Morgunblaðið - 28.05.2002, Blaðsíða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 21
STERKIR hafstraumar torvelduðu í
gær leitina að flugritum Boeing 747-
200 þotu China Airlines sem fórst
úti fyrir strönd Taívans á laugardag-
inn með 225 manns. Rannsóknar-
fulltrúar hafa tvisvar talið sig hafa
greint merki frá flugritunum, en í
hvorugt skiptið var í raun um þá að
ræða.
Sagði yfirmaður taívanska flugör-
yggisráðsins að straumarnir kunni
að hafa borið flugritana á brott frá
þeim stað sem þeir voru taldir hafa
verið á. Þá kunni merkin sem
greindust að hafa komið frá ein-
hverjum þeirra fjölmörgu skipa og
báta sem taka þátt í leitinni að braki
úr vélinni og líkum þeirra sem fór-
ust.
Flugritarnir, sem hafa að geyma
tæknilegar upplýsingar um stjórn-
tæki vélarinnar og segulbandsupp-
töku úr stjórnklefa hennar, eru tald-
ir munu veita bestu vísbendingarnar
um hvað hafi valdið því að vélin, flug
CI 611 frá Taipei til Hong Kong,
brotnaði í fernt 20 mínútum eftir
flugtak í góðu veðri.
Á ratsjám mátti sjá að vélin
brotnaði í fjóra hluta og þeyttist
einn hlutinn hratt aftur á bak en hin-
ir þrír héldu áfram í sömu stefnu og
vélin hafði verið í. Þykir þetta benda
til að sprenging hafi orðið um borð.
Rannsóknarfulltrúar vilja ekkert
segja um hugsanlegar orsakir, en
ekkert þykir benda til að um hryðju-
verk hafi verið að ræða, eða að þotan
hafi orðið fyrir flugskeyti. Til greina
þykir koma að málmþreyta hafi
valdið því að vélin brotnaði. Hún var
22 ára gömul og ætlaði flugfélagið að
taka hana úr notkun í næsta mánuði.
Sprenging í eldsneytistanki?
Einnig þykir mögulegt að spreng-
ing hafi orðið í eldsneytistanki eða
farangursrými vélarinnar. Haft er
eftir flugmálasérfræðingum að lík-
indi séu með þessu slysi og því þegar
Boeing 747-100 þota bandaríska
flugfélagsins TWA fórst úti fyrir
New York 1996 og með henni 230
manns. Niðurstaða rannsóknar á því
slysi var sú, að sprenging hafi orðið í
eldsneytistanki með þeim afleiðing-
um að vélin brotnaði á flugi.
Enn hafa þó ekki fundist nein
merki um bruna á þeim hlutum sem
fundist hafa úr flaki taívönsku vél-
arinnar. Sagði talsmaður flugörygg-
isráðsins að þó væri of snemmt af
hafna kenningunni um sprengingu,
þar eð ekki væri búið að finna neina
stóra hluta úr flakinu.
Rannsóknarfulltrúar frá banda-
ríska Samgönguöryggisráðinu komu
til Taívans í gær og taka þátt í rann-
sókninni, vegna þess að þotan var
smíðuð í Bandaríkjunum. Fulltrúar
Boeing-verksmiðjanna voru þegar
komnir á staðinn. Í gær höfðu um 80
lík fundist. Um borð voru 206 far-
þegar og 19 manna áhöfn.
Vísbending um
sprengingu um borð
)*+ ,-,
!
!"# $"# %&'$&(
-
#"
!
#
.
!/0/&112
#"
3
4
!5!
5!
#!
6
#
-
#"
(
"#$! % & & $'('
!)$
&$ &$(
(* *
!( $
$ #! +#!
- 7 % 8
-7% -
6!
9
:!
!
!!
, &$!
-! ..$( & $
$'/!(
& # ..0!( (! $'/!$1('
& 2!!* "
& & 2
(
$! 3
*
$ 2!! %& 1
!!
(( &! $
!
$ 3
$/ &
!
' )$#(
(!
($ &(
$ %&
! 3#$!!*
! "#$
4#
! 3#$ & 5 6%!
(# & 7
(! %. & 8 2$$
(#$ & &*
%& #
9:; 3#$ & 6%! <#$%
! %.
'/!! # &/$ -# 88 $!
! ' ' %() 3#$ =5 %.
<
> ?#( 8
-
!!$!( .((*
* + ! , '( + '
)-+./+ '
0
@( 1$ $' -#$! 2! &
!$
)
* &
$ %1
!( 1!'
9$!(
3
!
!
;
<!
"
2
##
!
;
AP
Brak úr þotunni flutt á land á
Penghu-eyju í gær.
Penghu á Taívan. AP.