna,“
segir Edda Huld. „Aðsókn að
skólanum er góð og komast
t.d. færri að í 5 ára bekk en
vilja. Skólinn mælir með sér
sjálfur, ef ekki væri unnið
hér gott starf kæmi enginn
með barnið sitt hingað.
Kennarar skólans hafa aldrei
verið yfirborgaðir heldur
ætíð notið sömu kjara og aðr-
ir kenarar í grunnskólum
Reykjavíkur. Hefur skólan-
um þó haldist vel á starfs-
fólki, þótt auðvitað eigi sér
stað ákveðin endurnýjun. Við
viljum að nýir kennarar við
skólann tileinki sér að sem
við höfum verið að gera en
komi jafnframt inn með
ferska strauma.“
Morgunblaðið/Sverrir
Börnin syngja og Edda Huld Sigurðardóttir skólastjóri tekur undir.
Afmælisgestir heimsóttu börnin í kennslustofurnar þar
sem ýmist var verið að lesa, skrifa eða reikna.
Edda Huld Sigurðardóttir skólastjóri ásamt Ragnari Borg,
Sigrúnu Magnúsdóttur, Thomasi Möller og Árna Pétri.
Söngurinn
samtvinnaður
skólastarfinu
Hlíðar
Opið hús í tilefni 75 ára afmælis Skóla Ísaks Jónssonar
„SIGLINGAAÐSTAÐA er
inni á núgildandi aðalskipu-
lagi en í tillögum að nýju
skipulagi sem nú er í auglýs-
ingu, er hún farin út og í stað-
inn kominn golfvöllur,“ segir
Lárus Einarsson, formaður
Smábátafélags Mosfellsbæj-
ar. Félagið var stofnað á
þriðjudagskvöld og eru stofn-
félagar tæplega 80. „Það er
mikill áhugi í bænum og það
sýnir sig í fjölda félaga Smá-
bátafélagsins.“
Lárus segir að félagið muni
beita sér fyrir því að siglinga-
aðstaða verði áfram á skipu-
lagi. „Við sjáum fyrir okkur
að á Blikastaðanesi komi
smábátahöfn með tveim flot-
bryggjum, aðstöðu fyrir um
20 báta og aðstöðu til að koma
niður bátum.“ Þá vill félagið
vekja athygli á því að ekkert
aðgengi sé að strandlengj-
unni í Mosfellsbæ og á nýjum
skipulagstillögum sé göngu-
stígum fækkað frá gildandi
skipulagi.
„Ég held að Mosfellsbær
sé eina bæjarfélagið á land-
inu þar sem ekki er hægt að
komast auðveldlega niður að
sjó nema gangandi, það er
hvergi vegur niður að sjón-
um.“
Lárus segir að félagið muni
gera formlegar athugasemd-
ir við tillögur að aðalskipulagi
sem nú eru í auglýsingu.
Morgunblaðið/Kristinn
Magnús Guðmundsson var meðal þeirra sem tóku til
máls við stofnun Smábátafélags Mosfellsbæjar.
Vilja siglingaaðstöðu
á Blikastaðanesi
Mosfellsbær
Stofnfundur Smábátafélags
UM BORGINA og nágranna-
sveitarfélög verður víða
boðið upp á líflega dagskrá í
tilefni sumardagsins fyrsta.
Í Hafnarfirði hefst dag-
skráin á skrúðgöngu frá
Hraunbyrgi kl. 10 sem lýkur
með skátamessu í Hafn-
arfjarðarkirkju. Þá hefst
víðavangshlaup á Víði-
staðatúni kl. 13 og verður
hlaupið um Víðistaðasvæð-
ið.
Dagskrá sumardagsins
fyrsta í Kópavogi hefst á
skátamessu í Kópavogs-
kirkju kl. 11. Gengið verður
í Skrúðgöngu frá Digra-
neskirkju kl. 13:30 að
Íþróttahúsinu í Smáranum.
Skemmtun hefst síðan í
Íþróttahúsinu í Smáranum
kl. 14.
Skátafélagið Vífill í
Garðabæ sér um hátíð-
arhöld í bænum í dag. Dag-
skráin hefst með fánahyll-
ingu kl. 12.45 fyrir utan
Vídalínskirkju. Þá hefst
skátamessa kl. 13 í kirkj-
unni þar sem nýjir skátar
verða vígðir. Skrúðganga
verður frá kirkjunni kl. 14
að Hofsstaðaskóla. Við skól-
ann hefst hátíðardagskrá
með þrautabrautum, leik-
tækjum og andlitsmálningu
fyrir þá yngstu. Dagkránni
lýkur kl. 20 með kvöldvöku í
Hofsstaðaskóla.
Lest og leikir í borginni
Það verður ýmislegt hægt
að gera sér til skemmtunnar
í Reykjavík, t.d. verður fjöl-
breytt dagskrá í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum í
Laugardal. Cocoa Puffs-
lestinni verður ekið frá kl.
11 til 17 og krakkar geta
farið á hestbak milli 14 og
15 og látið taka mynd af sér.
Frá 14–16 munu Töfra-
maðurinn Bjarni, sigurveg-
arar úr Freestyle keppni
Tónabæjar 2002 og leikarar
úr Ávaxtakörfunni halda
uppi fjörinu í tjaldinu við
Selalaugina. Að auki verður
hópdans og Lúðrasveit tek-
ur nokkur létt lög.
Þá verður skátamessa í
Hallgrímskirkju og hefst
hún kl. 11.
Opin hús verða í leik-
skólum og grunnskólum
Mosfellsbæjar í dag þar sem
sýnd verða verk barna og
ungmenna unnin í tengslum
við 100 ára afmæli Halldórs
Laxness. Hátíðardagskrá
barna og ungmenna hefst í
Íþróttamiðstöðinni á Varmá
kl. 14.
Fjölbreytt dagskrá
sumardagsins fyrsta
Höfuðborgarsvæðið
Í VETUR hafa börn í 13 leik-
skólum í vesturbæ Reykja-
víkur unnið þemaverkefni
undir heitinu, „Vesturbær-
inn okkar“. Hver leikskóli
hefur valið sér eitt þema
tengt umhverfi leikskólans,
en öll verkefnin eru hluti af
vorsýningum leikskólanna
og eru til sýnis í leikskól-
unum.
Markmiðið er að efla sam-
starf leikskólanna í Vest-
urbæ og að vekja athygli á
listsköpun í leikskólunum.
Jafnframt vilja leikskólarnir
kynnast stofnunum í hverf-
inu og munu heimsækja
nokkrar þeirra og kynna sér
starfsemina og gefa þeim
listaverk sem börnin hafa
unnið.
Af þessu tilefni bjóða leik-
skólarnir þeim sem áhuga
hafa í heimsókn til að skoða
afrakstur vinnunnar. Opið
hús verður frá föstudeginum
26. apríl til fimmtudagsins 9.
maí. Tekið er á móti gestum
á morgnana á milli kl. 10.00
– 11.00 og eftir hádegi frá kl.
13.30 – 14.30 alla virka daga.
Leikskólarnir sem taka
þátt eru: Drafnarborg,
Dvergasteinn, Grandaborg,
Gullborg, Hagaborg, Leik-
garður, Mánagarður, Mýri,
Sæborg, Vesturborg, Tjarn-
arborg, Ægisborg og Öldu-
kot.
Menning barnanna
Vesturbær
Morgunblaðið/Þorkell
Börnin á Vesturborg ætla að setja upp listasýningu í Vest-
urbæjarlauginni, bæði úti og inni, og eru að vinna verk sín.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
byggt verði við leikskólann
Hlíð og er gert ráð fyrir að því
verki ljúki í febrúar 2003.
Um er að ræða viðbyggingu
við eldra hús, 250 m² að stærð.
Viðbyggingin er í samræmi
við eldri byggingu þar sem
burðarveggir eru steinsteypt-
ir, einangraðir að innan. Að
utan er sjónsteypa með móta-
áferð. Á milli eldra húss og
viðbyggingar verður létt-
byggð tengibygging úr gleri
og timbri. Tilboð verða opnuð
þriðjudaginn 7. maí nk.
Byggt
við Hlíð
Mosfellsbær