Morgunblaðið - 28.05.2002, Blaðsíða 28
UMRÆÐAN
28 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STOFNUN Sigurðar Nordals hef-
ur forgöngu um íslenskukennslu er-
lendis, umsjón með kennslu sem
studd er af íslenskum stjórnvöldum
og annast þjónustu við íslenskukenn-
ara við háskóla í öðrum löndum. Ís-
lensk stjórnvöld hafa á undanförnum
árum styrkt 14 lektorsstöður í ís-
lensku við jafnmarga háskóla í Evr-
ópu. Um er að ræða launaframlag til
lektoranna, ferðastyrk til að sækja
árlegan lektorafund og bókastyrk til
kennarastólanna. Á síðasta fjárlaga-
ári hafði stofnunin 3,7 milljónir til
þessa málaflokks. Auk þess styrkti
menntamálaráðuneytið íslensku-
kennslu við University College Lond-
on með um 2 milljón kr. framlagi.
Stjórnvöld hér á landi hafa nýlega
lagt fram umtalsvert fé til Manitoba-
háskóla til að efla kennslu í íslensku
og vestur-íslenskum fræðum þar og
bæta aðstöðu bókasafnsins. Frá árs-
byrjun 2002 verður íslenskukennsla
við skólann studd með árlegu fram-
lagi. Þá hefur verið skrifað undir
samning um stuðning
við íslenskukennslu við
Humboldt-háskóla í
Berlín og hefur lekt-
orsstaðan verið auglýst
laus til umsóknar.
Vegna þessara tveggja
samninga var fjárveit-
ingin til íslensku-
kennslu erlendis hækk-
uð um 4 milljónir á
þessu fjárlagaári.
Stofnun Sigurðar Nor-
dals hefur því nú 8,2
milljónir til ráðstöfunar
til íslenskukennslu er-
lendis.
Á síðustu árum hef-
ur verið óskað eftir frekari stuðningi
við kennslu í nútímaíslensku í Aust-
urríki, Ungverjalandi og Japan. Enn
þá hefur ekki verið tekin afstaða til
beiðna þessara enda er unnið að end-
urskoðun á stuðningi við íslensku-
kennslu erlendis í kjölfar þess að
menntamálaráðuneytið lét gera út-
tekt á kennslu í nútímaíslensku við er-
lenda háskóla.
Sumarnámskeið
Skoða má sumarnámskeið í ís-
lensku við Háskóla Íslands sem
stuðning við íslenskukennslu erlendis
því að þau sækja jafnt nemar sem
hafa fengið byrjendakennslu erlendis
og nýnemar sem ekki hafa átt kost á
íslenskukennslu við sína heimaskóla.
Heimspekideild og Stofnun Sigurðar
Nordals bjóða upp á sumarnámskeið
fyrir erlenda námsmenn í júlí ár hvert
og verður það haldið í sextánda skipti
nú í sumar. Menntamálaráðuneytið
styrkir námskeiðshaldið fjárhags-
lega. Aðsókn að þessum námskeiðum
hefur verið miklu meiri en unnt hefur
verið að sinna.
Leitað hefur verið leiða til að auka
framboð á sumarnám-
skeiðum í íslensku til að
koma til móts við eftir-
spurn. Stofnun Sigurðar
Nordals hélt snemm-
sumars 2001 í fyrsta
skipti sex vikna nám-
skeið í íslensku í sam-
vinnu við Minnesota-há-
skóla, fóru fyrri þrjár
vikur námskeiðsins fram
í Minneapolis en síðari
þrjár hér í Reykjavík.
Námskeiðið tókst afar
vel og verður það í boði
aftur á þessu ári.
Menntamálaráðuneytið
styrkir námskeiðið.
Fjarkennsla
Í úttektinni á íslenskukennslu er-
lendis, sem áður var vikið að, er lögð
áhersla á að að koma á fjarkennslu í
íslensku með samvinnu kennara í Há-
skóla Íslands og sendikennara í ís-
lensku erlendis. Eins og oft hefur ver-
ið bent á háir kennsluefnisskortur
kennslu í íslensku sem erlendu máli.
Til að takast megi að fjarkenna út-
lendingum íslensku þarf að búa til
fjarkennsluefni á Netinu. Íslensku-
skor heimspekideildar Háskóla Ís-
lands, Stofnun Sigurðar Nordals og
Norðurlandadeild Wisconsin-háskóla
í Bandaríkjunum hafa tekið höndum
saman um að búa til sjálfsnámsefni á
Netinu sem síðar væri unnt að nota
við fjarkennslu. Hefur fengist nokk-
urt fjármagn hér á landi og fyrir vest-
an til að hrinda verkinu af stað. Áki G.
Karlsson BA var ráðinn fyrir tæpu ári
til að hafa umsjón með gerð námsefn-
isins og afla frekara fjár til verkefn-
isins, sem kallast á ensku „Icelandic
On-line“. Ritstjórn verkefnisins hér á
landi skipa: Birna Arnbjörnsdóttir
stundakennari í kennslufræði tungu-
mála við Háskóla Íslands, Úlfar
Bragason forstöðumaður Stofnunar
Sigurðar Nordals og Þóra Björk
Hjartardóttir dósent í íslensku.
Námsefnið „Icelandic On-line“ á að
geta samsvarað misserisnámi í ís-
lensku fyrir erlenda stúdenta á há-
skólastigi. Vonast er til að fyrsti hluti
þess verði tilbúinn í haust ef nægilegt
fjármagn fæst til að halda verkinu
áfram.
Áhugi útlendinga á að læra ís-
lensku fer stöðugt vaxandi. Nú nema
á annað þúsund stúdentar íslensku
við erlenda háskóla árlega. Stöðugt
fleiri skiptistúdentar koma hingað til
lands og nema m.a. íslensku við Há-
skóla Íslands. Sjálfsnámsefni á Net-
inu og fjarkennsla í íslensku tengd því
gæti í framtíðinni ekki aðeins orðið til
að styðja við íslenskukennslu fyrir út-
lendinga, sem þegar er stunduð hér
og erlendis, heldur einnig komið að
miklu gagni þeim fjölmörgu víða um
heim sem hafa hingað til leitað sér að
námsefni í íslensku án árangurs.
Íslenskukennsla
erlendis
Úlfar Bragason
Nám
Á annað þúsund
stúdentar, segir Úlfar
Bragason, nema
íslensku við erlenda
háskóla árlega.
Höfundur er forstöðumaður
Stofnunar Sigurðar Nordals.
fjörutíu prósent at-
kvæða og bætti fjórtán
prósentum við fylgi
sameiginlegs framboðs
frá síðustu kosningum.
Þetta er stórbrotin ár-
angur hjá nýju stjórn-
málaafli og er ein mesta
fylgisaukning á landinu
hjá nokkrum flokki.
Félagshyggju-
frakkinn
Mestu skiptir sigur-
inn í höfuðborginni þar
sem Reykjavíkurlistinn
undir stjórn Ingibjarg-
ar Sólrúnar sigraði í
þriðja sinn og Sjálfstæðisflokkurinn
liggur móður og sár í valnum. Fé-
lagshyggjufrakkinn fór flokknum illa
enda sáu kjósendur í gegnum tví-
skinnunginn og höfnuðu honum.
Sjálfstæðisflokkurinn stormaði inn á
miðjuna og taldi sig trúverðugan val-
kost við Reykjavíkurlistann með fé-
lagslegum yfirboðum. Árangur
flokksins í ríkisstjórn talar hins vegar
sínu máli um hið sanna eðli hans og
hver man ekki eftir hrottaskapnum í
garð öryrkja þegar hinn frægi ör-
yrkjadómur féll?
Góður árangur Samfylkingarinnar
gefur tóninn fyrir kosningarnar á
næsta ári og sýna að sóknarfæri
vinstrimanna eru mörg á næstunni.
Styrkur nýju flokkanna hefur verið
mældur og Samfylking er greinilega
það sameiningarafl félagshyggjufólks
sem að var stefnt og eini raunverulegi
valkosturinn við Sjálfstæðisflokkinn.
NÝAFSTAÐNAR
sveitarstjórnarkosning-
ar voru um margt sögu-
legar. Samfylkingin
sannaði sig sem nýtt og
sigursælt forystuafl
vinstra megin við miðju
stjórnmálanna. Hreinn
meirihluti í Hafnarfirði,
fjörutíu prósent fylgi í
Árborg og almennt góð
útkoma þar sem flokk-
urinn nýtur að jafnaði
fylgis þriðjuungs þjóð-
arinnar er glæsileg út-
koma fyrir nýjan flokk.
Samfylkingarsigrar
Samfylkingin í Hafn-
arfirði vann góðan sigur þar sem
flokkurinn fékk hreinan meirihluta.
Það er glæsilegur árangur enda ráku
hafnfirskir jafnaðarmenn einhverja
fagmannlegustu kosningabaráttu
sem sögur fara af á sveitarstjórnar-
stiginu. Í Árborg vann Samfylkingin
stóran og sögulegan sigur. Fékk rúm
Sögulegur
kosningasigur
Björgvin G.
Sigurðsson
Árborg
Góður árangur Sam-
fylkingarinnar, segir
Björgvin G. Sigurðsson,
gefur tóninn fyrir kosn-
ingarnar á næsta ári.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar og
kosningastjóri flokksins í Árborg.
JARÐVATNSBARKAR
Stærðir 50—100 mm
Lengd rúllu 50 m
Tilvalið þar sem ræsa
þarf fram land. Vara
sem vinnur með þér,
auðveld í meðhöndlun.
Ármúla 21, sími 533 2020
Stærðir 50—80
og 100 mm.
Lengd rúllu 50 mtr.
Tilvalið þar sem ræsa
þarf fram land. Vara
sem vinnur með þér,
auðveld í meðhöndlun.
• Jákvæða sjálfsmynd
• Líf í kærleika og gleði
• Að finna drauminn sinn og leiðir til að
láta hann rætast
• Heilun, hómópatía, hugleiðsla, slökun,
hreyfing o.fl.
• Gestafyrirlesari verður Edda Björgvins
HAMINGJUHELGI
3 daga námskeið fyrir konur helgina
21.–23. júní í Sólheimum í Grímsnesi
þar sem m.a. verður unnið með:
fyrir konur
Nánari upplýsingar:
Sólbjört Guðmundsdóttir,
reikimeistari og kristallaheilari,
s. 862 4545
Martha Ernstdóttir, hómópati,
sjúkraþjálfari, s. 863 8125
Guðrún Óladóttir, reikimeistari,
ráðgjafi, s. 897 7747