Morgunblaðið - 25.04.2002, Síða 24

Morgunblaðið - 25.04.2002, Síða 24
VEFURINN neytandi.is er nýr vettvangur fyrir neyt- endur þar sem hægt er að koma á framfæri ábend- ingum, hrósi, kvörtun eða fyrirspurn til fyrirtækja og stofnana sér að kostnaðarlausu, segir Jón Grétar Ólafsson umsjónarmaður. Innleggi notenda er komið á framfæri við viðkomandi fyrirtæki eða stofnun og við- bragða leitað til birtingar á vefsvæðinu, segir hann jafnframt. Auk þess er boðið upp á fría lögfræðiaðstoð í neytendamálum fyrir gesti vefsvæðisins. „Markmiðið með vefsvæðinu neytandi.is er að skapa aðgengilegan vettvang fyrir neytendur með sín mál- efni og að reyna að brúa bilið á milli neytenda og fyr- irtækja. Á vefsvæðinu eru jafnframt upplýsingar um hvert fólk eigi helst að leita ef fyrirspurnir þess rúmast ekki innan þeirrar þjónustu sem neytandi.is býður upp á, segir hann ennfremur. „Á vefnum eru birtar greinar og pistlar er varða neytendamál og eru gestir síðunnar hvattir til að taka þátt í umræðunni hvort sem það er með greinaskrifum eða á spjallsvæði. Fyrirtækjum er einnig gefinn kostur á að kynna sig og sína neytenda- og markaðsstefnu og þar með nálg- ast neytendur á annan hátt en hægt er með hefð- bundum auglýsingum,“ segir Jón Grétar Ólafsson að síðustu. Nýr vefur um neytendamál NEYTENDUR 24 FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ eykur orku, þrek og vellíðan N O N N I O G M A N N I | Y D D A N M 0 6 1 3 4 /s ia .i s Angelica www.sagamedica.com Angelica fæst í apótekum, heilsuvörubúðum og heilsuhornum matvöruverslana. Jakobína Björnsdóttir, Hafnarfirði: „Ég fór að taka Angelicu vegna þess að ég hafði lengi verið slæm í maga. Magaóþægindin minnkuðu og því til viðbótar varð ég bæði kraftmeiri og mér líður mun betur.“ BÓNUS Gildir frá 25.–28. apríl nú kr. áður kr. mælie. Heimilisbrauð, 700 g ............................. 129 169 184 kg Bónus ís ............................................... 99 189 99 ltr Bónus pizza, 450 g ................................ 189 279 420 kg Núðlur, 85 gr í pk. .................................. 25 29 294 kg Frosið kjötfars ....................................... 299 449 299 kg Gold kaffi, 500 g ................................... 179 nýtt 358 kg Frosið nautahakk ................................... 575 863 575 kg SS pylsupartí ........................................ 899 nýtt 899 kg Ali beikon ............................................. 909 1.169 909 kg Andrex wc pappír, 9 rúllur....................... 599 nýtt 66 st. ESSÓ-stöðvarnar Gildir til 30. apríl nú kr. áður kr. mælie. Bounty, 57 g ......................................... 59 75 1.040 kg Mars King Size, 85 g.............................. 85 105 1.000 kg Snickers King Size, 100 g....................... 85 105 850 kg Kexsmiðjan kanilsnúðar, 400 g ............... 199 289 500 kg Kexsmiðjan sælusnúðar, 400 g............... 199 289 500 kg Skyr.is 3 teg., 170 g .............................. 79 80 470 kg 11-11-búðirnar og KJARVAL Gildir 24. apríl–1. maí nú kr. áður kr. mælie. Gourmet lambalæri kryddað ................... 1.096 1.461 1.096 kg Perur .................................................... 149 269 149 kg Bluecare color þvottaefni ....................... 349 398 349 kg Bluecare ultra þvottaefni ........................ 349 398 349 kg Bluecare uppþvottalögur ........................ 169 198 338 ltr Sunnudagskakan: sjónvarpskaka............ 260 519 604 kg HAGKAUP Gildir 24.–28. apríl nú kr. áður kr. mælie. Kjarnafæði rauðvínslegið lambalæri ........ 899 1.389 899 kg Nestlé Monster Multipack, 300 g ............ 339 449 1.100 kg Nestlé Lion Bar ís, 4 st., 221 g ............... 349 498 1.500 kg Nestlé Mini Mickey multipack, 270 g....... 299 399 1.100 kg McCain Gourmet eplakaka, 500 g........... 499 659 998 kg McCain Gourmet bláberjakaka, 500 g ..... 499 659 998 kg McCain Gourmet kirsuberjakaka, 500 g... 499 659 998 kg KÁ-verslanir Gildir 24. apríl–1. maí nú kr. áður kr. mælie. Salatblanda Frissé................................. 229 325 1.145 kg Úrvalssalatblanda.................................. 229 325 1.145 kg Klettasalatblanda.................................. 229 378 2.290 kg Bökunarkartöflur í lausu ......................... 139 195 139 kg Bernaissósa, 270 ml, Úrvals................... 169 229 625 ltr Piparsósa, Úrvals, 270 ml ...................... 159 219 588 ltr Salatdressing fitulaus, Úrvals.................. 139 198 278 ltr Chocolate Chip, súkkulaðibitakex ............ 113 225 502 kg KRÓNAN Gildir 24. apríl–1. maí nú kr. áður kr. mælie. Hunt́s BBQ grill svínakóttilettur................ 1.166 1.458 1.166 kg Hunt́s BBQ grill lambalærisneiðar ........... 1.367 1.709 1.367 kg Egg, Flúða............................................. 244 348 244 kg Egg, Grímstaðir...................................... 244 348 244 kg Epli konfekt 1,36 kg .............................. 159 198 116 kg Hvítkál íslenskt...................................... 99 138 99 kg Kartöflur í lausu ..................................... 49 79 49 kg SAMKAUP/ÚRVAL Gildir 24.–29. apríl nú kr. áður kr. mælie. Nescafe Cappuccino, 125 g ................... 231 289 1.848 kg Hatting hvítlauksbr. 2 st., 300 g .............. 255 319 850 kg Hatting ostabrauð 2 st., 300 g ................ 246 289 820 kg River Rice, 2 lbs. ................................... 207 244 228 kg Findus wok-grænmeti, 500 g .................. 323 404 646 kg Findus wok-grænm. fínsk., 450 g............ 280 329 622 kg Findus kanelsnúðar, 420 g..................... 343 429 816 kg Findus vínarbrauð.................................. 343 429 816 kg Kit Kat 3 stykkja .................................... 178 209 60 kg Lion bar 4 stykkja .................................. 263 309 38 kg Lambaskrokkar í 1/2 grillsagaðir ............ 499 596 499 kg SPARVERSLUN, Bæjarlind Gildir til 26. apríl–5. maí nú kr. áður mælie. Lambalæri niðursneitt ............................ 789 1.099 789 kg Lambaframpartur niðursn. ...................... 398 659 398 kg Lambafile ............................................. 1.839 2.299 1.839 kg Lambahryggur ....................................... 879 1.099 879 kg Lambakótilettur ..................................... 1.038 1.298 1.038 kg Lambalærisneiðar, 1 fl. .......................... 1.095 1.369 1.095 kg Lambalæri heilt ..................................... 847 1.059 847 kg UPPGRIP-verslanir OLÍS Apríl tilboð nú kr áður kr. mælie. Freyju lakkrísdraumur stór ...................... 89 110 Rolo kex ............................................... 199 nýtt Toffy Crisp ............................................. 85 99 Fresca ½ ltr plast .................................. 109 140 ÞÍN VERSLUN Gildir 25. apríl–1. maí nú kr. áður kr. mælie 4 hamborgarar m/brauði ....................... 311 389 311 pk. 1944 lasagne ....................................... 327 409 327 pk. 1944 stroganoff .................................... 327 409 327 pk. Tilda basmati hrísgrjón ........................... 329 367 329 kg Tilda Royal Korma sósa, 350 ml ............. 289 353 809 kg McCain Superfries franskar .................... 299 358 299 kg Kraft salatdressing, 250 ml .................... 139 187 556 kg Fíla karamellur, 200 g............................ 229 279 1.145 kg Helgartilboð Verðupplýsingar sendar frá verslunum Grænmeti víða á tilboðsverði SPARVERSLUN í Bæjarlind verður með útsölu á lamba- kjöti frá Fjallalambi frá 26. apríl til 5. maí, samkvæmt til- kynningu frá versluninni. Gef- inn verður 20% afsláttur af öllu lambakjöti, segir ennfrem- ur. Rúnar Marvinsson kokkur kemur í verslunina frá veit- ingastaðnum Við Tjörnina, kynnir lambakjöt og gefur góð ráð. Verður hann á staðnum frá klukkan 16 föstudag og laugardag, segir loks. Útsala á lambakjöti hjá Spar- verslun HEILDVERSLUNIN Karl K. Karlsson hf. hefur byrjað inn- flutning á ýmsum nýjungum í ítalskri matargerð, sem meðal annars voru kynntar á Mat 2002, segir Eygló B. Ólafsdóttir mark- aðsstjóri. Fyrst ber að nefna þurrkaða ítalska kóngasveppi frá Merlini. Um er að ræða tvo gæðaflokka í tvenns konar um- búðum, það er í pokum og á bakka. Í pokum eru miðlungs- góðir kóngasveppir og sveppir í hæsta gæðaflokki í bökkum. Þurrkaða kóngasveppi á að láta liggja í ísköldu vatni í að minnsta kosti 20 mínútur áður en þeir eru matreiddir, að henn- ar sögn. Drogheria & Alimentari er ítalskt fyrirtæki frá 1880, stað- sett í Toscana, og sérhæfir sig í kryddum og kryddolíum. „Hér eru á ferðinni úrvals kryddjurtir í glerkrukkum sem allar bera innbyggða kvörn sem viðhalda ferskleika. Kryddolíurnar eru eingöngu náttúrulega bragð- bættar úr kryddjurtum sem liggja í blöndu af vínberja- kjarnaolíu og ólífuolíu. Um er að ræða blöndu fyrir kjöt og fisk auk chilli-, basil-, trufflu-, og hvítlauksolíu,“ segir hún. Ítalski matvöruframleiðandinn Saclá kynnti fjölmargar nýj- ungar á sýningunni, segir Eygló ennfremur. Sem dæmi má nefna nýja línu af pastasósum þar sem tómatar eru uppistaðan. „Um er að ræða þrjár tegundir, það er með kirsuberjatómötum, ólífum og hvítlauk og ristuðum papr- ikum. Ný lína af Saclá pestó var einnig kynnt í fyrsta skipti á Mat 2002, það er pestó úr svört- um ólífum, grilluðu eggaldini og grilluðum paprikum. Einnig var kynnt lína af grilluðu grænmeti, það er kúrbít, eggaldini og papriku. Þá var kynnt ný lína af pastasósum fyrir stóreldhús frá Saclá,“ segir hún. Þá má nefna nýja gerð af völdum túnfiski frá Callippo, sem er ítalskt fyrirtæki frá Calabriu á Suður-Ítalíu. Um er að ræða túnfisksteikur í gler- krukkum sem geymdar eru í ólífuolíu til þess að tryggja há- marksbragðgæði. Eygló segir að fyrrgreindar nýjungar muni skila sér í hillur verslana á næstu vikum en þær fást nú þegar í Fjarðarkaupum, Nýkaupum, Melabúðinni, Osta- búðinni við Skólavörðustíg og Hjá Jóa Fel. Ítalskur kóngasveppur. Túnfisksteikur í krukkum. Krydd og kryddolíur af ýmsu tagi. Sósur úr tómötum, ólífum, eggaldini, grillað grænmeti og fleira. Ítalskur kóngasveppur og túnfisksteikur í krukkum Ýmsar nýjungar í ítölskum mat- vörum voru kynntar á Mat 2002 Morgunblaðið/Emilía Endurnýjun hjá Bern- harði Laxdal VERSLUNIN Bernharð Laxdal, Laugavegi 63, ein elsta kvenfata- verslun landsins, hefur gert gagn- gerar breytingar á innréttingum í verslun sinni en þær hafa verið óbreyttar í 18 ár. „Bernharð Laxdal klæðskeri stofnaði verslun sína á Akureyri 15. nóvember árið 1938, þar sem hún var rekin fram á 8. áratuginn. Í desem- ber 1959 var opnuð verslun í Reykja- vík undir sama nafni í Kjörgarði við Laugaveg, þar sem þá var opnuð fyrsta verslunarmiðstöðin á Íslandi. Þar var hún í mörg ár með umfangs- mikinn rekstur og voru oft sjö af- greiðslukonur að störfum í einu,“ segir Guðrún Axelsdóttir. Verslun Bernharðs Laxdals flutti í núverandi húsnæði árið 1984 og hef- ur í seinni tíð selt dragtir og annan kvenfatnað frá Gerry Weber, sem og kápur frá Maura að hennar sögn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.