Morgunblaðið - 25.04.2002, Blaðsíða 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLSKYLDAN í fyrirrúmi með
Framsókn er yfirskrift stefnu-
skrár Framsóknarflokksins fyrir
komandi bæjarstjórnarkosningar í
Reykjanesbæ. Leggur Kjartan
Már Kjartansson, efsti maður á
lista flokksins, áherslu á að öll
stefnumál flokksins megi skoða
með hliðsjón af yfirskriftinni.
Stefnuskráin verður kynnt í dag.
„Við viljum að Reykjanesbær
verði fjölskylduvænt, fjárhagslega
traust og alþjóðlegt sveitarfélag
sem eftirsótt verður til búsetu
óháð aldri, kynþætti, kynferði,
tungu, trú, þjóðerni, kynhneigð
eða stjórnmálaskoðunum. Þar ríki
fagurt og gott mannlíf þar sem
mannréttindi eru virt, umburðar-
lyndi og víðsýni í heiðri höfð og
virðing borin fyrir einstaklingum
og fjölskyldum svo margbreytileiki
þjóðlífs og einstaklinga fái notið
sín,“ segir meðal annars um fram-
tíðarsýn framsóknarmanna.
Farið er yfir ýmsar aðgerðir
sem Framsóknarflokkurinn hyggst
beita sér fyrir á næsta kjörtímabili
til að láta þessa framtíðarsýn
flokksins verða að veruleika.
Flugþjónustubraut í Fjölbraut
Í atvinnumálum er meðal annars
lögð áhersla á að kynna kosti
Reykjanesbæjar með það í huga
að laða að ný atvinnutækifæri og
um leið nýja íbúa. Stefnt verður að
því að Reykjanesbær verði höf-
uðstaður flugs á Íslandi og Fjöl-
brautaskóli Suðurnesja verði
helsta menntastofnun landsins á
því sviði. Unnið verði að áfram-
haldandi uppbyggingu svæðisins í
kringum alþjóðaflugvöllinn og löð-
uð að flugsækin starfsemi sem hef-
ur hag af því að vera staðsett ná-
lægt flugvellinum auk þess sem
unnið verði að því að flytja mið-
stöð innanlandsflugs til Keflavík-
urflugvallar eftir að tvöföldun
Reykjanesbrautar lýkur.
Kjartan Már segir að hafinn sé
undirbúningur að stofnun flug-
þjónustubrautar við Fjölbrauta-
skólann. Í upphafi verði lögð
áhersla á að mennta fólk til flug-
þjónustustarfa en síðan verði
reynt að fá þangað atvinnuflug-
kennslu og flugvirkjamenntun.
Kjartan Már segir að á komandi
kjörtímabili verði unnið að upp-
byggingu innra starfs grunnskól-
anna. Í stefnuskránni er meðal
annars talað um að efla stjórnun í
skólunum og gera námssamninga
við nemendur og auka einstak-
lingsbundið nám, til dæmis við
bráðger börn og önnur börn með
sérþarfir. Hefja á undirbúning að
nýjum tónlistarskóla á næsta ári,
sömuleiðis undirbúning að bygg-
ingu nýs grunnskóla í Innri-Njarð-
vík.
Hafnargatan fegruð
Forgangsverkefni framsóknar-
manna í umhverfis- og skipulags-
málum verður að endurbyggja og
fegra Hafnargötuna. Kjartan segir
að helst vilji frambjóðendur
flokksins vinna verkið á þremur
árum en um framkvæmd verkefn-
isins verði þó að hafa samráð við
verslunar- og þjónustuaðila við
götuna. Jafnframt er stefnt að því
að lokið verði við uppbyggingu í
eldri hluta bæjarins og haldið
áfram að byggja upp græn svæði.
Áfram verður unnið að upp-
byggingu Duushúsa og Fisherhús-
storfu sem miðstöð lista- og menn-
ingarlífs í bænum, ef framsóknar-
menn hafa á það áhrif. Kjartan
segir að einnig sé áhugi á að gera
þjónustusamninga við ýmsa menn-
ingarhópa, svo sem kóra, leikfélag
og myndlistarmenn, með svipuðum
hætti og samið er við íþróttafélög-
in. Þeir fái ákveðin fjárframlög
gegn því að veita umsamda þjón-
ustu. Athygli vekur að í stefnu-
skránni er kveðið á um að efnt
verði til samkeppni um gerð stórr-
ar styttu af Hljómum og henni
komið fyrir á áberandi stað í bæj-
arfélaginu.
Framsóknarmenn vilja að farið
verði í sérstakt átak með íþrótta-
hreyfingunni til þess að treysta
rekstur og innra starf hennar. Þá
verði farið í viðræður við Golf-
klúbb Suðurnesja um hvort rétt sé
að Reykjanesbær komið að eign-
arhaldi golfvallarins í Leiru. Þá
kemur fram að unnið verði með
golfklúbbnum að eflingu unglinga-
starfs og að markaðssetja íþrótt-
ina í tengslum við ferðaþjónustu.
Öll fjölskyldan, allar fjölskyldur
er yfirskrift aðgerða í fjölskyldu-
málum. Meðal atriða sem þar eru
talin upp er að hafinn verði und-
irbúningur að nýju dvalarheimili
aldraðra í Reykjanesbæ og þörf
fyrir þjónustuíbúðir könnuð. Jafn-
framt verði stefnt að því að í
hjarta bæjarins verði þjónustumið-
stöð þar sem fram fari dagleg
starfsemi aldraðra, svo sem fé-
lagsstarf og dagvist.
Tómstundatorg 16+
Framsóknarflokkurinn mun
leggja áherslu á opnun tómstunda-
og menningaraðstöðu fyrir ungt
fólk, nefna það 16+ tómstunda-
torgið með vísan til þess að það sé
einkum ætlað fyrir sextán ára og
eldri unglinga. Talin eru upp
nokkur atriði sem þar þurfi að
vera aðstaða fyrir, meðal annars
internetaðstaða, veitingar, tónlist-
arflutningur og námskeið.
Lagt er til að heilsugæslan hafi
frumkvæði að því að bjóða öllum
fjölskyldum Reykjanesbæjar að
koma reglulega í læknisskoðun og
að aðstaða fyrir veik börn verði
bætt innan Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja.
Kjartan Már hefur sett fram
hugmyndir um breytingar á al-
menningssamgöngum í Reykja-
nesbæ með því að nota leigubíla í
stað strætisvagna. Hefur hann
verið að kynna þessa hugmynd og
í stefnuskrá Framsóknarflokksins
er lögð áhersla á frekari könnun á
hugmyndinni.
Skattar ekki hækkaðir
Framsóknarmenn munu beita
aðhaldi í fjármálum bæjarins og
leggja áherslu á að geiða niður
skuldir vegna framkvæmda í
skólamálum. Rætt er um að beitt
verði hóflegri skattheimtu. Að-
spurður hvort hækka þurfi álögur
á bæjarbúa til að greiða niður
skuldir og framkvæma stefnumið
flokksins segir Kjartan Már það
ekki vera. Skattarnir verði
óbreyttir. Helst vildi hann hafa þá
lægri en ekki sé hægt að lofa því.
Hann segir ljóst að ekki sé unnt að
gera allt fyrir alla og menn verði
að hafa kjark til að forgangsraða
verkefnum bæjarfélagsins.
Framsóknarflokkurinn kynnir stefnuskrá sína fyrir komandi kosningar
Höfuðstaður flugsins
og stytta af Hljómum
Fjórir efstu frambjóðendur Framsóknarflokksins, Kjartan Már Kjart-
ansson, Guðný Kristjánsdóttir, Þorsteinn Árnason og Ólöf Sveinsdóttir.
Reykjanesbær
UPPLÝSINGASKILTI sem sýnir
hvað fólk sparar lítinn tíma með
því að aka umfram lögleyfðan há-
markshraða á Reykjanesbrautinni
var sett upp síðdegis í gær, við
Fitjar í Njarðvík og skammt frá
álverinu í Straumsvík.
Áhugahópur um örugga
Reykjanesbraut hefur starfað að
málefninu frá því í byrjun síðasta
árs en þá var meðal annars efnt
til fjölmenns borgarafundar í
Keflavík um tvöföldun Reykjanes-
brautar. Steinþór Jónsson, for-
svarsmaður hópsins, segir að
áhugahópurinn hafi barist fyrir
því að framkvæmdinni yrði flýtt.
Nú væri fyrsti áfangi hennar að
komast á framkvæmdastig og
beðið formlegrar yfirlýsingar
Sturlu Böðvarssonar sam-
gönguráðherra um útboð.
Steinþór segir að hópurinn hafi
unnið að ýmsu öðru til að auka
öryggi vegfarenda, þar til tvöföld-
unin kæmist til framkvæmda, og
væri uppsetning upplýsingaskilt-
anna liður í því.
Á skiltunum kemur fram að
Reykjanesbrautin sé 24 kílómetr-
ar að lengd. Það taki 16 mínútur
að aka hana á 90 kílómetra hraða,
14,4 mínútur á 100 og 13,1 mín-
útu að aka þessa vegalend á 110
kílómetra hraða. „Skipuleggðu
tímann betur – annars staðar“,
stendur svo undir. Áhugahóp-
urinn kostar hönnun og uppsetn-
ingu skiltanna en hefur notið vel-
vildar fyrirtækja og stofnana við
verkið, að sögn Steinþórs.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Frá vinstri Steinþór Jónsson, formaður hópsins, Páll Ketilsson, Bjarni Einarsson, Börkur Birgisson og Sturlaug-
ur Ólafsson við skiltið sem sett var upp við Fitjar í Njarðvík. Annað skilti var sett upp við álverið í Straumsvík.
Lítill tími
sparast
með hrað-
akstri
Reykjanesbraut
FRAMSÓKNARFLOKKURINN í
Reykjanesbæ fagnar sumri með því
að bjóða öllum bæjarbúum í veislu á
sumardaginn fyrsta.
Veislan fer fram í Félagsheimili
Framsóknarflokksins á Hafnargötu
62 í Keflavík og hefst klukkan 13. Í
boði verður m.a. kaffihlaðborð og
með því fyrir fullorðna. Börnin fá
græna frostpinna, grillaðar pylsur
og gos.
Fjöldi skemmtiatriða verður í
boði, samkvæmt fréttatilkynningu
frá kosningastjórn, meðal annars
mætir Rúnar Júlíusson og tekur lag-
ið og eldgleypir kemur og sýnir listir
sínar.
Fjölskyldu-
dagur hjá
Framsókn
Reykjanesbær
SVEINN Kári Valdimarsson líf-
fræðingur hefur verið ráðinn for-
stöðumaður Náttúrustofu Reykja-
ness í Sandgerði. Hefur hann þegar
tekið til starfa í hlutastarfi en verður
í fullu starfi frá 1. september.
Sveinn Kári er 35 ára Árnesingur.
Hann lauk líffræðiprófi frá Háskóla
Íslands og doktorsnámi frá Glasgow-
háskóla í vistfræði- og atferlisfræði
laxa. Hann hefur stundað ýmsar
rannsóknir á fræðasviði sínu og verið
búsettur í Glasgow síðastliðin átta
ár.
Sveinn Kári segist hafa áhuga á að
stunda áfram rannsóknir á atferli
fiska, í tengslum við hið nýja starf
sitt. Náttúrustofan hefur auglýst
rannsóknarnám í vistfræði og atferl-
isfræði hrognkelsaseiða við stöðina, í
samvinnu við fleiri stofnanir. Þá hef-
ur stofan, í samvinnu við margar
rannsóknastofnanir á Íslandi, ákveð-
ið að standa að rannsóknum á áhrif-
um vatnsborðslækkunar Kleifar-
vatns á lífríki vatnsins.
Sveinn Kári er kvæntur og á eitt
barn.
Ráðinn for-
stöðumaður
Náttúrustofu
Sandgerði
K-LISTINN í Sandgerði verður
með kosningakaffi eftir hádegið í
dag á kosningaskrifstofu sinni á Vík-
urbraut 11. Listinn hefur opnað
heimasíðu, www.klistinn.is.
Kosninga-
kaffi K-lista
Sandgerði
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦